Þjóðviljinn - 02.02.1991, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 02.02.1991, Qupperneq 15
í DAG Gítargoðið Derek alias Eric Clapton á Laylutimanum Tuttugu árum síðar og einu betur Derek and the Dominos, The Layla Sessions: 20th Anniversary Edition. Poly- dor 1990. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eric Clapton og fé- lagar hans í Derek and the Dom- inos gáfu út tvöfalda plötualbúm- ið Layla and Other Assorted Love Songs. Á síðasta ári voru tuttugu ár liðin ffá því að sveitin hljóðrit- aði efnið á plötumar. í tileíhi af þeim tímamótum gaf Polydor plötumar út á ný fyrir skömmu, endurhljóðblandaðar, ásamt ýmsu öðm efni sem til féll meðan á upptökunum stóð. Laylu-albúmið er jafnan talið einn af hápunktunum á lista- mannnsferli Erics Claptons þrátt fyrir heldur dræmar undirtektir sem það hlaut fyrst í stað. Á því er m.a. að finna blússtandarda, þétta fmmsamda rokkslagara og gull- fallegar ballöður, auk óviðjafnan- legrar útsetningar á lagi Jimmy Hendrix Líttle Wing og titillags- ins sem segja má að sé orðið sígilt í dægurlagaheiminum. Það má til sanns vegar færa að þann stutta tíma sem Derek and the Dominos vom við lýði, frá miðju ári 1970 og fram í maí ári siðar, hafi Clapton komið fýrst fram sem fúllþroskaður tónlistar- maður, ekki bara sem sólóisti og túlkandi líkt og þegar hann var með Cream og áður Bluesbrakers Johns Mayalls, heldur einnig sem lagasmiður og söngvari. Derek and the Dominos vom einhverskonar millikafli í tónlist- arferli Claptons, þar sem hann leggur lykkju á leið sína og lætur um tíma af nýhöfhum sólóferli. Efiir að Blind Faith-sveitin, sem Clapton var með, lagði upp laup- ana 1969 batt hann um skeið trúss sitt við bandarísk hjónakom Del- aney og Bonnie og stóran hóp fjölskylduvina. Því ævintýri var þó aldrei ætlað að endast enda sjálfsagt erfitt fyrir stórstjömu á borð við Clapton að víkja úr sviðsljósinu fyrir smástimum á borð við þau skötuhjú. Meðfram og í ffamhaldinu gaf hann út sína fyrstu sólóplötu þar sem hann fékk allan Delaney og Bonnie- flokkinn í lið með sér. Það var síðan upp úr því samstarfi sem Dominos-sveitin varð til, með þá Jim Gordon (áður með Bread og Carol King, síðar Traffic) sem trymbil, Carl Radle (síðar með J.J. Cale og Clapton áður en yfir lauk) sem bassaleikara og Bobby Whitlock sem hljómborðsleikara. I fyrstunni var gamla Traffic- brýnið Dave Mason með en hann helltist fljótt úr lestinni. I ágúst 1970 var sveitin tilbúin að fara í hljóðver og var tekið upp með hléum allt fram í október. Meðan á upptökum stóð bættist annar Allman-bræðra, gítaristinn Du- ane, I hópinn og lék með í stómm hluta af upptökunum. Það er ein- mitt það efni sem á þessum tíma var hljóðritað er afinælisútgáfan hefur að geyma. Saga Derek and the Dominos varð ekki öllu lengri. Snemmaárs 1971 varaftur haldið í hljóðver og tekið upp, en ekkert varð úr og sveitin leystist upp. Annað var sennilega óhjá- kvæmilegt eftir stífa keyrslu vik- um saman, vökur og sukk þar sem heróín og kókaín með viskí í bland voru helstu vitamíngjafam- ir. Auk laganna af upphaflega al- búminu er að finna á afmælisút- gáfunni ófúllgerðar upptökur, upptökur af æfingum, jömm og mismunandi útsetningar af nokkr- um þeirra laga sem Layla-albúm- ið hefur að geyma eða tónlist sem tekur á fjórðu klukkustund í flutn- ingi. Það verður að segjast eins og er að setja má spumingarmerki við það hvaða tilgangi útgáfa sem þessi þjónar. Vissulega er fengur í því að fá upphaflega albúmið endurhljóðritað og virðist það hafa tekist með ágætum. Hins vegar er sumt af viðbótarefninu ekki upp á marga fiska og kitlar sennilega enga aðra en þá sem haldnir em söfnunaráráttu og vilja halda til haga sem flestu af því er Clapton hefur komið nærri. Inn á milli er þó að finna stór- skemmtilegar útsetningar, s.s. eins og af Billy Miles blúsnum Have You Ever Loved a Woman, og það ffekar tvær en eina, og gott gítardúó þeirra Claptons og All- mans í blues Walters Jakobs, Me- an Old World. Annað sem vekur athygli er að í jömmunum, sem standa sam- tals yfir í rúmar 70 mínútur, er gítarleikur Claptons svo til sér- kennalaus þrátt fyrir allar fingra; æfingamar sem hann þó gerir. I stað gamla Claptons hljómsins ber öllu meira á áhrifúm Allman Brothers Band, svo sem eins og þeir hljómuðu síðar á hljómlei- kaplötunum þeirra At Fillmore East. Því hefur stundum verið hald- ið fram að með nafngiftinni De- rek and the Dominos hafi Clapton viljað beina athyglinni ffá sér. Eftir að hafa hlustað á jömmin, þar sem aðrir hljómsveitarmeð- limir en Clapton em atkvæðalaus- ir og sýna lítil tilþrif, má segja sem svo að þar hafi verið á ferð- inni sólóistinn Derek og ryþma- sveitin Dominos. -rk Hljómplötur Claptons sem tengjast Dominos-tímabilinu með einum eða öðrum hætti: Delaney and Bonnie, On To- ur With Eric Clapton, 1971. Eric Clapton, 1970. Derek and the Dominos In Concert, 1973. Crossroads, 1989 (úrval frá 25 ára tónlistarferli Clap- tons. Þar er að finna nokkur þeirra laga sem hljóðrituð voru íþann mund sem Dom- inos-sveitin leystist upp). Slökkvistöðin í Reykjavík Starfsmenn óskast til starfa á slökkvistöðinni í Reykjavík. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20- 28 ára, hafa meirapróf til aksturs og iðnmenntun eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi slökkviliðs- manna. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu slökkvistöðvar- innar. