Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 25

Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 25
Er breytinga þörf? Nokkuð hefur borið á óánægjuröddum með _ fyrir- komulag í undanrásum Island- mótsins í sveitakeppni. Gagn- rýnin hefur einkum beinst að því að þátttakendur þurfí að hefla spilamennsku kl. 13 á fimmtudegi. Fyrir þá sem búa utan Reykjavíkursvæðisins eru þetta miklar „fómir“ sem færðar em, í formi vinnutaps og tíma, sem og raunar fyrir hina. Menn hafa verið að spyija hvort ekki mætti helja þessa spilamennsku á fimmtudagskvöldinu og slíta þarmeð einn leik (af sjö) i sund- ur, án þess að raska um of tíma- áætlun. Einnig hafa vaknað upp þær spumingar hvort ekki sé tíma- bært að huga að breytingum í þá átt að fjölga sveitum í úrslitum, úr 8 eins og nú er, í 10. Þeirri fjölgun mætti mæta með því að fjölga riðlum úr 4 í 5 og 2 áfram í úrslit, úr hveijum riðli. Við þá breytingu fækkaði sveitum úr 32 í 30, sjálfsagt harmalaust fyr- ir flesta aðila. Með þessari breytingu vinnst: Keppni um ís- landsmeistaratitilinn yrði fjöl- breyttari, fleiri spilarar öðluðust „æfíngu" í úrslitakeppni og þarmeð tækifæri til að „skora“ gullstig. Undankeppni yrði létt- ari fyrir aðila utan af landi (tímalega séð) og auðvelt yrði að mæta fjölguninni í úrslita- keppninni sjálfri, með því að lengja hana um einn dag. Til þessa höfúm við sjálfa páska- vikuna. Ef við lítum í aðrar áttir, yfir í hinar ýmsu íþróttagreinar, sjá- um við að stefnan síðustu árin er ljölgun í úrvalsdeildum grein- anna. Knattspyma, handbolti, körfubolti og eflaust fleiri íþróttagreinar, hafa fjölgað um- ferðum, einmitt með það mark- mið í huga að auka áhuga fólks og iðkenda. Fyrir mitt leyti verð ég að viðurkenna, að ég hefði mikinn áhuga á að sjá eins og 2- 4 utanbæjarsveitir af 10 sveita hópi, í úrslitakeppni íslands- mótsins, í stað hinnar „hefð- bundnu“ baráttu milli Bridgefé- lagssveita um titilinn. Hugleið- um málið. Það hefúr vakið reiði margra að gullstig fyrir leikina á Flug- leiðamótinu vom lækkuð úr einu stigi á mann, fyrir unninn leik, í hálft stig. A síðasta ári (og árunum þar á undan) var gefinn „fullur“ skammtur, þ.e. eitt stig fyrir unninn leik. Skýringar að- ila úr meistarastiganefhd em þær, að mótið sé opið og þar af leiðandi eigi að takmarka gull- stigagjöf í mótinu. Er von á fleiri slíkum uppákomum? Febrúar er liðinn og aðeins eru 3 mánuðir þar til Evrópu- mótið verður spilað á Irlandi. Og enn em málin óljós í Opnum flokki. Mikill tími fór í að velja einvaldinn, sem að lokum varð Bjöm Eysteinsson. Sá tími sem lifir fram að móti er ekki mikill og í raun það stuttur, að sú staða virðist „sett upp“ að liðið verði valið beint, án úrtökumóts. Sé það raunin, að timaleysið eigi að ráða ferðinni, virðist það gef- ið (hafa verið ljóst) að endanlegt lið hafí einmitt verið það sem stefnt var að. Og þá er spuming- in: Til hvers að eyða öllum þess- um tíma í að velja einvald? Af hveiju tók ekki stjóm BSI þá af skarið og valdi liðið beint? Eg er viss um að nógu margir em um hituna í fararstjórastarfíð. Að ólokinni einni umferð