Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 11
Um ímynd djöfulsins w i samskipt- um kristinna og íslams Úr rtlunda og næstneðsta dvalarstað vítis þar sem sáðmenn klofnings og hneykslunar eins og Múhameð og All taka út kvalir slnar. Mynd: Gustav Doré. Heilög stríð og vanheilög egar þetta er skrifað er Saddam Hussein íraksfor- seti endanlega búinn að fallast á ályktanir Sameinuðu þjóðanna með svo afgerandi hætti, að fjölþjóðaliðið við Persaflóa hef- ur lýst yiir vopnahléi. Eftir 42 daga hernað úr lofti og á landi eru tvö iönd þar sem búa 19 miljónir manna sem rjúkandi rústir, írak og Kúvæt, og fyrstu fregnir herma að striðið hafi kostað allt að 150 þúsund íraska hermenn lífið auk tug- þúsunda óbreyttra borgara. Mannfall í Kúvæt skiptir vænt- anlega einnig þúsundum eða tugum þúsunda. Mannfall í fjölþjóðaliðinu skiptir einhverj- um hundruðum. Með þessum árangri telur fjölþjóðaliðiö sig hafa tryggt „frið og alþjóðlegt öryggi á svæðinu“ eins og álykt- anir Sameinuðu þjóðanna kveða á um. Aðrir halda því fram að þetta hafi verið ónauðsynlegt stríð. Meðal þeirra var yfirmaður ítalska flotans á svæðinu, en hon- um var reyndar sagt upp starfi strax eftir yfirlýsingu sína. Það þarf sterk rök til að rétt- læta það blóðbað og þá eyðilegg- ingu sem þama hefur átt sér stað. Sú helsta réttlæting, sem að okkur hefur verið borin, er fólgin í þeirri fullyrðingu Bush forseta og her- foringja hans, að Saddam Hussein sé óútreiknanlegur bijálæðingur sem verði að stöðva. Ekki skal því á móti mælt, að Saddam Hussein er búinn að vinna þjóð sinni og samfélagi þjóðanna óbætanlegt tjón með yf- irtöku Kúvæt, ógnarstjóm sinni þar og hrapallegum mistökum sem hann og ríkisstjóm hans gerðu eftir að striðið var hafið. Það er ekki nema eðlilegt að hann sé kallaður til ábyrgðar fyrir mis- tök sín og misgerðir. En sjaldan veldur einn þá tveir deila, og vist er að ef sú fullyrðing reyndist rétt, að hægt hefði verið að frelsa Kú- væt án þess að til þessa striðs kæmi, þá er ábyrgð Bandaríkj- anna og fjölþjóðaliðsins ekki minni en Saddams Husseins. Þetta er reyndar fullyrðing sem ekki er hægt að sanna, því miður. En það hefur heldur ekki verið sannað enn, að þessi hildar- leikur hafi borið þann ávöxt „að tryggja frið og alþjóðlegt öryggi á svæðinu". Fátt bendir reyndar til að svo muni verða, og fáir virðast gera sér grein fyrirþví hvert fram- hald þessa máls muni verða. Bandaríkjamenn halda hins vegar fast við þá kenningu sína að Saddam sé brjálæðingur sem ryðja þurfi úr vegi. íraska þjóðin skuli enn fá að gjalda fyrir þennan valdsmann sinn, þar til hún hafi losað sig við hann. Þessi afstaða er í engu sam- ræmi við samþykktir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Það er ekki í hlutverki þeirra að skipa þjóð- höfðingja í aðildarríkjunum. Það er innanríkismál Iraka að gera upp sakir við sína valdsmenn. Þessi afstaða Bandaríkjanna lýsir hins vegar ekki bara valdahroka, hún lýsir einnig bamalegri ein- feldni sem varla er vænleg til ár- angurs í því að skapa öryggi og traust á milli þjóða. Þessi ein- feldni felst í því að draga upp þá mynd af andstæðingnum að hann sé brjálæðingur eða ímynd hins illa. ímynd hins ilia Slík aðferð er reyndar vel þckkt úr sögunni og á sér margar hliðstæður, bæði í nútíð og fortið. Ekki síst í samskiptum kristinna manna og múslima. ítalski rithöf- undurinn Umberto Eco er að velta því fyrir sér í nýlegri tímarits- grein, í hvers konar mynd okkur Vesturlandabúum sé tamt að sjá hið illa. Hann bendir á að almennt siðgæði leyfi það varla lengur að hið illa sé tengt við afbrigðilegt útlit eða hegðun, kynferði, hör- undslit, kynþátt eða fötlun, svo dæmi sé tekið. Það þyki ekki lengur fínt að fara með háðsglós- ur eða hryllingssögur á kostnað negra, fávita eða Kínveija. Hann minnir á að hryllingssögur vís- indaskáldskaparins af illvættum utan úr geimnum séu nú þegar úr sér gengnar og hafi í rauninni aldrei virkað, því þeir óvættir lík- ist