Þjóðviljinn - 30.01.1991, Page 6

Þjóðviljinn - 30.01.1991, Page 6
ERLENDAR FRETTIR Georgía Stofnun þjóðvarðarliðs ákveðin Virðist eiga að koma í stað sovéska hersins þarlendis. Tilskipun um sameiginlegt eftirlit hers og lögreglu lýst ógild ing sovéska Iýðveldisins Ge- orgíu samþykkti í gær í einu hljóði að lýðveldið komi sér upp þjóðvarðarliði, er taki við hlut- verkum sovéska hersins þar- lendis. Eru ungir menn sam- kvæmt samþykktinni skyldugir til að ganga í þessar fyrirhug- uðu liðssveitir og eiga refsingar yfir höfði sér ef þeir óhlýðnast kvaðningu um það. Pólland 12% efnahags- samdráttur Verg þjóðarframleiðsla Pól- lands skrapp saman um 12 af hundraði s.l. ár, samkvæmt upplýsingum frá hagstofu pólska ríkisins. Er þetta kennt hörðum sparnaðarráðstöfun- um stjórnvalda, sem gerðar voru í þeim tilgangi að koma á markaðsbúskap í atvinnulíf- inu. 1 framleiðslu ríkisrekinna iðnfyrirtækja varð á árinu hrap, því að hún minnkaði um 23 af hundraði. Raunlaun lækkuðu um 28 af hundraði og við það dró mjög úr neyslu. Það hafði alvar- legar afleiðingar fyrir mörg fyrir- tæki er framleiða fyrir innan- landsmarkað. Að sögn vestrænna hagfræð- inga var enginn hagvöxtur hjá Pólverjum árið 1989. S.l. ár tók Þýskaland við af Sovétríkjunum sem helsta viðskiptaland Pól- lands. Var um fjórðungur allra ut- anríkisviðskipta Pólverja á árinu við Þjóðverja. Gorbatsjov Sovétríkjaforseti hefur fordæmt fyrirætlanir stjóm- valda og þinga annarra lýðvelda af sama tagi og má búast við að nú stefiii í alvarlegan árekstur með honum og Georgíustjóm, því að með áminnstri samþykkt virð- ast Georgíumenn hafa gengið lengra i þá átt að koma sér upp eigin her en nokkurt annað sov- éskt lýðveldi hingað til. Ráðamenn í Georgíu virðast gera ráð fyrir að landar þeirra, sem nú em í sovéska hemum, þjóni þar skyldutíma sinn á enda, en að hætt verði að kveðja nýliða í þann her í Georgíu. Samkvæmt fyrstu fréttum um þessa samþykkt Georgíuþings er þó ýmislegt í óvissu um þetta. Borís Jeltsín, Rússlandsfor- seti, sagði í s.l. mánuði að vera kynni að Rússland kæmi sér upp eigin her, með fúllveldisyfirlýs- ingu sinni tók Ukraína sér rétt til þess og Eystrasaltslýðveldin þijú krefjast þess að Eistir, Lettar og Litháar í sovéska hemum verði einungis látnir gegna herþjónustu í ættlöndum sínum. Vera má að sú ákvörðun vam- ar- og innanríkisráðuneyta Sovét- rikjanna að láta hermenn taka þátt í löggæslu með lögreglunni í helstu borgum hafi ráðið úrslitum um að Georgíumenn ákváðu að stofna þjóðvarðarlið. Þing þeirra lýsti i gær þá tilskipun ráðuneyt- anna ógilda hvað Georgíu við- véki. Rússneska stjómin for- dæmdi þessa tilskipun einnig í gær og sagði í henni felast gróft brot gegn fullveldi lýðveldisins. Ráðuneytin tvö segja þessa ráðstöfún nauðsynlega til að draga úr glæpum, sem hefur farið fjölgandi og em fyrir löngu orðn- ir stóralvarlegt vandamál í sov- éskum borgum, en fijálslyndir Sovétmenn og sjálfstæðissinnar í lýðveldum telja að með þessu nýja eftirlitsfyrirkomulagi eigi að bæla niður andóf gegn sovésku stjóminni og hemum. Reuter/-dþ. Vinningstölur laugardaginn 26. janúar 1991 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 7.231.840 2. iTM 5 150.728 3. 4af 5 243 5.349 4. 3af 5 7.555 401 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 12.314.842 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Hermenn sovétstjórnar - ákvörðunin um að skipa þeim til löggæslustarfa vekur ugg og snörp gagnviðbrögð lýðvelda. Fiölmiðlun Sex risar drottnandi um aldamót? Risafyrirtæki um útgáfu og fjölmiðlun láta til sín taka á æ fleiri sviðum og þenjast út svo ótt að um aldamótin verður að líkindum svo komið, að ein sex risafyrirtæki ráði mestu á þess- um vettvangi. Er þetta sam- kvæmt skýrslu frá Alþjóðlegu vinnumálastofnuninni (ILO). Af fjölmiðlunarrisum sem ILO spáir svo bjartri framtíð em í frétt um þetta tilnefndir Time Wamer Inc, bandarískur og stærsta fjölmiðlasamsteypa Markaðir - kyrrð og friður Rólegheit einkenndu gull- og verðbréfamarkaði í gær og hráol- íuverðið