Þjóðviljinn - 12.02.1991, Page 11
Maqnús H. Gíslason skrifar
M r A FÖRNUM VEGI 28
Spilamennskunni í gærkvöldi
lauk auðvitað með kaffidrykkju
og tilheyrandi kræsingum, meðal
hverra voru nýsteiktar lummur,
hrein himnaríkis-fæða.
Eg bað um að ýtt yrði við mér
kl. 8 væri ég ekki farinn að láta á
mér kræla þá, því nú átti ég drjúga
dagleið fýrir höndum, yfir
Hnjótsheiði og síðan eftir Rauð-
asandinum, allt inn að Saurbæ.
Þar hafði ívar kaupfélagsstjóri
boðað fund kl. 2. Ég taldi mig þvi
ekki mega fara seinna úr Örlygs-
höfninni en kl. 9 og miðaði þá við
að vera kominn í Saurbæ nokkru
áður en fúndurinn átti að hefjast.
Húsfreyjan í Efri-Tungu náði
mér í rúminu kl. 8 þegar hún kom
inn til mín með morgunkaffið. Og
auðvitað var svo ekki við annað
komandi en að borða vel og
dyggilega áður en ég færi. Ég
hafði hugsað mér að fara gang-
andi og sú ákvörðun breyttist í
engu þótt ég fengi nú í fyrsta sinn
á þessu ferðalagi leiðindaveður,
norðanstorm og bleytuhríð. Það
var heldur ekki um neinn bílveg
að ræða yfir Hnjótsheiðina og
hesta hafði ég enga séð. En viti
menn: Sem ég var að renna niður
síðustu skeiðunum af sveskju-
grautnum birtist Einar kaupfé-
lagsstjóri með tvo til reiðar. Þeim
Júlíusi hafði þá ekki litist á það að
sleppa mér einum, ókunnugum
og gangandi upp á Hnjótsheiði í
tvísýnu veðri.
Um 10-leytið héldum við Ein-
ar úr hlaði. Ég reið brúnum hesti,
ættuðum úr Húnaþingi, að því er
Einar sagði mér, engum gæðingi
en rólegum og traustum. Mér
fannst Hnjótsheiðin hálf ömurleg,
grýtt, gróðurlítil og fremur
ógreiðfær yfirferðar, svo óvíða
gátum við farið nema fetið. Veðr-
ið hefur að vísu alltaf einhver
áhrif á það hvemig manni hugn-
ast umhverfið og vel má vera að
mér hefði sýnst heiðin hýrlegri í
björtu og góðu veðri.
Götumar niður af heiðinni
lágu svo til um hlaðið á Nausta-
brekku, vestasta bænum sem þá
var í byggð á Rauðasandi. Ekki
sýndist mér þar beinlínis búsæld-
arlegt. Graslendið virtist lítið
nema túnið en sandauðn allt í
kring. En þama bjó samt íslensk
gestrisni. Bóndinn gekk í veg fyr-
ir okkur og bauð í bæinn. Ég átti
erfitt með að forðast ffeistinguna.
