Þjóðviljinn - 24.01.1991, Qupperneq 5
VIÐHORF
Deilur í Alþýðubandalaginu
Hallgrímur Hróðmarsson skrifar
Það er mikið deilt innan Al-
þýðubandalagsins þessa dagana.
Því miður eru deilumar um menn
en ekki málefni. Þetta þorir þó
enginn að viðurkenna og sver
hver um annan þveran að hann sé
með málefnin að leiðarljósi í deil-
um sínum við alla hina. Helst geta
menn samþykkt að hinir (og eiga
þá við andstæðingana) séu að
deila um persónur. Eg ætla að
deila hér á marga félaga í Alþýðu-
bandalaginu, en jafnframt ætla ég
að ræða tvö málefhi sem eitt sinn
voru grundvallaratriði i stefnu
flokksins. Þau málefni sem end-
anlega voru jörðuð á síðasta
flokksþingi. Þar felldu menn úr
gildi meingallaða stefnuskrá
flokksins, en samþykktu í hennar
stað lofrollur um eigið ágæti í nú-
verandi ríkisstjóm.
Meðgóðufólki
Ég hef reynt að halda mér ut-
an við störf Alþýðubandalagsins
nú um nokkurt skeið. Ein ástæða
þess er sú að ég flultist frá Hafh-
arfirði til Reykjavíkur, úr góðu fé-
lagi i slæmt. Hjá góða fólkinu í
Alþýðubandalaginu í Hafnarfírði
var oft rifist og menn fóm oft sár-
ir af fundum eftir slikar deilur. En
daginn eftir hittust deilumenn
gjaman aftur eða töluðust við í
síma og gerðu málin upp. Það var
kappkostað að sýna fulla hrein-
skilni í samskiptum milli allra fé-
lagsmanna.
I fýsilegan
félagsskap?
Með þessa reynslu af starfi í
Alþýðubandalagsfélagi gat það
varla talist fýsilegur kostur ai
koma til starfa í Reykjavík. Þar
var hver höndin upp á móti ann
arri, og til þess að teljast gjald-
gengur þá þurfti maður helst að
skipa sér í flokk annars hvors
deiluaðilans eða einhvem flokk
eftir því hvaða mál var til um-
ræðu. Ef maður settist við ákveð-
ið borð á fundi í félaginu fór það
eftir því hver settist fyrst við hlið-
ina á þér hvar þú lentir í það og
það skiptið. Ef Kristín Ólafs tyllti
sér hjá þér þá settust eintómir
Birtingarmenn í kringum þig. Ef
Guðrún Ágústsdóttir settist hjá
þér þá settust eingöngu hennar
fylgjendur í kring. Af hveiju gat
herrastöðumar. Því til stuðnings
var hvislað rætnum Gróusögum
um Guðrúnu Helgadóttur manna
á meðal. Karlamir óttuðust mjög
að hún fengi almennan stuðning
meðal félagsmanna Alþýðu-
með þó nokkurri prýði. Ég tek
svona til orða af því að henni hafa
ekki verið sköpuð ýkja mikil
tækifæri til að sýna hvað í henni
býr. Þingflokksfundimir hjá Alla-
böllum eru nefnilega orðnir
Ég hef reynt að halda mér utan við störf
Alþýðubandalagsins nú um nokkurt skeið.
Ein ástœða þess er sú að ég fluttist frá
Hafnarfirði til Reykjavíkur,
úr góðu félagi í slœmt.
ég ekki fengið að sitja með þær
sína á hvora hlið? Mér líkar svo
vel við þær báðar!
Að drepa næstum því
drauma
Úr hófi keyrði svo fyrir síð-
ustu kosningar til borgarstjómar.
Þá klofnaði flokkurinn í afstöð-
unni til gamals draums allra
sannra vinstrimanna í Reykjavík
um að sameinast gegn ihaldinu.
Með háttalagi sínu áttu fulltrúar
allra minnihlutaflokkanna í Borg-
inni sinn þátt í að þessi draumur
var næstum drepinn. Þeir
„óflokksbundnu“ sem strax eftir
kosningar komu sér á hinar ýmsu
flokksjötur áttu ekki minni þátt í
að drepa drauminn, alla vega i
þetta skiptið.
Karlamir deila...
En deilumar eiga sér lengri
aðdraganda, og mun ég nú fjalla
nokkuð um karlaveldi flokksins.
Við myndun síðustu rikisstjómar
eða ríkisstjóma ef menn kjósa að
telja með öll þessi brotabrot úr
flokkum, sem hafa ýmist stutt eða
ekki stutt ríkisstjóm Steingríms
Hermannssonar, þá fengu karl-
amir í flokknum allar „feitu“ ráð-
BSRB
Of beldið í Eystrasalts
löndunum fordæmt
Stjórn BSRB hefur sent
stjórnvöldum í Sovétríkjunum
eftirfarandi bréf, þar sem of-
beldi sovéska hervaldsins í
Eystrasaltslöndunum er harð-
lega fordæmt:
„Stjóm Bandalags starfs-
manna ríkis og bæjar - BSRB -
lýsir hryggð sinni og furðu á ótíð-
indum þeim sem nú berast frá
Eystrasaltslöndunum, en vald-
beiting sovéska herveldisins gegn
alþýðu manna er komin á það stig
að óbreyttir borgarar hafa fallið,
bæði í Vilníus, höfuðborg Lithá-
en, og nú einnig í lettnesku höfúð-
borginni Riga. Stjóm BSRB styð-
ur heils hugar baráttu Eista, Letta
og Litháa fyrir auknu sjálfsfor-
ræði og lýðréttindum og fordæm-
ir það ofbeldi sem réttindabarátta
þeirra hefur mætt. Sérstaklega
hörmum við þau manndráp sem
átt hafa sér stað og lýsum ábyrgð
á hendur sovéska herveldinu fyrir
óhæfuverkin.
