Þjóðviljinn - 30.01.1991, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 30.01.1991, Blaðsíða 11
LESANDI VIKUNNAR I DAG Guörún Ögmundsdóttir félagsráðgjafi Hvað ertu að gera núna? Ég er starfandi yfirfélagsráð- gjafi á Kvennadeild Landspítal- ans. Þar þjóna ég konum i með- göngu, sængurlegu og alvarleg- um veikindum. Einnig ræði ég við þær konur sem vilja fara í ófijósemisaðgerðir eða fóstur- eyðingar. Ég starfa mikið fyrir stéttarfé- lagið mitt og með Kvennalistan- Konur við völd = Ekkert stríð Mynd: Kristinn um. Ég er m.a. fulltrúi hans í stjóm Borgarspítalans og vara- borgarfulltrúi hér í Reykjavík. Hvað varstu að gera fyrir tíu árum? Við bjuggum þá í Kaup- mannahöfn; ég var að læra félags- ráðgjöf og maðurinn minn var í framhaldsnámi í líffræði. Þetta var yndislegur tími, maður lifði svo allt öðruvísi en hér. Hafði lít- ið milli handanna en gerði samt allt. Einhvem veginn er maður bundnari hér heima og allt skipu- lagðara. Þar úti var svo miklu meiri samgangur milli fólks, en nú er eins allir meldi sig með nokkurra daga fyrirvara áður en kíkt er i kaffi. Hvað gerirðu í frístundum? Mörgum þeirra eyði ég á fiindum en annars er ég heimakær og reyni að vera eins mikið heima og ég get. Við forum mikið út að borða öll fjölskyldan og höfúm reyndar líka oft matarboð. Við er- um mikil matargöt. Segðu mér frá bókinni sem þú ert að lesa núna? Ég er nú alltaf með nokkrar í takinu í einu. Þessa stundina em það Væringinn mikli Einar Ben, sem ég hef mikið gaman af, bók útgefin af Sagnfræðistofnun Há- skólans sem lýsir heimilum fólks á kreppuámnum með teikningum og myndum af Pólum og Kömp- um og svo Skólabrú, andstæð- unni. Svo er ég að fara að byija á þeim systrnm Jakobínu og Fríðu sem ég fékk í jólagjöf. Áttu þér uppáhaldsbarna- bók? Já, svo sannarlega. Flökku- sveinninn heitur önnur eftir ffanskan höfund og hin er Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren. Fílósófía þeirrar síðar- nefndu um dauðann er stórkost- leg. Ef maður er að vinna með konum sem eiga margar hveijar ekki langt eftir; að vinna með dauðann, þá er gott að hafa m.a. þetta til að vinna út frá. Hvers minnistu helst úr Biblíunni? Mér fannst alltaf skemmtileg- ast þegar kaupmennimir vom að selja í musterinu. Nú, og þegar Jesús mettaði mannfjöldann. Ef þetta væri hægt núna, t.d. í Kína, hugsaðu þér. Svo ég tali nú ekki um að breyta vami í vín, maður gæti lifað lúxuslífi. Hvað ertu búin að sjá í leik- og kvikmyndahúsum nýlega? Ég er búin að sjá Ryð og er á leiðinni að sjá Meistarann og Á köldum klaka í Borgarleikhúsinu. Fylgistu með einhverjum sérstökum dagskrárliðum út- varps og sjónvarps? Ég er mikill útvarpssjúklingur og hef lengi verið. Líklega tengist það því að ég vann á Útvarpinu í átta ár. Núorðið hlusta ég mest á Dægurmálaútvarpið og alltaf á út- varpsleikrit. Ég vil helst ekki missa af gömlum myndum í sjón- varpinu né fréttunum. Hefurðu alltaf kosið sama stjórnmálaflokkinn? Nei. Ertu ánægð með frammi- stöðu þess flokks sem þú kaust síðast? Já, mjög svo. Ég held að það sé afar sjaldgæfl að fólk sé ánægt með það sem það kýs. Ég fór snemma dags að kjósa síðast því ég hlakkaði svo til að kjósa þann flokk. Ég hlakka líka til að kjósa í vor. Eru til hugrakkir stjórn- málamenn og konur? Já, þau eru til. Viltu nafngreina einhvern? Nei. Er landið okkar varið land eða hernumið? Það er hernumið land, tví- mælalaust. Við sjáum það kann- ski sérstaklega núna í Persaflóa- stríðinu. Annars er umræðan hér orðin svo fiirðuleg að maður gæti haldið að Island væri komið með aukaaðild að Nato, sé eiginlega næstum þvi ekki i Nato, og þá er ég voða lukkuleg. Hvaða eiginleika þinn viltu helst vera laus við? Að ég segi alltaf já við öllu, ég veit ekki fyrri til en.Líklega hið sanna eðli félagsráðgjafans. Hvaða eiginleika þinn flnnst þér skrítnast að aðrir kunni ekki að meta? Vargaganginn. Skil ekki af hverju fólki líkar ekki við varga- ganginn og hreinskilnina. Hver er uppáhaldsmatur- inn þinn? Það er eiginlega svo margt, en þó standa gellumar hans Rúnars Marvinssonar upp úr og svo öll villibráð. Og ég er ein af- þeim sem vilja hafa lambið þar inni í. Hverjir eru helstu kostir landa þinna? Óhófleg bjartsýni. En brestir? Sama bjartsýni. Þeir mættu stundum hafa svolítið jarðsam- band. Hvert langar þig helst til að ferðast? Til Japans að borða sushi. Hvaða ferðamáti á best við Þ>g? Að fljúga lengri vegalengdir og fara svo akandi. Hverju viltu helst breyta í íslensku þjóðfélagi? Ég vil fá fleiri konur til að ráða. Ég veit að við byggjum i betri heimi ef konur réðu meiru. Hef ég gleymt einhverri spurningu? Já, um Persaflóastríðið. Er þetta stríð við Persaflóa nauðsynlegt? Nei, og ef konur væru við stjómvölinn þá væri ekki verið að heyja þetta stríð, það er sannfær- ing mín. Guðrún. ÞJÓÐVIUINN FVRIR 50 ÁRUM 1746 kusu ( Dagsbrún. Starfs- menn opinberra stofnana mynda með sér samtök. Brezka stjómin kallar sex nýja árganga til vopna. Nlunda nóttin I röð án loftárása á London. Ástandið á meginlandinu undirjárnhæl fas- ismans. Andstaðan hjá alþýð- unni vex. Hagstæður verzlunar- jöfnuður um 60 miljónir króna. Gríski einræðisherrann Metaxas lést (gærmorgun. Bankastjóri Grikklandsbanka, Koritsis, tekur við. 30. janúar miðvikudagur. 