Ekki af því að mig munaði svo
mjög í kaffi. En ég hef alltaf verið
veikur fyrir því að „reka inn nef-
ið“ á bæjum þar sem ég hef ekki
komið áður. Og naumast fæ ég
færi á því öðm sinni að líta inn á
Naustabrekku. Ég skaut málinu
til Einars. Hann mátti gerst um
það vita hve lengi við yrðum að
ríða inn að Saurbæ. Og hann taldi
ömggast að halda viðstöðulaust
áfram. Þar með fauk út í veður og
vind eina tækifærið á ævinni til
þess að litast um innandyra á
Naustabrekku. Og svo riðum við
þá áfram inn Rauðasandinn og
var nú veðrið orðið allt annað og
betra en uppi á heiðinni. Rauði-
sandurinn er falleg sveit. AIl-
breitt, slétt undirlendi milli fjalls
og fjöru. Á hægri hönd blasti við
Breiðaíjörðurinn en til vinstri risu
Qöllin, snarbrött og klettótt. Reið-
færi var hið besta eftir sandinum
og skilaði okkur Einari óðfluga í
áttina að Saurbæ. Nú þurfti ég
ekki að líta á kortið til þess að
glöggva mig á nöfhum bæjanna,
sem við fórum ffamhjá, Einar
kunni þá þulu alla utanað, auk
þess að vita deili á hveijum þeim,
sem þama bjó. Og svo komum
við þá að hinu foma höfðingja-
setri, Bæ á Rauðasandi, eða Saur-
bæ, eins og staðurinn mun oftast
nefndur nú. Við Einar fómm beint
heim að samkomuhúsinu og
skildi nú leiðir. Einar, sem reynst
hafði hinn ágætasti ferðafélagi og
leiðsögumaður, vildi ekki taka
eyri fyrir samfylgdina og hestlán-
ið og sagðist gefa Sambandinu
þetta lítilræði. Fundurinn var vel
sóttur, mættu menn ffá þvínær
hverjum bæ á félagssvæðinu og
umræður urðu almennar.
Að fúndi loknum gengu þeir
með mér heim í Saurbæ Ivar og
tengdasonur húsffeyjunnar, sem
bað mig að kalla sig Bensa, hann
væri því vanastur. Bensi var
skrafhreifinn og sagði mér ýmis-
Iegt af sínum högum. Hann haíði
verið hinn mesti slysarokkur.
Einu sinni datt með hann hestur
og var sá óvenju stór og þungur.
Lenti Bensi undir klámum og
meiddist talsvert á maganum.
Öðru sinni var hann að bisa við að
taka upp stein og slitnaði þá æð í
bakinu á honum. Og þegar hann
vann við sjúkrahúsbyggingu á
Patreksfirði datt hann ofan úr
„syrlansi“ og var það mikið fall.
Bensi var ekki nema þrítugur og
gat því átt von á að eiga eftir að
lenda í ýmsum mannraunum áður
en yfir lyki. Vonandi hafa þær þá
ekki orðið honum skeinuhættari
en þessar, sem afstaðnar voru.
Við Ivar og Bensi sátum svo á tali
til W. 1.
-mhg
Um heilagar kýr
Bréf til Starra í Garði
Sæll og blessaður og hafðu
þökk fyrir bréfið.
Ein af fyrstu heimsóknum
mínum í Garð er mér enn minnis-
stæð. Þá hitti ég þig í fjósi, þú sast
undir vel haldinni kú og mjólkað-
ir með gamla laginu. Við skipt-
umst á glaðlegum orðum og það
var einhvemveginn eins og heim-
urinn utan við fjós þitt skipti litlu
máli, enda em vanheilagar ís-
lenskar kýr ekki þekktar af þvi að
hafa áhyggjur stórar af því sem
mannskepnan er að fást við eða
skrafa um. En þetta var eigi að
síður á árum mikils stríðs og
blóðugs, sem staðið hafði ámm
saman og átti enn eftir að standa í
nokkur ár. Það var styijöldin í Ví-
etnam. Núna er stríð við Persa-
flóa, þannig að þeim er nokkur
vorkunn sem hafa litla trú á að
heimurinn fari batnandi. Þrátt
fyrir þetta er ég ekki í þeim hópi,
ég er að minnsta kosti sannfærður
um að heimurinn sé betri en hann
var, þrátt fyrir allt.