í sveitakeppni Skagfirðinga, er staða efstu sveita; Sigmar Jóns- son 147, Hjálmar Pálsson 140 og Láms Hermannsson 139. Að lokinni sveitakeppni deildarinn- ar hefst 3ja kvölda páskatví- menningur, þar sem verðlaunin verða að sjálfsögðu vegleg páskaegg. Tvímenningurinn hefst þriðjudaginn 12. mars. Mjög góð mæting var hjá Bridgefélagi byrjenda, fyrsta spilakvöldið þriðjudaginn 19. febrúar. Spilað var á 15 borðum, sem þýðir að yfir 60 manns mættu til leiks. Spilamennsku verður ffamhaldið næsta þriðju- dag (spilað er annan hvem þriðjudag) í húsi Breidgesam- bandsins að Sigtúni 9. Og hefst kl. 19.30. Allir velkomnir, með eða án félaga. Reykjanesmótið í tvímenn- ing verður spilað um þessa helgi. Spilað verður í Þinghóli i Kópavogi og hefst keppni kl. 13 á morgun (laugardag). Sigur- vegarar öðlast sjálfkrafa rétt til þátttöku í úrslitum íslandsmóts- ins í tvímenningi í ár. : Og ábending til meistara- stiganefndar. Gera verður þá kröfú við útkomu næstu meist- arastigaskrár að nöfn látinna fé- laga séu ekki inni í félagatali. Slíkt gæti vakið leiðindi. Tvær sveitir héðan munu taka þátt í alþjóðlegu stórmóti (Hoechst intemat) í Hollandi um þessa helgi. Sveitir Trygg- ingamiðstöðvarinnar og Jóns Baldurssonar (Aðalst., Sverrir A. og Matthías Þorv.). Guðlaugur Nielsen er einn af þessum „gömlu“ jöxlum, sem hafa verið fastir keppnisspilarar um áratugaskeið. Góður félagi og stórhættulegur andstæðingur. A því fengu liðsmenn sveitar Omars Jónssonar að kenna á Flugleiðamótinu um daginn. Lítum á handbragðið hjá Guð- laugi: S: Á H: ÁDxx T: ÁKxx L: ÁKxx S: KDxxxxx S: xx H: Kx H: GlOx T: xx T: G9xx L: Dx L: xxxx S: Gxxx H: xxxx T: DlOx L: Gxx Sagnir gengu: Vestur Norður Austur Suður 2 spaðar 3 spaðar Pass 4 hjörtu Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Guðlaugur var sagnhafi í 6 hjörtu. Útspil Vesturs spaða- kóngur. Og sá „gamli“ var ekki ýkja lengi að þessu. Tekið á ás, litlum tígli spilað og TÍAN. Hún hélt. Hjarta svínað, lagður niður ásinn í hjarta og afgangurinn er hrein handavinna hjá Guðlaugi. Öllum litum spilað og trompað á víxl og gefínn að lokum einn slagur á hjartagosa. 1430 til Guðlaugs og félaga. Á hinu borðinu létu menn sér nægja 4 hjörtu. Tígulíferðin hjá Guðlaugi er athyglisverð, en nauðynleg, því laufstaðan í spilinu er óljós. Laglega staðið að verki. NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 25 Ólafur Lárusson ALÞÝDIJBANDALAGIÐ Kosningaráðstefna - Frambjóðendafundur Kosningaráðstefna Alþýðubandalagsins verður haldin helgina 8.-10. mars I Höfða, Hótel Loftleiðum Ráðstefnan hefst föstudaginn 8. mars kl. 20:30 og lýkur verki fyrir kl. 18:00 á laugardag. Á sunnudag hefst svo sér- stakur fundur með efstu mönnum framboðslista. Til kosn- ingaráðstefnu er boöið miðstjórnarfulltrúum, formönnum fé- laga, formönnum kjördæmisráða og efstu mönnum fram- boðslista. Fundarboð verður sent til þátttakanda um helgina. Dagskrá kosningaráðstefnu 1. Setning. 2. Tillögur kosningastefnuskrárnefndar. 3. Kosningavinna/baráttuaðferðir. 4. Kosningalög og reglur. 5. Kosningar og fjármál. 