Þjóðviljinn - 19.02.1991, Qupperneq 2
FRETTIR
Lögreglufélag Suðurnesia
Mótmæla
yfirgangi
herlögreglu
r
Þorgeir Þorgeirsson: Oánœgja vegna
vopnaburðar herlögreglu, auk nokkurra atvika
sem upp hafa komið
Lögreglufélag Suðurnesja
mótmælir harðlega yfir-
gangi herlögreglu á varnar-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli,
segir í ályktun frá félaginu sem
samþykkt var á fundi þess á
sunnudaginn.
Þá bendir félagið einnig á að
viðbrögð við kvörtunum þeirra
hafi engin verið af hálfu yfir-
stjómar embættisins og Vamar-
málaskrifstofu utanrikisembættis-
ins.
Pétur Thorsteinsson, sendi-
ráðunautur Vamarmálaskrifstof-
unnar, sagði í samtali við Þjóð-
viljann að honum hefði enn ekki
borist ályktun félagsins en að lög-
reglustjóra hefði fyrir alllöngu
verið falið að leysa úr þeim
ágreiningi sem upp væri kominn
milli herlögreglu og íslenskra
lögreglumanna. Hann sagði aðal-
umkvörtun lögreglunnar vera þá
að frá því í sumar hefðu vopnaðir
hermenn komið í hliðin við
vaktaskipti og jafnvel verið vopn-
aðir utan vallar. Þetta væri hins
vegar í samræmi við vamarsamn-
inginn og ekkert við það að at-
huga. Pétur sagðist ekki skilja að-
finnslur lögreglumannanna. Mál-
ið væri nú í athugun og því væri
ekki meira um það að segja á
þessu stigi.
Þorgeir Þorgeirsson, lög-
reglustjóri á Vellinum, vildi sem
minnst um málið segja. Hann
sagði að ákveðin óánægja hefði
rikt meðal starfsmanna vegna
vopnaburðar hermanna. Auk þess
hefðu komið upp atvik sem reynt
hefði verið að leysa.
Vegna Persaflóadeilunnar var
eftirlit á svæði hersins hert og
herlögregla tók að bera vopn, sem
hún mun ekki hafa gert síðan á
sjötta áratugnum.
Ekki náðist í talsmenn stjóm-
ar Lögreglufélagsins en lögreglu-
menn í félaginu staðfestu áður-
nefnda ályktun og sögðu vopna-
burð herlögreglu einan sér ekki
ástæðu mótmæla þeirra, heldur
væri hér um að ræða bæði gömul
og ný ágreiningsatriði. Einstakir
félagsmenn vildu ekki tjá sig um
málið vegna þess að stjóm félags-
ins hefur mótað stefnu um það
hvemig taka skuli á því. Formað-
ur félagsins sinnir um þessar
mundir öðrum störfum og Stefán
Karl Baldursson, sem gegnir
embættinu í fjarvist hans, var
rúmfastur í gær.
Pétur Thorsteinsson var innt-
ur eftir því hvort rétt væri, eins og
fram kom í DV fyrir stuttu, að
fyrirmæli hefðu komið frá Vam-
armálaskrifstofúnni um að kanna
hvort starfsmaður lögreglunnar
Bandarlskir hermenn ásamt (slenskum lögreglumanni við eitt hliðanna inn á yfirráðasvæði hersins. Nú hefur
risið upp ágreiningsmál milli hers og lögreglu vegna þess sem lögreglumenn kalla margháttaðan yfirgang
herlögreglu gegn (slenskum lögreglumönnum á Vellinum. Mynd: Jim Smart.
hefði farið út fyrir starfssvið sitt
og brotið trúnað er hann ræddi við
DV um ágreining við herinn.
Sagði Pétur að skrifstofan hefði
einungis beðið um nákvæmar
upplýsingar um það sem gerst
hefði jþegar til deilna milli herlög-
reglu og íslensks lögreglumanns
kom. Lögreglustjóra hefði verið
falið að kanna málið og fyrirhug-
að væri að leysa öll deiluatriði
sem fyrst.
Fundur Lögreglufélagsins
lýsti yfir hneykslun á hótunartóni
í viðtalinu við Pétur í DV sl. laug-
ardag. Þá samþykkti fúndurinn að
skipa nefnd til að taka saman þau
fjölmörgu umkvörtunarefni, sem
enga úrlausn hafa fengið hjá yfir-
stjóm og Vamarmálaskrifstof-
unni.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er mikil samstaða meðal lög-
reglumanna á Suðumesjum í mál-
inu, sem enn hefúr ekki verið til
lykta leitt.
BE
Norrœn skólaskák
Islendingarnir hlutskarpastir
Norðurlandameistarar íþremur aldursflokkum af fimm. Fengu níu vinn-
inga af tíu í lokaumferðinni
I* slensku keppendurnir á Nor-
ræna skólaskákmótinu, sem
haldið var í Færeyjum að þessu
sinni, brugðust ekki þeim von-
um sem bundnar voru við þá:
íslendingar urðu Norðurlanda-
meistarar í þremur aldurs-
flokkum af fímm og samtals
fékk íslenska sveitin 39 og hálf-
an vinning af 55 mögulegum.
Einkum stóðu íslensku kepp-
endurnir sig vel á lokasprettin-
um og hluti níu vinninga af tíu
mögulegum í síðustu umferð
sem tefld var á sunnudags-
kvöld.
Helgi Áss Grétarsson sigraði í
aldursflokki 13-14 ára. Hann
hlaut fimm og hálfan vinning af
sex mögulegum. Magnús Óm
Úlfarsson varð í örðu sæti í sama
flokki.
