Þjóðviljinn - 01.03.1991, Side 18

Þjóðviljinn - 01.03.1991, Side 18
Óvænt forysta Jusupovs í Linares Garrij Kasparov sækir i sig veðrið á stórmótinu í Linares á Spáni. Eins og kunnugt er tapaði hann í fyrstu umferð fyrir Vasioly Ivantsjúk, og var viðureign þeirra birt hér í blaðinu sl. þriðjudag. Heimsmeistarinn svaraði fyrir sig með þvi að leggja Boris Gelfand, gerði jafntefli við Timman í þriðju umferð og vann svo að- stoðarmann frá síðasta einvígi við Karpov, Mikhael Gurevic sem nú teflir undir belgísku flaggi. Ka- sparov mun örugglega blanda sér í baráttuna um efsta sætið, og raunar spá flestir því, þ.á m. sá sem þessar línur ritar, að hann standi uppi sem sigurvegari enn á ný. Lítum á úrslit síðustu daga: 3. umferð; Ehlvest - Gurevic 1/2:1/2 Anand - Beljavskí 0:1 Ljubojevic - Karpov 1:0 Jusupov - Kamsky 1:0 Ivantsjúk - Salov 1/2.T/2 Gelfand - Speelman 1/2:1/2 Timman - Kasparov 1/2:1/2 4. umferð: Gurevic - Kasparov 0:1 Speelman - Timman 1/2:1/2 Salov - Gelfand 0:1 Kamsky - lvantsjúk 0:1 Karpov - Jusupov 1/2:1/2 Beljavskí - Ljubojevic 0:1 Ehlvest - Anand 1/2:1/2 Staðan að fjórum umferðum loknum er þessi: 1. Jusupov 3 1/2 v. 2. - 3. Iv- antsjúk og Beljavskí 3 v. 4. - 7. Kasparov, Timman, Ljubojevic og Anand 2 1/2 v. 8. Gelfand 2 v. 9. - 10. Speelman og Karpov 1 1/2 11. - 13. Ehlvest, Kamsky og Salov 1 v. 14. Gurevíc 1/2 v. Þrátt fyrir það að tap í fyrstu umferð virðist ekki hafa hafl nein teljandi áhrif á Kasparov hafa skákir hans hingað til verið sneyddar þeim krafli og hug- myndaauðgi sem allajafna ein- kenna taflmennsku hans. Ka- sparov verður meðal þátttakenda á minningarmóti um Euwe í Amsterdam í vor, en óvíst er hvort hann teflir í næstu heims- bikarkeppni. Þá virðist hann ekki ælla að setjast aftur í stól forseta GMA, en hefur á hinn bóginn mikinn hug á að hella sér út í stjómmálavafstur og hefur goldið ríflega í sjóði rússnesks lýðræðis- flokks þar sem hann er varafor- maður. Urslitin i fyrstu hrinu áskor- endaeinvígjanna og einnig byrjun þessa móts benda í sömu átt: Ka- sparov stafar ekki lengur hætta af Anatoly Karpov. Framtíðin blasir hinsvegar við Úkraínumanninum unga Vasiiy Ivantsjúk sem svo hressilega gekk frá Garríj í fyrstu umferð. Skákir hans eru kannski ekki jafn glæsilegar og heims- meistarans, stíllinn er gruggugri, en hann virðist ráða yfir sama einbeitingarkrafli og keppnis- hörku. í fjórðu umferð sem tefld var á miðvikudaginn lagði hann Gata Kamsky að velli á dæmi- gerðan hátt: Linares 1991: Gata Kamsky Vasily Ivantsjúk Spænskur leikur - Marshall I.e4e5 2. RD Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5.0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 