Þjóðviljinn - 24.01.1991, Side 7
ÞJÓÐMÁL
Markaðs- og útbreiðslunefnd
Gæði, hreinleiki, heilbrigt líf
Steingrímur Hermannsson: Þurfum að taka okkur taki. Baldvin Jónsson: Þarf að marka stefnu í umhverfismálum
Hugmyndir um að markaðs-
setja ísland miðast helst
við það að auglýsa landið
sem stað þar sem tekið hefur ver-
ið á umhverfismálum. Kjörorðin
væru: gæði, hreinleiki og heil-
brigt líf. Menn eru hinsvegar
sammála um að hér vanti stefnu í
Hrun
loðnustofnsins
Lögð hefur verið fram þings-
ályktunartillaga þess efnis að Al-
þingi kjósi fimm manna nefnd til
að gera úttekt á atvinnumálum
byggðarlaga þar sem loðnu-
vinnsla hefur verið veruleg með
hliðsjón af fyrirsjáanlegu hruni
loðnustofnsins.
Fyrsti flutningsmaður tillög-
unnar Jón Sæmundur Siguijóns-
son, Ain., segir í greinargerð að
flest þau byggðarlög þar sem
loðnubræðsla fer fram byggi af-
komu sína nær eingöngu á
vinnslu sjávarafla. Loðnubrestur
bætir ekki um betur i plássum þar
sem atvinnuástand er nú þegar
ótryggt. Því er fyllsta ástæða til
að mæta ástandinu með markviss-
um aðgerðum, segir í greinar-
gerðinni.
Stunda-
kennarar
Kristin Einarsdóttir, Kvl., hef-
ur beint þeirri fyrirspum til
menntamálaráðherra Svavars
Gestssonar hvers vegna stunda-
kennarar hafí ekki samningsrétt.
Hún spyr líka hvaða rök séu fyrir
því að stundakennarar njóti ekki
kjara samkvæmt kjarasamningum
stéttarfélaga heldur samkvæmt
einhliða ákvörðun ráðherra. Að
lokum er spurt hversvegna
stundakennarar njóti ekki hlið-
stæðra kjara fyrir stundakennslu
og fastráðnir kennarar við Há-
skóla íslands.
Mengunarbrot
Elín S. Harðardóttir, Alfl.,
hefúr lagt fram þingsályktunartil-
lögu þar sem Alþingi myndi
álykta að skora á samgönguráð-
herra Steingrím J. Sigfússon að
setja nú þegar reglugerð um sekt-
ir vegna laga um vamir gegn
mengun sjávar.
I greinargerð segir að sektar-
ákvæðum laganna hafi ekki verið
beitt þar sem reglugerðina vantar.
En hafharstjóra og lögreglustjóra
er heimilt, samkvæmt þessum
lögum ffá 1986, að beita sektum
vegna losunar eða úrkasts á hafn-
arsvæði sínu.
Matvælaastoð
úti í kuldanum
Jón Sæmundur Siguijónsson
dró fyrir viku í Sameinuðu þingi
til baka þingsályktunartillögu
sína um matvælaaðstoð til Sovét-
ríkjanna.
Jón Sæmundur sagði að hann
hafi upphaflega hugsað tillöguna
sem merki þess að Island virti það
sem væri að gerast í Sovétríkjun-
um og hefði átt sér stað síðustu ár.
„En allt í einu kemur Gorbatsjov í
bakið á okkur með stalinískum
aðferðum," sagði Jón Sæmundur
og vísar til innrásar sovéska hers-
ins í Litháen. Hann taldi því rétt
að draga tillöguna til baka sem
merki þess að Alþingi íslendinga
fordæmdi aðgerðir sovéskra yfir-
valda í Litháen. -gpm
umhverfismálum. Þörf er á miklu
átaki í þeim efnum, en talið er að
slíkt átak væri auðveldara hér á
landi en annarsstaðar vegna
smæðarinnar.
Þetta kom fram þegar skýrsla
markaðs- og útbreiðsluneftidar
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra var kynnt á dögun-
um. Nefndin spratt uppúr hug-
myndum um að fylgja eftir þeirri
góðu kynningu er landið hlaut
vegna leiðtogafúndarins 1986
með því að skapa góða ímynd af
því í hugum útlendinga. Stein-
grímur Hermannsson sagði að
nefndinni hefði verið gefnar
fijálsar hendur og komið með
fullt af tillögum sem sumar við
fýrstu sýn gætu virkað broslegar,
en væru meintar í fúllri alvöru.
Þúsund ára borgin
Fljótandi borg er nýtti orku
sjávarfalla, nýtti sjófang og stein-
efni úr hafinu auk sólarorku er ein
þessara hugmynda. Það eru
breskir aðilar sem hafa áhuga á að
reisa svona borg og er Island eitt
þeirra landa sem kemur til greina
og telja aðstandendumir legu
landsins ákjósanlega, auk þess
sem hér búi fiskveiðiþjóð, meng-
un sé lítil og mikil orka sé fólgin í
ám, vötnum og iðmm jarðar.
