Þjóðviljinn - 19.12.1990, Page 13
íslendingasaga
í Ijósmyndum
Út er komin hjá Máli og
menningu bókin Minnisstæðar
myndir - íslandssaga 20. aldar í
ljósmyndum. I bókinni er leitast
við að sýna meginviðburði og
breytingar í íslensku þjóðlífi
fyrstu átta áratugi aldarinnar í
ljósmyndum. Myndimar em 239
talsins og komnar víðsvegar að af
landinu, þótt stærstur hluti þeirra
sé nú varðveittur á Þjóðminja-
saíhi íslands og Ljósmyndasaíni
Reykjavíkur. Gmnnhugmyndin
að vali þeirra er sú að sýna mynd-
ir af merkum viðburðum, en þó
ekki síður myndir úr daglegu lífi
fólks, af menningu, verkháttum
og atvinnulífi, að draga upp mynd
af aldarhættinum almennt. Jafn-
framt fylgir annáll áranna 1901-
1980, þar sem tíundað er það sem
fféttnæmast þótti á hveiju ári.
Inga Lára Baldvinsdóttir valdi
myndimar og skrifaði mynda-
texta, en hún hefur um árabil
rannsakað sögu íslenskrar ljós-
myndunar. Sigurður Hjartarson
skráði annál.
Bókin er 141 bls., prentuð i
Prentsmiðjunni Odda hf. Erlingur
Páll Ingvarsson hannaði útlit bók-
arinnar.
HERNÁMIÐ
HIN HLIÐIN
Amerískur
hermaður
á Islandi
ÍSAFOLD hefúr sent frá sér
bókina „Hemámið - hin hliðin“
eftir Louis E. Marshall, fyrrum
ofúrsta í Bandaríkjaher, en As-
laug Ragnars bjó bókina til prent-
unar.
Louis E. Marshall er 87 ára að
aldri og hefúr starfað sem lög-
maður í San Antonio í Texasfylki.
í bókinni hemámið - hin hlið-
in segir fyrst frá uppvexti höfúnd-
ar í Texas, starfi og herkvaðning-
unni. Þá víkur sögunni til and-
stæðnanna: Islands i snjó og
kulda. Höfúndur segir ffá því sem
honum fannst sérstakt við íslenskt
þjóðlíf ffá sjónarmiði hermanns-
ins eins og nafn bókarinnar gefúr
til kynna.
Louis E. Marshall er einn
þeirra hermanna sem eiga íslenskt
bam. í bókinni segir hann ffá
sambandi sínu við konuna sem ól
honum bamið og samskiptum við
það áratugum seinna.
íslenskir
hermenn
Bókin íslenskir hermenn er
komin út hjá Almenna bókafélag-
inu. Höfúndur er Sæmundur Guð-
vinsson.
í bókarkynningu segir m.a.:
Her höfúm við aldrei hafl, en
þó eigum við hermenn. Tölu
þeirra vitum við ekki, en í flestum
styrjöldum, sem háðar hafa verið i
heiminum á þessari öld, hafa ver-
ið einhveijir íslendingar. Hér
segja sex slíkir hermenn ffá styij-
aldarreynslu sinni, tveir úr síðari
heimsstyijöld, einn úr Kóreustríð-
inu, einn úr striðinu i Víetnam,
einn úr borgarastyrjöldinni í Rho-
desíu og einn úr her Sameinuðu
þjóðanna í Libanon.
Þessir fyrrverandi hermenn
em: Þorsteinn E. Jónsson, Njörð-
ur Snæhólm, Þorvaldur Friðriks-
son, Gunnar Guðjónsson, Harald-
ur Páll Sigurðsson og Amór Sig-
urjónsson.
Sesselja og
Sólheimar
Komin er út bókin „Mér
leggst eitthvað til“, eflir Jónínu
Michaelsdóttur. Styrktarsjóður
Sólheima gefúr bókina út.
„Mér leggst eitthvað til“ er
um brautryðjandann og baráttu-
konuna Sesselju Sigmundsdóttur,
stofnanda Sólheima - gleði henn-
ar og sorgir, ótrúleg affek og sál-
arstyrk, áralanga baráttu við kerf-
ið, sigur að lokum og viðurkenn-
ingu samfélagsins.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
ABR
Borgarmálaráð
Fundur [ Borgarmálaráði Alþýðubandalagsins (Reykjavfk [
dag, miðvikudag 19. desember kl. 17.15,1 nýju flokksmið-
stöðinni Laugavegi 3.
í kynningu styrktarsjóðs Sól-
heima segir:
Glæsileg ung kona kemur til
Islands 1930 eflir margra ára nám
og þjálfún í uppeldismálum í Evr-
ópu. Hún reisir heimili fyrir mun-
aðarlaus og vanrækt böm á af-
skekktri jörð í Grímsnesi og setur
jafnffamt á stofn fyrsta heimili
fyrir þroskahefla á íslandi.
Kerfið snýst gegn henni. Allt
er gert til að hrekja hana frá Sól-
heimum. Hún þarf að sækja rétt
sinn fyrir dómstólum, og áður en
niðurstaða er fengin setur ríkis-
stjóm íslands bráðabirgðalög til
að ná henni af heimilinu.
Aðforin mistekst og Sesselja
stendur uppi sem sigurvegari.
„Mér leggst eitthvað til“ er
320 blaðsíður.
