Þjóðviljinn - 19.12.1990, Page 4

Þjóðviljinn - 19.12.1990, Page 4
ÞJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar KLIPPT OG SKORIÐ EB-innrætingin Oftar en ekki dettur manni í hug að upplýsingaþjóðfé- lagið svonefnda sé gjörsamlega misheppnað. Með öðr- um orðum: Eftir því sem fjölmiðlum fjölgar og þeir breiða meira úr sér, því minna man fólk eða skilur af því sem þeir hella yfir augu og eyru. Gott dæmi er sú skoðanakönnun sem frá var sagt á dögunum og leiddi það í Ijós, að um fimmtungur þjóðar- innar heldur að íslendingar séu þegar komnir í Evrópu- bandalagið! (Þegar komið er að stuðningsmönnum Al- þýðuflokksins þá heldur þriðji hver að svo sé, og má um það hafa orð Grasa-Guddu: Þar hæfir skel tranti.) Þetta gerist þótt EFTA-viðræður og skyld mál séu í fréttum upp á dag hvern. Þetta gerist eins þótt Sjónvarpið sé með langa þáttasyrpu um málið. Og spyrja má: Erum við að breytast í svonefnt „áhorfendalýðræði" þar sem stór hluti þjóðarinnar lætur öll pólitísk mál framhjá sér fara, einnig þau sem ráða mestu um framtíð hvers og eins í þessu landi? Vel á minnst: Sjónvarpsþættirnir á þriðjudögum um Evrópubandalagið. Þeir eru stórgallaðir. Blátt áfram vegna þess, að þótt þess sé getið öðru hvoru í þeirri samantekt að það sé flókið mál og erfitt að semja við Evrópubandalagið eða ganga í það, þá eru allar áhersl- ur á það, að þessir erfiðleikar séu tiltölulega auðveldir í lausn. Altént verður útkoman jafnan sú þegar dæmin eru gerð upp, að kostirnir við að sækja um aðild að EB og ganga í það séu svo miklu meiri og þyngri á metum en aðrar leiðir. Þó ber mest á því að því sé leynt og Ijóst haldið að íslendingum í þessum þáttum að það sé eng- in leið önnurtil en sú sem liggur inn í Evrópubandalagið. Þessi útkoma fæst með því, að stjórnandi þáttarins talar fyrst og síðast við embættismenn, stjórnmálamenn og hagsmunaaðila í EB, sem yfirleitt eru allir í því að gylla sitt bandalag fyrir íslendingum sem öðrum: Kom, kom kom í frelsisherinn! Eða þá að talað er við stjórn- málafræðing eða tvo-þrjá menn hagfróða hér á landi, sem allir eru mjög hallir undir hina „sögulegu nauðsyn“ samrunans við Evrópu, sem er að verða einskonar söguleg nauðhyggja okkar tíma. Gott dæmi var þátturinn á þriðjudaginn fyrir viku: Hann var um sjávarútvegsmál. Þar var sífellt verið að spyrja ráðherra og embættismenn og hagsmunaaðila í útvegi á Spáni og Frakklandi - og svo þann stjórnmála- fræðing sem er að verða eilífur augnakarl í Evrópumál- um. Þeir íslendingar, hvort sem þeir koma úr sjávarút- vegi eða stjórnmálum, sem hafa helst varað við sjávar- útvegsstefnu EB komu hvergi við sögu (hvað sem síðar verður). Útkoman verður svo varla önnur en sú hjá sak- lausum sjónvarpsnotendum, að sjávarútvegsstefna EB sé ekki annað en hvert annað pappírstígrisdýr sem ís- lendingar geti auðveldlega snúið niður með því að láta kjósa „sinn mann“ sem fiskveiðikommisar í Brussel. Og fari létt með. Þáttarstjóri eyddi t.d. tölverðu púðri í það, að varla þyrftu menn að óttast að í kjölfar einskonar EB-aðildar yrði spænskum togurum hleypt inn í íslenska landhelgi. Vissu fleiri. Enda hafa menn sem efast um sírenusöng- inn sæta frá EB alveg eins gert ráð fyrir því, að skip skráð á íslandi og með íslenskum áhöfnum (eða amk reyndum skipstjórnarmönnum) veiði áfram fiskinn. Það kæmi ekki í veg fyrir annað: að fljótlega eftir að einhverri bráðabirgðaaðlögun lyki gætu íslensk útgerðarfyrirtæki komist í hendur erlendra matvælahringa