Þjóðviljinn - 24.01.1991, Page 2
FRETTIR
Menntamálaráðunevtið
Bankaeftirlitið
Evrópa og íslensk menning
Málþing um stöðu íslenskrar menningar á tímum aukinnar samvinnu í Evrópu
Kyolos, menningarmálaráð-
herra Litháens, og Lalumi-
ere, framkvæmdarstjóra Evr-
ópuráðsins, hefur verið boðið
hingað á málþing um alþjóð-
lega þróun í þágu íslenskrar
menningar sem haldið verður á
vegum menntamálaráðuneytis-
ins í febrúar næstkomandi.
EURIMAGE, sem er evrópskur
kvikmyndasjóður. Hins vegar eru
Islendingar aðilar að mörgum
samevrópskum verkefhum á sviði
vísinda.
Svavar sagði að mikilvægt
væri að skipa hóp að loknu mál-
þinginu sem ræddi til hlítar þær
spumingar sem upp hefðu komið.
Hann sagði spuminguna ekki
vera hvort erlend menningaráhrif
bæmst til iandsins, heldur hvem-
ig við nýttum okkur þau þegar
þau bærast. Ekki væri hægt að
spenna regnhlíf yfir ísland eins
og þróun í Qölmiðlun hér síðustu
vikur hefði sýnt.
Menntamálaráðherra hefur
verið boðið í opinbera heimsókn
til Litháens, en enn er óvíst hve-
nær af henni verður. Formlegt
boð barst menntamálaráðherra
með Emannelis Zingeris, for-
manni utanríkismálanefndar
þingsins í Litháen, sem er staddur
hér á landi.
BE
Málþingið mun velta upp
spumingum um það hvemig ís-
lensk menning geti nýtt sér al-
þjóðlega strauma í ljósi þróunar í
Evrópu.
Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra sagði aukna sam-
vinnu í Evrópu ekki vera bundna
við samninga um tolla og fjár-
magnsflutninga, heldur væri sam-
starf um mikilvæga þætti er lytu
að vísindum og listum einnig stór
þáttur í þeirri samvinnu.
Frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, mun flytja upp-
hafsræðuna á þinginu. Frú Cat-
herine Lalumiere mun í ræðu
sinni fjalla um þróun í Evrópu og
stöðu fámennra þjóða í henni.
Menntamálaráðherra flytur ræðu
undir heitinu Erlend áhrif - ís-
lensk nýsköpun. Að auki munu
átta fyrirlesarar úr samtökum ís-
lenskra rithöfunda og listamanna
flytja stutt erindi. Ráðstefnunni
mun ljúka með pallborðsumræð-
um.
Á sviði menningar og lista
hafa tvíhliða samningar verið al-
gengari en samningar Evrópu-
bandalagsins í heild, að sögn
Svavars. Frá því á síðasta ári hafa
þó lslendingar verið aðilar að
Frá stuðnings-
mönnum Auðar
Sveinsdóttur
Vegna yfirlýsingar Ragnars
Stefánssonar í tilefni auglýsingar til
stuðnings Auði Sveinsdóttur í 3.
sæti forvals ABR vilja stuðnings-
menn Auðar taka fram að þau mis-
tök að birta nafn Ragnars án þess að
samþykki hans lægi fyrir era alfarið
á okkar ábyrgð en ekki Auðar. Jafn-
framt viljum við benda á að Ragnar
var einn þeirra félaga ABR sem
skoraðu á Auði að gefa kost á sér í
forvalið.
Minningarguðsþjónusta
um Olaf V
Miðvikudaginn 30. janúar
verður útför Olafs V Noregskon-
ungs gerð. 1 tilefni af því verður
minningarguðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík á vegum
norska sendiráðsins. Athöfnin
hefst kl. 15. Biskup Islands, herra
Olafur Skúlason, mun annast at-
höfnina og flytja minningarræðu.
Marteinn H. Friðriksson dómorg-
anisti leikur á orgel. Hamrahlíð-
arkórinn undir stjóm Þorgerðar
Ingólfsdóttur og Kammersveit
Reykjavíkur undir stjóm Rutar
Ingólfsdóttur taka þátt í athöfn-
inni. Minningarbók vegna andláts
Ólafs V liggur frammi í norska
sendiráðinu alla virka daga til og
með 29. janúar nk. kl. 9 til 16.
