Þjóðviljinn - 24.01.1991, Síða 1
Fimmtudagur 24. janúar 1991 — 16. tölublað 56. árgangur
Loðnuveiðibann
Tugmiljóna tap loðnubæja
Tekjutap loðnubœjanna metið á marga tugi miljóna og verðmœti mjöls og lýsis af óveiddum
kvóta á um 3 miljarða
Ljóst er að þau sjávarpláss
þar sem loðnuvinnsla hefur
verið mikilvæg í atvinnuiífinu,
verða fyrir veruiegum fjárhags-
Iegum skakkafoilum verði
loðnuveiðibannið ekki feiit úr
gildi. Sum sveitarfélaganna
munu tapa tugum miljóna.
A næstunni verða teknar
ákvarðanir um uppsagnir starfs-
manna loðnubræðslanna, en í
venjulegu árferði eru starfsmenn
þeirra hátt á fimmta hundrað.
Asgeir Magnússon, bæjar-
stjóri í Neskaupstað, segir að tap
bæjarsjóðs vegna aðstöðugjalda
og hafiiargjalda geti orðið allt að
20 miljónir króna eða 10% af árs-
tekjunum, fyrir utan öll önnur
áhrif, ef engin loðna verði veidd.
Eitthvað svipuð munu áhrifin
Kópavogur
Bæjar-
fulltrúar f
hár saman
Guðmundur Oddsson
segir sig úr stjórn-
sýslunefnd: Traust
mitt á Gunnar Birgis-
syni gjörsamlega
horjið
Gunnar Oddsson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins í Kópa-
vogi, hefur sagt sig úr stjórn-
sýslunefnd bæjarins og tilkynnt
að Alþýðuflokkurinn muni ekki
skipa annan fulltrúa í nefndina.
Astæðan er harðar deilur við
Gunnar Birgisson, bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins og for-
mann bæjarráðs. Deilurnar eiga
rætur að rekja til samninga
bæjarins við Frjálst framtak.
Guðmundur lagði úrsögn sína
fram á fundi bæjarráðs í síðustu
viku. Hann segir að sú vinna sem
unnin er í stjómsýslunefnd sé þess
eðlis að nefndarmenn verði að
bera fúllt traust hver til annars.
„Hinar stöðugu yfirlýsingar
formanns bæjarráðs, Gunnars
Birgissonar, í íjölmiðla um van-
hæfni undirritaðs sem bæjarfull-
trúa, sýna ljóslega „traust“ hans á
viðkomandi. Þessar yfirlýsingar
hafa vissulega rýrt traust mitt á
Gunnari Birgissyni, og nú er svo
komið að það er gjörsamlega horf-
ið,“ segir Guðmundur í bréfi sínu
til bæjarráðs.
Guðmundur vísar þama til yf-
irlýsinga Gunnars vegna samn-
inga fyrrverandi meirihluta bæjar-
stjómar við Fijálst framtak um
byggingarframkvæmdir. Gunnar
lét hins vegar bóka í bæjarráði að
úrsögn Guðmundar úr stjómsýslu-
nefnd breyti í engu skoðun sinni á
samningunum við Fijálst framtak.
-gg
verða á tekjur Eskiíjarðar, og að
sögn Þorvaldar Jóhannssonar,
bæjarstjóra Seyðisfjarðar, yrði
varanlegt loðnuveiðibann nánast
rothögg á annars bágborið at-
vinnuástandið þar.
I Vestmannaeyjum er tekjutap
bæjarsjóðs áætlað 40-45 miljónir
króna, 1100 miljónir tapast í
framleiðsluverðmæti og launatap
er metið á um 300 miljónir króna.
Jón Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra fiskimjöls-
framleiðenda, segir að þegar hafi
verið losað eitthvað um mann-
skap í bræðslunum vegna veiði-
bannsins og á næstunni verða
teknar ákvarðnir um uppsagnir
þeirra sem em með þriggja mán-
aða uppsagnarffest.
I sjávarútvegsráðuneytinu er
hin svokallaða bjargráðanefnd að
skoða þann vanda sem skapast
hefur vegna loðnuveiðibannsins
og áhrif þess á afkomu verksmiðj-
anna og veiðiflotans. Þá hafa
bankastjórar viðskiptabanka
verksmiðjanna verið kallaðir til
viðtals í ráðuneytinu til upplýs-
ingar um veðhæfni þeirra.