Amar E. Gunnarsson varð
hlutskarpastur í flokki 11-12 ára.
Hann hlaut fjóra og hálfan vinn-
ing.,
I yngsta aldursflokknum, 10
ára og yngri, sigraði Jón V. Gunn-
arsson með fimm og hálfan vinn-
in8-.
Ólafúr H. Ólafsson, annar lið-
stjóra íslenska liðsins, segir að
frammistaða sinna manna hafi
verið með ágætum. - Það er ekki
hægt annað en að vera ánægður
með útkomuna, segir Ólafúr.
Næstir á eftir Islendingum í
samanlögðum vinningafjölda
urðu Norðmenn með 33 vinninga
og í þriðja sæti lentu Danir með
32 og hálfan vinning. í fjórða sæt-
inu lentu Svíar og Finnar i því
sjötta. Gestgjafamir, Færeyingar,
urðu neðstir með 13 og hálfan
vinning. En þeim er huggun
harmi gegn að stutt er síðan byij-
að var að stunda skákiþróttina
með skipulögðum hætti í Færeyj-
um.
-rk
Frá afhendingu gjafarinnar, f.v. Alper Mehmet ræðismaður, Örlygur Hálf-
danarson forseti SVFl, Sir Richard sendiherra og Hannes Þ. Hafstein
forstjóri.
Slysavarnafélagið fær ratsjá
Sendiherra Breta á íslandi, Sir Richard Best, heimsótti aðalstöðvar
Slysavamafélags íslands nýlega og afhenti fyrir hönd rikisstjómar
sinnar forseta félagsins, Örlygi Hálfdanarsyni, og forstjóra þess, Hann-
esi Þ. Hafstein, ratsjá af vönduðustu gerð. Við afhendinguna rifjaði Sir
Richard upp giftudrjúgt starf félagsins í þágu nauðstaddra og væri
gjöfin framlag í þágu sameiginlegrar viðleitni í þeim efnum að stuðla
að auknu öryggi sjófarenda umhverfis ísland.
Gervitunglamyndir
af Islandi
Landmælingar Islands hafa
gefið út tvær gervitunglamyndir
með skýringum, í mælikvarða
1:100.000. Um er að ræða tvær
mismunandi útgáfur af sama
svæði, sem afmarkast af Esju og
Þingvallavalni í norðri og suður-
strönd landsins í suðri. Myndin
var tekin úr bandaríska gervi-
tunglinu Landsat 5, 7. september
1986 og em báðar myndimar
unnar eftir sama tölvusegulband-
inu, en notuð mismunandi bylgju-
bil rafsegulrófsins við tölvu-
vinnsluna. Önnur myndin er inn-
rauð í breyttum litum sem sýnir
einkar vel mun á grónu og ógrónu
landi, en hin myndin er í venju-
legum litum, svipað því og sést á
ljósmyndum. Myndimar em í
stærðinni 44x52 cm og fást 1
kortaverslun Landmælinga Is-
lands, Laugavegi 178, Reykjavík
og er verð hvorrar myndar kr.
493.
Súldin á Tveimur vinum
Súldin spilar á mivikudags-
kvöld á Tveimur vinum og heíjast
tónleikamir kl. 22. Súldin leikur
frumsamið efni af nýútkomnum
geisladiski, Blindflug. Súldina
skipa Steingrímur Guðmundsson
trommur, Páll Pálsson bassa, Lár-
us H. Grimsson hljómborð og
flautu, Tryggvi Hubner gítar og
Marten van der Valk slagverk.
Sveigjanlegt fóstrunám
I ágúst hefst dreift og sveigj-
anlegt fóstmnám í Fósturskóla Is-
lands. Námið og inntökuskilyrði
verður sambærilegt við hefð-
bundið fóstmnám. Náminu er
dreift á 4 ár. Hér er um að ræða
staðbundið nám í húsakynnum
Fósturskóla íslands, alis 12 vikur
á ári, og fer það ffarn í ágúst,
janúar og júní. Einnig er boðið
upp á stutt námskeið, fámenna
nemendahópa í heimahéraði nem-
enda eða næsta nágrenni. Þá er
fjamám og verklegt nám. Um-
sóknarfrestur verður auglýstur
síðar. Upplýsingar í síma 91-
83866 daglega kl. 13-14 og i síma
97- 11757.
Gítarævintýri
íHafnarborg
í kvöld kl. 20.30 mun japanski
gítarleikarinn Kazuhito Yamas-
hita halda tónleika í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Á efnisskrá em Til-
brigði um stef eftir Mozart eftir
Sor, Folios eftir Takemitsu og tvö
verk í eigin útsetningu, Sellósvíta
nr. 6 eftir Bach og Sinfónía frá
Nýja heiminum eftir Dvorák.
Yamashita er fæddur árið 1961 og
hóf ungur gítamám. Hann nam
m.a. hjá Segovia og hefur marg-
sinnis unnið til verðlauna. Hann
hefúr haldið tónleika um allan
heim og hljóðritað 42 hljómplöt-
ur. Hann er af mörgum talinn einn
af athyglisverðustu gítarleikumm
í heimi.
Sönglög
á háskólatónleikum
Stefán Amgrímsson bassi og
Bjami Þór Jónatansson píanóleik-
ari koma fram á háskólatónleik-
um í Norræna húsinu á morgun kl.
12.30. Þeir munu flytja sönglög
eftir íslensk og erlend tónskáld.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1991