Þjóðviljinn - 15.01.1991, Side 9

Þjóðviljinn - 15.01.1991, Side 9
FRETTIR Magnús H. Gíslason skrifar Orkusamningar A A FÖRNUM VEGI 24 Niðurstaða í febrúar Birgir Isleifur Gunnarsson: Viðrœðunum mið- ar vel áfram Nú er kominn 24. október, níu dagar síðan ég hóf ferðalagið og fimm fundir að baki. Aðrir fimm eru eftir, ef allt færi að áætlun. Hún gat þó auðvitað raskast, t.d. ef veður spilltist til muna, en hingað til hafði tíðin verið ein- muna góð. Ég hafði nú lagt að baki þann hluta Vestfjarðakjálkans þar sem bílum varð komuið við, svo heitið gæti. Framundan var ganga yflr Qöll og heiðar og bátsferðir yfir firðina. Að því var stefnt, að halda fund á Bíldudal í kvöld. „Eigi skal haltur ganga meðan báðir fætur eru jafhlangir,“ var einu sinni sagt, og þótti hreysti- lega mælt. Ég gát því miður ekki tekið mér þessi orð í munn, þó að fætur mínir væru jafnlangir, að því er ég best vissi. En lömunar- veikin hafði á sínum tíma leikið mig þannig, að töluvert vantaði á að ég hefði jafnan mátt í báðum fótum. Bagaði það mig einkum, er ég tók að þreytast á göngu, og hlaupið gat ég ekki svo að nokkur mynd væri á. Var því með öllu útilokað að ég gæti bjargað mér fótgangandi á flóta, þótt ég þyrfti þess með, sem raunar var fráleitt meðan ég var hér meðal Vestfirð- inga. Þeir höfðu hingað til borið mig á höndum sér og ástæðulaust að ætla annað en svo yrði áffam. Mér fannst skynsamlegt að spara gönguþrekið svo sem kost- ur var og því útvegaði Birgir mér bíl það langt upp í Brekkudalinn, sem þannig var hægt að skrön- glast. Síðan var ekki um annað að gera en að spenna á sig bakpok- ann og leggja Rafnseyrarheiðina undir fót. Allbratt er upp á brún Rafnseyrarheiðar að norðan- verðu, en sjálfur heiðarhryggur- inn mjór og hallar brátt suður af í átt til Amarfjarðarins. Auðvelt var að rata þetta í björtu veðri því sæmilega glöggir götuslóðar lágu yfir heiðina og fylgdi ég þeim. Á rennur eftir Rafnseyrardal og þurfti ég yfir hana. Ég reyndi að stikla yfir hana á steinum, en þeir voru sleipir og auk þess langt á milli þeirra svo ég tók það ráð, að fara úr sokkunum, bretta upp bux- umar og vaða ána berfættur. En ferðist sóttist vel og liðu ekki nema 2 klukkutímar frá því ég skildi við bílinn og þar til ég kom niður að Rafnseyri. Á Rafnseyri tóku á móti mér fjórir geltandi hundar. Það hlýtur að vera erfið smalamennska á þeim bæ ef þörf er fyrir alla þessa hunda. Ég var að hugsa um að demba yfir þá mergjuðum kafla úr erindi mínu ef verða mætti til þess, að eitthvað sljákkaði í þeim, en rétt í því kom bóndinn, Ingi- valdur Benediktsson minnir mig hann héti, - út á hlað, og þögnuðu þá hundamir.Ég spurði Ingivald hvort hann gæti flutt mig yfir til Bíldudals. Jú, ekki stóð á því, en fyrst skyldi ég ganga í bæinn og fá mér hressingu. Báturinn var uppi í fjöru og allþungur, en ekki annað manna heima en bóndi, kona hans og dóttir. En það var í samræmi við erindi mitt á vit Vestfirðinga, að með sameigin- legu átaki gátum við komið bátn- um á flot. Töluverður spölur er þama yfir Amarfjörðinn, um klukkutíma stím á trillu milli Rafnseyrar og Bíldudals, en lítið reyndi á sjóhreysti mína, því kvikulaust var með öllu. Ekki gekk ferðin þó alveg skrykkja- laust. Einu sinni strönduðum við vegna þess, að þaraflækjur þvældust í skrúfuna. Greiðlega gekk þó að hreinsa skrúfublöðin, en hefði getað orðið erfiðara, ef sjór hefði verið ókyrr. I annað skiptið þraut bensínið, en það kom ekki að sök, því eins og vænta mátti var Ingivaldur það forsjáll að hafa með sér vara- birgðir af því. Þegar til Bíldudals kom fylgdi Ingivaldur mér á fund kaupfé- lagsstjórans, Böðvars Pálssonar. Þama stóð svo á, að samkomu- húsið, sem mér skildist raunar að væri pakkhús, var upptekið vegna kvikmyndasýningar, en ekki hægt að fresta fúndi til næsta dags nema að raska áætlun minni og færa