Þú varst að tala um alræði
peninganna í bréfinu á þriðjudag-
inn. Það er út af fyrir sig rétt að
flest snýst um peninga í þessu
þjóðfélagi okkar, en það er aftur á
móti ekkert nýtt. Sjálfur man ég
auðvitað ekki jafn langt aflur og
þú sem ert fæddur skömmu eftir
fyrri heimsstyijöldina en ég í
þeirri síðari miðri. En ég man vel
fyrstu árin eftir striðið heima á
Norðfirði, hvemig mannlífið tók
stórstígum breytingum í krafti
þeirra peninga sem striðið hafði
skapað. Róttækir menn voru þá
nýbúnir að fá í hendur öll völd í
bænum. Þeir lögðu af stað með
kröfuna um réttláta skiptingu
auðsins í annarri hendi og hug-
myndir um það hvemig nota
mætti peningana til þess að bæta
mannlífið í hinni. Þegar þeir byij-
uðu var alræði peninganna algert;
ég ætti kannski að segja að ríkt
hafi alræði þeirra peninga sem
ekki vom til hjá norðfirskum
verkalýð á þriðja og fjórða ára-
tugnum.
Alræði peninga er vafalaust
jafngamalt því tiltæki mannkyns-
ins að nota peninga sem mæli-
kvarða á veraldleg verðmæti.
Þess vegna stendur pólitík nútím-
ans um peninga hvort sem okkur
líkar það nú betur eða verr. Hún
stendur um ráðstöfun þeirra verð-
mæta sem þjóðin skapar. Við sem
emm á vinstri vængnum, og
stefnum að jöfnuði í víðtækum
skilningi, viljum þess vegna að
verðmætunum sé ráðstafað á ann-
an veg en hægri vængurinn vill.
Það er greinilegt á þér að þú
ert lítið hrifin af aðild okkar að
ríkisstjóminni og ekki fær þjóð-
arsáttin merkilega einkunn. Um
þjóðarsáttina ætla ég ekki að
ræða að sinni, utan það að segja
að hún var tímabundin aðgerð,
ætluð til þess að leggja grunn að
batnandi lífskjömm. A næstu
mánuðum verður skorið úr um
það hvort hún hefur þjónað til-
gangi sínum. Um aðild okkar að
ríkisstjóm vil ég hins vegar fara
nokkram orðum. Ég er nefnilega
þeirrar skoðunar að Alþýðu-
bandalagið eigi að vera sem oft-
ast og lengst í rikisstjóm og taktu
nú eftir: jafnvel þótt flokkurinn
komi alls ekki öllu því í verk sem
hann vildi og verði stundum að
gera fleira en okkur þykir bein-
línis gott. Alþýðubandalagið á að
vera flokkur sem vill ráða, flokk-
ur sem vill tefla fram hugmynd-
um sínum í þeim eilífu stjómar-
myndunarviðræðum sem sam-
steypustjómir á Islandi em. Ef
við gemm það ekki, þá dæmum
við okkur einfaldlega úr leik, lát-
um andstæðingum okkar eflir að
semja sín í milli um það hvemig
þjóðfélaginu skuli stjómað. Það
þætti mér vitlaus pólitík, því með
því móti væri Alþýðubandalagið
orðið að þeirri heilögu kú sem
ekki mætti ómaka eða óhreinka
fremur en þær indversku.
Heyri ffá þér í næstu viku.
Kveðjur til Jakobínu.
hágé.
í DAG
ÞJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Einræðisherrar fasistaríkjanna
koma saman á ráðstefnu ( dag.
Franco og Sunerfara til Italiu.
Talið að Hitler muni einnig fara
til fundar við Mussolini. Þýzk
árás á Grikkland yfirvofandi? Al-
þýðan verður að vekja yfirvöldin
til aðgerða i loftvarnamálunum.
Hver dagur er dýrmætur. Fram-
kvæmdirnar þola enga bið leng-
ur. Það verður strax að skipa
nýja framkvæmdastjórn i loft-
varnamálum með nóg fjárráð og
vald.
12. febrúar
þriðjudagur. Sprengidagur. 43.
dagur ársins. Sólarupprás f
Reykjavik kl. 9.34 - sólarlag kl.
17.51.
Viðburðir
Guðmundur Magnússon (Jón
Trausti) rithöfundurfæddur
1873. Verkalýðs- og sjómanna-
félagið Bjarmi á Stokkseyri
stofnað 1904.
