Þjóðviljinn - 24.01.1991, Page 12
þJÓÐVIUINN
Fimmtudagur 24. janúar 1991 16. tölublað 56. árgangur
... alla daga
áff^ARNARFLUG
P INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - simi 29577
■ SPURNINGIN ■
Spurt á framboðsfundi
Dagsbrúnar
Hvernig heldur þú að
kosningar í Dagsbrún fari?
Dounreav
Islendingar geta haft áhrif
Arnar Þór Óskarsson
starfsm. Vatnsveitu R.vikur:
Ég þori ekki að segja til um úr-
slitin, en það er kominn tími til
að skipta um forustu. Stjórnin er
bæði oröin þreytt og gömul.
Sveinn Austmann,
vinnur við sorphirðu:
Ég spái því að Gvendur Jaki
haldi velli, hann er minn maður.
Ég vil ekki sjá þessa kettlinga
sem eru í mótframboðinu.
Guðmundur Hafliðason
borgarstarfsmaður:
Ég vil engu spá um úrslitin.
Mótframboðið á rétt á sér. Það
er full þörf á því að ýta við for-
ystunni með þessum hætti.
Chris Bunyan, talsmaður NENIG: Sá dagur kemur að flutningar á hættulegum úrgangi milli
landa verður bannaður. Baráttan gegn Dounreay fœr góðar viðtökur á Islandi
E* g tel að með stuðningi íslands og ann-
arra Norðurlanda megi stöðva flutninga
geislavirks kjarnorkuúrgangs til Dounreay.
Islendingar hafa beitt sér í málinu og hafa
áhrif. Ríkisstjórn íslands hefur að vísu ekki
beitt sér af þeirri hörku sem skyldi, en það
er nú eðli ríkisstjórna, segir Chris Bunyan,
talsmaður samtakanna NENIG á Hjalt-
landseyjum, í samtali við Þjóðviljann.
Samtökin hafa verið virk í baráttunni gegn
starfsemi stöðvarinnar í Dounreay. Bunyan
var hér á landi í gær og fyrradag og ræddi mál-
efni Dounreay við þingmenn og ráðherra. Is-
lendingar hafa lengi verið í fararbroddi í bar-
áttunni gegn starfseminni i Dounreay, enda er
talið að Iíffíki hafsins geti stafað veruleg hætta
af henni.
Þýski úrgangurinn
Bunyan segist hafa fengið góðar viðtökur
hér á landi og að hans sögn mun Júlíus Sólnes
umhverfismálaráðherra taka Dounreay-málið
upp á fundi norrænna umhverfisráðherra eftir
helgina.
Helsta áhyggjuefni andstæðinga stöðvar-
innar í Dounreay nú er flutningur á geislavirk-
um úrgangi til endurvinnslu og geymslu í Do-
unreay. Þjóðviljinn sagði frá því nýlega að
reynt hefði verið að senda geislavirkan úrgang
ffá Þýskalandi um Rotterdam til Skotlands, en
sú tilraun mistókst. Flytja átti úrganginn á
venjulegu ffaktskipi, en hafnarverkamenn í
Rotterdam neituðu að vinna við lestun úr-
gangsins um borð í slíkt skip, enda stríðir það
gegn samþykktum Alþjóðasambands flutn-
ingaverkamanna. Sendingunni var því snúið
aftur til Þýskalands, en að sögn Bunyans,
verður líklega gerð önnur tilraun til þess að
koma úrganginum til Skotlands á skipi sem
ekki fullnægir kröfum um slíkan flutning.
Sanngjörn krafa
- Þeir munu reyna að flytja þetta um höfn
þar sem verkamennimir eru ekki í stéttarfé-
lagi. Slíkar hafnir eru því miður víða, segir
Bunyan.
Hann hefur beðið íslenska ráðamenn að
beita sér fyrir alþjóðasamþykktum sem gera
ráð fyrir að aðeins megi flytja geislavirkan úr-
gang á skipum sem hafa sérstaklega verið
byggð fyrir slíka flutninga. Þannig telur hann
að hægt verði að koma í veg fyrir að stöðin í
Dounreay nái samningum við kjamorkuver
víða um heim. Skip sem sérstaklega eru byggð
fyrir flutning á geislavirkum kjamorkuúrgangi
eru afar fá, og það er dýrt að leigja þau. Buny-
an telur að ef aðeins verður hægt að flytja úr-
ganginn á slíkum skipum, verði Dounreay-
stöðin af samningum um endurvinnslu og
geymslu á úrgangi.
Flutningabann
- Það er sanngjöm krafa að úrgangurinn
verði aðeins fluttur á sérstaklega til þess
byggðum skipum. Það mun jafnframt gera
Dounreay mjög erfítt fyrir að ná samningum.
- Langtímamarkmið okkar er að stöðva
Við þurfum stuðning (slendinga og annarra þjóða til þess að koma i veg fyrir flutning á hættuleg-
um úrgangi milli landa, segir Chris Bunyan við Þjóðviljann. Bunyan ræddi þessi mál við þingmenn
og ráðherra í gær og fýrrdag. Mynd Jim Smart.
samninga af þessu tagi, en það tekur tíma. Til
þess þurfum við stuðning Islendinga, annarra
Norðurlanda, Evrópuráðsins og annarra Evr-
ópuríkja og svo ffamvegis. Þessi barátta verð-
ur ekki unnin á einum degi. En ef við getum
stöðvað flutningana er mikilvægum áfanga
náð og ég hef trú á að við munum vinna þessa
baráttu. A síðustu árum hafa yfirvöld sýnt því
meiri skilning að banna verði flutninga á
hættulegum úrgangi og sá dagur mun koma að
bann verður lagt við slíkum flutningum, segir
Bunyan.
Þá verður hver framleiðandi úrgangsins
ábyrgur fyrir geymslu hans, en getur ekki flutt
hann til annarra landa. Bunyan tekur þó skýrt
íram að það sé ekki sama hvað gert verði við
úrganginn, en segist sammála Júlíusi Sólnes
um að geyma eigi hann á öruggan hátt á yfir-
borði jarðar, sem næst framleiðslustaðnum.
Svíar hafa meðal annarra sýnt því áhuga að
senda úrgang til Skotlands. Júlíus Sólnes hefúr
gert athugasemd við þau áform, og að sögn
Bunyans mun Júlíus einnig taka það upp á
fundi norrænu umhverfisráðherranna.
- Eg vona að þetta mál hafi komið svo illa
við sænsku stjómina að hún muni koma í veg
fyrir að þessi áform sænska kjamorkuiðnaðar-
ins verði að veruleika. Stjómin getur vissulega
komið i veg fyrir þetta, segir Chris Bunyan.
Hann fór héðan í morgun og hyggst leita
stuðnings við málstað sinn i Noregi og Svíþjóð
á næstu dögum. -gg
Gísli Jónsson,
vinnur í kjötvinnslu Nóatúns:
Ég ætla ekki að spá öðru en því
að úrslitin verði rétt, hvernig svo
sem fer.
RAFRÚN H.F.
Smíöjuvegi 11 E
Alhliða
rafverkta kaþjónu sta
Sími641012