Þjóðviljinn - 30.01.1991, Side 2

Þjóðviljinn - 30.01.1991, Side 2
FRETTIR Kosningar Kjördagur 20. apríl Ríkistjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun að þingkosningar fari fram 20. apríl í vor. Hinn 25. aprfl eru rétt fjögur ár liðin frá síðustu kosningum, en samkvæmt kosningalögum á að kjósa ann- an laugardag í maí eða 11. maí. Það er í von um samstöðu að rikisstjómin ákveður þennan dag, en í máli Halldórs Ásgrimssonar, staðgengils forsætisráðherra, um þingsköp í efri deild kom ífam að það væri vilji ríkisstjómarinnar að kjósa i maí, enda væri það lög- ffæðilegt álit ýmissa að slíkt bryti ekki í bága við stjómarskrána. Þrátt fyrir það er farið að vilja Sjálfstæðismanna sem eindregið hafa lýst því að kjósa beri í apríl þó þingflokkurinn hafi haft auga- stað á 27. apríl eða fjórða iaugar- degi í apríl líkt og fyirir fjórum ár- um. Þingskapammræða um þetta mál stóð í hartnær tvo tima í gær og hóf Halldór Blöndal, Sjfl., um- ræðuna og vildi hann mótmæla því sem varaþingflokksformaður flokksins að hafa ekki fengið fféttir af þessu á undan ffétta- mönnum sem stuttu áður höfðu sýnt honum fféttatilkynningu for- sætisráðherra um þetta mál. Hann fagnaði hinsvegar að þessi dagur hafi verið valinn kjördagur. Dan- ffíður Skarphéðinsdóttir, Kvl., mótmælti því, að í tilkynningunni er staðhæft að öll stjómarandstað- an leggist gegn kjördegi hinn 11. maí. Hún lýsti þeirri skoðun þing- flokksins að 11. maí væri ákjós- anlegri dagur eftir að fram hefði komið lögfræðiálit um að það bryti ekki í bága við stjómar- skrána. Aðrir þingmenn urðu til að mótmæla apríldeginum og töldu þjónkun ríkisstjómarinnar við Sjálfstæðisflokkinn heldur mikla í þessu. Verði breytingar á stjómar- skránni sem lagðar voru fram á þingi í gær samþykktar, þurfa þingmenn ekki að hafa ffekari áhyggjur af þessu, þar sem i þeim er gert ráð fyrir að þingmenn haldi umboði sínu til kjördags. En breytingar þessar fela aðallega í sér að þingið verði gert að einni málstofu. -gpm Hekla Tíð gos og stutt Hraunrennsli frá gosstöðvunum helmingur þess sem rann í Vestmannaeyjagosinu. Hekla yngri en talið var Jarðfræðingar og jarðeðlisfræðingar kynntu í gær fyrstu niðurstöður rannsókna sinna á Heklugosinu. Mynd: Jim Smart. skilegt er að Helda gjósi sem oftast, sagði Ágúst Guðmundsson jarðfræðingur á fundi þar sem kynntar voru helstu niðurstöður rannsókna á Heklugosinu í gær. Þar kom fram að svo virðist sem eldfjallið Hekla hafi ekki myndast fyrr en rétt fyrir landnám. - Ef skammt er milli gosa kemur vanalega lítið upp af gos- efnum, kviku og gjósku, og þá stafar minnst hætta af gosunum, að sögn Ágústs. Nýtt hraun úr Heklu þekur rúmlega 20 ferkílómetra og er áætlað rúmmál þess um 0,12 rúm- kílómetrar, sem er helmingur þess hrauns sem rann í Vestmanna- eyjagosinu 1973. Vísindamenn segja gosið, sem hófst þann 17. þessa mánaðar kl. 17, um margt svipað Heklugosinu 1980/81, sem talið er sem eitt gos. Jarðfræðingamir Ágúst Guð- mundsson, Níels Oskarsson, Haukur Jóhannsson og Oddur Sigurðsson, auk jarðeðlisfræðing- anna Bryndísar Brandsdóttur, Ragnars Stefánssonar og Páls Einarssonar, ræddu fyrstu niður- stöður athugana sinna á Heklu- gosinu við blaðamenn. Sögðu þau gosið hafa gert lítil boð á undan sér. Fyrstu skjálftar komu fram á mælum hálftíma fyr- ir gos, og á svipuðum tíma urðu snöggar breytingar á streitumæl- um, sem em í borholum í 14-45 km fjarlægð frá Heklu. Þær mæl- ingar em gerðar