Þjóðviljinn - 19.12.1990, Síða 2

Þjóðviljinn - 19.12.1990, Síða 2
FRÉTTIR Kvóti smábáta \ bága við stjómarskrána Kristinn Pétursson: Atvinnuréttindi á sviðifiskveiða eru eignarréttindi. Björn Valur Gíslason: Togarar þurfa að veiða helmingi meira til að fylla tonnið en smábátar ristinn Pétursson, Sjfl., hef- ■* ur ritað sjávarútvegsnefnd Neðri deildar bréf þar sem hann æskir þess að nefndin fái tii Iiðs við sig þrjá færustu starfandi lögmenn i stjórn- sýsiurétti til að kanna hvort út- hlutun á kvóta smábáta brjóti í bága við stjórnarskrána og hann krefst þess að lög um físk- veiðistjórnun frá því í vor verði endurskoðuð með þetta í huga. Þetta upplýsti þingmaðurinn við utandagskrárumræður um kvóta smábáta í Sameinuðu þingi á mánudag. í máli sínu vitnaði Kristinn í skýrslu lagastofiiunar Háskóla Islands þar sem fram Revkholt Félagsmálaskól- inn á sögustað Meginsjónarmið okkar er að halda uppi starfsemi og reisn staðnum til framdráttar, sagði Snorri Þorsteinsson, fræðsiustjóri Vesturlands, þeg- ar hann var inntur eftir því hvernig heimamönnum litist á þá hugmynd að Félagsmála- skóli alþýðu verði fluttur í Reykholt. -Reykholt er einn af héraðs- skólum landsins sem hefur dagað uppi í kerfinu, sagði fræðslustjór- inn ennffemur. Snorri Konráðsson, fram- kvæmdarstjóri Menningar- og fræðslusambands alþýðu, sagði þá vera þeirrar skoðunar að ekki ætti að ráðast í nýbyggingar þegar talsvert væri til af ónýttu húsnæði. Hins vegar þyrfti mikið að lag- færa og endurbæta í Reykholti áð- ur en staðurinn hentaði Félags- málaskóla alþýðu. Eingöngu end- urbætur á lögnum og veitukerfi myndu kosta u.þ.b. 20 miljónir króna. Gerð hefði verið úttekt á því sem þyrfti að breyta og bæta. Til dæmis mætti nefna að sund- laug inni í húsi skemmdi út frá sér, sumum byggingum hefði aldrei verið fulllokið og úr fleiru þyrfti að bæta. Aætlað er að nauð- synlegar lagfæringar kosti hátt í 200 miljónir króna. Að sögn Snorra Konráðssonar hefúr Fé- lagsmálaskólinn ekki bolmagn til að kosta nauðsynlegar breytingar. Málið er nú í biðstöðu þar til stjómvöld hafa ákveðið hvort þau treysti sér til þess að ábyrgjast það fjármagn sem til þarf. Þrátt fyrir að nokkuð kostnað- arsamt virðist vera að gera nauð- synlegar lagfæringar í Reykholti er það vænni kostur en að byggja nýtt hús undir Félagsmálskólann. Þá dygðu 200 miljónir skammt, sagði Snorri Konráðsson. Að sögn Snorra Þorsteinsson- ar fræðslustjóra voru aðrar hug- myndir ræddar en sú að nýta hús- næðið undir Félagsmálaskólann, t.d. að setja þar á fót menntaskóla með bekkjardeildum eða fjöl- brautaskóla með ferðamálabraut. Hvorugur þessi kostur hlaut al- mennan hljómgrunn. Fræðslustjórinn sagði málið vera í biðstöðu á meðan stjóm- völd gerðu upp við sig hvort þau gætu lagt fram fé til endurbóta, og væri sú biðstaða óþægileg fyrir alla aðila. Félagsmálaskólinn er nú til húsa í Olfusborgum við Hvera- gerði. Til þess að skólinn geti aukið starfsemi sína; boðið upp á lengra nám og fleiri námskeið, þarf stærra og hentugra húsnæði en það sem hann hefúr nú yfir að ráða. BE kemur að atvinnuréttindi teljist eign og njóti þar með vemdar 67. gr. stjómarskrárinnar um ffið- helgi eignarréttarins og jafhréttis- regluna. En lagastofnunin telur að atvinnuréttindi þau sem menn hafa helgað sér á sviði fískveiða séu