Þjóðviljinn - 15.01.1991, Side 3
FRETTIR
Eystrasaltsríkin
Ekkert annað en fullt sjálfstæði
Alþingi Islendinga fordæmir harðlega íhlutun sovéska hersins í Litháen og ekkert annað en fullt sjálfstæði
Eystrasaltsríkjanna er talin lausn í málinu
Það voru utanríkismál sem biðu þingmanna eftir jólaleyfið. Dagskrá Sameinaðs þings f gær hófst á munnlegri
skýrslu Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra um ástandið f Litháen og við Persaflóa. Hann á hér tal
við utanrfkisráðherra Jón Baldvin Hannibalsson. ( baksýn ræða Valgerður Sverrisdóttir, Frfl., og Anna Ólafs-
dóttir Björnsson, Kvl., líklega annaö hvort málið. Mynd: Kristinn.
Iþingsályktunartillögu, sem
utanríkismálanefnd Alþing-
is var sammála um í gærkvöldi,
fordæmir Alþingi harðlega
íhlutun sovéska hersins í Lithá-
en og krefst þess að herinn
verði nú þegar dreginn til baka.
Því er lýst yfir að ekkert annað
en fullt og óskorað sjálfstæði
Eystrasaltsríkjanna sé lausn á
þessu máli. Einnig er skorað á
aðrar þjóðir, og þá sérstaklega
Vesturveldin, að veita þjóðun-
um við Eystrasalt þann stuðn-
ing sem þarf til þess að sjálf-
stæði þeirra nái fram að ganga.
Fastlega var búist við, áður en
blaðið fór í prentun, að tillagan
yrði samþykkt, en kvöldfundur
hófst í Sameinuðu þingi í gær-
kvöldi þar sem enn voru margir á
mælendaskrá um skýrslu forsæt-
isráðherra um ástandið í Litháen
og í Persaflóa sem var fyrsta mál
á dagskrá þingsins sem kom sam-
an eftir jólaleyfi i gær.
Þingmenn allra flokka voru
samtaka í fordæmingu sinni á of-
beldisaðgerðum sovéska hersins í
Litháen og lýstu yfir stuðningi
við aðgerðir ríkisstjómarinnar.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði að utanríkis-
ráðherra Jón Baldvin Hannibals-
son hefði beitt sér fyrir því að
sameina Norðurlöndin í fordæm-
ingu á aðgerðum hersins. Hann
sagðist einnig hafa ritað forseta
Sovétríkjanna Mikhaíl Gorbat-
sjov bréf sem gengi lengra en
Norðurlöndin væm tilbúin til. Þar
lýsir Steingrímur yfir þungum
áhyggjum af ástandinu og að
Alþýðubandalagið
Pólitíska
lausn í stað
stríðs
Þingflokkur AB telur
rangt að beita heimild-
um SÞ til stríðs við Irak
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins samþykkti í gær eftirfar-
andi ályktun um Persaflóadeil-
una:
„Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins leggur áherslu á að íslensk
stjómvöld geri allt sem unnt er til
að koma í veg fyrir hemaðarátök
við Persaflóa. Þingflokkurinn lýsir
stuðningi við kröfúr ríkisstjómar
Islands og utanríkisráðherra Norð-
urlanda um friðsamlega lausn
þessara deilumála. Höfúðáherslu
ber að leggja á að íraksher hverfi
tafarlaust ffá Kuwait, að stofnaðar
verði sjálfstæðar ffiðargæslusveitir
og haldin verði alþjóðaráðstefna
um málefni Austurlanda til að
tryggja varanlegan frið.
Þingflokkurinn bendir á að
samþykktir Sameinuðu þjóðanna
um Persaflóadeiluna fela í sér
heimildir til hemaðaríhlutunar, en
ekki ákvörðun um að hefja stríð.
Þingflokkurinn telur ekki rétt að
beita þessum heimildum, en reyna
beri i þess stað með öllum tiltæk-
um ráðum hvort samkomulag get-
ur tekist um pólitíska lausn mála,
en mikið vantar enn á að svo hafi
verið gert.