6. Helstu mál sem setja munu svip á kosningabaráttuna. 7. Umræður. 8. Starfshópar skila tillögum. 9. Umræður/afgreiðsla. Frambjóðendafundur Sunnudaginn 10. mars kl. 9:00-15:00 Sérstakur fundur efstu manna framboðslista (2-5) um bar- áttuaðferðir í kosningunum. Steingrímur J. Sigfússon formaður miðstjómar ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Laugardagsfundur A.B.R um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2. mars kl. 10:30 að Laugavegi 3. Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi, mætir á fundinn og hefur framsögu um nýsamþykkta fjárhagsáætlun Reykjavíkur. Félagarl - Mætið á fundinn og takið með ykkur gesti. Allir velkomnir. Sigurjón Pétursson AB Suðurlandi Kosningaskrifstofan Kosningaskrifstofan opin föstudaga kl. 17 til 19 í Alþýðu- bandalagshúsinu, Kirkjuvegi, Selfossi. Allt stuðningsfólk velkomið til skrafs og ráðagerða. Heitt á könnunni. Kosningastjórnin AB Reykjavik Kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins I Reykjavík er á Laugavegi 3. Fyrst um sinn er opið milli kl. 13 og 19. Siminn er 17500. Sjálfboðaliðar eru beðnir að láta skrá sig sem fyrst. Kosningastjórnin AB á Suðurlandi Starfshópar Mánudagskvöld 4. mars kl. 20:30 á Kirkjuvegi 7, Selfossi: Starfshópur um fjölskyldu-, mennta- og menningarmál. Hópstjóri Anna Kristín Sigurðardóttir. Alþýðubandalagiö á Akranesi Akurnesingar - Vestlendingar Kosningaskrifstofa okkar í Rein er opin mánudaga-laugar- daga kl. 16-18. Einnig er opið hús á mánudags- og fimmtu- dagskvöldum. Sími 93-11630. Verið velkomin til skrafs og ráðagerða. AB Reykjanesi G-listinn í Reykjanes- kjördæmi Kosningaskrifstofa G-listans í Reykjanes- kjördæmi fýrir Suðurnes er í félagsheimili AB-félags Keflavíkur/Njarðvíkur aö Hafn- argötu 26, efri hæð, Keflavík (Ásbergs- húsi). Skrifstofan verður fyrst um sinn opin virka daga kl. 17-19 og 20:30-22, laugardaga 10-12. Sími 92-11366. Sigríður Jóhannesdóttir er til viðtals öll miðvikudagskvöld. Stuðningsmenn, hafið samband við skrifstofuna. AB Suðurlandi Kos n i n g as krifstof a n Kosningaskrifstofan opin föstudaga kl. 17 til 19 í Alþýðu- bandalagshúsinu, Kirkjuvegi, Selfossi. Allt stuðningsfólk velkomið til starfa og ráðagerða. Heitt á könnunni. Kosningastjórnin. Alþýðubandalagið I Reykjavík Spilakvöld Nú hefjum við spilakvöldin á ný, og byrjum með þriggja kvölda keppni.sem haldin verður miðvikudagana 6. og 20. mars og 3. apríl að Laugavegi 3, 5. hæð. Við vonumst eftir að sjá alla gömlu spilafélagana, og nýir fé- lagar eru að sjálfsögðu velkomnir. Stjórnin Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Kosningaskrifstofa Frá 1. mars og fyrst um sinn verður kosningaskrifstofan í Lárusarhúsi opin milli kl. 17 og 19 alla virka daga. Félagar og stuðningsmenn eru eindregið hvattir til að líta inn og gefa sig fram til starfa. Kosningastjórn Alþýðubandalagið Vesturlandi Grundfirðingar, Snæfellingar Almennur félagsfundur veröur ( Félagsheimili AB Grundar- firði (Kommakoti) sunnud. 3. mars kl. 15:00. Jóhann, Ragnar, Bergþóra og Árni mæta á fundinn. Stjórnin

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.