Guðmundur Andri skoð-
arjólabækurnar
Félag islenskra fræða boðar
til aðalfundar í Skólabæ í kvöld
kl. 20.30. Að loknum hefðbundn-
um aðalfundarstörfum talar Guð-
Emannelis Zingeris, formaður utanríkimálanefndar þjóðþings Litháa, sem kom hingað til lands f óopinbera
heimsókn i fyrradag, heimsótti utanrfkismálanefnd Alþingis í gær. Á myndinni með honum eru túlkur hans, Jör-
undur Hilmarsson, Jóhann Einvarðsson, formaður nefndarinnar, og Hjörieifur Guttormsson. Zingeris Itrekaði
óskir Litháa um að (sland taki upp formlegra stjórnmálasamband við Litháen en nú er og lagði hann áherslu á
að það gerðist fljótt. Hann ítrekaði einnig aðrar óskir um mótmælaaðgerðir vegna framferðis Sovétríkjanna
gegn sjálfstæðisbaráttu þjóðar sinnar. Mynd: Kristinn.
Bráðabirgðalögin
Flugu í gegn
Bráðabirgðalögin staðfest. Þrír Sjálfstœðismenn sátu hjá
Bráðabirgðalögin á samning
BHMR og ríkisins frá því í
ágúst í fyrra voru staðfest á Al-
þingi í gær. Við atkvæða-
greiðslu í efri deild Alþingis
sátu þrír Sjálfstæðismenn hjá.
Það voru Eyjólfur Konráð
Jónsson, sem skilaði sér minni-
hlutaáliti frá fjárhags- og við-
skiptanefnd, Guðmundur H.
Garðarsson og Þorvaldur
Garðar Kristjánsson.
Fyrir jól lýsti þingflokkur
Sjálfstæðismanna því yfir að hann
stæði einhuga gegn lögum þess-
um en þrátt lyrir það sátu einnig
Sjálfstæðismenn hjá í neðri deild.
Stjómarliðar greiddu atkvæði
með lögunum en á móti vora frá
Kvennalista Danfríður Skarphéð-
insdóttir og Guðrún J. Halldórs-
dóttir; af hálfu Sjálfstæðismanna
greiddu Halldór Blöndal og Sal-
óme Þorkelsdóttir atkvæði á móti.
Fjórir vora fjarverandi þing-
fundinn þannig að 10 greiddu at-
kvæði með Iögunum, íjórir vora á
móti og þrír sátu hjá.
Nú rekur BHMR prófmál
vegna gjömings þessa fyrir dóm-
stólum og er látið reyna á hvort
lögin bijóti í bága við stjómarskrá
Islands. Þeir sem greiddu atkvæði
með lögunum telja þau ekki
brjóta í bága við stjómarskrána en
ekki er víst að niðurstaða fáist fyr-
ir dómstólum fyrir þingslit um
miðjan mars í vor.
-gpm
Hallgrlmur með nokkrum gesta sinna.
Gestakvöld á Kjarvalsstöðum
í tilefni yfirlitssýningar sinnar sem nú stendur yfir í Vestursal Kjar-
valsstaða mun Hallgrímur Helgason bjóða þar til leskvæmis í kvöld,
fimmtudagskvöld. Gestir Hallgríms verða myndiistarmenn og rithöf-
undar sem lesa munu upp úr eigin verkum, auk þess sem Björk Guð-
mundsdóttir mun taka lag á milli lína við undirleik Guðmundar Ing-
ólfssonar. Dagskráin hefst kl. 20.30 og auk Hallgríms sjálfs munu þar
lesa þau Bragi Ólafsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Haraldur Jónsson,
Kristín Ómarsdóttir, Megas og Þórann Valdimarsdóttir, Valdimar Öm
Flygenring, Sigfús Bjartmarsson, Sjón og Guðmundur Andri Thors-
son, auk fleiri gesta og leynigesta. I hléi munu Hringir, polka-hljóm-
sveit heimskunnar, leika með kaffisopum og kökuvali. Aðrir gestir era
velkomnir meðan húsrúm Ieyfir.
mundur Andri Thorsson, bók-
menntafræðingur og rithöfundur,
um sagnaskáldskap af nýliðinni
jólavertíð.
Blús á Tveimur vinum
Vinir Dóra skemmta á Tveim-
ur vinum í kvöld. Með þeim spil-
ar þeldökkur leynigestur. Á föstu-
dagskvöld Ieikur Stjómin á staðn-
um og á laugardagskvöld Islands-
vinir.
