Þjóðviljinn - 12.02.1991, Síða 3
FRETTIR
Útvegsbankahúsið
Dómhús við
Lækjartorg
Kaupverðið tœpar 200 miljónir króna. Aðsetur
héraðsdómstóls í höfuðborginni eftir
stjórnkerfisbreytinguna íjúli á næsta ári
Ríkissjóður keypti í gær Út-
vegsbankahúsið við Lækj-
artorg af íslandsbanka fyrir
tæpar 200 miljónir króna, eða
hvern fermetra á um 47 þúsund
krónur. Ákveðið hefur verið að
í framtíðinni verði þar aðsetur
héraðsdómstóls í höfuðborginni
og næsta nágrenni eftir stjórn-
kerflsbreytinguna í dómsmál-
um sem kemur til framkvæmda
á næsta ári.
Kaupverð hússins er virði
þess samkvæmt fasteignamati 1.
desember 1990 og greiðist með
skuldabréfi til níu ára. Skulda-
bréfið er verðtryggt samkvæmt
byggingarvísitölu og með fostum
6,7% vöxtum. Fyrsta afborgun er
þann 31. desember í ár.
Áætlaður kosmaður við að
koma dómstólunum fyrir í húsinu
er um 115-120 miljónir króna.
Gert er ráð fyrir verulegri endur-
nýjun á fyrstu og annarri hæð í
aðalhúsi og á fjórðu hæð í norður-
byggingunni, svokölluðu Páls-
húsi.
Stefnt er að því að húsið verði
tilbúið til notkunar þann 1. júní
1992 þegar Borgardómur, Saka-
dómur Reykjavíkur, Sakadómur í
ávana- og fíkniefnamálum og að
hluta til embætti borgarfógeta
sameinast í einum dómstól, Hér-
aðsdómi Reykjavíkur. Að mati
kaupenda má búast við umtals-
verðum margfeldisáhrifum í mið-
bænum með tilkomu sérstaks
Dómhúss við Lækjartorg, sem
mun efla þar mannlíf og viðskipti.
Samningurinn um kaup ríkis-
sjóðs á Utvegsbankahúsinu á ræt-
ur að rekja til stofnunar íslands-
banka hf. árið 1989, en þegar rík-
ið seldi hlutabréf sín í Utvegs-
bankanum hf. var því meðal ann-
ars áskilinn forkaupsréttur að
þessari gömlu húseign bankans.
-grh
AB Austurlandi
Einar Már í öðru
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður verður í efsta
sæti lista Alþýðubandalagsins á
Austurlandi í þingkosningun-
um í vor. Einar Már Sigurðsson
sem er frá Neskaupstað líkt og
Hjörleifur er í öðru sæti. I
þriðja sæti er Þuríður Backman
Egilsstöðum og í því fjórða er
Álfhildur Ólafsdóttir Vopna-
firði. Sigurður Ingvarsson Eski-
firði er í fimmta sæti.
Á fundi kjördæmisráðs um
listann lögðu Seyðfirðingar til að
sjötti maður á listanum Bjöm
Grétar Sveinsson Höfn í Homa-
firði tæki sæti Einars Más sem
tæki fjórða sæti, en þar sem hvor-
ugur þeirra léði máls á þessu þá
var tillagan dregin til baka. Seyð-
firðingamir vom horfnir af fundi
ráðsins þegar listinn var einróma
samþykktur s.l. föstudag.
Ásgeir Magnússon formaður
kjördæmisráðsins sagði að for-
valsnefndin hefði raðað á lista eft-
ir settum reglum og hefði verið
leitast við því að dreifa sætunum
eftir stöðunum einsog reglur
gerðu ráð fyrir, en að ekki hefði
komið til að gengið yrði framhjá
því að Hjörleifur og Einar Már
hefðu fengið langflest atkvæða í
forvalinu. En Seyðfirðingar höfðu
gagruýnt að tveir menn frá Nes-
kaupstað væm í tveimur efstu
sætunum. Ásgeir sagði að í stóm
kjördæmi væri ekki hægt að gera
öllum til hæfis, en hann taldi víst
að mikill meirihluti Seyðfirðinga
myndi styðja þennan lista.
í sjöunda sæti er Öm Ingólfs-
son Breiðdalsvík, þá er Oddný
Vestmann í áttunda sæti, Guðrún
R. Aðalsteinsdóttir Höfn í Homa-
firði er í þvi níunda og neðsta sæt-
ið skipar Aðalbjöm Bjömsson
Vopnafirði. -gpm
Bridge
Omar Sharif á Flugleiðamót
Kvikmyndaleikarinn og
hjartaknúsarinn Omar
Sharif verður í hópi keppenda á
níunda opna Flugleiðamótinu í
bridge, sem haldið verður á
Hótel Loftleiðum um helgina.
Alls verða fjórtán erlendir
spilarar á mótinu og auk Sharifs
em þar heimsþekkt nöfn eins og
Paul Chemla frá Frakklandi, Zia
Mahmood frá Pakistan og lands-
lið Austurríkis sem varð Evrópu-
meistari fyrir fimm árum.