0-0 8. c3 d5 (Ivantsjúk er afar fjölbreyti- legur í byrjanavali, teflir nánast allt. Þetta gerir undirbúning erfið- SKÁK Artur Jusupov (fyrir miðri mynd) er einn ( efsta sæti á skákmótinu ( Lin- ares. Aðrir á myndinni, sem tekin var í Belfort 1988, eru Karpov, Ribli, Ljubojevic og Kasparov. an fyrir andstæðinga hans. Mig rekur ekki minni til að hafa séð hann beita Marshallárásinni áður, valið á sér sálfræðilegar skýring- ar. Kamsky unir sér best í róleg- um stöðum og þekking hans á hvassari byijunum er oft furðu gloppótt.) 9. exd5 Rxd5 10.Rxe5 Rxe5 11. Hxe5 c6 12. d4 Bd6 13. He2 (Algengasti leikurinn er 13. Hel, en frá honum sprettur mikil og flókin teóría sem Kamsky vill sniðganga. 13. He2 var vinsæll leikur fyrir nokkrum árum, en mesti glansinn er farinn af hon- um.) 13.. . Bg4 14.13 Bh5 15. Bxd5 cxd516. Rd2 f5 (1 nýútkominni bók sinni um Marshallafbrigðið mælir John Nunn með þessum leik og það hefur ekki farið framhjá Ivant- sjúk.) 17. Db3 (Skarpara er 17. a4 eins og Nunn bendir á.) 17.. . Bf7 18. RH f4 19. Bd2 Dd7 20. Hael a5 21. a3 a4 22. Ddl Bg6 23. Bcl H17 24. h3 Bf5 25. Rh2 h5 26. Hf2 Haf8 27. Rfl Hf6 28. Rh2 Kh8 (Aætlun svarts hefur gengið eftir. Hann hefur náð að skorða peð hvíts á drottningarvæng, nýt- ur meira rýmis og á kannski ein- hverja sóknarmöguleika á kóngs- vængnum. Það skynsamlegasta sem Kamsky gerir er að halda kyrru fyrir, en hér segir æskan og reynsluleysið til sín. Útkoman er slakur leikur sem skapar nýjan átakspunkt í stöðu hans.) 29. b3? Hc8 30. Bb2 Kh7 31. Rfl Hff8 32. Hfe2 Hc7 33. Rh2 Hfc8 34. Rfl ®í!bbb&» B ■sBai i mvwtom a b c d e f g h ' 34... b4!! (Þrumuleikur sem hefði aldrei Helgi Ólafsson verið mögulegur ef ekki heíði komið til ónákvæmni Kamskys í 29. leik.) 35. axb4 (Eða 35. cxb4 Bc2 ásamt 36. .. axb3 o.s.frv.) 35.. . a3! 36. Bxa3 (Ivantsjúk hefur semnilega ætlað að svara 36. Bal með 36... Hxc3.) 36.. . Hxc3 37. Kh2 Ha8 38. Bb2 Hd3 39. Del Hc8 40. Hc2 (40. Dal var kannski skárra, þó ekki sé staðan fogur eftir 40... Bxb4. Þessi leikur Kamsky bygg- ir á smábrellu sem Ivantsjúk fell- ur ekki fyrir.) 40.. . Hxc2 41. Dxc2 Bg6!' (Hugmynd Kamsky var 41. .. Hxf3 42. Ddl! (ekki 42. De2? vegna 42. ..Hxh3+! 43. gxh3 Í3+ og svartur vinnur drottninguna) ásamt 43. Dxh5+ með gagnfær- um.) 42. Df2 Bxb4 43. He5 Hdl 44. De2 Hbl! (Léttu menn hvíts geta sig hvergi hrært.) 45. Hg5Dc6 46. He5Dc2! 47. Hxh5+ Kg848. De6+ Bf7 49. Hh8+ Kxh850.Dxf7 Dc6! (Ivantsjúk teflir lokin af mik- illi nákvæmni. Honum liggur ekkert á að hirða biskupinn sem sleppur hvort eð er ekki úr her- kvínni á b2.) 