Islendingar mega undir engum
kringumstæðum gerast stríðsaðil-
ar, heldur ber þeim að leggja sitt
lóð á vogarskál ffiðar og afvopn-
unar.“
hann harmi tíðindin, hann biður í
bréfinu forsetann að stöðva vald-
beitinguna gegn litháísku þjóð-
inni og lýðsræðislega kjörinni
stjóm landsins. Steingrimur upp-
lýsti að forseti Eistlands hefði
óskað eftir að koma í heimsókn til
Islands og að það stæði honum til
boða hvenær sem er. Eins upp-
lýsti hann að Landsbergis forseti
Litháens hefði fyrir mánuði boðið
honum í heimsókn.
Ólafúr Ragnar Grimsson
sagði að íslendingar ættu að
bjóða hugsanlegum útlagastjóm-
um Eystrasaltsríkjanna ísland
sem gististað ef þær hefðu áhuga
ingflokkur Alþýðubanda-
lagsins samþykkti í gær eft-
irfarandi ályktun um málefni
Eystrasaltsríkjanna:
„Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins fordæmir harðlega hem-
aðaríhlutun Sovétríkjanna í mál-
efni Litháens. Sú hemaðaríhlutun
er alvarlegt áfall fýrir þá jákvæðu
þróun sem einkennt hefur málefni
Evrópu siðustu misseri.
Þingflokkurinn lýsir stuðningi
við þau skref sem íslensk stjóm-
völd hafa þegar stigið til stuðn-
ings sjálfstæðisbaráttu Eystra-
saltsríkjanna. Brýnt er að varð-
veita þá samstöðu sem náðst hef-
ur í þessu máli hér innanlands. Til
að undirstrika hana ætti Alþingi
að birta stuðning sinn við málstað
Eystrasaltsríkjanna með tveggja
mínútna þögn í upphafi fúndar kl.
14 á morgun og beina þeim til-
mælum til þjóðarinnar að gera
það einnig á sama tíma, hver á
sínum vettvangi, á öllum vinnu-
stöðum og með stöðvun allrar
umferðar.
Þingflokkurinn átelur að for-
á því. Hann sagði einnig að hyrfi
herinn ekki á burt yrði að endur-
skoða öll samskipti okkar við
Sovétríkin, en nokkrir þingmenn
gagnrýndu að viðskiptanefúd ís-
lands sem nú er í Moskvu skuli
ekki vera kölluð heim. Kristín
Einarsdóttir, Kvl., hafði orð á því
að slíkt hefðu Grænlendingar gert
og að yfir því hefði verið reisn.
Þorsteinn Pálsson lýsti yfir-
lýsingu þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, en þingflokkamir vom
duglegir við að álykta í gær. Hann
taldi rétt að íslendingar frestuðu
eða hættu viðskiptaviðræðunum,
kölluðu sendiherrann í Moskvu
ysturíki á Vesturlöndum skuli
ekki hafa veitt sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsríkjanna þann stuðning
sem henni ber, m.a. með því að
tengja kröfúna um óskorað sjálf-
stæði þeirra Ráðstefnunni um ör-
yggi og samvinnu í Evrópu og
Parísaryfirlýsingunni í nóvember
1990. Eftir síðustu atburði hljót-
um við að gera þá kröfú sérstak-
lega til vestrænna ríkja og allra
Evrópuríkja að þau veiti stuðning
málstað Eystrasaltsríkjanna hvar-
vetna á alþjóðavettvangi.
Þingflokkurinn styður það að
ísland fylgi málinu eftir af fullum
þunga á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna, svo og hvarvetna ann-
ars staðar á alþjóðavettvangi, m.a.
innan Norðurlandaráðs og RÖSE-
ráðstefnunnar.
Þá telur þingflokkurinn rétt að
Alþingi sendi hið fyrsta nefnd
þingmanna til Eystrasaltsríkj-
anna, og kanna ber hvort ekki sé
hægt að kalla saman þegar í stað
sameiginlegan fúnd forsætisráð-
herra Norðurlanda, forseta þjóð-
þinga Norðurlanda og forsætis-
heim til skrafs og ráðagerða og
skipaði Sovétmönnum að fækka í
sendiráði sínu hér. Ályktanir Al-
þýðubandalagsins varðandi Lit-
háen og Persaflóadeiluna birtast
hér.
Menn vom sammála um það í
umræðunum á þingi að eini ljósi
punkturinn í málinu öllu væri af-
dráttarlaus afstaða Borisar Jelt-
síns forseta rússneska lýðveldsins
með lýðveldunum við Eystrasalt
og gegn yfirvöldum í Sovétríkj-
unum.