Af 600 þúsund tonna heildar-
loðnukvótanum komu 468 þús-
und í hlut Islendinga, og því til
viðbótar hafa verið keypt um
6.500 tonn af Grænlendingum
eða samtals um 475 þúsund tonn.
A haustvertíð veiddust um 84
þúsund tonn og því em óveidd um
390 þúsund tonn af loðnu. Fram-
leiðsluverðmæti þeirra í lýsi og
mjöli er metið á 3 miljarða króna,
að viðbættum þeim verðmætum
sem hægt er að fá með loðnufryst-
ingu og hrognatöku. -grh
. ■
: :
Oddvitar framboðanna, Jóhannes Guðnason og Guðmundur Jóhann Guðmundsson, á framboðsfundi Dagsbrúnar ( gær. Mynd Kristinn.
Dagsbrúnarkosningar
Heitt í kolunum á framboðsfundi
Þétt setinn bekkurinn á framboðsfundi Dagsbrúnar.
Guðmundur./.: Eg kallaykkur alla til starfa. Þýðir lítið að tefla unglingum fram í baráttu.
Jóhannes Guðnason: Tími kominn til breytinga eftir 18 ára sjálfkjörna forystu
Dagsbrúnarmenn fjölmenntu
á framboðsfund í Bíóborg-
inni í gær vegna kosninga til
stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs félagsins sem fram fara um
næstu helgi. Guðmundur Jó-
hann Guðmundsson, sitjandi
formaður og oddviti á fram-
boðslista stjórnarinnar, lagði
þunga áherslu á að erfiðir tímar
væru framundan og varaði
menn við sundrungu í félaginu.
Jóhannes Guðnason, oddviti
mótframboðsmanna, sagði nú-
verandi forystu hafa brugðist
félagsmönnum sinum og að
fyrir löngu væri tími kominn til
breytinga, enda hefði stjórn fé-
lagsins verið sjálfkjörin í heil 18
ár.
Þótt hnútur flygju milli ræðu-
manna voru þeir málefhalegir í
málflutningi sínum. Á mælenda-
skrá voru 20 manns sem ýmist
mæltu með endurkjöri sitjandi
stjómar eða hvöttu menn til að
kjósa framboðslista mótfram-
boðsins.
Guðmundur Jóhann höfðaði í
sínu máli til samvisku og sam-
stöðu félagsmanna og varaði
menn fastlega við því að kjósa yf-
ir sig óreynda unglinga. -Eg kalla
ykkur alla til starfa, Dagsbrúnar-
menn. Við þurfúm að haldast
hönd í hönd, sagði formaðurinn
og minnti fúndarmenn á að fram-
undan væri erfið samningagerð
þar sem tekist yrði á um ávinn-
inga þjóðarsáttar og ffekari ávinn-
inga til betri og jafnari Iífskjara.
-Menn mega bjóða fram í
þessu félagi, þótt frambjóðend-
umir séu flestir óharðnaðir ung-
lingar, sagði formaðurinn og bætti
við að það þýddi lítið að tefla slík-
um mönnum ffam í baráttu.
Jóhannes Guðnason sagði
mótffamboðið vera tímamót í
sögu Dagsbrúnar. -Þetta er í
fyrsta sinn í 18 ár sem félagsmenn
ráða sjálfir ferðinni, sagði Jó-
hannes.
-Það er sagt að þetta framboð
sé ekki til góðs. Það er öðm nær.
Stjómin hefur ekki fyrr komið
jafn ofl saman og ályktað um alla
hluti milli himins og jarðar, að því
er virðist í þeim tilgangi einum að
vekja athygli á sér, sagði Jóhann-
es.
Hann rakti einnig stefnumál
mótffamboðsins, s.s. hækkun
skattleysismarka og að sett yrði
hátekjuþrep miðað við mánaðar-
laun 170.000 kr.
Af undirtektum fundarmanna,
sem gerðu góðan róm að máli
ræðumanna, mátti ráða að sitt
sýndist hveijum.
-rk