51. Bc3 Bxc3 52. Df8+ Kh7 53. Df5+ Dg6 - og Kamsky gafst upp. Karpov í úfnum sjó Lánið hefur ekki leikið við A- natoly Karpov í síðustu umferð- um í Linares. Hann hóf mótið með því að sigra Jaan Ehlvest, en tapaði óvænt í 2. umferð fyrir Indverjanum Anand. Látum það vera. I gær var biðskákadagur á mótinu og Karpov í aðalhlutverki í báðum þeim skákum sem átti eftir að leiða til lykta. Hann þótti af sumum standa betur í skákinni gegn Ljubojevic og vænleg var staðan gegn Artur Jusupov. En uppskeran varð heldur rýr. Lengi framan af skákinni við Ljubojev- ic gekk allt eins og í sögu. Með nákvæmum tilfæringum náði hann frumkvæðinu og saumaði síðan að andstæðingi sínum eftir öllum kúnstarinnar reglum. Lju- bojevic hafði daginn áður mátt þola hina hraklegustu útrcið frá hendi Gata Kamsky og lapað í 105 leikjum og virtist ekki nema hálfur maður í þessari skák. En margt fer öðru vísi en ætlað er. Ljubojevic þvældist svo fýrir andstæðingi sínum að þar kom að Karpov sá sig knúinn til að fóma manni, ella sætta sig við jafntefli. Fómin leiddi til afar flókinnar stöðu, og þegar skákin fór í bið eftir 61. leik Ljubojevics vom menn ekki á eitt sáttir um bið- stöðuna þó fieiri hölluðust að því að Karpov stæði betur. Svo ein- kennilega vildi til að þegar bið- skákimar átti að tefia í gær var skák Karpovs og Jusupovs fyrst á dagskrá þó reglur FIDE kveði á um að skákir fyrri umferða hljóti alltaf að ganga fyrir. Upphófst mikið karp um þetta atriði, en skákstjórinn sat við sinn keip og varð hvergi þokað. Tafðist um 1/2 klst. að hefja skák Karpovs og Jusupovs þar sem sá síðamefndi átti við ramman reip að draga í endatafli með kóng og hrók gegn kóngi, hrók og a- og h- peði Kar- povs. Vandfundnir em þrautseig- ari skákmenn en Jusupov, og hon- um tókst að halda jöfnu. Síðan tóku þeir til við taflið Karpov og Ljubojevic, og heimamönnum til óblandinnar ánægju sigraði Júgó- slavinn, sem er kvæntur dóttur borgarstjórans í Linares, eftir u.þ.b. 3 klst. taflmennsku og 88 leiki og er skyndilega kominn f hóp efstu manna. Veslings Kar- pov situr efiir með sárt ennið og harmar glötuð tækifæri. Linares 1991: Lubomir Ljubojévic - Anatoly Karpov Spænskur leikur I. e4 e5 2. RO Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 II. Rbd2 Bf8 12. Bc2 (Kasparov lék alltaf 12. a4 í síðasta HM-einvígi. Leiðin sem Ljubojevic velur hefur ekki þótt gefa mikil fýrirheit og Karpov gerþekkir hana.) 12.. . g6 13. d5 Rb8 14. b3 c6 15. c4 a5 16. dxc6 Bxc6 17. cxb5 Bxb518. Rc4 Ra6 19. Bg5Rb4 20. Bbl Bxc4 21. bxc4 (Hvítur á auðvelt með að valda c4- peðið, enda gerir Kar- pov enga tilraun til að ná því, reit- ina í kringum það hertekur Kar- pov hinsvegar fijótlega.) 