Þjóðviljinn - 02.02.1991, Blaðsíða 3
FRETTIR
Fasteignagiöld
Raunlækkun á undanförnum árum
Þórður Skúlason um mótmæli verkalýðsfélaga vegna fasteignagjalda: Það hefur orðið raunlœkkun á tekjum
sveitarfélaga af fasteignagjaldi
Mótmæli verkalýðshreyf-
ingarinnar vegna álagn-
ingar fasteignagjalda sveitarfé-
laga eru að hluta til á misskiln-
ingi byggð. Þvert á móti hefur
orðið raunlækkun á tekjum
sveitarfélaganna af þessu gjaldi
ef miðað er við framfærsluvísi-
tölu áranna 1987-1990. Auk
þess hafa nokkrir kaupstaðir
lækkað álagningarhlutfallið nú
og önnur hafa ijölgað gjalddög-
um.
Þetta segir Þórður Skúlason,
framkvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, í samtali
við Þjóðviljann. Ýmis verkalýðs-
félög hafa að undanfomu mót-
mælt því sem kallað hefur verið
hækkanir á fasteignagjöldum
sveitarfélaga nú.
Þ&E Akranesi
Slær í bak-
seglin
Sementsverksmiðjan
og Járnblendið hafna
þátttöku í björgunar-
aðgerðum. Rúmur
mánuður frá því
gjaldþrots var krafist
Tilraunir til þess að koma í
veg fyrir gjaldþrot skipasmíða-
stöðvar Þorgeirs og Ellerts á Akra-
nesi halda enn áfram. Talsvert
bakslag kom þó í seglin þegar ljóst
varð að Sementsverksmiðjan og
Jámblendiverksmiðjan ákváðu að
taka ekki þátt í aðgerðunum. Farið
hafði verið fram á að verksmiðj-
umar legðu samtals 11-12 miljón-
ir í fyrirtækið.
- Það var einfaldlega mat okk-
ar að þetta dæmi gengi ekki upp
miðað við þær upplýsingar sem
lágu fyrir. Grundvöllurinn var
ekki nógu traustur, segir Gylfi
Þórðarson, framkvæmdastjóri Se-
mentsverksmiðju ríkisins, við
Þjóðviljann vegna þessa.
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari
á Akranesi, segir að tilraunum til
þess að bjarga fyrirtækinu verði
haldið áfram þrátt fyrir ákvarðanir
verksmiðjanna. Hann segir að
Akranesbær standi fyllilega við
fyrirheit sín, en reiknað hefúr ver-
ið með að bærinn leggi fram nýtt
hlutafé upp á 25 miljónir króna.
Auk þess hefur verið gert ráð
fyrir að ríkið, Landsbankinn og
fleiri aðilar leggi ffam verulegar
fjárhæðir í nýju hlutafé, með nið-
urfellingu skulda og með lánum.
Um 70 manns starfa nú hjá
Þ&E, en starfsmenn vom vel á
annað hundrað fyrir fáum mánuð-
um. Fyrirtækið fékk greiðslu-
stöðvun síðast liðið sumar og fékk
hana framlengda til nóvember-
loka. Þá var því lýst yfir að búið
væri að tryggja áffamhaldandi
rekstur fyrirtækisins, en það
reyndist ekki rétt. Lífeyrissjóður
málm- og skipasmiða reyndist
ekki reiðubúinn að taka þátt í end-
urfjármögnun íyrirtækisins og fór
fram á gjaldþrotaskipti fyrir jól.
Síðan er liðinn rúmur mánuður án
þess að aðgerðir hafi borið árang-
ur. Skuld Þ&E við lífeyrissjóðinn
var komin í 18 miljónir króna,
sem jafngildir um það bil tveggja
ára greiðslum í sjóðinn. -gg
Að sögn Þórðar hefúr þó á
undanfomum ámm orðið raun-
lækkun á tekjum sveitarfélaganna
af fasteignagjaldinu ef miðað er
við framfærsluvísitölu. Til dæmis
bendir hann á að gjaldstofn vegna
fasteignagjalds hækkaði um 13,7
prósent á milli áranna 1989 og
1990, en á sama tíma hækkaði
ffamfærsluvísitalan um 15,5 pró-
sent.
- Eg tel að sveitarfélögin hafi
haldið álagningu gjalda innan
marka þjóðarsáttar eins og þau
höfðu verið hvött til. Auðvitað er
það sveitarfélögunum kappsmál
að verðlag haldist stöðugt. Hins
vegar hafa mörg sveitarfélög ver-
ið í erfiðri stöðu fjárhagslega og
em að gera átak í að rétta fjárhag-
inn við. Það hlýtur að vera hags-
munamál íbúanna að þetta takist,
segir Þórður við Þjóðviljann.
