Þjóðviljinn - 02.02.1991, Page 16

Þjóðviljinn - 02.02.1991, Page 16
 SPURNINGIN 1 (Spurt á tannverndardaginn) Drekkurðu gos og borð- arðu sælgæti daglega? Halldór Ásgeirsson nemi: Nei, ekki daglega en þó tvisvar til þrisvar í viku. Ólafur Einarsson sjómaður: Nei, það geri ég ekki. Það er hending að ég fái mér gos og sælgæti kemur sjaldan inn fyrir mínar varir. Helga Ingvarsdóttir skrifstofumaður: Nei, mjög lítið. Það er helst að ég fái mér konfekt annað slag- ið. Guðný Gunnarsdóttir námsráðgjafi: Nei, það geri ég ekki. Ég drekk aðallega kaffi og finnst gott að fá mér súkkulaði með þegar ég horfi á sjónvarpið. RAFRÚN H.F. Smiðjuvegi 11 E Alhliða rafverktakaþjónusta Símí641012 / ibrúar Frestur til að skila skattframtali rennur út 10. febrúar Síðasti skiladagur skattframtals vegna tekna og eigna á árinu 1990 nálgast nú óðum. ítarlegur leiðbein- ingabæklingur hefur verið sendur til framteljenda sem kemur að góðum notum við útfyllingu framtalsins. Fylgiblöð með skattframtali liggja frammi hjá skattstjórum sem jafn- framt veita frekari upplýsingar ef óskað er. Mikilvægt er að framteljendur varð- veiti launaseðla áfram eftir að fram- talinu hefur verið skilað. Ef þörf krefur eiga launaseðlarnir að sanna að staðgreiðsla hefur verið dregin af launum. Skattframtalinu á að skila til skatt- stjóra í viðkomandi umdæmi. Forðist álag vegna síðbúinna skila! RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI HVÍTA HÚSIO / SÍA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.