Þjóðviljinn - 30.01.1991, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 30.01.1991, Blaðsíða 9
J MENNING Tónlist Myrkir músíkdagar lýsa upp skammdegið Níu tónleikar á átta dögum. Flutt verða yfir 40 verk og þar af um helmingur íslensk sem mörg hver eru nú frumflutt á íslandi Franski strengjakvartettinn „Le sextour á cordes de Lille“ spilar 13. febrúar Hægt er að kaupa afsláttarkort Kammersveitar Reykjavíkur og sem gildir á alla tónleika hátíðar- fást þau í íslensku ópenmni og ís- innar nema tónleika Sinfóníu- lenskri tónverkamiðstöð. hljómsveitar Islands og tónleika ing Norræna húsið Hundraó þúsund gestir Dagana 9.-16. febrúar stendur Tónskáldafélag íslands fyrir Myrkum músíkdögum og mun þar vera mikil tónlistar- veisla á ferðinni. Myrkir músíkdagar voru fyrst haldnir árið 1980 og síðan annað hvert ár ffaman af, en nú síðustu árin hafa þeir verið árlegur við- burður. Segja forsvarsmenn Tón- skáldafélagsins að Myrkir músík- dagar séu hugsaðir sem ljósgeisli í skammdeginu og veiti síst af nú þegar stríðshörmungar dynja yfir mannfólkið. A þeim 8 dögum sem tónleik- amir standa yfir verða haldnir níu tónleikar og einn fyrirlestur, og verður áhersla lögð á frönsk, finnsk og íslensk tónverk, en yfir 20 íslensk verk verða flutt á tón- leikunum og mörg þeirra frum- flutt á Islandi. Myrkir músíkdagar hefjast laugardaginn 9. febr. kl. 17 í Ás- kirkju, en þá flytur Reykjavíkur- kvartettinn tónlist eftir Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjömsson og Karólínu Ei- ríksdóttur. Framsögumenn verða Guð- mundur Steinsson leikskáld: Hvert er erindi leiklistarinnar við samtímann? Ása Hlin Svavars- dóttir Ieikari: Hvaða hlutverki gegna fijálsir leikhópar? Gunnar Ámason heimspekingur: Hlut- verk listarinnar i daglegu lífi fólks. Bára Lyngdal Magnúsdóttir leikari: Böm og Ieiklist, hvar á að byija? Sverrir Ólafsson fram- kvæmdastjóri fjármála- og stjóm- 10. febrúar mun Edda Er- lendsdóttir píanóleikari leika í Is- lensku ópemnni kl. 17, verk eftir Jón Leifs, Hjálmar H. Ragnars- son, Miklos Maros, Franz Lizt, Atla Ingólfsson, Pierre Boulez og Alban Berg. Þann 11. febr. kl. 20, einnig í Islensku óperunni, flytur Caput- hópurinn tónlist eftir Iannis Xe- nakis, Jónas Tómasson, Láms H. Grimsson og Kaija Saariaho. Þriðjudaginn 12. febr. kl. 20 verða flaututónleikar í íslensku óperunni og leikur Manuela Wi- esler tónlist eftir Magnús Bl. Jó- hannsson, André Jolivet, Þorkel Sigurbjömsson, Kjartan Ólafsson og Kaija Saariaho. I Islensku ópemnni þann 13. febr. kl. 20 flytur franski strengja- sextettinn Le sextuor á cordes de Lille tónlist eftir Luis de Pablo, Amold Schönberg, Hjálmar H. Ragnarsson og N’C. Thien Dao. Kammersveit Reykjavíkur flytur tónlist eftir Jón Nordal í Langholtskirkju fimmtudaginn 14. febr. kl. 20. Föstudaginn 15. febr. verða tvennir viðburðir á í bandaríska kvikmynda- tímaritinu „Variety“ birtist í des. sl. yfirlit sem sýnir að kvik- mynd Hrafns Gunnlaugssonar „I skugga hrafnsins“ hefur ver- ið sýnd í almennum kvik- myndahúsum vestra. Þetta verk Hrafns er fyrst ís- dagskrá. Atli Heimir Sveinsson flytur fyrirlestur um sjónvarpsóp- em sína Vikivaka í Norræna hús- inu kl. 17, en kl. 20 á Kjarvals- stöðum flytur slagverksleikarinn Roger Carlsson verk eftir Iannis Xenakis, Áskel Másson og Per Nörgaard. Siðasta dag Myrkra músik- daga, laugardaginn 16. febr., verða tvennir tónleikar. í Há- skólabíói kl. 14 flytja Sinfóníu- hljómsveit íslands, Le sextuor á cordes de Lille, Hamrahlíðarkór- inn og einsöngvaramir Signý Sæ- mundsdóttir, Jóhanna Þórhalls- dóttir, Jón Þorsteinsson og Krist- inn Sigmundsson tónlist eftir Iannis Xenakis, N’C. Thien Dao og Hróðmar I. Sigurbjömsson en verk hans Ljóðasinfónía er byggt á Ljóðaljóðum Biblíurmar. Lokatónleikar músíkdaganna verða svo síðar þennan sama dag kl. 17 í íslensku ópemnni en þá mun semballeikarinn Elisabeth Chojnacka leika verk eftir Iannis Xenakis, Maurice Ohana, Franco- is B. Mache og Luc Ferrari. lenskra kvikmynda til þess að fá dreifingu í bandarískum kvik- myndahúsum. Samkvæmt