BSRB á aðild að Verkalýðs-
sambandi Norðurlanda - NFS - og
vill í þessu sambandi árétta sam-
þykkt þess ffá 17. janúar sl., en í
bandalagsins. Mér er til efs að
nokkur höfúndur þessara sagna
hafí verið svo hreinskilinn að
segja Guðrúnu þær beint augliti
til auglitis. En svo marga vini á
hún að hún hefur sjálfsagt heyrt
þær allar og líka hverjir bám þær
út.
Guðrún var síðan kjörin for-
seti sameinaðs alþingis og hefúr í
því starfí sýnt ótvíræða hæfileika
og margsannað að ráðherradóm
hefði hún ráðið mun betur við en
karlamir þrír: Ólafur Ragnar
Grímsson, Steingrímur Sigfússon
og Svavar Gestsson.
...og drottna
Formaður þingflokksins var
svo kjörin Margrét Frímannsdótt-
ir og hefur hún skilað starfi sínu
skrípaleikur einn. Af því að karl-
amir hafa ekki getað talast við, þá
hafa þeir pukrast hver í sínu homi
með nokkmm velvöldum já-
bræðmm og afgreitt málin þar.
Síðan hefúr þingflokknum verið
stillt upp við vegg og sagt: Sam-
þykkið þetta!
Síðan em haldnir landsfundir
og miðstjómarfúndir og allskonar
fundir til að samþykkja allar þess-
ar gervisamþykktir þingflokksins.
Þar með er nú ekki sagt að allt
sem ráðherramir hafa gert sé mis-
lukkað, en það má orða það svo,
að gerðir þeirra séu misvel lukk-
aðar.
Tvö
grundvallaratriði
Ég sagði áðan að ég ætlaði að
ræða tvö gmndvallaratriði úr
stefnu Alþýðubandalagsins sem
mér þykir ráðamenn flokksins
hafa brotið gegn að undanfomu.
í fyrsta lagi hlýt ég að nefna
að ráðherrar í ríkisstjómum sem
Alþbl. hefúr átt aðild að hafa
kmkkað í gerða samninga við
verkalýðsfélög, breytt þeim og
rangtúlkað að eigin geðþótta og
stundum að geðþótta ákveðinna
embættismanna hjá ríkinu. Af öll-
um þessum gjömingum er sá síð-
asti allra verstur, þ.e. ólögin gegn
BHMR. Sá gjömingur verður líka
sennilega festur á spjöld heims-
sögunnar þegar íslensk ríkisstjóm
verður vítt af virtum erlendum
stofnunum fyrir bolabrögð gegn
starfsmönnum sínum.
I öðm lagi nefni ég Sturlu-
málið nýja, þ.e. brottvikningu
forstöðumanns á rannsóknastöð-
inni að Mógilsá. Flokkurinn hefur
áratugum saman barist gegn
svona vinnubrögðum. Væri ekki
nær að þingmenn flokksins snem
sér að því vandasama verki að
setja heildstæð lög um forstöðu-
menn á ríkisstofnunum í stað þess
að ráðherra sé að mistúlka og of-
túlka lög og reglugerðir, sumar
meingallaðar?
Ég ætla ekki að hafa þessi orð
fleiri að sinni. Ef menn hafa
áhuga og nennu á að ræða þetta
við mig af einhveiju viti hér á síð-
um blaðsins þá er ég tilbúinn til
þess.
10. janúar 1991
Hallgrímur Hróðmarsson
kennari í MH.
henni er Sovétstjómin harðlega
átalin fyrir yfirgang gagnvart
Eystrasaltslöndunum. I ályktun-
inni segir meðal annars:
„Það er engin leið að afsaka
þá svívirðilegu og grófu valdbeit-
ingu sem sovéska hemaðarveldið
hefúr beitt í Litháen og Lettlandi.
Það veldur vonbrigðum hvemig
Sovétstjómin hefur svikið áform
sín um umbætur og frið. NFS
sættir sig ekki við hótanir og
valdbeitingu. Ágreining verður að
leysa við samningaborðið. NFS
krefst þess að sovéska ríkisstjóm-
in láti þegar af hemaðaraðgerðum
og hefji samningaviðræður í stað
valdbeitingar."
