Þjóðviljinn - 19.12.1990, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.12.1990, Blaðsíða 16
þJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. desember 1990 240. tölublað 55. árgangur ■ SPURNINGIN ■ Svalbarði Gefur þú til líknarmála? Sævar Snorrason eftirlitsmaður: Já. Ég gef í Hungraðan heim. Ég gef meira fyrir jólin en á öðrum tímum. Þórey Þorsteinsdóttir vinnur á skrifstofu: Já. Ég gef svona í formi happ- drættismiða. En ég gef ekkert meira um jólin en í annan tíma. Ragnar Grétarsson nemi: Já. Ætli maður sé ekki alltaf að því. Til dæmis gef ég til Slysa- varnafélagsins. Sigrún Steinþórsdóttir nemi: Vestur í bæ, nánar tiltekið á Framnesvegi 44, er verslun sem lítið fer fyrir en hefur glatt margan viðskiptavininn með því að hafa á boðstólum vest- firskan hákarl, harðfísk, siginn físk og kæsta skðtu fyrir þá sem það vilja. Þetta er verslunin Svalbarði sem Önfirðingurinn Hallur Stef- ánsson hefur rekið nú í tuttugu ár en meðeigandi hans síðustu tíu ár er Björgvin Magnússon sem starfar einnig í versluninni. Að sjálfsögðu hefur verslunin uppá fleira að bjóða sem Hallur kallar því skemmtilega nafni „gleymskuvörur" og segir að séu til uppfyllingar í hillum verslun- arinnar. Það eru þær vörur sem fólk getur oft og tíðum ekki verið án en á til að gleyma í amstri dagsins. Hallur segir að neysla á há- karli sé í stöðugri sókn meðal fólks og svo virðist sem gamlar matarvenjur eigi meira upp á pall- borðið hjá fólki en var ekki alls fyrir löngu. Mest er þó keypt af hákarli yfir þorrann en þó er hann til sölu hjá þeim félögum allt árið. Hallur segir að það sé fólk á öll- um aldri sem kaupi hákarl en kon- ur þó sýnu mest. Hann segist þó ekki geta sagt neitt til um það hvort þær borði svo mikið af hon- um eða hvort þær séu að kaupa hann fyrir karlanna. Hinsvegar sé kæsta skatan svo til einvörðungu keypt af Vestfirðingum eða fólki sem þeim er tengt eða skylt. Kortin kosta peninga Þeir félagar segjast ekki þurfa að kvarta yfir rekstrinum sem hefur gengið vel og segja að verslunin hafi verið ákaflega far- sæl í gegnum tíðina. Til marks um það er að aðeins tveir eigendur hafa rekið hana frá því íslending- ar fengu sjálfstæði frá Dönum, eða frá árinu 1944. „Það er orð- sporið ffá ánægðum viðskiptavin- um sem hefur verið okkar besta auglýsing í gegnum tíðina. Við höfum sérhæft okkur í þessum þjóðlegu réttum og stöndum og follum með þeim,“ sagði Hallur. Ekki er tekið á móti krítar- kortum í Svalbarða og eru þeir aðeins með staðgreiðslu. Hallur segir að kortin kosti peninga og sá sem haldi öðru fram sé að skrökva. Hann segir að auðvitað hljóti það að koma niður á vöru- verðinu í þeim búöum sem taka við kortagreiðslum. Hallur Stef- Sérhæfing í þjóðlegum réttum er sérgrein félaganna (versluninni Svalbarða. Þeir eru f.v. Björgvin Magnússon og Hallur Stefánsson. Myndir Jim Smart. ánsson segir að fólk fylgist mun betur með vöruverðinu en áður og það sé fagnaðarefni. Einnig að það hugsi sig betur um en fyrr áð- ur en það ákveður sig i innkaup- unum. Hann segir að það sé spor aft- ur á bak að lengja verslunartím- ann, eins og samþykkt hefur verið í æðstu stjóm borgarinnar. Það hljóti að koma niður á vöruverð- inu á sama tíma og stórmarkaðirnir geti ekki borgað sínu fólki mann- sæmandi laun. Því til staðfestingar segist Hallur þekkja vel til verslunarmanns með nítján ára starfsreynslu sem vinnur í einum af stórmörkuðum borgarinnar og fyrir fulla dag- vinnu hafi hann rúmar 48 þúsund krónur í mánaðar- laun. sjávarplássa í landinu, hann hefur einnig áhrif á fiskframboðið til þeirra sem versla með harðfisk og siginn fisk. Hákarlinn og skatan munu þó enn vera fyrir utan kvóta. Hallur segir að það verði æ erfiðara að ftá góðan fisk. Það sé í sjálfu sér enginn vandi að fá fisk en spumingin sé ætíð um það að fá hann sem bestan. „Okkar takmark er að hafa hér á boðstólum fyrsta flokks vöm og þótt við getum ekki gert alla ánægða reynum við okkar besta og teljum að við gerum það í langflestum tilvikum,“ sagði Hallur Stefánsson í versluninni Svalbarða. -grh Kvótinn hefur áhrif Það er ekki að- eins að kvótinn hafi áhrif á afkomu hinna einstöku I gegnum tíðina hafa margir viðskiptavina þeirra Bjögvins og Halls haldið tryggð við verslunina og hér er einn þeirra að þakka Björgvini fýrir veitta þjónustu. Orðsporið er besta auglýsingin Vestjirskur hákarl, siginn fiskur, harðjiskur og kæst skata ásamt gleymskuvörum til uppjyllingar Nei. Ég er nýkomin til landsins. En áður keypti ég oft happdrætt- ismiöa. RAFRUN H.F. ■ ...—i 11 E

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.