ekki nægilega þeim persónum sem okkur sé illa við í daglegu lífi. Þess vegna hafi hugvitsmenn í kvikmyndabransanum fundið upp á þeim sataníska hryllingi sem birtist í okkur sjálfum, í djöfúlóðu bami eða i nágrannanum sem haldinn er djöfullegri en hálfdul- inni áráttu. Hins vegar heldur Eco því fram að áráttan til að sjá hið illa í hinu afbrigðilega blundi undir niðri. Hann fullyrðir þannig að úr því þegjandi samþykki, sem fólk hafi almennt sýnt gagnvart Persa- flóastriðinu, og þeirri ástríðufullu glápsýki sem fólk hafi fyllst gagnvart ekkert segjandi sjón- varpssendingum frá Flóabardag- anum, megi lesa að fólk fagni nú vel þegnu leyfi til þess að sýna kannski ekki hatur, en að minnsta kosti ótta og andúð gagnvart þeim sem em dekkri á hömnd en geng- ur og gerist. Til dæmis aröbum. Ekki svo að skilja að andúðin á Saddam Hussein sé með öllu óverðskulduð, heldur miklu frek- ar að framferði hans hafi komið eins og hver önnur himnasending hvað þetta varðar. Dæmið af Saddam sé einstakt, því í því birt- ist ein þeirra aðferða sem ímynd- unarafl fjöldans notar til þess að kalla fram óvættinn í því skyni að særa hann síðan í burtu sem ímynd brjálæðingsins. Brjálæðingurinn Saddam Það er ekki nýtt að þjóðir sjái brjálæðinginn persónugerðan í óvini sínum. Sjálfur segist Eco hafa alist upp við það að Georg Bretakonungur hafi verið úrhrak, Churchill úrkynjaður alkóhólisti og Roosevelt vanskapað fatlafól. Slíkt fólk ætti sér ekki viðreisnar von, og því myndi ítalski fasism- inn sigra. Hitler, Ghaddafi, Nori- ega, Khomeni og til og með Ass- ad Sýrlandsforseti, núverandi bandamaður Bandaríkjanna i Flóabardaga, em einnig dæmi um illvætti, sem stimplaðir hafa verið geðveikir eða nálægt því sturlaðir af Bandaríkjamönnum. Á sama hátt hafa þeir Bush og Reagan fengið eymamark djöfulsins hjá ráðamönnum í ýmsum löndum ís- lams. Ótalmörg fleiri dæmi mætti nefna, en það mun heyra til und- antekningar i sögunni, að þjóðir hafi borið virðingu fyrir óvinum sínum og reynt að skilja þá. Eco segir að erfiðleikar Evrópu i sam- skiptum við heim íslams í gegn- um aldimar hafi gjaman verið raktir til fúlmennsku Saladínsins (sem tók Jerúsalem úr höndum kristinna á 12. öld) eða hrotta- skapar súltánanna. Hvort tveggja mátti til sanns vegar færa, segir Eco, en bendir jafnframt á að hin- ir kristnu andstæðingar þeirra hafi bæði brennt og hálshöggvið, og því hafi annað hvort allir eða eng- inn verið brjálaðir. Hinn skjóti uppgangur íslams á 7. og 8. öld hefiir löngum verið mönnum ráðgáta, og var það ekki síður á miðöldum. Múhameð í helvíti \ Miðaldakirkjan leit á íslam sem trúvillu sem vaxið hefði út frá hinni réttu kristnu kenningu fyrir tilverknað djöfulsins, og töldu kristnir menn á miðöldum að Múhameð hefði uppmnalega verið kristinn. Francesco Gabrieli, fræði- maður um arabíska menningu, segir í bók sinni Mohammad and the Conquest of lslam að mið- aldakirkjan hafi talið að Múham- eð hafi fengið villukenningu sína frá kennimanni að nafni Serge, sem ól þá ósk í brjósti að kljúfa kirkjuna frá rótum. Faðir Serge átti það til að falla í trans og fá krampaköst, og boðaði þá algjört frelsi í kynlífi og afneitun á guð- dómlegu eðli Krists. Sagt var að hann hefði líka þjálfað nautskálf til að kijúpa fyrir sér, og hafi nautskálfurinn fært honum hina „helgu“ bók, Kóraninn, á milli homa sér. Þá segir saga þessi, að faðir Serge hafi þjálfað dúfu til þess að bera villukenningu sína í eyra Múhameðs. Hins vegar hafi guðdómleg forsjón verið fljót að gripa í taumana og hafi hinn illi villutrúarmaður, Múhameð, verið rifinn í tætlur af svini þar sem hann gekk öma sinna á víðavangi. Þaðan fór Múhameð beinustu leið til helvítis samkvæmt þessari söguskýringu kirkjunnar manna, og er dvöl spámannsins þar í neðra lýst með ófogru orðbragði í kvæðabálki Dantes, Divina Commedia eða Hinum guðdóm- lega gleðileik, en frásögn sú er í Föstudagur 1. mars 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.