Borgin sem kölluð er Millenium
City, og þýða mætti sem Þúsund-
áraborgin, yrði fest með akkeri
milli eyja eða í firði og myndi
stíflan sem myndaðist nýtast við
orkuframleiðslu. í borginni yrðu
bílar óþarfir, hana mætti minnka
og stækka eftir þörfum og mönn-
um gæfist tækifæri hennar vegna
til að kynnast hafinu betur.
Umhverfislottó
Nefndin ræddi margar tillögur
sem miða að því að koma landinu
í sviðsljós atburða, sérstaklega á
umhverfimálasviði. Nefht hefur
verið alþjóðlegt umhverfislottó
og nú þegar hafa þær hugmyndir
verið viðraðar við sjónvarps-
stöðvamar CNN og Sky. Einnig
að hér yrðu veitt umhverfisverð-
laun af svipaðri stærð og umfangi
og Nóbelsverðlaunin. Þá hefur
einnig verið nefndur alþjóðlegur
umhverfismánuður þar sem lögð
yrði áhersla á að halda ráðstefhur
hér á landi.
Nefndin fjallaði einnig um til-
lögur varðandi heilbrigðismál,
ferðamál og annað slíkt sem allt
miðaði að því að ísland yrði
ímynd heilbrigðis og hreinleika.
Nefndin fékk til liðs við sig
breska aðila er kynntu hvemig
ætti að nmarkaðssetja ísland í
Bretlandi á ekki ósvipaðan hátt
og stórfyrirtæki kæmu vöm-
merkjum sínum á markað. Mark-
miðið væri að fá Breta til að
hugsa, að sé varan íslensk þá
hljóti hún að vera eftirsóknar-
verð. Slíkt myndi þó kosta margra
ára átak og hundmð miljóna
króna. Breska fyrirtækið Forum
Communications Ltd. sér um feg-
urðarsamkeppnina Ungfrú Heim-
ur og kom fram sú hugmynd að
keppninni yrði sjónvarpað héðan
landinu til framdráttar.
Margar fleiri hugmyndir er að
finna í skýrslunni, en fulltrúi for-
sætisráðherra í nefndinni Baldvin
Jónsson sagði að Island þyrfti að
marka stefnu í umhverfismálum.
Það þarf að vera fyrsta skrefið svo
hægt væri að skapa ímynd gæða,
hreinleika og heilbrigðs lífs. Und-
ir þetta tók forsætisráðherra og
taldi hann landann þurfa að taka
sér tak i þessum efiium. -gpm
Hugmyndir markaðs- og útbreiðslunefndar ganga meðal annars út á að hér við land verði reist fljótandi borg
sem ýtti undir það sjónarmið að ísland væri land gæða, hreinleika og heilbrigðs lífs. Hér mætti hugsa sér að
fyrir akkerum lægi borg sem nýtti sér orku sjávarfalla.
LAUNAGREIÐENDU
Innheimta
tiygaingagjalds
R
Þann 1. janúar 1991 komu til fram-
kvæmda lög um tryggingagjald.
Tryggingagjald er sérstakt gjald sem
launagreiðendum ber að inna af
hendi af vinnulaunum, reiknuðu
endurgjaldi o.fl. Með því er sameinuð
innheimta launatengdra gjalda.
Tryggingagjaldið kemur í stað
launaskatts, lífeyristrygginga-
gjalds, slysatryggingagjalds,
atvinnuleysistryggingagjalds
og vinnueftirlitsgjalds.
Gjaldstig
tryggingagjalds
Tryggingagjald er lagt á í tveimur
gjaldflokkum, þ.e. sérstökum og
almennum.
•í sérstökum gjaldflokki er gjaldið
2,5% af gjaldstofni. I þeim flokki eru
landbúnaður, iðnaður og sjávar-
útvegur.
•í almennum gjaldflokki er gjaldið
6% af gjaldstofni. í þeim flokki eru
allar aðrar gjaldskyldar atvinnu-
greinar sem ekki falla undir sérstak-
an gjaldflokk.
Gjalddagi og eindagi
Gjalddagi tryggingagjalds er 1.
dagur hvers mánaðar vegna launa
næstliðins mánaðarog eindagi er
14 dögum síðar.
Gíróseðlar
Á næstu dögum fá launagreið-
endur sendan áritaðan gíróseðil
vegna tryggingagjalds með upp-
lýsingum um greiðanda, greiðslu-
tímabil o.fl. Skil er unnt að gera í
öllum bönkum, sparisjóðum og
pósthúsum hjá innheimtumönnum
ríkissjóðs, í Reykjavík hjá tollstjóra.
Þeir sem ekki hafa gíróseðil en
þurfa að standa skil á trygginga-
gjaldi geta fengið sérstakan greiðslu-
seðil, RSK 5.28, hjá innheimtu-
mönnum tryggingagjalds.
Upplýsingabæklingur
Nánari upplýsingar um trygginga-
gjald er að finna í sérstökum upplýs-
ingabæklingi sem sendurverður
launagreiðendum á næstu dögum.
SSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
HVÍTA HÚSIÐ / SlA