Aðalskipulag Grindavíkur
Skipulagstillaga Áma Þor-
valdar Jónssonar arkitekts verður
kynnt í kvöld kl. 20.30 í Félags-
heimilinu Festi í litla salnum. Til-
lagan, sem er viðauki við aðal-
skipulag, er m.a. um tengingu
bæjarins við athafnasvæði um-
hverfis nýtt lón við rætur Þor-
bjamarfells og iðnaðarhverfi
norður af núverandi Bláa lóni.
Fræðsla og ráðgjöf um
fjölskylduáætlun
Sóley S. Bender lektor flytur
fyrirlesturinn Fræðsla og ráðgjöf
„Víxlarinn“
væntanlega
skoðaður
Jóhann Albertsson hjá
Bankaeftirlitinu segist reikna
með því að Bankaeftirlitið muni
kanna hvort viðskipti með fallna
víxla og skuldabréf, sem undan-
farið hafa verið auglýst í smá-
auglýsingum DV og fjallað var
um í Nýju Heglarblaði fyrir
skömmu, samrýmist gildandi
lögum um verðbréf og verð-
bréfasjóði.
-Við höfum verið önnum kaíh-
ir við önnur mál, en þetta er héma
á blaði hjá okkur, sagði Jóhann.
Aðspurður hvað það væri sem
Bankaeftirlitið tæki til athugunar í
slíkum tilfellum sem þessum,
sagði Jóhann að erfitt væri að segja
í fjölmiðlum nákvæmlega til um
hvaða þættir það væra. -En laus-
lega sagt könnum við hvort þessi
starfsemi heyri undir lög um verð-
bréfaviðskipti og verðbréfasjóði
og ef svo er hvort hún samræmist
gildandi lögum.
Athygli vekur að „víxlarinn“
hætti að auglýsa starfsemina í
nokkra daga eftir að Þjóðviljinn
gerði hana að umtalsefni, en síð-
ustu daga hefur auglýsingin birst á
ný í verðbréfadálki smáauglýsinga
DV.
Reykiavík
Yfir helmingi
lóða skilað
Af þeim 238 Ióðum sem út-
hlutað var fyrir einbýlishús og
parhús í Reykjavík í fyrra var
150 skilað. Þetta kemur fram í
bókun sem borgarfulltrúar Nýs
vettvangs lögðu fram í borgar-
stjórn í síðustu viku.
Hins vegar kemur fram í bók-
uninni að engri fjölbýlishúsalóð
var skilað og fengu reyndar færri
slíkar lóðir en vildu. Þannig fékk
Búseti ekki eins margar lóðir og
hann sótti um.
Borgarfulltrúar Nýs vettvangs
telja að taka verði tiilit til þessa við
skipulag hverfa. Þeir telja nauð-
synlegt að auka ffamboð á lóðum
fýrir fjölbýlishús og „aðra hag-
kvæma byggingarkosti", eins og
segir í bókuninni.
-gg
um fjölskylduáætlun í málstofu í
hjúkranarffæði sem haldin verður
mánudaginn 28. janúar kl. 12.15-
13.00 í setustofu á 1. hæð í Eir-
bergi, Eiríksgötu 34. Kynnt verð-
ur könnun frá 1988 á fræðslu og
ráðgjöf um fjölskylduáætlun, sem
veitt er á heilsugæslustöðvum og
niðurstaðan rædd.
Sandgrasvöllur Breiöa-
bliksvígður
Breiðablik tekur formlega í
notkun nýjan sandgrasvöll á laug-
ardag. Völlurinn hefur verið lagð-
ur á félagssvæði Breiðabliks í
Kópavogsdal, en hér er um að
ræða fyrsta gervigrasvöll sinnar
tegundar hér á landi. í vellinum
eru hitalagnir sem tryggja heils-
ársnotkun á snjólausum og frost-
fríum velli og er völlurinn flóð-
lýstur. Heildarkostnaður við völl-
inn eru 65 miljónir króna. Opnun-
arhátíðin hefst með því að meist-
araflokkur Breiðabliks mætir ís-
landsmeisturum Fram. Leikurinn
hefst kl. 13.15 og að honum Iokn-
um hefst stutt hátíðardagskrá.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. janúarr 1991