Þjóðviljinn - 19.12.1990, Side 9

Þjóðviljinn - 19.12.1990, Side 9
[SLENSKA AUGLf SINGASTOFAN HF. Ámi Rergmann skrifar vim bókmenntir: Yður er í dag frelsari fæddur Böðvar Guðmundsson Bændabýti Iðunn 1990. Nú er best að demba sér í kli- sjumar og segja sem svo að fyrsta skáldsaga Böðvars skálds sé al- þýðleg skemmtisaga með döprum undirtónum. Oft hefði meiru ver- ið logið. Sagan rekur feril Þórðar Hlíð- ar, sem lagður var í jötu eins og sumir, fannst í fjósi og veit enginn hverra manna hann var (þótt við fáum svo sterkan grun um það áð- ur en lýkur). Hann elst upp hjá Lámsi bónda og ekkjumanni sem hefúr misst böm sin til Amríku, eða réttara sagt: þessi fóstri hans og ábyrgðarmaður fær vinnuhjú sín, Markús og Guggu, til að koma honum á legg, þetta fólk kemur honum í stað foreldra og afa. Nema hvað: drengurinn er ffá þvi hann veit af sér haldinn merkilegri ástríðu til kaupsýslu hverskonar, öll tækifæri notar hann til að kaupa og selja með ríf- legri álagningu - skólafélögum, sveitungum, erlendum laxveiði- mönnum sem sækja heim þá hlunnindajörð sem Lárus býr á. Hann selur leikföng og bama- vagna og unglingajakka og eftir að hann kemur sér á Verslunar- skóla í Reykjavík selur hann smyglbjór og brennivín sem hann fær hjá drykkfelldri konu sem hann leigir hjá (og sefur hjá: allt á sama stað, semsagt). Síðan fikrar sagan sig áffam eftir tveim þráð- um: annarsvegar sigurganga Þórðar sem nær eignarhaldi á jörð fóstra sins og reisir þar alþjóðlegt hótel með golfvelli og sérhönn- uðu lambhrútaskyttiríi og ijúpna- eldi (til að lengja starfstíma hót- elsins á ári hveiju). Hinsvegar hakfallabálkur Markúsar sem þijóskast aflan við baulurassa við hefðbundinn landbúnað þar til hann hlýtur að bijóta odd af oflæti sínu, gefast upp og gerast pró- ventukarl hjá auðkýfingnum og hótelhaldaranum fóstursyni sin- um. Böðvar skrifar vel og lipur- lega, lesandinn þarf ekki að ergja sig yfir klaufaskap og öðmm slík- um leiðindum. Margt er skondið og vel athugað í sögunni, ekki síst í þeim parti hennar sem segir ffá makalausri útsjónarsemi Þórðar í upphafi peningaræktunar. Hitt sækir svo á lesarann þegar ffam í sækir, að Þórður þessi sé alltof „pottþéttur“ til að halda áhuga. Hann er svo skelfilega samkvæm- ur sjálfúm sér að ekkert getur haggað hans fjármálaköllun: þeg- ar kærastan kemur til hans í hótel- ið og sambandið er að farast vegna þess að hún hefúr komist að miður skemmtilegu leyndar- máli um Þórð og móður sína, þá gerir hann ekki annað en setjast á stein og uppljómast af nýjum bis- ness: af ijúpnaveiðum sem ekki eru háðar náttúrunnar duttlung- um. Sálarháskinn er svosem eng- inn og lesandanum finnst það vanti þriðju víddina í slíkan mann. En það getur svo verið skemmtun að velta fyrir sér ýms- um möguleikum á að nálgast Þórð þennan. Ef við tökum raunsæi- spólinn í hæðina, þá finnst okkur það með miklum ólíkindum að Þórði tekst allt. Einkum vegna þess að Böðvar segir mjög ná- kvæmlega ffá fyrstu skrefúnum á löngum „athafnaferli", en þegar komið er að stórffamkvæmdun- um, þá gerist allt í stórum stökk- um og eins og fyrir óskiljanleg kraftaverk. Lesandinn segir: Það væri meir í samræmi við íslenska reynslu, að Þórður væri góður í sprúttsölu og rassvasabókhaldi, en missti svo fótanna í svelli stór- flnansins. Lesandinn spyr líka: Er hér enn eitt dæmi um það, að enda þótt íslenskur rithöfúndur átti sig vel á smákalla í bisness, þá