Svendenborg
„Emanuel Swedenborg og ei-
lífðartrúin min“ heitir bók eftir
Helen Keller sem Öm og Örlygur
gefúr út.
Helen Keller (1889-1968)
hlaut heimsfrægð sem rithöfúnd-
ur og brautryðjandi í baráttu fyrir
málstað blindra og heymarlausra
um víða veröld. Sjálf varð hún
fyrir þvi áfalli aðeins 19 mánaða
gömul að missa bæði sjón og
heym af völdum heilahimnu-
bólgu, en lærði að tala og tjá sig í
rituðu máli og lauk m.a. háskóla-
prófi. Ung að ámm kynntist He-
len Keller ritum sænska vísinda-
mannsins, og sjáandans Emanuels
Swedenborgs og varð það til að
breyta lífi hennar í gmndvallarat-
riðum, enda segir hún að það sem
hann segir um hinn andlega heim
hafi reynst henni haldbetra en
flest annað í hinum lokaða heimi
þagnar og myrkurs sem hún sjálf
lifði i.
Öm og Örlygur hafa nú gefið
út bók Helenar Keller þar sem
hún lýsir kynnum sínum af ritum
Emmanuels Swedenborg. Bókin
er einskonar skýringarrit um þau
ffæði og kenningar sem þessi
hugsuður, dulspekingur og guð-
fræðingur hafði að miðla mann-
kyninu.
Tvær nýjar sögu-
snældur Heið-
dísar Norðfjörð
Hörpuútgáfan hefúr gefið út
tvær nýjar sögusnældur fyrir
böm. Sögumaður er Heiðdís
Norðfjörð. - Bamasögur á snæld-
um njóta vaxandi vinsælda og era
kærkomin hvíld ffá sjónvarpi,
einnig auka þær tilfinningu bam-
anna fyrir íslensku máli.
A snældu sem nefnist Sögur
fyrir svefninn nr. 2 em þessar
sögur m.a.: Að klæða fjallið
(Bjömstjeme Bjömson), And-
vaka kóngsdóttir (Gamalt ævin-
týri), Hamingjublómið (Jóhanna
Brynjólfsdóttir), Midas konungur
(Griskt ævintýri), Konungssonur-
inn hamingjusami (Oscar Wilde).
Jólasveinaprakkarar heitir hin
snældan, þar er m.a.: Jólasveina-
rabb (um íslenska jólasveininn),
Jólasveinamir (Kvæði Jóhannesar
Heimsókn jólasveinsins (ævin-
týri), Jólasveinarabb (enskir jóla-
sveinar) Jólasveinaríkið (ævin-
týri), Rudolf - rauðnefjaða hrein-
dýrið (ameriskt ævintýri).
Saga íslenska
hestsins
Ættbók og saga íslenska
hestsins 6. bindi eftir Gunnar
Bjamason er komin út á forlagi
Odds Bjömssonar.
í tilefni af 75 ára afmæli
Gunnars Bjamasonar, þann 13.
desember, kemur á markaðinn 6.
bindi af Ættbók og sögu íslenzka
hestsins á 20. öld. Þar með hefúr
Gunnar unnið það affek að koma í
eina aðgengilega ritröð lýsingu
stóðhesta að nr. 1176 og lýsingu á
hryssum að nr. 8071.
OUNNAR ‘■fSARNASON -RÚXJNAtmiR
sfStSENZKA5HESTSlNS '-'k 20 ÖtSD
jife Frá vélstjóra-
félagi íslands
Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn
29. desember kt 13:30 að Borgartúni 18, Reykja-
vík.
Daaskrá samkvæmt félagslögum. Á fundinum
verour borin fram stjórnartilíaga um úrsögn úr Far-
manna- og fiskimannasambandi Islands.
Félagsfundir að Borgartúni 18, 3. hæð
Með farskipavélstjórum fimmtudaginn 27. desem-
ber kl. 13:00.
Með fiskiskipavélstjórum föstudaginn 28. desem-
berkl. 13.00.
Stjórnin
Atvinnumálafulltrúi
Starfshópur á vegum landbúnaðarráðuneytisins,
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og Stéttarsam-
bands bænda óskar að ráða starfsmann, karl eða
konu, sem hafi það verkefni að vinna að eflingu
heimilisiðnaðar og skyldra verkefna í sveitum með
sérstakri áherslu a atvinnu fyrir konur.
Viðkomandi þarf að geta nafið störf sem fyrst.
Ráðningartími er 1-2 ár. Til greina kemur ráðning í
hálft starf. Starfmu fylgja mikil ferðalög.
Umsóknir skulu stílaðar á:
Stéttarsamband bænda
Pósthólf 7040
•Í27 Reykjavík
fyrir 31. desember nk.
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
NSKÓLI
SIGURSVEINS D KRISTINSSONAR
Fresturinn til að staðfesta nám á vorönn með
reiðslu eða samningi um síðari hluta námsgjalds
efurverið lengdur til föstudagsins 21. desember.
Innritun stendur nú yfir á hlustunarnámskeiðið „Njót-
um tónlistar“ sem hefst 8. janúar. Tímar eru einu sinni
í viku kl. 20 á þriðjudögum.
Getum bætt við nokkrum nemendum á klarinettu og
málmblásturshljóðfæri.
Skrifstofan, Hellusundi 7 er opin virka daga kl. 13-17,
sími 25828.
Skólastjóri
Helen Keller um
úr Kötlum), Grýla og jólasvein-
amir (Guðrún Sveinsdóttir),