Stjóm BSRB minnir á að i lok
mánaðarins munu fulltrúar allra
samtaka innan NFS - þeirra á
meðal fulltrúi BSRB - sitja ráð-
stefnu verkalýðssamtakanna í
Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Sovétstjómin má vita það að við
emm ráðin í að styðja við bakið á
félögum okkar í Eystrasaltslönd-
unum með ráðum og dáð, og
munum því fylgjast grannt með
gangi mála.“
ÞRANDUR
SKRIFAR
Erhægtað
semja um
sannleikann?
Félagsvísindastofnun hefur
spurt kjósendur hvort þeir vilji að
Islendingar gangi í Evrópubanda-
lagið og líka um hve mikið þeir
viti um bandalag þetta. Ekki undr-
aðist Þrándur að meirihluti kjós-
enda skyldi endilega vilja komast
í bandalagið. Aftur á móti kom
skemmtilega á óvart að fimmti
hver kjósandi veit ekki betur en
ísland sé í EB, og hefur Þrándur
áður gert þessa merku uppgötvun
að umræðuefni.
í fyrrakvöld sýndi Sjónvarpið
svokallaðan lokaþátt í röð
„fræðsluþátta" um EB sem Ingi-
mar lngimarsson hefur séð um og
Þrándur hefúr líka gert að umtals-
efni. Lokaþátturinn var bestur
fýrir þá sem vilja í raun vita eitt-
hvað um kosti og galla þess að
ganga í Evrópubandalagið. Þátt-
urinn var þess vegna líka fróðleg-
ur fyrir stjómandann sem fram að
þessu hefur ekki tekist að koma
auga á gallana. Þama sátu foringj-
ar allra flokkanna sem taldir em
eiga möguleika á aðild að næstu
ríkisstjóm (en sjálfan guðfoður
ríkisstjómarinnar, Stefán Val-
geirsson, vantaði), og ræddu fram
og aftur um EB og ísland. Allt var
það mikið tal og skemmtilegt á
köflum, einkum þó undir lokin
þegar fjölskyldumálefni utanrík-
isráðherrans komust í brennidep-
il.
Maður er nefndur Gunnar
Schram, fyrrum þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, nú prófessor við
Háskóla íslands. Sérfróður er
hann um málefni Evrópubanda-
lagsins og kallaður til skrafs og
ráðagerða um þau efni þegar
nokkuð liggur við. Og nú lá mikið
við; allir helstu stjómmálaforingj-
ar landsins (fyrir utan Stefán Val-
geirsson, Halldór Blöndal og Olaf
Þórðarson) mættir í sjónvarpssal
og greindi greinilcga á. Greip þá
stjómandinn til gamals viðtals við
Gunnar þar sem prófessorinn
gerði sig beran að því að hafa aðra
afstöðu en utanríkisráðherrann.
Ráðherranum brá nokkuð við
þessi tíðindi, sem vonlegt var, og
kvaðst myndu snúa sér til tengda-
móður sinnar, liklega til að fá
skýringar eða þá til að segja pró-
fessomum til syndanna. Fyrir
þetta tiltæki hlaut ráðherra
ómælda virðingu Þrándar; svona
eiga sýslumenn að vera. Ævin-
lega með svar á reiðum höndum
við öllum vanda en auk þess virð-
ist Ijóst að fjölskyldur professors-
ins og ráðherrans mætast i
tengdaforeldmm hins síðamefnda
og því eðlilegt að taka vandamál
af þessu tagi til úrlausnar í fjöl-
skylduboðum.
Umræður um pólitík em oft í
leiðinlegra lagi, eins og allir vita,
enda munu Islendingar vera
manna slyngastir í þrætubókarlist
og deilum um aukaatriði. Innskot
utanríkisráðherrans (og nú ætlar
Þrándur meira að segja að tala i
alvöru) var yndislega islenskt og
þrælglettið að auki. Hitt er svo allt
annað mál að þáttur þessi opin-
beraði fyrir sjáanda að umræðu-
efnið er í meira lagi heitt. Þannig
lýstu málsmetandi menn yfir því
að þátttaka í Evrópsku efhahags-
svæði væri næstum það sama og
að vera í Efnahagsbandalaginu.
En ekki varð betur skilið af um-
mælum annarra, sem em líka
málsmetandi, en slíkar fullyrðing-
ar væm álíka mikils virði og baul
í kú.
Þegar þættinum var lokið, og
Þrándur býsna lukkulegur yfir
frammistöðu foringjanna, þá sat
hann kyrr dálitla stund á eftir og
hugsaði um það sem hann sá og
heyrði. Áður en langt um leið
fylltist hugur hans samúð - ekki
með þátttakendunum, ekki heldur
með Gunnari Schram, sem þarf
líklega að svara til saka við þýð-
ingarmikið eldhúsborð, og ekki
heldur með stjómandanum. Sam-
úðin er óskipt og einlæg með
þeim hluta þjóðarinnar sem Fé-
lagsvísindastofnun spurði á sín-
um tíma um afstöðuna til Efna-
hagsbandalagsins, því hvemig á
hún að vita hvað er rétt og hvað er
rangt þegar þeir sem hafa eiga vit
fyrir þjóðinni geta alls ekki komið
sér saman um sannleikann?
-Þrándur.
Fimmtudagur 24. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5