til þá fiindi, sem eftir vom. Böðvar bauð mér því með sér á bíóið og hóaði síðan nokkmm mönnum saman heima hjá sér þar sem við skutum á fundi. Var hann ágætur, en gjaman hefði ég viljað hafa hann fjölmennari. En Böðv- ar var ánægður með fundarsókn- ina, sagði að þama væri þungt fyrir fæti hjá samvinnumönnum „í þessu höfuðvígi Gísla vél- stjóra“, eins og hann orðaði það. Og það gleddi sig, að þama hefðu mætt menn, sem hann hefði ekki átt von á að láta sjá sig á svona þingi. En það var eins og fyrri dag- inn að seint var gengið til náða, því Böðvar kaupfélagsstjóri þurfti margs að spyija úr öðmm sóknum og „þér er óhætt að sofa vel út í fyrramálið, þú nærð nógu snemma til Sveinseyrar fyrir það“. -mhg '»*«.y i w- w.. ’W ‘r'*y *w* a *Y ^*1 rJLOAiVIAKJvA±> UR PJOÖVIJLJAJ>liS Ýmislegt Trymbill Trymbill óskast ( „underground" rokkhljómsveit. Uppl. í slma 73424 allan daginn. Fyrir lítið Til sölu fyrir litið: Gamall frysti- skápur, tekk-borðstofuborð, barnarúm, skrifborð, svart-hvltt sjónvarp, sófaborð, hornborð, gamlir stólar og stelpureiðhjól fyrir 5 ára. Sími 23076. Skíöaskór Til sölu Nordica skíðaskór, stærð 39-40 á kr. 2000. Hvítt barnarimla- rúm með dýnu til sölu á kr. 4000. Sími 34868. Hljómtæki Til sölu 70 W. Goldstar hljóm- tækjasamstæða án hátalara. Verð kr. 20.000. Simi 621894 e. kl. 19. Handfærarúlla Til sölu 24 volta DNG tölvurúlla af nýrri gerð. TII greina koma skipti á góðum farslma. Sími 93-61478, Guðmundur, e. kl. 18. Husnæéi íbúð til leigu Ca 55 fermetra stúdíoíbúð til leigu I risi ( Miöbænum. Suðursvalir. Lysthafendur hringi inn nöfn sln og símanúmer ( slma 17162 eftir kl. 17. Myndlistarfólk Eitt vinnuþláss á 5 manna verk- stæði á besta stað ( bænum á Laugavegi, laus frá 1. jan. Uppl. ( sfmum 14626 og 25659 á kvöldin. íbúð 3-4 herb. Við erum hjón með eitt barn og vantar 3-4 herb. (búð (Vesturbæn- um frá áramótum. Helst (nágrenni Grandaskóla. Skilvísum greiðslum og reglusemi heitið. S(mi 624624 á kvöldin. (búð óskast Óska eftir 2-3 herbergja fbúð til leigu I miðbænum sem fyrst. Slmi 11013, Þórdís. Húsgögn Svefnherbergishúsgögn Til sölu mjög falleg og sérstök svefnherbergishúsgögn. Verð eftir samkomulagi. Sími 17087. og raftæki Rafmagnsritvél Notuð kúlu-rafmagnsritvél óskast til kaups. Skilyrði að vélin sé I góðu lagi. Slmi 681310. Til sölu (sskápur, frystikista og þvottavél til sölu. Uppl. ( síma 670993 eftir kl. 19.00. Tölva Til sölu Commandor 64 tölva með kassettutæki, 300 leikjum og 2 stýripinnum. Verð kr. 10.000. Philiphs, tvöfalt kassettutæki með equilizer , dubbing system og út- varpi. Losanlegir hátalarar. Verð kr. 9.000. Slmi 34868 Bassi og magnari Til sölu er bassi og bassamagnari. Seljast ódýrt. Gott fyrir byrjendur. Sími 73424. Til sölu Eumenia þvottavél, frystikista og lítill Isskápurtil sölu. Slmi 11605. Dýrahald Hestaflutningar Tek að mér hesta- og heyflutn- inga. Uppl.l s(ma 77054 og 985- 22776. Fyrir börn Barnakarfa Ef einhver á bamakörfu sem hann er hættur að nota í geymslunni, vinsamlegast hringið í Hrefnu í síma 681333 til kl. 17 og 666182 e. kl. 17. Bamavagn Lltill barnavagn með buröarrúmi til sölu. Simi 39616 Barnagæsla Óska eftir barnaplu þrjú kvöld ( viku frá kl. 18-21. Um er að ræða gæslu á 1 árs stelpu. Sími 37835. Gefins Svalavagn fæst gefins. Sími 34937. Dagmamma Breiðholti Vantar þig dagmömmu fyrir barnið þitt hálfan eða allan daginn? Sími 76522. Bílar og varahlutir Góður bfll á góðu verði Til sölu Skoda 120L árg. 1987, ek- inn innan við 30 þúsund. Verð kr. 80.000 staðgreitt. Slmi 611431 og 51522 á morgnana og kvöldin. bjónusta Vélritun-ritvinnsla-þýðingar Tek að mér vélritun og ritvinnslu. Einnig þýðingar úr frönsku, ensku og dönsku. Uppl. (s(ma 20237. Þriðjudagur 15. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Við gerum okkur vonir um að endanleg niðurstaða af þessum viðræðum um orku- samning fáist í febrúar. Viðræð- unum miðar vel áfram, en ég get ekki tjáð mig um einstök efnisatriði þeirra, segir Birgir ísleifur Gunnarsson, stjórnar- maður í Landsvirkjun, í samtali við Þjóðviijann. Viðræðunefnd Landsvirkjun- ar og fulltrúar Atlantal komu saman til fundar í London í síðustu viku, en að sögn Birgis Is- leifs hefúr verið ákveðið að fúnd- ir verði haldnir að nýju 31. janúar og 5. febrúar. - Við vonum að þessir fundir skili okkur nær endanlegri niður- stöðu um orkusamning. Það gengur ört á þau atriði sem hafa verið óljós, segir Birgir. Viðræður Landsvirkjunar og Atlantal hafa ekki snúist um orku- verðið sjálft. Að sögn Birgis Is- leifs er enn gengið út frá því að kílóvattstundin verði seld á 18,3 mills, en það verð er meðal annars byggt á spám um álverð. Hann vill ekki tjá sig um það nánar hvort hann telji þetta verð fúllnægjandi, eða hvort hann álít- ur spár um álverð raunhæfar. - Ég hef ekki ástæðu til þess að vefengja þessar spár, þær eru eins góðar og hægt er að búast við, segir Birgir ísleifur. Dijúgur tími hefúr hins vegar farið í að ræða ákvæði um endur- skoðun, sem stjóm Landsvirkjun- ar hefúr lagt mikla áherslu á. -gg Verðbólgan Á svipuðu róli Vísitala framfærslukostnaðar miðuð við verðlag i janúarbyrjun reyndist 0,6 prósent hærri en í des- ember 1990. Síðustu 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 73 pró- sent Hækkun síðustu þriggja mán- aða jafngildir hinsvegar 6,4 pró- sent árshækkun. Verðbólgan er því heldur á upp- leið, en síðasta ár var meðaltalshækk- un visitölunnar 14,8 prósent miðað við 22,1 prósent árið áður og 25,5 prósent árið 1988. Það var 1,2 prósent hækkun á matvöm sem áti heiðurinn af 0,2 pró- sentum af þessum 0,6. Rafmagns- og húshitunarkostnaður hækkaði um 1,8 prósent og olli 0,1 prósent hækkun. Vöm- og þjónustuhækkanir áttu af- ganginn eða 0,3 prósent. -gpm ALÞÝÐUBANDALAGIÐ AB Reykjanesi Kjördæmisráð AB Reykjanesi (aöalmenn og varamenn) Fundur ( kjördæmisráði Alþýðubandalagsins á Reykjanesi verður haldinn laugardaginn 19. janúar nk. ( Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi, kl. 13.30. Dagskrá: 1. Tekin ákvörðun um skipan framboðslista fyrir alþingiskosn- ingar á vori komanda. 2. Önnurmál. Til fundarins eru boðaðir aðal- og varamenn samkvæmt samþykkt slðasta fundar í kjördæmisráði. Stjórnin. Árangur ríkisstjómarinna verkefni þeirrar n Árangur ríkisstjórnarinnar og verkefni þeirrar næstu! Fundur ráðherra Alþýðubandalagsins, Ólafs Ragnars, Steingrlms og Svavars, verður I Þinghóli, Hamraborg 11 I Kópavogi, í kvöld kl 20.30. Fundarstjóri: Sigríður Jóhannesdóttir. Umræðustjóri Heimir Pálsson. Umræður, fyrirspurnir, svör. Sýnum kjark og kraft - fylgjum árangrinum eftir. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið I Reykjavík Félagsfundur Félagsfundur ABR verður haldinn miðvikudaginn 16. janúar kl. 20.30, að Hverfisgötu 105, 4. hæð. Fundarefni: 1. Almenn stjórnmálaumræða og áherslur ( komandi alþingiskosn- ingum. 2. Önnur mál. Allir Alþýðubandalagsmenn velkomnir. Frambjóðendur I forvali G- listans ( Reykjavík vegna væntanlegra alþingiskosninga eru sér- staklega boðnir velkomnir á fundinn. Stjóm ABR Forval G-iistans í vegna alþingiskosninga Reykjavík 199T Forvalið fer fram (einni umferð á sérstökum forvalsfundi laugardag- inn 19. janúar 1991 kl. 10.00-20.00, að Laugavegi 3, 4. hæð. Þeir sem ekki verða ( Reykjavík á forvalsdaginn eiga kost á þvl að kjósa f sérstakri forkosningu dagana 16., 17. og 18. janúar kl. 16.00- 19.00 alla dagana, að Laugavegi 3, 4. hæð. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn ( Alþýðubandalaginu I Reykjavlk og aðrir félagar (Alþýðubandalaginu sem lögheimili eiga (Reykjavlk og voru á félagaskrá Alþýðubandalagsins 9. janúar sl. Kjörnefnd

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.