þekki hann ekki fjárfestingarheiminn stóra, viti ekki hvemig kaupin gerast á þeirri eyri? Þessar spumingar sitja menn nú uppi með. En svo er annað: Má vera að ferill Þórðar sé fyrst og ffemst einskonar kraftaverk, vegna þess að hann er þjóðar- draumurinn nýi? Hann er Frelsari okkar tíma, sá sem var lagður lágt í jötu, en ríkir nú hátt á himni al- þjóðlegs túrhestarekstrar. Er saga hans skop um þægindadrauminn íslenska, um það hve allt verður auðvelt og notalegt og ríkmann- legt ef menn hafa vit á að losa sig við hefðbundið strit i landinu yfir beljum, rollum og öðrum fjendum Böðvar Guðmundsson markaðsbúskapar? Má vel vera, a.m.k. gengur dæmið þá betur upp, eins þótt við getum um leið borið ffam þá ffómu ósk, að myndin af Þórði ffelsara hefði grætt á því að i hana væri laumað meiru af lævísu eitri háðsins. Stefán Bergmann skrifar um náttúruíræðirít Mannslíkaminn er ráðgáta Maðurinn - Líkaminn í máli og myndum Aðalritstj. Sven Lidman. Þýð. Stefán B. Sigurðsson. Endurskoðun texta: Hálfdan Ómar Hálfdanarson, Heimir Hálfdanar- son og Þuríður Þorbjarnardóttir. Örn og Örlygur 1990; 2. útg. 116 bls. Bók þessi er sænsk ffá árinu 1982 og kom fyrst út hér á landi 1985. Höfúndar hennar eru marg- ir. Viðfangsefnið er í raun alltaf það sama hvort sem lesandinn er á grunnskólaaldri eða fúllorðinn. Margt er erfitt að skilja í starfi lík- amans vegna þess hve ósýnilegt það er, jaífivel atburðir inni í ör- smáum ffumum. Skilningurinn er þáttur í að styrkja vitund um eigin líkama og auka vilja til að taka ábyrgð á honum. Þessi bók getur komið að góðu gagni á heimilum og í skól- um. Höfuð einkenni hennar eru mjög vandaðar myndir sem hafa mikið kennsluffæðilegt gildi og nákvæmlega hugsaðir myndatext- ar. Sjálfúr texti bókarinnar vekur athygli mina fyrir yfirvegaða framsetningu og aðgengilega stálpuðum bömum og unglingum. Slíkum texta er vandlega ritstýrt. Heildarmyndir af líkamshlutum eru stórar og lýsandi, en smærri myndum er beitt til skýringar á einstökum atriðum og til að vekja athygli á völdum þáttum er varða líkamsstarf, heilsufar og ýmislegt sem upp kemur í daglegu lífi. Bókinni er skipt í tvo hluta: Líffæri og likamshlutar og Æxl- un. Síðari hlutinn fjallar m.a. um erfiðir, meðgöngu, þroska bams- ins, getnaðarvamir, fóstureyðing- ar og öldmn einstaklingsins. Þýðing bókarinnar er endur- bætt í þessari útgáfú og er nú orð- in hin vandaðasta; einnig var text- inn endurskoðaður nokkuð að öðm leyti. Engin atriðisorðaskrá er í bókinni. Steinunn Sigurðardóttir Vigdis Grímsdóttir 'mmumt í Minningabók Vigdísar Grímsdóttur niðar hafið. Öldumar hníga jafnskjótt og þær rísa, en í sérhverri lýsir skamma stund minning frá genginni tíð. Lesandinn skynjar veröld sem var, með yfirbragð trega því að hún kemur aldrei aftur. En um leið er hún lifandi og hlý, ekki að fullu farin, heldur nálæg, önnur og ný í þeirri veröld sem er og verður. Vigdís Grímsdóttir hefur þegar skipað sér sess meðal fremstu höfunda okkar með smásögum sínum, skáldsögum og ljóðum. Va n Ismeygileg kímni, napurt háð, einlæg samúð, sterkir þræðir í nýrri skáldsögu sem á enga sína líka. Saga fólks sem byrgir bresti sína og leyndarmál á bak við luktar dyr, ættarsaga í formi eftirmæla, greina og sendibréfa héðan og að handan. Viðamikið og frumlegt skáldverk eftir rithöfund sem á erindi við þig og samtíð þína. IÐUNN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.