Þegar hafa yfir 200 spilarar
skráð sig til leiks og þar á meðal
allir sterkustu bridgespilarar
landsins. í verðlaun em 650 þús-
und krónur sem skiptast á milli 6
efstu para og þriggja efstu sveita á
mótinu sem hefst með parakeppni
á föstudagskvöldið næstkomandi.
-grh
Heimamarkaður forsenda
markaðssetningar
Þau mistök áttu sér stað í Nýju
Helgarblaði Þjóðviljans sl. föstu-
dag, að í undirfyrirsögn við grein
Einars Vals Ingimundarsonar,
Vetni: Orkugjafi framtíðar, að
heimamarkaður varð að heims-
markaði og gjörbreyttist þá merk-
ing setningarinnar.
Rétt átti undirfyrirsögnin að
vera svona: Þróun heimamarkað-
ar er forsenda markaðssetningar í
Evrópu. Flotinn gæti nýtt vetni á
næstu fimm ámm og olíuinnflutn-
ingur minnkað um 50%.
Einar Valur og lesendur em
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Ritstj.
ÞORMÓÐUR RAMMI HF.
TEKJUVIRÐISMAT
1 2 3
FramlegÖ FramlegÖ Framlegð
14,20% 12,60% 11,70%
Heildartekjur 1.020 1.020 1.020
Framlegö 145 129 119
Afskriftír .... ( 62) ( 62) ( 62)
Vextir langtímalána (8% af 550 mkr.) .... ( 44)( 44) ( 44)
Vextir afuröalána (10% af 90 mkr.) .... ( 9 ) ( 9)( 9)
HagnaÖur 30 14 4
Mat miöaö viö 10% arösemiskröfu 300 140 40
Mat miðaö viö 15% arösemiskröfu 200 93 27
Taflan sýnir mismunandi niðurstöðu á verði hlutabréfa Þormóðs ramma hf. eftir breytilegri framlegðarprósentu
og mismunandi arðsemiskröfu. Taflan er unnin af fjármálaráðuneytinu, en fýrsti dálkurinn og 10 prósent arð-
semiskrafa er niðurstaða Rlkisendurskoðunar varðandi verðmæti hlutabréfa fyrirtækisins.
Hvað kostar eitt fyrirtæki?
Fjármálaráðherra dregur í efa hæfni Ríkisendurskoðunar til að meta
verðmœti hlutabréfa í Þormóði ramma hf Páll Pétursson var mótfallinn
sölunni og telur ráðherrann hafa gaukað jólagjöf að félögum sínum
Olafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra gagn-
rýndi Ríkisendurskoðun
harkalega fyrir skýrslu stofn-
unarinnar um sölu hluta hluta-
bréfa ríkisins í Þormóði ramma
hf. Siglufirði. í utandagskrár-
umræðu í Sameinuðu þingi í
gær. En Ólafur Ragnar hafði
farið fram á umræður um
skýrsluna á þingi auk úttektar á
Ríkisendurskoðun. Ríkisendur-
skoðun komst að þeirri niður-
stöðu að hlutabréf Þormóðs
ramma hf. væru 250-300 miljón
króna virði, en að við söluna
voru bréfin metin á 150 miljón-
ir króna. Og kom það mat fram
í skýrslu sem fjórir þingmenn
Norðurlandskjördæmis vestra
höfðu beðið um varðandi söl-
una.
Fagleghæfni
Ólafiir Ragnar dró í efa að
Ríkisendurskoðun gæti faglega
lagt mat á verðmæti hlutabréf-
anna og fann hann skýrslu stofn-
unarinnar flest til foráttu. Hann
gagnrýndi sérstaklega að stofnun-
in heföi komist að einni klipptri
og skorinni niðurstöðu og benti á
að eðlilegra heföi verið ef stofn-
unin heföi tekið fyrir mismunandi
forsendur i mati sínu og þannig
fengið breytilega niðurstöðu.
Fjármálaráðherra sagði að
forsendur Ríkisendurskoðunar í
mati sínu væri ekki í takt við
raunveruleikann og að tölur varð-
andi hvorttveggja framlegð og
arðsemi væru óeðlilegar auk þess
sem stofhunin stæði i hugtaka-
ruglingi. Benti Ólafur Ragnar á,
og vitnaði til töflu sem er birt hér
að ofan, að væri framlegðarpró-
sentunni breytt litilsháttar færi
matið á hlutabréfunum umsvifa-
laust niður í 140 miljónir króna.
Hann sagðist þess viss að hluta-
bréfin heföu verið seld langt yfir
raunvirði.
Ólafur Ragnar taldi framlegð-
arprósentu Rikisendurskoðunar
(dálkur 1 í töflunni) allt of háa og
benti á að stofnunin hefði miðað
við stöðu fyrirtækisins eitt undan-
farið ár en ekki þijú undanfarin ár
sem heföi verið eðlilegra. Hann
vildi einnig meina að ávöxtunar-
krafan sem stofhunin hefði reikn-
að með væri alltof lág og benti á
að 10 prósentin sem Rikisendur-
skoðun reiknaði með meira en
helmingi lægri en reiknað væri
með víða erlendis.