Margir urðu til að benda á að
Gorbastjov hefði hlotið friðar-
verðlaun Nóbels og þá tvöfeldni
nefnd Norðurlandaráðs til að
fjalla um stöðu mála í Eystrasalts-
rikjunum og samskipti Norður-
landa við Sovétríkin.
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins lýsir yfir þeirri von sinni
að forystumenn í Sovétríkjunum
sjái að sér og láti af hemaðarógn-
sem fælist í því ef það hefði verið
hann sem fýrirskipaði árás hers-
ins í Litháen. Páll Pétursson for-
seti Norðurlandaráðs benti á bréf
sem hann hefði sent forsetum
þings og æðsta ráðs Sovétríkj-
anna þar sem þess er krafist að
samningaviðræður hefjist þegar
um sjálfstæði þjóðanna við
Eystrasalt, en þessi bréf vora send
10. janúar. Páll taldi valdið í
Rauða hemum vera komið úr
höndum Gorbatsjovs því að nú
væri fylgt línu harðlínumanna.
Ólafúr Ragnar tók undir þetta, en
hann taldi að Gorbatsjov hefði
ekki getað gefið skipun um þessa
árás nema átök undanfarinna
mánaða í Sovétríkjunum hafi
brotið hann niður bæði siðferðis-
lega og pólitískt. Bæði Páll og Ól-
afúr heimsóttu Sovétríkin s.l.
haust.
Þó einnig væri verið að ræða
Persaflóadeiluna urðu færri til
þess að tengja þessi tvö mál, þó
að Þorsteinn hafi bent á, að það
væri varla tilviljun að Rauði her-
inn hefði hafið aðgerðir á þessum
tímapunkti. Steingrimur vildi þó
tengja Persaflóadeiluna við annað
vandamál, þ.e.a.s. vanda Palest-
ínumanna á herteknu svæðunum.
Það kæmi þó ekki til greina fyrr
en írak hefði horfið burt úr Kú-
væt.
Kristín benti einnig á að Pal-
estínumenn hefðu verið her-
numdir á sínum tima. Hún lýsti
þeirri skoðun Kvennalistans að
Island ætti að lýsa andstöðu sinni
við stríðsaðgerðir við Persaflóa.
Hún sagði að Island ætti að leggja
áherslu á að vopn leysi engin
deilumál hvort sem þau eigi sér
stað við Persaflóa eða Eystrasalt.
I þessari umræðu lýsti Hjörleifúr
Guttormsson, Abl., þeirri skoðun
að senda ætti utanríkisráðherra á
fúnd valdamanna á Vesturlöndum
og hvetja þá til að leita friðasam-
legra lausna.
unum og ofbeldi í garð smáþjóða
eins og Eystrasaltsríkjanna. Ger-
ist það hins vegar ekki, telurþing-
flokkurinn að endurskoða beri öll
samskipti Islands við Sovétríkin,
jafht á sviði viðskipta, félagsmála
og menningarsamskipta“.
Þriðjudagur 15. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Persaflóadeilan
Stjórnin vöruð við
D áðherrum ríkisstjórnarinnar
■* var fyrir helgi send viðvörun
frá 14 einstaklingum sem eiga
ættingja og vini á hugsanlegum
átakasvæðum í Austurlöndum
nær. Einstaklingarnir áskilja sér
rétt til að draga ráðherrana per-
sónulega til ábyrgðar, lagalega
eða með öðrum hætti, vegna
þeirra afleiðinga sem stríð kynni
að hafa á líf ættingja þeirra og
vina.
Einstaklingamir hvetja ríkis-
stjómina til að verða við áskoran
gegn stríði og segja að þeir áskilji
sér þennan rétt verði farið út í strið
án þess að ríkisstjómin hafi varað
við þeirri lausn.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagðist skilja vel
áhyggjur þessa fólks vegna ætt-
ingja og vina og að það ætti samúð
hans. Hann sagði að hinsvegar
ættu íslendingar aðild að 12 sam-
þykktum Sameinuðu þjóðanna
varðandi Persaflóadeiluna og gætu
ekki hlaupist frá því.
-gpm
-gpm
Alþvðubandalagið
Hernaðaríhlutun Sovétríkjanna fordæmd
Alþingi hafi tveggja mínútna þögn í upphafi fundar í dag