Þjóðviljinn - 15.01.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 15.01.1991, Blaðsíða 5
VIÐHORF Dagvistun - og dagmæður Steinunn Pálsdóttir skrifar Fá útivinnandi foreldrar ein- hveiju ráðið? Er það spuming um efnahag þinn í hvaða höndum bamið þitt verður fyrstu ár sín fram að skólaaldri? Og hvað tek- ur svo við? Oft hefur verið sagt að þörf sé á athugun á starfi dagmæðra og viðhorfi foreldra varðandi mögu- leika fyrir þá sem vilja að bömin sín alist upp við fjölskylduað- stæður svipaðar og þeir sjálfir nutu. Þannig yrðu bömin fyrir sem minnstum breytingum ffá sínum eigin heimilum, sérstak- lega ef um heildags vistun er að ræða fyrstu mótunarárin. A síðari ámm hafa orðið breytingar á fjölskyldugerð, sem leitt hafa til fjölgunar einstæðra foreldra. Þar af leiðandi eykst þörf bama einstæðra foreldra fyr- ir vistun í anda stórfjölskyldu. Gaman væri ef hagsmunaaðilar snem bökum saman til að stuðla að samræmdu viðráðanlegu verð- lagi og aðstöðu til að fyrirbyggja að böm einstæðra foreldra verði i meirihluta í vistun hjá dagmæðr- um, heldur blandaður hópur á öll- um aldri. Því þarf niðurgreiðslu og samræmingu daggjalda til að gera fleirum mögulegt að notfæra sér þessa þjónustu. Væri því ekki ígrundunarefni fyrir borgaryfir- völd hvort ekki er hagkvæmara að taka þátt í slíku niðurgreiðslsu- kerfi og kosta þannig minna til reksturs og bygginga dagvistun- arstofnana. Dagmæður hafa sum- ar hveijar viljað líta á starfsemi sína sem einskonar sjálfstæða verktöku, sem er ekki nema eðli- legt þar sem þær stofna til leik- fanga-aðstöðu, og skapa uppeld- is- og félagslegar aðstæður. Þrátt fyrir það er þörf á mjög náinni samvinnu dagmæðra og yfirvalda dagvistunar. Óskandi væri að stjómvöld styddu þessa starfsstétt betur en verið hefúr. Það hefur verið stutt fjárhagslega við Samtök dag- mæðra og dagmæður. En eins og máltækið segir „Betur má ef duga skal“. Fyrir tilstilli Samtaka dag- mæðra kom hingað í heimsókn Malene Karlsson frá Svíþjóð í okt. sl. og hélt hún hér fyrirlestur á námskeiði Samtakanna. Einnig var auglýst fræðsluerindi fyrir al- menning, en einhverra hluta vegna var léleg aðsókn, og er leitt til þess að vita, því Malene reynd- ist hafsjór af fróðleik og miðlaði miklu um dagvistun bama í heimahúsum. Athyglisvert var, hve vel hef- ur verið staðið að málum dag- mæðra í Svíþjóð af hálfú hins op- inbera á undanfömum árum. Einkum er það varðandi aðstöðu þeirra, húsnæði, garðaðstöðu, skipulögð opin svæði til leikja og gönguferða í hverfum og skógar- svæðum, auk góðs samstarfs for- eldra og dagmæðra. Greinilega kom fram sá vilji foreldra gagn- vart bömum sinum, að þau yrðu alin upp við aðstæður sem líktust þeirra eigin uppvaxtaráram, og heimilis- og fjölskylduaðstæður væra sem eðlilegastar, þar á með- al að bömin á heimilinu væru á mismunandi aldri, saman, eins og um eina stóra fjölskyldu væri að ræða. En eflaust þarf umtalsverða hugarfarsbreytingu til að stuðla að einhveiju jafnræði í þessum málum hér á landi. Gæti farið vel á því að stofna samtök foreldra, líkt og foreldarafélög í skólum, og gæti það glætt innsýn og sam- stöðu beggja aðila til að vinna saman að möguleikum, sem myndu tengja bamagæsluna meir ýmis konar þjónustu, svo sem fé- lagsmiðstöð, bókasafni, aðstöðu til sameiginlegrar útivera og íþróttaiðkana á opnum svæðum, sundi ofl. Með slíkri samtengingu skapast eðlilegur vettvangur bama og annarra í nágrenninu til að hittast og blanda geði við unga sem aldna. Okkur hættir til að vilja hafa ofan af fýrir bömunum með hvers kyns skipulögðum leikjum og föndri, nær eingöngu, í stað þess að leyfa þeim að taka þátt í eðlilegu heimilishaldi, og ímyndunarafl þeirra fái að njóta sín og þau verði þátttakendur í flestu sem á heimilinu gerist. Slíkt myndi verða þeim gott veganesti síðar á lífsleiðinni, einkum ef hafl er í huga