upp- lýsingum blaðsins hafði myndin halað inn í Bandaríkjunum rúma 90 þús. dollara um miðjan des., eða nokkuð á aðra miljón króna. Háskóla- tónleikar í dag Vorstarf Háskólatónleika hefst í dag kl. 12:30 í Norræna húsinu, en alls verða fluttir 12 tónleikar á misserinu. Á þess- um fyrstu tónleikum koma fram klarinettuleikararnir Kjartan Óskarsson, Óskar Ing- ólfsson og Sigurður 1. Snorra- son. Kjartan leikur auk þess á basset-horn. Á tónleikunum verða flutt verk efíir þrjá mið-evrópska tón- smiði, Laszló Kalmare, Wolf- gang Amadeus Mozart og Jenö Takacs. Norræna ráðherranefndin hefur samþykkt að stofna nýja stöðu á skrifstofu Norræna hússins. Norræna húsið er þannig ein af fáum stofnunum sem heyra undir Norræna ráð- herraráðið, þar sem starfs- mönnum fjölgar. Gerðar hafa verið ýmsar lag- færingar á húsinu að undanfomu í því skyni að bæta þjónustu við gesti. Samkvæmt upplýsingum forstöðumanns hússins á blaða- mannafúndi í fyrradag koma um 100.000 gestir í Norræna húsið árlega, þar af er um helmingurinn fólk frá hinum Norðurlöndunum. Margt verður á boðstólum í húsinu á næstu mánuðum, meðal annars námskeið í islensku fyrir Norðurlandabúa. Kaffistofa húss- ins hefúr verið opnuð aftur eftir gagngerar breytingar í eldhúsi. Skipt hefur verið um tækjakost og afgreiðsluborð. Kaffistofan hefur lengi verði vinsæll viðkomustað- ur gesta og mun þjónusta við þá ganga greiðar fyrir sig eftir breyt- ingamar. Næstu mánuði verða margvísleg dagskráratriði á veg- um hússins ffá öllum Norðurlönd- unum, þar með talið Grænlandi, Færeyjum og byggðum Sama. 16. og 17. febrúar verður norsk bóka- sýning og tvær sýningar frá leik- húsinu í Þrændalögum. Síðustu helgina í febrúar verður opnuð sýningin Samaland í anddyri hússins og litlu síðar sænskar og danskar bókakynningar. 16. mars hefst svo finnsk kvikmynda- og menningarvika og stendur til 24. mars. Seinna á árinu eru svo fyrir- hugaðar danskar, norskar og sænskar kvikmyndavikur. Samvinna við „systurhúsin" Norðurlandahúsið í Færeyjum og Norrænu menningarmiðstöðvam- ar á Álandseyjum og Grænlandi fer vaxandi og hafa stofnanimar samvinnu um ýmsar dagskrár í löndunum. Þá á Norræna húsið aðild að fjölmennri norrænni umhverfis- ráðstefnu í júní og fjölmiðlaráð- stefnu í ágúst. hágé. AEÞÝÐ'IJBANPAEAGTÐ Málefnaspjall Fyrsti málefnafundur ársins á Punkti og pöstu (Torfunni) f kvöld, mið- vikudagskvöld, frá kl. 20.30. Kynntar hugmyndir um starfið framund- an; spjallað um styrjaldirnar. Stjórnin ÆFR Stjórnarfundur Stjórnarfundur Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins i Reykjavík verður föstudaginn 1. febrúar kl. 18 að Laugarvegi 3, 4. hæö. Dagskrá: 1. Starfiö framundan. 2. Kosningamálin. 3. Önnur mál. Stjórn ÆFR Leiklistarþing Leiklistarsamband íslands boðar til árlegs leiklistarþings laugardaginn 2. feb. kl. 9:30- 18:00 að Hótel Lind, Rauðarár- stíg 18. unarsviðs IBM: Leikhúsið og einkafjármagnið, svigrúm eða fjötrar? Tinna Gunnlaugsdóttir leikari: Hvaða kröfú á áhorfand- inn á hendur leikhúsinu? Páll Baldvin Baldvinsson leikhús- fræðingur: Hvað er listræn stefna? Þátttökugjald kr. 600 greiðist við innganginn. Hrafn á listanum L LANDSVIRKJUN Útboð Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í forsteyptar einingar vegna byggingar 220 kV Búrfellslínu 3 (Sand- skeið - Hamranes) í samræmi við útboðsgögn BFL-13. Útboðsgögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 30. janúar 1991 á skrifstofu Landsvirkjunar að Háaleitis- braut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 2.000,-. Steypa skal 163 undirstöður og 175 stagfestur, heildar- magn steypu 307 rúmm. Afhenda ber einingarnar í þrennu lagi, 25. mars, 29. apr- íl og 20. maí 1991. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitis- braut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en föstudaginn 22. febrúar 1991 fyrir kl. 12:00, en tilboðin verða opnuð þar þann dag kl. 13:30 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Reykjavík, 28. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.