á heimsmarkaði var 19,65 dollarar á tunnu hjá North Sea Brent Blend í Lundúnum (verðspá fyrir mars). Bendir það til þess að í fjármála- og við- skiptaheiminum séu menn þessa stundina ekki yfrið áhyggjufúllir af Persaflóastríði. Tisch fyrir rétt Harry Tisch, fyrmm forseti austurþýska verkalýðssambands- ins sem nú er ekki lengur til, var leiddur fyrir rétt í Berlín í gær, ákærður fyrir spillingu og fjár- drátt. Er hann sá fyrsti af forustu- mönnum austurþýska ríkisins úr fiokki kommúnista sem fyrir slíku verður. Tisch er 63 ára. Til standa réttarhöld yfir tveimur úr sama fomstuhópi, Erich Mielke, fyrmrn æðsta manni öryggisþjónustunn- ar, og Erich Honecker, sem lengi var æðsti maður ríkis og ríkis- flokks. Chevenement segir af sér Jean-Pierre Chevenement, vamarmálaráðherra Frakklands, sagði af sér í gær út af óánægju með stefnu stjómarinnar í Persa- flóadeilu. Við tekur af honum Pi- heims, Hachette í Fralddandi, News Corp Plc í eigu Ástralíu- mannsins Ruperts Murdoch, Thomson Corporation í Kanada og Maxwell Communication Corp Plc í Bretlandi. Eftir þessu að dæma em það engilsaxar, sem ráða munu mestu í fjölmiðlun á komandi ámm, sem og raunar hingað til. Fjölmiðlunarrisamir fram- leiða nú ekki einungis blöð og bækur, heldur og kvikmyndir, myndbönd, segulbandstæki, erre Joxe, innanríkisráðherra og eindreginn stuðningsmaður Mitt- errands forseta. Chevenement, sem er rúmlega fimmtugur og var rótttækur vinstrisinni á yngri ár- um, var frá upphafi Persaflóadeilu gramur Mitterrand út af því að honum þótti forsetinn taka of ein- dregna afstöðu með Bandaríkjun- um í deilunni. Varalið gegn hryðju- verkahættu Sænska lögreglan hefúr kvatt til starfa 200 varaliða vegna hættu á hryðjuverkum út ffá Persaflóa- stríði. Verður liðsauki þessi not- aður til aukinnar öryggisgæslu við sendiráð og ýmsa staði aðra í Stokkhólmi. Talsvert hefur verið um hermdarverk, sem talið er að framin hafi verið af stuðnings- mönnum íraks, frá því að Persa- flóastríð braust út, í Evrópu og annarsstaðar, einkum í Grikklandi og Tyrklandi, en hingað til hefúr ekki mikið manntjón hlotist af því. Flugvélatjón Bandamenn í Persaflóastríði, sem nú hefur staðið yfir í tæpar tvær vikur, segjast hafa skotið niður 49 stríðsflugvélar fyrir Irök- um frá ófriðarbyrjun og misst 25 sjálfir, þar af nokkrar vegna vélar- bilana og annarra óhappa. Hafa Bandaríkjamenn þar af misst 16 flugvélar og Bretar sex. Af flug- geisladiska o.fl. Náin sambönd eru komin á með risafyrirtækja- samsteypum þessum annarsvegar og framleiðendum í iðnaði og auglýsingafyrirtækjum hinsvegar, segir í skýrslunni. Þar segir ennfremur að þótt fjölmiðlunarrisamir hugsi hnatt- rænt, muni þeir fyrst og ffemst starfa út ffá vissum stórborgum í vestræna heiminum og eru í því sambandi nefhdar New York, Lundúnir, París og Sydney. Reuter/-dþ. liðum sem með þessum vélum bandamanna vom er einn látinn, svo vitað sé með vissu, en 27 eru skráðir týndir eða teknir höndum. Lokasigur f Sómalílandi Talsmaður eins uppreisnar- flokksins í Sómalílandi lét hafa eftir sér í gær að Mohamed Siad Barre, forseti þar síðan 1969, væri nú kominn heilu og höldnu til smáeyjar einnar sem heyrir undir Kenýu. Barre, sem samkvæmt sumum fféttum er um sjötugt, en að annarra sögn um áttrætt, flýði á sunnudag frá Mogadishu, höfuð- borg Sómalílands, og fór fyrsta áfangann akandi í skriðdreka og þann síðasta á bátkænu. Sómalsk- ir uppreisnarmenn, óvinir Barre, munu nú hafa unnið Iokasigur í striðinu við hann. Þjóðverjar firra sig ámæli Þýska stjómin hefúr ákveðið að leggja fram 5 5 miljarða doll- ara í viðbót upp í herkostnað bandamanna í Persaflóastriði. Áður hafa Þjóðveijar lagt ífam eða lofað að leggja ffam 3,6 mii- jarða til vígbúnaðarins og stríðs- ins þar syðra. Mun stjómin hafa tekið ákvörðun um aukið ffamlag til að firra sig ámæli vesturveld- anna, er telja að Þýskaland hafi staðið heldur slælega með þeim í Persaflóadeilu. 6.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 30. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.