Þá benti ráðherrann á að Rík-
isendurskoðun heföi í engu reynt
að meta verðmæti bréfanna á al-
mennum markaði. Og sagði Ólaf-
ur að framkvæmdastjóri verð-
bréfadeildar Islandsbanka Sigurð-
ur B. Stefánsson hefði talið i des-
ember s.l. þegar bréfin voru seld
í BRENNIDEPLI
Fjármálaráðherra
sagði að forsendur
Ríkisendurskoðunar í
mati sínu væri ekki í
takt við raunveruleik-
ann og að tölur varð-
andi hvorttveggja
framlegð og arðsemi
vœru óeðlilegar auk
þess sem stofnunin
stæði í
hugtakaruglingi.
að þau væru ekki tæk á verðbréfa-
markaði.
Maikaðurinn ráði
Ólafur Ragnar sagði að mark-
aðsverðið væri eina rétta verðið
þ.e. það verð sem, seljandi væri
tilbúinn til að selja á og það verð
sem kaupandi væri tilbúinn að
kaupa á.
,Aítlum við að endurrreisa
það hagkerfi sem er að falla í Sov-
étrikjunum?“ spurði hann. Hann
sagði að í niðurstöðu Rikisendur-
skoðunar fælist að stofnunin tæki
ekki mark á markaðnum. Fjár-
málaráðherra taldi það undarlegt
ef talsmenn fijáls markaðar á Is-
landi teldu nú rétt að fara til Rík-
isendurskoðunar og spyrja hana
um verð hlutanna í stað þess að
láta markaðinn sjá um þá hlið
málanna.
Að lokum, eða eftir tæpa tvo
klukkutíma, sagði Ólafur Ragnar
að hann heföi sýnt fram á það
með óyggjandi rökum að niður-
staða Ríkisendurskoðunnar væri
hæpin og beinlínis villandi og
sagðist hann á þessu stigi ekki
vilja taka dýpra í árinni en svo.
Páll Pétursson þingmaður
Framsóknarflokksins i Norður-
landskjördæmi vestra og fyrsti
beiðandi umræddrar skýrslu Rik-
isendurskoðunar tók næstur til
máls og gagnrýndi hann Ólaf
Ragnar harkalega. Sagði hann
fjármálaráðherra hafa vaðið elg-
inn í hartnær tvo tíma án þess að
hafa hrakið rök Ríkisendurskoð-
unar i einu eða neinu. Hann taldi
rétt að miða við eitt ár en ekki
þijú varðandi framlegðarreikn-
ingana þar sem staða fyrirtækis-
ins heföi verið bætt fyrir tilverkn-
að fjármálaráðherra. Páll sagði að
fyrirtækið heföi líklega skilað
1220 miljón króna hagnaði á síð-
asta ári.
Á móti sölunni
Þá gagnrýndi Páll söluna á
hlutabréfunum í Þormóði ramma
hf. sem hann var og er mjög mót-
fallinn. Hann taldi að Olafur
Ragnar heföi fært félögum sínum
á Siglufirði jólagjöf með sölunni
því hún hefði verið gjöf. Ólafur
sagði að hann heföi engin tengsl
við kaupenduma og heföi fyrir
söluna aldrei hitt þá.
Páll taldi að réttast heföi verið
að ríkissjóðður heföi haldið hluta-
bréfunum, en að næstbesti kostur-
inn heföi verið að selja 200 Sigl-
firðingum bréfin en ekki að sam-
eina Dröfn hf., Egilssíld hf. og
Þormóð einsog gert var.
Páll sagði að hagsmunum rik-
issjóðs heföi verið fómað með
sölunni, en hann taldi að fyrirtæk-
in tvö sem um er getið að ofan
heföu verið ofmetin, bæði af Ól-
afi Ragnari og af Ríkisendurskoð-
un.
Líkt og Páll lýsti Pálmi Jóns-
son, Sjfl., því yfir að Rikisendur-
skoðun ætti fyllsta traust skilið og
að til hennar væri borið fyllsta
traust. Hann taldi hinsvegar að
menn bæm ekki fullt traust til
fjármálaráðherra. Pálmi sagðist
ekki mótfallinn sölu hlutabréfa
ríkisins, en taldi hér rangt að mál-
um staðið. Hann sagði að við söl-
una heföi i engu verið gætt jafn-
ræðissjónarmiða né viðskipta-
sjónarmiða. Pálmi gagnrýndi að
hlutabréfin heföu ekki verið aug-
lýst og þeir 175 Siglfirðingar sem
heföu viljað kaupa fyrirtækið
heföu verið hunsaðir. Ólafur
Ragnar taldi hlutabréfm hafa ver-
ið nægilega auglýst þó það hafi
einungis verið gert á Siglufirði
þar sem eitt skilyrði sölunnar
heföi verið að fyrirtækið héldi
áfram að starfa á Siglufirði og að
kvóti skipa félagsins færi ekki úr
héraði. -gpm
Þriðjudagur 12. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3