að með þessu móti hafa þau ekki farið á mis við heimilið í æsku. Jean Piaget er án efa áhrifa- mesti þroskasálfræðingur þessar- ar aldar. Eftirtektarvert var hjá Piaget að hann áleit að bömum væri ásköpuð eins konar „rann- sóknarhvöt", sem væri driffjöður þroskans. Þau lærðu mest af eigin Vér aðdáendur Ævinlega hefur Þrándur ánægju af að lesa pistla eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Þetta er ekki vegna þess að Hann- es Hólmsteinn segi manni nýjan sannleika í hverri grein, heldur af virðingu fyrir þeirri þolinmæði Hannesar að hnoða alltaf sama deigið, óháð því hvaða köku hann er að baka. Þetta minnir náttúrlega á fræga setningu: „Að endingu legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.“ Hjá Hannesi hljómar þetta þannig: „Eins og venjulega legg ég til að Davíð Oddsson verði hylltur." Hannes Hólmsteinn skrifaði einn slíkan Pistil í DV í gær og var yndislega hollur sfnum trúar- brögðum. „Ekkert var eðlilegra en að kjósa Pálma Jónsson í Hagkaup mann ársins í viðskiptalífinu, eins og Fijáls verslun gerði. Kjör al- mennings hafa sennilega batnað meira vegna keppni Pálma og annarra hagsýnna kaupsýslu- manna um hylli neytenda en fyrir sextíu ára baráttu Dagsbrúnar og annarra verkalýðsfélaga. Hinn einstaklingurinn, sem verðskuldaði að vera kallaður tilraunum og eigin mistökum. Aldrei verður of rík áhersla lögð á dýrmæti þess að alast upp við eðlilegt heimilislíf eða fara ekki á mis við möguleika á dag- vistun í anda þess. Mikið ffam- faraspor væri ef aðilar tækju höndum saman gagnvart hinum svokölluðu lyklabömum sem era á aldrinum 6 ára og eldri. Mætti hugsa sér að þessum bömum yrði kleift að koma á heimili dagmóð- ur tímabundið, t.d. með að fá mál- tíð og/eða nestispakka í skólann, einkum þar sem ekki væri um samræmdan skólatíma að ræða fýrir þau. Á undanfömum áram hefúr aukist að foreldrar komi bömum sínum fýrir hjá öðram, en erfiðleikar margra fjölsksyldna leyfa ekki slíkt launalega séð. Sameinuð geta foreldrar og dag- mæður samt fengið ýmsu áorkað, sér og bömunum til hagsbóta. Hvað varðar ákvæði laga ffá 1973 um sérmenntað fólk í upp- eldismálum, má segja að þróunin á síðustu árum hafi verið sú að meðan dagvistarheimilum fjölgar jafnt og þétt, er á móti æ eiifiðara maður ársins, var tvímælalaust Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík. Hann vann stærsta kosningasigur sem einstaklingur hefúr unnið í kosningum á Islandi, hlaut 60% atkvæða í Reykjavík. Davíð hefúr til að bera sömu eig- inleika og gerðu Jón Þorláksson, Ólaf Thors og Bjama Benedikts- son að miklum stjómmálaleiðtog- um; hugrekki, lagni og réttsýni." Þegar nánar er gáð hefúr HHG líklega nokkuð til síns máls um að Davíð hafi verið einn í framboði í vor. Ef borgarbúar væru spurðir: hveijir skipa meirihluta borgar- stjómar Reykjavíkur, þá er það næsta vlst (ekki má minna vera en Þrándur grípi til ástkæra ylhýra íþróttamálsins) að þeir myndu svara: Davíð Óddsson. Eins og gefúr að skilja kemur húsbóndinn ffam fýrir hönd þess heimilis sem hann er höfúðið á. Hvort sem það er af praktískum ástæðum eða öðrum þá verður þess varla nokkumtíma vart að aðrir borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins en Davíð taki þátt í að stjóma borginni. Og nú hefúr ffést að borgar- stjórinn ætli að færa út kvíamar væntanlega við mikla tilhlökkun Hannesar Hólmsteins. Hann er þegar orðinn varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, og farinn að stjóma í hinum meiri málunum. Sagt er að borgarstjórinn hafi lagt á ráðin þegar þingflokkur Sjálf- að fá fóstrumenntað fólk til starfa á dagvistarheimilum, og jafn- framt hafa mannaskipti orðið æ tíðari. Lág laun ráða tvímælalaust um hve erfitt er að fá fóstra- menntað fólk til starfa á dagvist- arheimilum. Lausn þessa sérmenntaða fólks hefúr ofl verið að setja á stofn