30. dagur ársins. Fullt tungl. Tunglmyrkvi kl. 6.10. Sólarupprás [ Reykjavlk kl. 10.15-sólartag kl. 17.08. Viðburðir Sigfús Einarsson tónskáld fæddur 1877. Byltingarsinnuð þjóðarstjórn (Finnlandi 1918. Adolf Hitler verður rfkiskanslari og tekur völdin [ Þýskalandi. DAGBÓK APÓTEK Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna 25. til 31. þm. 1991 er I Borgar Apóteki og Reykjavlkur Apóteki. Fyrmefnda apótekiö er opiö um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frfdögum). Siðamefnda apótekiö er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögumkl. 9-22 samhliöa hinu fyrrnefnda. LÖGGAN Reykjavlk......................* 1 11 66 Kópavogur......................n 4 12 00 Seltjarnarnes..................« 1 84 55 Hafnarfjöröur..................n 5 11 66 Garöabær.......................n 5 11 66 Akureyri.......................« 2 32 22 SJökkviið og sjúkrabítar Reykjavík......................n 1 11 00 Kópavogur......................« 1 11 00 Seltjarnarnes..................n 1 11 00 Hafnarfjörður..................n 5 11 00 Garöabær.......................n 5 11 00 Akureyri.......................n 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjam- ames og Kópavog er f Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur alia virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiönir, símaráöleggingar og timapantanir I n 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Borgarspitalinn: Vaktvirka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspit- alans er opin allan sólarhringinn, ^ 696600. Neyðarvak Tannlæknafélags (slands er starfrækt um helgar og stórhátíðir. Símsvari 681041. Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæsl- an, n 53722. Næturvakt lækna, tt 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt, n 656066, upplýsingar um vaktlækni «51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiöstöðinni,« 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farslmi). Keflavik: Dagvakt, upplýsingar ( W 14000. Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna, n 11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Land- spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra- tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar- heimili Reykjavikur v/Eiríksgötu: Al- mennur timi kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatimi kl. 20-21 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspital- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu- verndarstöðin við Barónsstíg: Aila daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspftall: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annama en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefs-spítali Hafnar- firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspftalinn: Alla daga ki 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavfk: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húsið: Neyöarathvarf fyrir unglinga, Tjamargötu 35, n 91-622266, opiö allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svaraö er i upplýsinga- og ráögjafarsíma félags lesbia og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum tímum. n 91-28539. Sálfræöistöðin: Ráögjöf i sálfræði- legum efnum, n 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt i slma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá kl. 8 til 17, « 91-688620. „Opiö hús" fyrir krabbameinssjúk- linga og aðstandendur þeirra I Skóg- arhlíð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styöja smitaöa og sjúka og aöstandendur þeirra i n 91- 22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: n 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar- fræðing á miövikudögum kl. 18 til 19, annars símsvari. Samtök um kvennaathvarf: « 91- 21205, húsaskjól og aöstoð við konur sem beittar hafa veriö ofbeldi eöa oröiö fyrir nauögun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, n 91-21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröið hafa fyrir sifjaspellum: n 91-21500, slmsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: n 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm sem orðiö hafa fyrir kynferöislegu ofbeldi. Ráögjöf, fræösla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: n 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I « 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, « 652936. GENGIÐ 29. janúar 1991 Sala Bandaríkjadollar..........54,49000 Steriingspund.............107,54400 Kanadadollar...............46,56550 Dönsk króna..................940290 Norsk króna.................9,82260 Sænsk króna..................916770 Finnskt mark................15,16770 Franskur franki.............10,88271 Belgískurfranki............. 1,78540 Svissneskur franki.........43,40970 Hollenskt gyllini...........32,61210 Vesturþýskt mark............36,76170 Itölsk lira.................0,04902 Austum'skur sch..............5,22360 Portúgalskur escudo......... 0,41640 Spánskur peseti..............0,58770 Japanskt jen.................0,41595 KROSSGÁTA Lárétt: 1 áfall 4 skömm 6 gufu 7 hangi 9 hæöir 12 taldi 14varúð 15tré 16 þjálfun 19 stunda 20 moraði 21 sorg Lóörétt: 2 fljóta 3 skarö 4 litli 5 kerald 7 stillan 8 örbirgö 10 karf- fugla 11 innheimtir Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 sæll 4 sáld 6 enn 7 rist 9 ótal 12 eista 14fax 15 lön 16 tálma 19 stál 20 eðli 21 nauði Lóðrétt: 2 æöi 3 leti 4 snót 5 lóa 7 rifast 8 sextán 10 talaði 11 löndin 13 sál17 ála 18 með Miðvikudagur 30. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.