til að fylgjast með jarðskjálftum á Suðurlandi. Ragnar Stefánsson sagði hugsanlegt að gosið hefði gert boð á undan sér, en menn væru enn ekki færir um að skilja þau boð. Aldrei hefðu hins vegar ver- ið gerðar jafn miklar mælingar og nú og mætti hugsa sér að menn sæju eftir á hvað var að gerast. Visindamennimir lögðu áherslu á að mikilvægt væri að reyna að sjá gos fyrir eða a.m.k. gera sér fljótt grein fyrir hvað á seyði væri, jafhvel þótt gos yrðu langt frá mannabyggð, því að það skipti t.d. öryggi i lofti miklu máli. Gosstrókurinn náði rúmlega 11 km hæð 10 mínútum eftir að gos hófst. Til samanburðar má geta að gosstrókurinn árið 1947 var hæstur 27 km. Öskufall var þó mun minna í þessu gosi en árið 1980. Askan barst aðallega norð- norðaustur. í byijun gossins gaus víða í fjallinu, en fljótlega varð virknin bundin við suðurhlíðar. Síðustu daga hefur eingöngu gosið í ein- um eða tveimur gígum á sprungu sem gengur suðaustur ffá toppi fjallsins. Mest gaus á fyrstu klukku- stundunum eftir að Hekla lét á sér kræla. Fljótt fór að draga úr gos- inu, þótt það hefði tekið dálítið við sér við og við aftur, fór það smádvínandi í heild. Nú kraumar lítillega í Heklu og fastlega er bú- ist við að ekki verði meira úr gos- inu að sinni. Hallamælingar sem gerðar vom við Heklu sl. laugar- dag benda til þess að fjallið hafi sigið nokkuð eflir kvikuflæðið úr þrónni undir því. Vísindamenn tóku ffam að niðurstöður þeirra væru bráða- birgðaniðurstöður. Enn væru nokkur atriði varðandi gosið óljós og sögðu þeir loftmyndir af því fyrstu stundimar vel þegnar. BE Sif Tulinius, Sigurbjörn Bernharðsson, Arinbjörn Árnason og Sigurjón Halldórsson. Einleikarapróf með Sinfóníunni Tónlistarskólinn í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit íslands halda tónleika í Háskólabíói ann- að kvöld, fimmtudag, kl. 20. Tón- leikamir em fyrri hluti einleikara- prófa fjögurra nemenda sem út- skrifast munu ffá skólanum í vor. Einleikaramir em Sigurjón Hall- dórsson klarinett, Sigurbjöm Bemharðsson og Sif Tulinius fiðlu og Arinbjöm Ámason pí- anó. Á efnisskrá em verk eftir C. Nielsen, Sibelius, Dvorák og Liszt. Aðgöngumiðar em seldir við innganginn. Mannlíf og saga í Helsinki Dagana 4.-24. febrúar er fyr- irhugað að setja upp á Kjarvals- stöðum viðamikla sýningu undir yfirskriftinni Helsinki - mannlíf og saga. Það er Raimo Ilaskivi yf- irborgarstjóri Helsinki sem er að- alhvatamaður að uppsetningu sýningarinnar. I tengslum við sýninguna verða Helsinkidagar í Reykjavík og koma fjölmargir fmnskir listamenn til Reykjavíkur sem munu setja Helsinkibrag á Reykjavík fyrstu vikuna sem sýn- ingin verður opin. Meðal þeirra sem koma em Ilaskivi borgar- stjóri, djasshljómsveitin UMO Big Band og söngflokkurinn Tríó Saludo. Þá mun handboltalið frá Helsinki keppa í Reykjavík og fmnskur matreiðslumaður mun sjá um eldamennsku á fmnskum sælkeradögum á Hótel Loflleið- um. Finnski klipplistamaðurinn Eero Manninen klippir út myndir af gestum á Kjarvalsstöðum og á sælkerakvöldum á Loftleiðum. Fjöruskoðun aðvetrarlagi Sjötti rabbfundurinn sem Náttúmvemdarfélag Suðvestur- lands og Náttúmfræðistofnun Kópavogs stendur að verður í Náttúmfræðistofunni Digranes- vegi 12, niðri, og hefst kl. 21 fimmtudaginn 31. janúar. Fjallað verður um hvemig undirbúa megi skemmtilega fjömferð laugardag- inn 2. febrúar, en þá verður mesta útfíri á árinu (stærstur straumur). Háfjara verður kl. 14.43 í Reykja- vík. Á fundinum