Þjóðviljinn - 01.03.1991, Síða 8
NÝTI
þlÓOVILJIMN
Útgefandi: Útgófufélagið Bjarki h.f Afgrelðsla: « 68 13 33
Framkvœmdastjórl: Hallur Páll Jónsson Auglýsingadeild: »68 13 10 - 68 13 3 1
Rltstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason, Slmfax: 68 19 35
Helgi Guðmundsson Verð: 150 krónur I lausasölu
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Karlsson Fréttastjórl: Slgurður Á. Friðþjófsson Setnlng og umbrot: Prentsmíðja Þjóðv Prentun: Oddi hf. Ijanshf.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson Aðsetun Slðumóta 37,108 Reykjavlk
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Tangarsókn talnanna
Nú þegar mestu hitasótt styrjaldarinnar
linnir í Kúvæt og írak, vill það brenna við,
að árangrinum sé fagnað eins og vel
heppnaðri skurðaðgerð og ástand sjúk-
lingsins aðeins metið með kvikasilfur-
smælum dollaranna. Tölur eru uppi hafð-
ar um hugsanlegt mann- og eignatjón. En
lítið er hægt að glöggva sig á raunveru-
legri líðan á sjúkrabeðnum og framtíðar-
horfum. Einu spádómarnir sem heyrast
snúast um kostnað, verkfræði, gróða og
tap. Mannlegi þátturinn og sálrænu áhrif-
in eru langt utan þess sviðs sem hægt er
að meta. Um áhrif þessa stríðs veit eng-
inn neitt. En fari svo sem hingað til hefur
gerst í kjölfar styrjalda, þá geta eftirköstin
og erfðasyndirnar að lokum skyggt á það
„réttlæti“ sem átti að ná fram að ganga.
Nú vona vissulega allir, að úr málum
greiðist farsællega. Eðlilegt er að heims-
byggðinni létti, þegar skothvellirnir
hljóðna. Þó heyrist hlakka í sumum
vegna hrakfara írakshers, líkt og þar fari
tómar mannleysur og réttdræpir þrjótar.
Illvirki leystu þennan Eyðimerkurstorm úr
læðingi og í honum fólst illska á móti. Hart
mætti hörðu.
Hér í leiðurum Þjóðviljans var ítrekað
túlkuð sú skoðun, að hernaðarátök af því
tagi sem Islendingar hafa fengið að skoða
gegnum bresk og amerísk skráargöt,
bæru í sjálfum sér mikla áhættu fyrir
seinni tíma. Og nú þegar fregnir berast af
mannfalli stríðsins skulu þessi orð sem
rituð voru hér morguninn í upphafi loft-
hernaðarins 17. janúar og birt í leiðara nú
rifjuð upp: „Umhyggja þeirra sem kölluðu
á frið, frest, friðarráðstefnu, öryggissveitir,
- snerist um þessi mannslíf, sem ofbeld-
isseggurinn og foringjar hans tóku í gísl-
ingu. Friðarsinnar sættu sig ekki við að
hugsanlegri brjálsemi eins einstaklings
yrði mætt með þvílíkum fórnum, væru
nokkrar aðrar leiðir færar...Hafi vitfirringur
fólk í gíslingu sinni, hvort sem er byssu-
maður í fjölbýlishúsi eða forseti íraks, má
einskis láta ófreistað að vernda þá sem
saklausir eru, í stað þess að kveikja í hús-
inu...
Það er síðan ef til vill til sanninda um
aukna markaðhyggju þjóðfélagsins, að í
síauknum mæli skuli hafa verið rætt um
ástandið í austurlöndum nær eins og hver
önnur viðskipti og yfirvofandi árás banda-
manna sem áhættufjárfestingu: Hvað
kostar Persaflóastríð, í mannfórnum,
eignatjóni, umhverfisáhrifum? Verður það
ódýrara nú heldur en ef það er dregið á
langinn? Mun kostnaðurinn vegna Sadd-
ams Hussein aukast, takist einhvers kon-
ar bráðabirgðasamningar eða kallað
verði til friðarráðstefnu?
Það „réttláta stríð“ sem margir hvetja
nú til, skiptir að vísu iðnríkin meira máli í
aurum talið, heldur en lausnirnar á vanda
Líbana og Palestínumanna. Liggja þó fyr-
ir fleiri ályktanir Sameinuðu þjóðanna um
brýna lausn á vanda þeirra en um Kúvæt.
Fáum dylst að „réttlæti“ stríðs núna er við-
skiptalegs eðlis.“
Það hefur einnig komið á daginn, að
þrátt fyrir að hörð andmæli virtra einstak-
linga kæmu fram í löndum Bandamanna
síðustu daga Eyðimerkurstormsins,
vegna þeirrar harðneskju sem beitt var
undir lokin og augsýnilega hafði í för með
sér mikla tortímingu, þá kröfðust hags-
munir sóknaraðilanna þess að kné væri
látið fylgja kviði með þessum hætti. Eyði-
merkurstormurinn er sönnunargagn þess
að talnaveldi viðskiptanna reri undir þeirri
tangarsókn sem skilið hefur eftir flakandi
sár einhvers staðar bak við luktar dyr
fréttabanns og ritskoðunar allra stríðsaðil-
anna.
ÓHT
0-ALIT
ácq BARA AÐ HlS/ÖA KALL)
RjQLMAI^RA 6jÁLFST/€þi\SA/\ANNA.
EK AÐ GERA /V\\NA SKYLDU. LAÐ
ÁeKKEKT SK.VLT VÍÐ PÁ ó$Tjo£NL£6LL
NAUTN) M'NA ouVERAYF\R
ASIKA HAFiKiN - BARA SKyLPA-*-
SKÍLU££>ul'? _
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 1. mars 1991