Þjóðviljinn - 02.02.1991, Side 11
KVIKMYNDIR
Bonnie Bedelin, Raul Julia og Harrison Ford (réttarsalnum.
Morðflétta
BÍÓBORGIN
Uns sekt er sönnuð
(Presumed innocent)
Leikstjóri: Alan J. Pakula
Handrit: Frank Pierson &
Alan J. Pakula eftir skáldsögu
Scott Turow
Framleiðandi: Sydney Pollack
Aðalleikarar: Harrison Ford,
Brian Dennehy, Raul Julia,
Bonnie Bedelia, Paul Winfl-
eld, Greta Scacci
Fyrir nokkrum árum kom út
bók eftir lögfræðing frá Chicago,
Scott Turow, sem hét Presumed
lnnocent. Hún var blanda af saka-
málasögu, réttardrama, snúinni
ástarsögu og raunsærri lýsingu á
takmörkum bandariska réttarkerf-
isins. Bókin er afburðavel skrifuð
og ég man ekki eftir að hafa getað
lagt hana frá mér. Það var farið að
rífast um kvikmyndaréttinn áður
en hún kom út, svo að margir eru
eflaust búnir að bíða eftir þessari
mynd ansi lengi. Það eru náttúr-
lega mistök, engin mynd stendur
undir svoleiðis væntingum.
Rusty Sabich (Harrison Ford)
er fulltrúi saksóknara og lendir í
því að eiga að finna morðingja
starfsfélaga síns, hinnar glæsilegu
Carolyn Polhemus. Hann hafði
ekki cinungis unnið með henni
heldur haldið við hana líka (eins
og konan hans veit). Yfirmaður
hans, Horgan (Brian Dennehy) er
í miðri kosningabaráttu og treður
málinu á herðar Rusty þó að hann
vilji ekki taka það að sér.
Skemmst er frá því að segja að
Rusty verður allt í einu að hætta
við málið því að hann er sjálfur
ákærður fýrir morðið (fingrafor
hans og fleira finnast í íbúð Caro-
lyn) og þarf að fá sér góðan lög-
fræðing. Sandy (Raul Julia) verð-
Teiknimynda-
hasar
LAUGARÁSBÍÓ
Skuggi (Darkman)
Leikstjóri: Sam Raimi
Handrit: Sam Raimi ofl.
Framleiðandi: Robert Tapert
Aðalhlutverk: Liam Neeson,
Frances McDormand
Raimi hefur sagt að hann hafi
verið sjúkur í teiknimyndablöð
þegar hann var strákur og það
skín í gegnum nýjustu mynd hans
Skugga. Persónumar, söguþráður
og jafnvel myndataka og tækni-
brellur, allt minnir þetta sterkt á
teiknimyndablað. En það er ekki
löstur, síður en svo.
Peyton Westlake (Liam Nee-
son) er vísindamaður sem hefur
fundið upp gervihúð sem bráðnar
í birtu eftir níutíu mínútur. Dag
einn er aðstoðarmaður hans myrt-
ur og rannsóknarstofan hans
sprengd í lofl upp af hræðilegum
og brjáluðum glæpamönnum sem
vinna fyrir ríkan kaupsýslumann.
Hann skaddast sjálfur mikið, sér-
staklega er andlit hans illa bmnn-
ið og hendur sömuleiðis. Hann
verður því að ganga með sára-
bindi yfir andlitinu á daginn en á
nætumar getur hann notast við
gervihörundið sitt. Hann er hálf-
brjálaður enda aðeins hálf-
mennskur eftir slysið. Hann finn-
ur ekki fyrir líkamlegum sársauka
en sá andlegi er orðinn hálfu
meiri. Angist hans og einmana-
leiki hafa brennt hann eins mikið
að innan og eiturefnin brenndu
hömnd hans. Hann gefst þó ekki
upp heldur kemur upp nýrri rann-
sóknarstofu í yfirgefinni verk-
smiðju. Og með hjálp gervihúðar-
innar reynir hann að hefna sín á
glæponunum og endumýja sam-
ur fyrir valinu en hann er leikinn í
að snúa málum og flækja þau svo
að vitnisburðir verða ósannfær-
andi og kviðdómurinn veit ekki
hvað hann á að halda.
Meira má ekki segja ef ekki á
að eyðileggja allar óvæntar uppá-
komur. Myndin er full af fléttum
og ég ætla rétt að benda þeim sem
kaupa prógrömm á að lesa það
ekki. Alan J. Pakula er reyndur
leikstjóri (All the Presidents Men,
Sophies Choice) og Uns sekt er
sönnuð er mjög fagmannlega gerð
mynd. En hún er hæg, eins og
fleiri myndir Pakula, og mér
finnst hún ekki ná þessari raf-
mögnuðu spennu sem einkenndi
bókina, þó að plottið sé alltaf jafn
gott. Það kom mér til dæmis á
óvart hversu þung og hæg réttar-
atriðin eru. Nú hefur maður séð
margar myndir þar sem réttarat-
riði em lifandi og þrungin spennu,
band sitt við lögfræðinginn Julie
(Francis McDormand), sem hann
var með fyrir slysið.