verða kynntar nokkrar tegundir lífvera sem finnast í fjömnni á þessum árs- tíma, hvemig nálgast megi þær best og hvemig hægt er að fylgj- ast með atferli þeirra. Þá verður vísað á fróðleik sem er að finna um lífríki fjörunnar. Næsti rabb- fundur verður fimmtudaginn 7. febrúar. Hann mun fjalla um líf- ríki Tjamarinnar í Reykjavík og hefst kl. 21 í Náttúmfræðistof- unni. Grísk tónlist Grikklandsvinafélagið Hellas heldur fræðslufund um gríska tónlist annað kvöld, fimmtudag, kl. 20.30. Fundarstaður er Kom- hlaðan, bak við Lækjarbrekku, Bankastræti 2. Þorkell Sigur- bjömsson tónskáld flytur fyrir- lestur. Hann mun koma víða við í erindi sínu, enda á tónlistin sér langa sögu í Grikklandi. Þekking manna á fomgrískri tónlist er að vísu takmörkuð, en tónlistararfúr Grikkja er mikill og fjölbreytileg- ur, allt frá býsönskum kirkjusöng r Isaíiörður Meirihlutinn klofinn Meirihlutinn í bæjarstjórn ísafjarðar er klofinn í afstöðu sinni til nýs ráðningarsamnings við Harald L. Haraldsson bæjar- stjóra. Aðilar vildu lítið tjá sig um málið í gær, en þeir komu saman til fundar síðdegis í gær til þess að reyna að jafna ágrein- inginn. Á fúndi bæjarráðs í fyrradag var tillaga að nýjum ráðningar- samningi við bæjarstjórann felldur af einum fúlltrúa meirihlutans, Ge- org Bæringssyni, og fúlltrúa minnihlutans. Kolbrún Halldórs- dóttir, bæjarfúlltrúi í- listans, greiddi samningnum atkvæði sitt. Gert er ráð fyrir því að dregið verði úr greiðslum til bæjarstjórans vegna aksturs, að húsaleiga verði hækkuð og að hann greiði sjálfúr fyrir rafmagn og hita. Ágreinging- ur er hins vegar um hvort á að bæta honum þetta tap með öðm. Kol- brún segist vilja bæta honum tapið með fjölgun yfírvinnutíma. Hún fúllyrðir jafnframt að hún hafi stuðning þriggja af fimm bæjar- fúlltrúum meirihlutans við þetta. Sem kunnugt er var I-listinn klofhingsffamboð Sjálfstæðis- manna á ísafirði síðast liðið vor og var Haraldur L. Haraldsson oddviti listans. í-listinn náði tveimur bæj- arfulltrúum, en D-listinn þremur. Þessir listar mynduðu svo meiri- hluta í bæjarstjóm eftir kosning- amar. Nú er talið að sá meirihluti hangi á bláþræði. Georg Bæringsson vildi ekki tjá sig um málið við Þjóðviljann í gær og ekki tókst að ná tali af Ólafi Helga Kjartanssyni, forseta bæjar- stjómar. Kolbrún Halldórsdóttir sagðist í gær vona að hægt yrði að ná sam- komulagi um þetta mál, en hún vildi ekki leggja mat á hvort líkur væm á að meirihlutasamstarfið brysti vegna þessa ágreinings. - Við höfum þurft að yfirstíga marga erfiðleika í þessu samstarfi. Eg treysti því að við munum geta hreinsað andrúmsloftið í þessu máli. Það er alltaf hægt að koma til móts við menn, það er bara spum- ing um hvaða leið verður valin, segir Kolbrún. -gg og sérstæðri alþýðutónlist með austrænum blæ til nútíma tón- verka í alþjóðlegum anda. Þorkell mun fylgja máli sínu eftir með tóndæmum af bandi og svara fyr- irspumum. Öllum heimill að- gangur. Svavar Gestsson mennta- málaráðherra hefúr boðið Darius Kuolys menntamálaráðherra Lit- háens að sitja þing ráðuneytisins um Evrópu og íslenska menn- ingu. Málþingið verður haldið 23. febrúar nk. Menntamálaráðherra átti viðræður við formann utan- ríkismálanefndar litháiska þings- ins Emanuelis Zingeris, þegar hann var staddur hér á landi í síð- ustu viku og, var þá þessi ákvörð- un tekin. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 30. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.