eignarréttindi. Einnig telur Kristinn lögin bijóta í bága við 69. greinina um takmörkun at- vinnuffelsis. Það var Bjöm Valur Gíslason, Abl., sem hóf umræðuna og gagnrýndi hann harkalega sjávar- útvegsráðherra Halldór Ásgríms- son fyrir að hyggja ekki að afleið- ingum tilraunaúthlutunarinnar á líf fólksins f sjávarplássunum og á byggð í landinu. Sérstaklega ætti þetta við um pláss einsog Borgarfjörð eystra, Bakkafjörð og Grimsey sem byggðu nær ein- göngu á útgerð smærri báta. Hann benti á að með því að markaðssetja kvótann gætu stærri fyrirtæki keypt upp kvóta smá- báta sem hefði þær afleiðingar að fiskurinn nýttist verr. Hann sagði að 10-12 tonna bátur þyrfti um 220-30 fiska í tonnið þar sem möskvastærðin er stærri en hjá t.d. ffystitogurum. Þessi fiskur væri um 4-5 kg. og nýttist næst- um allur. Frystitogaramir þyrftu hinsvegar minnst 500 fiska í tonnið, því þeir væm um 2 kg. hver, og nýttu einungis flökin, því öllu öðra væri hent. Þannig, sagði Bjöm Valur, felst ekki í tilrauna- úthlutuninni hagræðing heldur skerðing á skerðingu ofan. Sjávarútvegsráðuneytið sér sér ekki fært að láta þingmönnum i sjávarútvegsnefnd Efri deildar f té vinnulistann yfir þessa til- raunaúthlutun til smábáta, en for- seti deildarinnar fór þess á leit við ráðherrann að slíkt yrði gert. Áð- ur hafði forseti Sameinaðs þings verið beðin um að leita effir því að nefndarmenn fengju gögnin, en hún taldi sig ekki geta orðið við því. Sem fyrr telur ráðuneytið að um viðkvæm vinnugögn sé að ræða, en telur sig geta veitt upp- lýsingar um einstök atriði sem spurt er um. Nefndarmenn í sjávarútvegs- nefndinni sem ekki sætta sig við þetta svar báðu í gær um skýrslu um úthlutunina bæði tilraunaúthlutunina og eins hvað breytingum hún tekur í meðforunum og hvemig úthlutunin verður endanleg. Það er ekki óvenjulegt að biðja um skýrslu af þessu tagi. -gpm Fljúgöu hærra. Búast má við miklu annríki á næstunni hjá flugfélögum landsins við að koma farþegum I tæka tíð til slns heima áður en jólahá- tíðin gengur (garð. Jóhann Rúnarsson sjö ára hafði þó litlar áhyggjur af því þar sem hann var að skemmta sér I þessu leiktæki við biðsal inn- landsflugs Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli. Mynd: Jim Smart. Ferenc Bokány með dóttur sinni Bokány í Pottinum eftirjól Þau mistök áttu sér stað í Þjóðviljanum í gær að sagt var að tónleikar ungverska bassaleikar- ans Ferenc Bokány yrðu í Heita pottinum í Púlsinum annaðkvöld. Hið rétta er að tónleikamir verða viku seinna, fimmtudaginn 27. desember og hefjast kl. 22. Vetrarsólstöðuganga Náttúravemdarfélag Suðvest- urlands stendur fyrir sólstöðu- göngu sem hefst á föstudags- kvöld á miðnætti og lýkur á mið- nætti laugardags. Gangan hefst í Sundahöfn og verður farið með Maríusúð Hafsteins út í Viðey. I Viðey verður kveikt bál á Kríus- andi og komið aftur í Sundahöfn kl. 3.30 Kl. 9.30 verður gengið um Húsdýragarðinn og þaðan upp á Laugarásinn. Þar verður hópurinn við sólarapprás kl. 11.22. Kl. 13.30 verður gengið innst úr Vogavík undir Stapanum út fjörana. Kl. 21 verður sýningin Hvað er vistfræði skoðuð í Nátt- úraffæðistofnun Kópavogs Digranesvegi 12. Að því loknu verður kvöldganga á Borgarholt og stjömur skoðaðar ef skýjafar Gunnar Bjamason hrossaræktarráðunautur varð sjötfu og fimm ára f síðustu viku. í tilefni