Kaupstaðimir sem lækka
álagningarhlutfallið nú em Kefla-
vík, Borgames, Olafsvík, Húsa-
vík, Seyðisfjörður og Grindavík.
Reykjavíkurborg lækkaði hlut-
fallið einnig hjá fyrirtækjum til
mótvægis við nýtt sorpeyðingar-
gjald. Auk þess er Þjóðviljanum
kurtnugt um að Eyrarbakki og
Stokkseyri hafa einnig lækkað
hlutfallið.
Hins vegar hækkar álagningin
á atvinnuhúsnæði í Bolungarvík
og á Höfn í Homafirði. -gg
Dagana 8. 9. og 10. febrúar næstkomandi munu SEM-samtökin efna til sölu á rauðum nefjum í fjáröflunar-
skyni og verður ágóðinn notaður til lokafrágangs og lóðarvinnu á nýbyggingunni við Sléttuveg. Á myndinni eru
velunnarar SEM-hópsins og fyrir henni miðri Egill Stefánsson formaður samtakanna. Mynd: Jim Smart.
SEM-samtökin
Dagur nefsins
SEM-samtökin, sem eru sam-
tök mænuskaddaðra, fögnuðu
því í gær að hinar sérútbúnu
íbúðir að Sléttuvegi eru fok-
heldar. Stefnt er að því að fyrstu
íbúarnir flytji þangað inn í júní
í sumar.
í næstu viku verður safnað fé
til lokafrágangs húss og lóðar
með sölu á rauðum nefjum, og
Oskudagurinn 13. febrúar verður
dagur nefsins.
Fyrsta skóflustungan að hús-
inu var tekin í maí í fyrra, en
ffamkvæmdin til þessa hefur ver-
ið fjármögnuð með því söfnunar-
fé sem safnaðist þegar sjónvarpað
var ffá_ sérstöku söfúnarátaki á
Hótel Islandi og greiðslum ffá
Húsnæðisstofnun ríkisins. Þá hef-
ur Búnaðarbanki Islands aðstoðað
við ljarmögnun byggingarinnar
og eins hefúr Reykjavíkurborg
styrkt SEM vegna félagsmið-
stöðvarinnar sem er á fjórðu hæð
hússins. En alls eru 20 íbúðir í
húsinu.
Að sögn Egils Stefánssonar
formanns SEM-samtakanna er
búist við að 15-17 fjölskyldur
muni búa í húsinu þegar þar að
kemur, en alls eru félagar í sam-
tökunum 50- 60 manns.
—grh
Bensín
Tíuaura-
hark
Lítrinn af 95 oktana
blýlausu bensíni á
svipuðu verði hjá öll-
um olíufélögunum
Þegar byrjað var að dæla 95
oktana bensíni á bfla í gærmorg-
un kostaði lítrinn 58,10 krónur
hjá Olíufélaginu hf., 57,90 hjá
Olíuverslun íslands hf. en 58
krónur sléttar hjá Skeljungi hf.
Olíufélags-menn lækkuðu hins
vegar lítrann hjá sér niður í 57,80
þegar þeir fféttu af lægra verði
keppinauta sinna hjá Olís og bjóða
þeir því nú lægsta verðið - munar
þar tíu aurum.
Súperbensín, eða 98 oktan,
kostar 60,70 krónur hver lítri. Þar
er verðið það sama hjá öllum olíu-
félögunum þrátt fyrir fijálsa álagn-
ingu. Fyrir þá sem geta notað 92
oktana blýlaust bensín er lítrinn af
því ódýrari en á nýja 95 oktana
bensíninu. 92 oktana bensínlítrinn
kostar 54,40 krónur, en Verðlags-
ráð ákveður verðið á því. BE
A Iþýðuflokkurinn
Prófkjör um helgina
Fleiri kallaðir en verða útvaldir. 13 manns í
framboði til sex efstu sœta á framboðslista
Opið prófkjör Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík verður
haldið um þessa helgi. Víst er að
hluti þeirra 13 einstaklinga sem
eru í framboði mun ekki hafa
erindi sem erfíði í prófkjörinu,
því aðeins er kosið um skipan í
sex efstu sæti á framboðslista
flokksins fyrir alþingiskosning-
arnar. Kosningin er bindandi.