einkaheimili. Um er að ræða sjálfstæðan rekstur, rekinn af fóstrum og kennaramenntuðu fólki. Tvímælalaust hefúr þetta komið sér vel, að minnsta kosti fýrir böm þessara foreldra, sem hafa efni á að veita þeim það. Þroski þessara bama fer oft fram- úr öðram bömum á sama aldri. Því miður hefúr þó með slíkum einkaheimilum myndast viss stéttaskipting og uppeldis- og fé- lagslegt misræmi bama hér á landi. Æskilegast væri að öllum yrði gert jafnt undir höföi, bæði þeim efnalitlu og hinum, sem meira mega sín, jafhframt því að ein- hver lausn fýndist í launamálum uppeldismenntaða hópsins, sem gerði þeim kleíft að koma aftur til starfa á dagheimilum og leikskól- um, og að dagmæður sömuleiðis starfi að sem eðlilegastri fjöl- skyldumótun á sínum vettvangi. Þannig yrði útivinnandi foreldr- um gert mögulegt að velja böm- um sínum dagvistun og uppeldis- form óháð efnahag sínum. í æsk- unni eru fólgnir dýrmætustu fjár- sjóðir þjóðarinnar. Eg vona að við berum gæfú til að glata þeim ekki. Óska ég Samtökum dag- mæðra, Dagvistun bama, bömum og foreldrum farsæls nýs árs. Steinunn Pálsdóttir er dagmóðir og ritari. stæðismanna ákvað „einróma" að vera á móti bráðabirgðalögunum ftægu. En þá kom babb í bátinn. í þingflokknum er nokkuð á annan tug manna, rétt eins og í borgar- stjóm (auðvitað finnst Þrándi þeir vera allt of margir, en það er annað mál). Hjá þingmönnum Sjálfstæð- isflokksins þýðir „einróma“ að all- ir séu á sama máli, en í borgar- stjóm að Davíð sé einróma. Þessi blæmunur á tungumálinu olli ótrú- legum leiðindum og uppistand- andi með þeim alkunnu afleiðing- um að þingflokkurinn varð þögull um stund, síðan nokkuð hjáróma og margróma á tímabili, en sjálf- um sér til háðungar áður en lauk. Þrándur Á náttúrlega ekki að vera með svona hugleiðingar og efasemdir um réttmæti orða viturs manns á borð við Hannes Hólm- stein. Og það heföi hann áreiðan- lega heldur ekki gert ef nefndur Hannes heföi ekki endað áramóta- hugleiðingu sína á þessum orðum: „Einhver kann síðan að sakna Margrétar Thatcher úr þessari upptalningu. Mikil eftirsjá er að henni. En við aðdáendur hennar getum huggað okkur við eitt: Þótt Thatcher blessunin sé farin frá lif- ir thatcherisminn og hefúr aldrei verið sprækari." Við þessu segjum vér aðdá- endur skarprar hugsunar og mik- illa vitsmuna ekki annað en: Það var og. Þrándur. BIL Mótmæla valdbeitingu Sovétmanna Stjórn Bandalags íslenskra listamanna var köll- uð saman til skyndifundar á sunnudag þar sem samþykktar voru tvœr ályktanir vegna valdbeit- ingar sovéska hersins í Litháen Önnur ályktunin, þar sem vald- beitingunni er mótmælt, var send Mikael Gorbatsjov, forseta Sovét- ríkjanna. í hinni ályktuninni er lýst yfir stuðningi við baráttu Litháa fýrir frelsi og var hún send Vyutat- is Landsbergis, forseta Litháens. Ályktunin sem send var Gor- batsjov fer hér á eftir: „Bandalag íslenskra lista- manna mótmælir harðlega vald- beitingu sovéska hersins í Litháen. Við krefjumst þess að réttur þjóða Eystrasaltsríkjanna til sjálfsforræð- is og mannréttinda verði virtur, og að stjómvöld í Moskvu stöðvi of- beldisverk Rauða hersins gegn friðsömum borguram.“ Ályktunin sem send var Lands- bergis hljóðar svo: „Bandalag íslenskra lista- manna styður eindregið baráttu Litháa fýrir frelsi og mannréttind- um. Samtök okkar sendu i dag mótmæli til sovéskra yfirvalda vegna innrásar og glæpaverka sov- éska hersins í Litháen. islenskir listamenn lýsa yfir fúllri samstöðu með þjóðum Eystrasaltslandanna og dást að staðfestu þeirra og ein- urð í baráttunni fýrir sjálfstæði og eigin menningu." -Sáf Þroski þessara barna fer oft framúr öðrum börnum á sama aldri. Því miður hefurþó með slíkum einkaheimilum myndast viss stéttaskipting og uppeldis- og félagslegt misrœmi barna hér á landi Þriðjudagur 15. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.