21.. . h6 22. Be3Dc7 23. a3 Ra6 24. Rd2 Rc5 25. Bc2 Heb8 26. Hbl (Ljubojevic tefiir alltof óvirkt og gefur Karpov kost á að byggja upp stöðu sína í rólegheitum. 26. f4 kom sterklega til greina.) 26.. . Dc6 27. Hxb8 Hxb8 28. Dal h5 29. Hbl Hc8 30. O Kh7 31. Dc3 a4 32. Hb4 Be7 33. Db2 Rfd7 34. Hb5 Bd8 35. Db4 Bb6 36. Bf2 Ha8 37. Db2 Ha6 38. Db4 Re6 (Strategía Karpovs hefur heppnast fullkomlega og hvítur á nú erfiða stöðu. En Ljubojevic verst vel og gefur hvergi högg- stað á sér.) 39. Bxb6 (Ekki 39. Bxa4 vegna 39. .. Bxf2+ 40. Kxf2 Da8! 41. Bb3 Da7+ 42. Kfl De3! og hvítur er gjörsamlega vamarlaus gagnvart fjölmörgum hótunum svarts.) 39.. . Rxb6 40. Bd3 Rd7 41. Dc3 Dc7 42. Rbl Da7+ 43. Kh2 Rdc5 44. Hb4 Rd4 45. Bfl Hb6 46. Hxb6 Dxb6 47. Db4Dd8 48. Dd2 Df6 49. Kgl Kg7 50. Be2 Dh4 51. Bdl Dd8 52. KO Db6 53. Db4Da7 54. Rc3 (Herjar á eina veikleikann í stöðu svarts, a4-peðið og knýr Karpov til að róttækra aðgerða. Einhversstaðar hefur Karpov misst þráðinn, því staða hans áður var mun vænlegri. Það er eins og hann hafi skort hugmyndafiug til að fylgja efiir ávinningum hinnar markvissu tafimennsku í miðtafi- inu.) 54... Rd3 55. Dbl a b c d e f g h 55... RxO!? (Vitaskuld var jafntefli að hafa með 55. .. Rc5.) 56. Dxd3 Dgl+ 57. Ke2 Dxg2+ 58. Ke3 Rd4 59. Re2 Dxh3+ 60. Kd2 Dg2 61. Kc3 a b c d e f g h (I þessari flóknu stöðu fór skákin í bið. Svartur hefúr þijú peð fýrir manninn og frípeð hans á h -línunni er afar ógnandi.) 61.. . Re6 62. Kb4 h4 63. Dxd6 Dxe4 64. Rc3 De3!? (Dálítið einkennilegur leikur. Eðlilegra var 64... Del.) 65. Bxa4 h3 66. Bc6 h2 67. Be4 Dxe4 (Karpov finnur enga betri leið. Nú bjuggust flestir við jafnt- efli, en Ljubojevic á auðveldara með að þoka peðum sínum áfram og á því betri stöðu.) 68. Rxe4 hl(D) 69. Dxe5+ Kh7 70. Rf6+ Kh6 71. Re4 Dbl+ 72. Ka5 Kh7 73. c5 Del+ 74. Kb6 Dbl+ 75. Kc6 Dd3 76. Rf6+ Kh6 77. De3+!! (Glæsilega leikið. Riddara- endtaflið er unnið á hvítt þó tæpt sé.) 77.. . Dxe3+ 78. Rg4+ Kg5 79. Rxe3 Kf4 80. a4! (Þennan snilldarleik varð Lju- bojevic að hafa séð fyrir. Svarti riddarinn fær ekki stöðvað a-peð- ið.) 80.. . Kxe3 81. a5 g5 82. a6 g4 83. a7 g3 84. a8(D) g2 85. Dg8! KO (En ekki 85. .. Kf2 86. Dxf7+ Kg3 87. Dxe6 gl(D) Dg6+ og vinnur.) 86. Kd6! Rxc5 87. Kxc5 f5 88. Dg5 - og Karpov gafst upp. Hann lendir óumflýjanlega í leikþröng hvað eftir annað. Dæmi: 88. .. f4 89. Kd4 og efiir 88. .. Kf2 89. Dxf5+ Ke 1 90. Dg4 Kf2 91. Df4+ Ke2 92. Dg3 Kfl 93. DD+ og nú vinnur hvítur tíma til að koma kóngi sínum áleiðis. Mögnuð bar- áttuskák. 18 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 1. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.