þess hélt hestamannafélagið Fákur honum hóf í fé- lagsheimili sfnu. Um tvö hundruð manns komu í hófið. Á myndinni eraf- mælisbarnið með hjónunum Frfðu Steinarsdóttur og Sigurbirni Bárðar- syni knapa. Mynd GTK. leyfir. Kvöldgöngu lýkur þar kl. 24. Þátttaka er öllum heimil og án alls kostnaðar. Hægt er að koma og fara hvenær sem er og verða fróðir menn með í öllum áfanga- göngum. Blysför friðarsamtaka Samstarfshópur friðarsam- taka gengst fyrir blysför niður Laugaveg í Reykjavík nk. laugar- dag. Gangan hefst á Hlemmi kl 18 og endar í Lækjargötu fyrir framan Torfuna. Blysförin á að minna á að baráttunni fyrir friði er hvergi nærri lokið. Blys verða seld á staðnum og hefst sala þeirra stundaríjórðungi áður en gangan leggur af stað. Samstarfs- hóp friðarsamtaka mynda Friðar- hópur fóstra, Friðarhópur lista- manna, Friðarhreyfing íslenskra kvenna, Friðar- og mannréttinda- hópur BSRB, Friðarömmur, Menningar- og friðarsamtök ís- lenskra kvenna, Samtök her- stöðvaandstæðinga, Samtök ís- lenskra eðlisfræðinga gegn kjam- orkuvá, Samtök lækna gegn kjamorkuvá og Samtök um kjam- orkuvopnalaust Island. Verðlagsráð Gagnsleysið staðfest r FFSI lýsir fiurðu sinni yfir síðustu verðákvörð- un yfirnefndar Verð- lagsráðs í samþykkt framkvæmda- stjórnar Farmanna- og físki- mannasambandsins er það harm- að að ekki skyldi hafa náðst sam- komulag í Verðlagsráði sjávarút- vegsins um frjálst verð á botnfiski eða verði tengdu uppboðsmörk- uðum. Þá lýsir fundurinn fúrðu sinni yfir síðustu verðákvörðun yfir- nefndar Verðlagsráðsins, þar sem fúlltrúar kaupenda og útgerðar- manna sameinast um breytingu á verði botnfisks, sem er í engu sam- ræmi við það sem lög um Verðlags- ráð sjávarútvegsins kveða á um. Að mati stjómarinnar er með þessari ákvörðun enn á ný verið að staðfesta gagnsleysi Verðlagsráðs- ins við raunhæfa verðmyndun á sjávarfangi hér innanlands. Jafn- fíramt álítur FFSÍ að jafnvægi milli kaupenda og seljenda í ráðinu sé brostið, þar sem fúlltrúi útgerðar- manna telur sig eiga meiri samleið með fúlltrúum fiskvinnslunnar en sjómanna. -grh Bvggingarkostnaðar Vísitalan hækkar Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 10,6%. Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,3% sem samsvarar 9,6% árshækkun. Hagstofan hefúr reiknað vísitölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan desember. Reyndist hún vera 176,5 stig eða 1,4% hærri en í nóvember. Þessi vísitala gildir fyrir janúar 1991. Af hækkun vísitölunnar frá nóv- ember til desember má rekja um 1,0% til um 2,5% meðalhækkunar á töxtum útseldrar vinnu iðnaðar- og verkamanna 1. desember síðastlið- inn. Einnig hækkaði verð á inni- hurðum að meðaltali um 6,2% sem olli 0,2% vísitöluhækkun. Að öðru leyti má rekja hækkun vísitölunnar til verðhækkunar ýmissa efnis- og þjónustuliða. -grh Hulda Guðrún Geirsdóttir, Kristinn H. Árnason og Ólafur Vignir Al- bertsson. Ljóðatónleikar í Nor- ræna húsinu Hulda Guðrún Geirsdóttir sópran heldur ljóðatónleika í Norræna húsinu annað kvöld kl. 20.30. Á efnisskránni era verk eftir Sibelius, Berkeley og R. Strauss auk íslenskra ljóða. Með henni leika Olafur Vignir Al- bertsson á píanó og Kristinn H. Ámason á gítar. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 18. desember 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.