Liam Neeson og Francis
McDormand ásamt öllum vondu
glæpamönnunum leika mjög ýkt
eins og þau séu í hasarblaði, og
verða fyndin í allri dramatíkinni.
Það má sérstaklega minnast á
Larry Drake sem leikur einn
ógeðslegasta glæpamann sem
enda er bandaríska réttarkerfið
svo líkt leikhúsi að það er eflaust
létt að gera það að drama.
Leikurinn er misjafn. Harri-
son Ford hefur ofl sýnt að hann
getur fleira en að bjarga fólki og
dýrgripum úr háska í lndiana Jon-
es myndum, en hann rennur í
gegnum þessa mynd án þess að
gera nokkuð virkilega vel eða illa.
Dennehy slær mikið á bakið á
fólki en gerir lítið annað úr hlut-
verki eigingjams stjómmála-
manns. Það eru Raul Julia og
Bonnie Bedelia sem skína í hlut-
verkum lögffæðings og eiginkonu
Rusty og lyfta myndinni upp úr
meðalmennskunni.
Ég veit ekki nema þeir sem
urðu hrifnir af bókinni ættu að
sitja heima og lcsa hana aftur og
láta þeim eftir sem ekki hafa lesið
hana að njóta hennar í bíó.
Sif
maður hefur séð lengi. Skuggi er
líkari hasarblaðahetju en Dick
Tracy og Batman vom nokkum-
tímann, og sum atriði í Skugga
em allt að því frábær, eins og til
dæmis þegar hann er dreginn með
þyrlu... en ég segi ekki meira. Þeir
sem hafa gaman af hasarblöðum
og öðravísi hetjum ættu ekki að
láta sig vanta á Skugga.
Sif
Skuggi (Liam Neeson) heitir hefndum á árásarmönnum sinum.
Laugardagur 2. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
HÁSKÓLABÍÓ
Nikita “1/2
Luc Besson hverfur frá róman-
tík hafsins til undirheimalýðs
Parísarborgar með ágætum ár-
angri. Formidable.
Tryllt ást
(Wild at heart)***1/2
Hinn undarlegi David Lynch
kemur hér með undarlega og
stórgóða mynd fyrir alla kvik-
myndaunnendur.
Hinrik V ****
Branagh og Shakespeare eru
stórkostlegir saman á filmu.
þetta er tvímælalaust besta
kvikmyndin í boð í dag.
Glæpir og afbrot
(Crimes and misdemea-
nors)****
Allen fléttar síðan tvær um
lækninn og heimildamynda-
gerðarmanninn saman á meist-
aralegan hátt.
Draugar
(Ghost)**'
Inní þessa óvenjulegu róman-
tík blandast veðmálabrask og
peningaþvottur. Leikurinn er
ágætur, söguþráðurinn
skemmtilegur og tæknibrellum-
ar góðar.
Pappírs Pési ***
Alveg ágæt barnamynd. Papp-
írs Pési er skemmtileg fígúra
og krakkarnir alveg einstaklega
krakkalegir. Drífið ykkur með
bömin!
Cinema Paradiso
(Paradísarbíóið)****
Langt yfir alla stjömugjöf hafin.
Svona mynd er aðeins gerð
einu sinni og þessvegna má
enginn sem hefur hið minnsta
gaman af kvikmyndum missa
af henni.
BÍÓBORGIN
Þrír menn og lítil dama
(Three men and a little lady)**
Það er ekkert frumlegt við
handritið, en Kanarnir eru mjög
færir að vinna úr þessari form-
úlu og það má vissulega flissa
að útkomunni, enda geysi kjút!
Góðir gæjar
(Goodfellas)***
Mynd fyrir þá sem hafa gaman
af morðum í nærmynd og
skemmta sér vel yfir að heyra
ekkert nema blótsyrði í rúma
tvo tíma. Leikurinn er óaðfinn-
anlegur.
REGNBOGINN
Ryð ***
Ryð er í alla staði mjög vel gerð
og fagmannleg mynd. Lokaat-
riðið er með þeim betri í (s-
lenskri kvikmyndasögu. Missið
ekki af henni.
Skúrkar
(Les Ripoux)**'
Hress og skemmtileg mynd um
tvær franskar löggur, það er
góð tilbreyting að sjá aðra en
Ameríkana halda uppi lögum
og reglu þó að það sé nú kann-
ski ekki alltaf aðalmálið hjá
þessum.
STJÖRNUBÍÓ
Á mörkum lífs og dauða
(Flatliners)**
Myndin er eins og langt tónlist-
armyndband þar sem hljóm-
sveitina vantar, en óneitanlega
spennandi skemmtun.
LAUGARÁSBÍÓ
Skólabylgjan
(Pump up the volume)**'
Þetta er unglingamynd ( betri
kantinum. Christian Slater við
hljónemann er einn timans
virði.
Henry & June ***
Handritið er ekki eins gott og
maður hafði leyft sér að vona
en myndatakan er æði og leik-
urinn góður. SiF