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 18. febr. n.k. Nánari upplýsingar á skrifstofu. ÞJ0ÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Undiriægjuhátturinn lögboðinn. Ríkisstjórnin breytir hegningar- lögunum til þess að geta túlkað móðganir við brezka setuliðið sem landráö við íslenzka ríkið. Italski herinn I Libýu virðist ætla að reyna að verja Bengasi. Bretar gera ákafar loftárásir á Tripolis. Sókn semur við Ríkis- spítalana. Vopnahléð milli Thai- lands og Indó-KIna rofið. 2. febrúar laugardagur. 33. dagur ársins. Kyndilmessa. 15. vika vetrar hefst. Sólarupprás í Reykjavlk kl. 10.06 - sólariag kl. 17.18. Viðburðir Múrarafélag Reykjavlkur stofn- að 1917. DAGBOK APOTEK Reykjavfk: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna 1. til 7. febrúar er I Holts Apóteki og Laugavegs Apóteki. Fyrmefnda apotekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frídögum). Síðarnefnda apótekið er opið á kvóldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 samhliöa hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavlk.................» 1 11 66 Kópavogur.................« 4 12 00 Seltjamarnes..............» 1 84 55 Hafnarfjöröur.............» 5 11 66 Garðabær................" 5 11 66 Akureyri..................« 2 32 22 Slökkvið og sjúkrabílar Reykjavlk.................® 1 11 00 Kópavogur............. » 1 11 00 Seltjamarnes...............® 1 11 00 Hafnarfjörður.............* 5 11 00 Garðabær.............. « 5 11 00 Akureyri..................« 2 22 22 L/EKNAR Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjam- arnes og Kópavog er ( Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráöleggingar og tímapantanir I « 21230. Upplýsingar um lækna-og lytjaþjónustu eru gefnar i símsvara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspit- alans er opin allan sólarhringinn, » 696600. Neyðarvakt Tannlæknafélags íslands er starfræktumhelgar og stórhátíðir. Slmsvari 681041. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl- an, » 53722. Næturvakt lækna, » 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt, « 656066, upplýsingar um vaktlækni »51100. Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á Læknamiöstöðinni,« 22311, hjá Akureyrar Apóteki, » 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsími). Keflavík: Dagvakt, upplýsingar í « 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, » 11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spltalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Land- spftalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra- timi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar- heimili Reykjavikur v/Eiriksgótu: Al- mennur tími kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatimi kl. 20-21 alla daga. Öldrunariækningadeild Landspital- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu- verndarstöðin viö Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefsspftali Hafnar- firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsiö Húsavfk: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, « 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svaraö er i upplýsinga- og ráögjafarslma félags lesbla og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum tlmum.« 91-28539. Sálfræðistöðin: Ráðgjöf i sálfræði- legum efnum,« 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt f slma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá kl. 8 til 17, « 91-688620. „Opið hús" fyrir krabbamelnssiúk- linga og aðstandendur þeirra f Skóg- arhlfð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra (« 91- 22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: « 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar- fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars símsvari. Samtök um kvennaathvarf: « 91- 21205, húsaskjól og aöstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opio þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga ki 13:30 til 15:30 og kl. 20til 22, « 91-21500, slmsvari. Sjálfshjálparhóp þeirra sem orðið hafa fýrir sifjaspellum:« 91-21500, sfmsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: « 91-21260 alla v:n;a daga kl. 13 til 17. Stfgamót, miðstö fyrir konur og böm sem orðið hafa fyrit kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 9 626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: » 27311. Rafmaonsveita: Bilanavakt i « 686230. Rafveita Hafnari ðar: Bllanavakt, « 652936. GENGIÐ 1. febrúar1S91 Sala 54,69000 107,35400 47,02700 9,55530 9,40340 Sænsk króna Finnskt mark Franskurfranki Belglskurfranki Svissneskur fran' 9,84160 15,18960 10,82600 1,78580 43,41340 32,63610 Vesturþýskt mart 36,80230 0,04896 5,22870 Portúgalskur esc Spánskur peseti 0,41530 0,58550 0,41355 Irskt pund 98,07300 KRC tSGATA rétt: 1 kramur 4 litil- <gi 6 hratt 7 hviða 9 rhöfn 12 eldfjall 14 rfi 15 hreysi 16 köld bráðlega 20 klófesti flókið ðrétt: 2 ellegar 3 ifsa 4 sæti 5 heiður ela 8 húðar 10 rrukær 11 kisur 13 ssir 17 námstlmabil 'iri jsn sfðustu kross- tu étt: 1 dögg 4 smán im 7 lafi 9 ásar 12 it 14 gát 15 eik 16 ng 19 iöka 20 ægði tregi ðrétt: 2 öra 3 geil 4 ,ái 5 áma 7 lognið 8 ekt 10 steggi 11 ,kir 13 efi 17far18 9 Laugardagur 2. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJ l — SÍÐA15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.