og þar með flyttist fiskvinnsla að miklu leyti úr landi. Með dýrum af- leiðingum fyrir mörg fiskipláss og samfélagið í heild. En spurninga í þessa veru var varla hreyft í sjón- varpsþætti um íslenskan sjávarútveg og Evrópubanda- lag, hvað þá að sjónarmiðum andófs gegn nauðhyggj- unni væru gerð minnstu skil. Þetta er satt best að segja fyrir neðan allar hellur. ÁB --- 1 * Önnur grcin efíirEwöirKouráð. Jónsson ráránlcgt aö að l'!"1 a Evr- 8ia»n vnrð L i” »».W L®S' „rcidtlum við M aðgulcg réttiniti .. V. V .11 • ’ IW* lýlVSPO »wWi Vjt.n 'í'tS Ía eV-^ **■ 4 oWWar miðtun fyrir BrcU, va ,r\ eV vcrja. Við grc. beirritiilöguw GÁO®'V ,-uiU •OOJ' „AV Vannski \r Ct’C^<V' t rnar, i'v tV ■*v. 0-° eVV. ‘ ***pxNÁ. EyjólCv ir Ræðumekki umfisk „Rökin sem við beinum að ráðamönnum Evrópubandalags- ins eru margháttuð. Þessi má nefna: Árið 1972 sömdum við og Evrópubandalagið um viðskipta- og tollamál þar sem talið var að jafnræði ríkti þegar svoneínd bók- un 6 tæki gildi sem var 1976. Þá var jafnræði með aðilum sam- komulagsins. „Eitthvað hafði komið fyrir eitthvað,“ þ.e.a.s. gagnkvæm tollafriðindi höfðu komist á. Síðan raskaðist þetta við inngöngu Spánar og Portúgals í bandalagið eins og alkunna er. Rétt er það að innan Efna- hagsbandalagsins hafa verið uppi raddir um að krefjast þess að toll- fríðindi yrðu einhverskonar versl- unarvara gegn fiskveiðum í land- helgi annarra þjóða. Þetta hafa riki heims fjallað um í Gattvið- ræðunum og fordæmt algerlega. Þar stóðu Efnahagsbandalagsríkin einangruð. Engir aðrir léðu máls á því að tengja mætti saman fisk- veiðiheimildir og tollfríðindi. Við höfum ekkert ætlað okkur að ræða um neinn fisk, allt frá því að bókun 6 var gerð 1972 og tók gildi 1976. Þá fór síðasti breski togarinn út fyrir og mér datt ekki í hug, og ég held engum, að ein- hvemtíma síðar, kannski 15 árum eða þá tveim áratugum, svo að við notum nú þetta merkilega ártal 1992 sem allir eru að tala um, þá væri farið að ræða um að flotinn kæmi aftur. Það er fáránlegt að nokkrum Islendingi geti dottið í hug að það geti komið til greina að Evrópuflotinn fari að veiða hér aftur, 20 árum eftir að bandalagið samdi um það að fara út - hætta veiðum. Um þetta þarf auðvitað engin orð að hafa og sem betur fer hef ég fáa heyrt viðhafa nein slik orð að undanfomu. Þau eru dauð, búin, grafin og eiga auðvitað aldrei að koma til umræðu á Al- þingi íslendinga né annars staðar, áttu aldrei að koma til umræðu, og eiga aldrei að koma til umræðu.“ Eigum 200 mílumar „Þetta er mergurinn málsins og um þetta heyrist mér allir vera sammála. Eg held að menn ættu líka að vera sammála um það að við þurfum að taka upp tvihliða viðræður við Evrópubandalagið. Ekki ætla ég að fara að þræta mik- ið um það hvort það hefði átt að gerast í fyrra eða gerast nú. Það átti auðvitað að gerast í fyrra, en árið er liðið í aldanna skaut, eins og þar stendur og það er ástæðu- laust að fara að rifja þetta upp, það er lika liðin tíð. Umræðu við bandalagið ætti að hraða, undir það tóku bæði ut- anrikis- og forsætisráðherra í um- ræðum á Alþingi fyrir skömmu, og sá síðamefndi orðrétt: „Nú eig- um við að snúa okkur af fullum krafti að fá tollana fellda niður,“ þ.e. annað hvort með viðauka við bókun 6 eða gera sérsamninga, tala um tollamál og önnur almenn viðskipti, menningar- og sam- skiptamál yfir höfuð en alls ekki fiskveiðar. Þær eru ekkert á dag- skrá og hafa ekki verið. Allt frá árinu 1986 a.m.k. hafa íslendingar vandlega gætt þess í umræðum um samskipti við Evr- ópubandalagið að nota orðið „dia- log“ þegar reynt hefur verið að beina rabbumræðum inn á fisk- veiðisvið. Við eigum 200 milum- ar, það var viðurkennt í ferð Evr- ópustefhunefndar í fyrra, hún fór þá líka utan, af þeim sem fer með íslensk málefni í framkvæmda- stjóminni. Það væri alveg ljóst að íslendingar ættu 200 mílumar og enginn gæti gert neinar kröfiir til nokkurs innan þeirra. Það er alveg ljóst.