Frambjóðendur i prófkjörinu
eru þau Birgir Amason, hagffæð-
ingur, Össur Skarphéðinsson, líf-
ffæðingur, Valgerður Gunnars-
dóttir, framkvæmdastjóri, Ragn-
heiður Davíðsdóttir, blaðamaður,
Helgi Daníelsson, lögregluþjónn,
en þessi fimm gefa kost á sér í
þriðja til sjötta sæti, Jóhanna Sig-
urðardóttir, félagsmálaráðherra,
sem býður sig eingöngu fram í
annað sætið, Gunnar Ingi Gunn-
arsson, læknir og Guðmundur
Haraldsson, bólstrari, en þeir tveir
gefa kost á sér i fjórða til sjötta
sæti, Þorlákur Helgason, blaða-
maður og kennari, sem er i ffam-
boði í fyrstu þjú sæti listans, Jón
Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra, er '\ framboði i fyrsta
sæti, Jón Ármann Héðinsson,
fyrrverandi alþingismaður, sem er
í framboði í fjögur fyrstu sætin,
Magnús Jónsson, veðurfræðingur,
er sá eini sem geíúr kost á sér í öll
sætin, og síðastan skal telja Þröst
Ólafsson, hagfræðing, sem er ein-
göngu í framboði til þriðja og
fjórða sætis.
Eins og fyrr segir stendur
prófkjörið yfir í dag og á morgun
og verður kosið milli klukkan 10
og 19 báða dagana. Kjörstaðir era
tveir, í Gerðubergi fyrir íbúa
Breiðholts og í Ármúlaskóla fyrir
íbúa annarra borgarhverfa. -rk
Laugardagur 2. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
HELGARRUNTURTNN
ÁRSHÁTÍÐAVERTÍÐIN er að skella á og í tilefhi þess setja hinir
ýmsu skemmtistaðir upp sjóv til að trekkja að. Á Breiðvangi hafa nokkr-
ir vinir Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar tekið sig saman og sett saman
dagskrá byggða á söngferli hans. Nefnist dagskráin Við eigum samleið.
Á Hótel Sögu verður framsýnd í dag ný skemmtidagskrá sem nefnist
Næturvaktin, en umgjörð hennar er næturlífið í París og Berlín á milli-
stríðsáranum. Það era þeir bræður Halli og Laddi auk Bessa og dans-
meyjanna Guðmundu og Ingibjargar sem sjá um fjörið.
BLÚSINN á upp á pallborðið um þessar mundir og stöðugt skjóta nýir
blúsarar upp kollinum. Blái fiðringurinn leikur á Púslinum annað kvöld,
sunnudag, en það er söngkonan Linda Gisladóttir sem túlkar þessa
blökku tónlist. Og Bubbi Mortens heldur sína fyrstu tónleika á þessu ári
á Borginni í kvöld. Úr dægurflugunum í klassíkina: Á morgun sunnudag
heldur Hljómleikafélagið fyrstu tónleika sína í sal Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar við Hraunberg 2. Það era Joseph Ognibene homaleik-
ari og Krystyna Cortes píanóleikari sem flytja verk eftir Schumann og
Hindemitho.fi. Tónleikamir heQast kl. 17.
BIBLÍUDAGURINN er á morgun og í tilefni hans er útvarpað frá guðs-
þjónustu í Hafnarjjarðarkirlgu kl. 11. Seinna um daginn verður aðal-
fúndur Hins íslenska biblíufélags haldinn í Laugameskirkju. Sama dag
er lesið úr þýðingum í Listasafhi Sigurjóns Ólafssonar. Hér er um að
ræða nokkur öndvegisverk sem gefin vora út fyrir síðustu jól. Dagskrá-
in hefst kl. 15. Og á Akureyri era Vinartónleikar Kammerhljómsveitar
Akureyrar í íþróttaskemmunni á sunnudag kl. 17. Páll Pampichler er
hlj ómsvei tarstj óri.
NÁTTÚRUUNNENDUR geta skroppið í fjöraferð í dag kl. 13.30 með
Náttúravemdarfélagi Suðvesturlands og Náttúrafræðistofú Kópavogs.
Farið verður frá Garðakirkju og skoðuð fjaran þar fyrir neðan. Seinna
um daginn er svo hægt að skoða uppskera ferðarinnar í víðsjá í Náttúra-
stofunni. Fyrsta vetrarferð af fjóram hjá Ferðafélagi íslands verður far-
in á sunnudag kl. 13. Kynntar verða verstöðvar og verleiðir á Vatns-
leysuströnd. Utivist verður með Reykjavíkurgöngu á sunnudag kl. 10.30.
íslandsnefnd Norræna umhverfisársins verður með málþing í Norræna
húsinu í dag kl. 14, undir yfirskriftinni Umhverfisímynd og hagsæld á ís-
landi.