DAGBÓK
APOTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna 8. til 14. febr. er I
Garðs Apóteki og Lyfjabúöinni Iðunni.
Fyrrnefnda apótekiö er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frídögum).
Siðamefnda apótekiö er opiö á
kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu
fyrrnefnda.
LÖGGAN
Reykjavík...................« 1 11 66
Kópavogur...................» 4 12 00
Seltjarnarnes...............» 1 84 55
Hafnarfjörður...............« 5 11 66
Garðabær....................« 5 11 66
Akureyri....................* 2 32 22
Stökkviið og sjúkrabðar
Reykjavik...................» 1 11 00
Kópavogur...................« 1 11 00
Seitjarnarnes...............« 1 11 00
Hafnarfjörður...............« 5 11 00
Garðabær....................« 5 11 00
Akureyri....................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrír Reykjavik, Seltjarn-
ames og Kópavog er I Heilsuverndar-
stöð Reykjavfkur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
simaráðleggingar og tímapantanir í
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar i simsvara
18888. Borgarspitalinn: Vaktvirka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspltalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspit-
alans er opin allan sólarhringinn,
® 696600.
Neyðarvak Tannlæknafélags (slands
er starfrækt um helgar og stórhátiðir.
Simsvari 681041.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, « 53722. Næturvakt lækna,
« 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
« 656066, upplýsingar um vaktlækni
b 51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstöðinni, n 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, » 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsimi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar (
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
rr 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartlmar: Landspitalínn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga ki. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spitalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra-
tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimlli Reykjavíkur v/Eiríksgötu: Al-
mennur timi kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Oldrunarlækningadeild Landspítal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspltala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin við Barónsstíg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Bamadelld: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spitall Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjamargötu 35,
b 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga-
og ráðgjafarsima félags lesbia og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum
timum. n 91-28539.
Sálfræðlstöðin: Ráögjöf I sálfræöi-
le(jum efnum, » 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt i síma 91 -11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Alandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17, « 91-688620.
„Oplð hús" fyrir krabbameinssiúk-
linga og aðstandendur þeirra I Skóg-
artííið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styöja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra I« 91-
22400 og þar er svarað alia virka daga.
Upplýsingar um eyðni: tr 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aöstoö viö konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða oröið
fyrir nauðgun.
Kvennaráögjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, b 91-21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: »91-21500,
símsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
» 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stfgamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, » 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
» 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i
» 686230.
Rafveita Hafnarfjaröar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
11. febrúar 1991 Sala
Bandarikjadollar...........53,79000
Steriingspund.............107,09600
Kanadadollar...............46,47700
Dönsk króna.................9,59590
Norsk króna.................9,43600
Sænsk króna.................9,83720
Finnskt mark................15,17990
Franskur franki.............10,85020
Belglskurfranki............. 1,79510
Svissneskur franki.........43,28650
Hollenskt gytlini...........3280380
Vesturþýskt mark............36,95640
Itölsk llra.................0,04911
Austunfskur sch..............5,25370
Portúgalskur escudo......... 0,41830
Spánskur peseti..............0,58790
Japansktjen.................0,41140
Irsktpund...................98,26100
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 erill 4 skömm
6 blekking 7 úrgangur
9 karimannsnatn 12
helti 14 loga 15 hrúgu
16 kinn 19 skriffæri 20
vanþóknun 21 ánægja
Lóðrétt: 2 dropi 3 spil
4 laslelki 5 spiri 7 undr-
andi 8 mótfallin 10 stór-
an 11 hrósaði 13 smá-
ger 17 fæða 18 márv-
uður
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 mátu 4 spor 6
gát 9 ótal 12 jarða 14
róa 15 Itf 16 lokka 19
kólf 20 óður21 ataði
Lóðrétt: 2 ári 3 ugga 4
stóö 5 oka 7 skrekk 8
gjalla 10 talaði 11 lof-
orð 13 rök 17 oft 18
kóð
Þriöjudagur 12. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11