“ Höfum öll spilin á hendi „Þess er líka að gæta að allir þeir ráðamenn sem ég hef kynnst í ferðum utanríkismálanefndar Al- þingis og Evrópustefnunefndar og auðvitað við mörg önnur tilefni vilja að íslendingar fái að vera Evrópuþjóð og þeir vilja að við njótum hagstæðra kjara. Á því er ekki minnsti vafi. Þessu geta eng- ir glutrað niður nema íslendingar sjálfir með glannalegum ummæl- um eða röngum ákvörðunum. Við höfum öll spilin á hendinni og ef við spilum hyggilega úr þeim þá er ömggt að við getum notið allra þeirra hagsbóta sem við leitum eftir hjá Evrópubandalaginu, án þess að fóma nokkm af því sem er okkur dýrmætast. Og fiskimiðin okkar varðveitum við hvað sem á gengur og eigum auðvitað að standa sameinuð um það eins og sjávarútvegsmennimir gera. Ef við veljum einhveija þeirra leiða sem okkur em opnar til samninga við Evrópubandalagið án inngöngu í það náum við öllu því fram sem við þörfhumst en fómum engu af því sem dýrmæt- ast er. Hin sameiginlega fiskveiði- stefha Evrópubandalagsins hvem- ig sem hún kann að verða þegar ffarn líða stundir nær þar af leið- andi aldrei til íslands.“ Sjálfsagt dettur lesanda fyrst í hug að hér sé klippari að sækja sér texta til valinkunnra Alþýðu- bandalags- eða Framsóknar- manna ellegar trúnaðarkonu Kvennalistans. Því fer þó fjarri því höfundur þeirra er þekktari af flestu öðm en því að vera hallur undir nokkurt fyrirbæri sem gæti kallast til vinstri eða mnnið af rót kvennahreyfinga. Höfundurinn heitir Eyjólfur Konráð Jónsson, og er alþingismaður fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í Reykjavík. Text- inn er tekinn úr grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið í gær og heitir: Jafnræði á að vera í sam- skiptum við Evrópubandalagið. Þjóðviljamenn hafa oft haft eitt og annað að athuga við málflutning Eykons, en í þetta sinn er ástæðu- laust að gera nokkrar athuga- semdir, ennþá síður að mótmæla þingmanninum, en rétt er að taka ffarn að millifyrirsagnir em Þjóð- viljans. hágé. ÞJÓÐVIUINN Síöumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: Siguröur Á. Friöþjófsson. Aðrir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur Þorleifsson, Elias Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson, Garðar Guðjónsson, Guömundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.). Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ólafur Gíslason, Ragnar Karisson, Saevar Guðbjómsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson. Auglýsingar: Sigriður Sigurðardóttir, Svanheiður Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir. Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradótir. Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrifstofa, afgreiðsia, ritstjóm, auglýsingar: Slðumúla 37, Rvík. Sími: 681333. Simfax: 681935. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð f lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. desember 1990 t.’vli', /.»>■>■( I i ý 4 i * * * y s

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.