Þjóðviljinn - 01.03.1991, Síða 20

Þjóðviljinn - 01.03.1991, Síða 20
1— X 3 sr 2 S? tp t- e 5 S? (o )T) n IZ /2> lf SP IX )5 n i & ¥ X )Ý II ¥ 2 5~ s? *7 % n- 3 ¥ /V <7 ¥ /5 2o V xi )S~ U 2 y ZX 2 23, 3> 2 20 S? 10 zý 2S" Z(e 8 X cvj 2f 2% H- £ 9 K 5" 2f 1 ¥ 6" 22- 15 S? /Z 11- T~ 2 "H lsó % 2 Tb 2 3 l<7 y 18 19- ur /z 3 ¥ l(s> 2f 2f U> 0? 3 r /X w. b ZÝ 11 V 2 s~ )t> T 10 3 IX. 1Ý / it 7 e Zi- TT~ V l‘Z IÝ /V Zf l(r 2.0 y u 'H' 3 z. ¥ 5~ tr 2 10 yj ¥ ý w~ ¥ I5~ 3 Z s? 20 éT 2 3 17- 3 /z t~ 2Í *7 V M K? 2Ý /?- 3 iT 2 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Krossgáta nr. 136 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 37, 108 Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 136“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin veröa send til vinningshafa. 1? 5 Zf 3 /6 20 ?/ 25 2 Lausnarorð á krossgátu nr. 132 var Friðþjófur. Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Ráöhildar Stefánsdóttur, til heimilis að Holtabrún, Bolung- arvík. Hún fær senda bókina „Fíladans og framandi fólk. Á ferð og flugi með augnablikinu um fjarlæg lönd“ eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur. Vaka-Helgafell gaf út 1988. Verölaun fyrir krossgátu nr. 136 eru hljómplatan „Ljóðabrot" - með lögum eftir Ingva Þór Kormáksson viö Ijóð ýmissa góöskálda. Útgefandi er Hrynjandi hf. 1990. Sigurður Pálsson Flugur Það er nýbreytni hér í Þjóð- viljanum að birta lítinn þátt um flugur og fluguveiði. Helgi Guð- mundsson sem er orðinn ritstjóri hér, kann fleira en að smíða og skrifa. Hann er líka þessi fíni veiðimaður, stangveiðimaður vildi ég sagt hafa. Eg held að hann sé „frelsaður“ eins og stundum er sagt þegar talað er um þá sem veiða bara á flugu. Þama er þá' komin skýringin á þessum þætti. I fyrstu var ætlunin að birta myndir af þekktum flugum ásamt uppskrift af leiðbeiningum. Fljót- lega varð ljóst að betra væri að halda sig við fiugur sem eru að yísu heimsfrægar, en bara ekki á Islandi. Myndimar verða ekki í lit- um, því veldur fátækt blaðsins. Umsjónarmaður þáttarins hef- ur kver undir höndum sem saman- stendur af ljósritum úr norsku blaði. Þekktur veiðimaður og fluguhnýtari, John Sand sem býr í Engerdal, annaðist þetta í norska blaðinu. Jón Kristjánsson fiski- fræðingur var við nám i Noregi og ljósritaði þættina ásamt félögum sínum og þeir röðuðu saman í kver. Mjög margar álitlegar siíunga- flugur eru þar og af þeim branni er ætlunin að ausa. Trúlega munu margir þekkja flugumar þó ætlunin sé að fjalla mest um þær sem ekki era í notk- un hér. Fyrsta flugan heitir Admiral. Hún er hnýtt á silungaöngul í stærðunum 10-14. Uppskriftin er þá svona: ADMIRAL Skott: Fanir af rauðri Ibisfjöður Bolur: Rautt flos Vöf: Flatur gullþráður (Mylar) Skegg: Rauð hnakkafjöður af hana eða hænu Vængur: Hvít „axlarfjöður“, af gæs Haus: Rauður Þetta segir John Sand að sé amerísk fantasíufluga, sem þýðir að ekki sé reynt að líkja eftir neinu fæðudýri. Flugan dregur nafn af aðmírál sem hét Eustace Baron Rogers. Þeir aðmírálar þykja mér best- ir sem sinna veiðum eða golfi þó stundum hafi slíkt mælst misjafn- lega fyrir í þeirra hópi. Sand segir um fluguna að hún hafi reynst mjög vel í sumum Ijallavötnuin þar sem urriði býr og hún sé ein sú allrabesta fyrir bleikju. Fleiri útgáfur era til en honum líkar best við þessa. Myndin er af tveimur útgáfum. Önnur er með skeggið hringvafíð, hin ekki. Eftir viku kemur meira úr kverinu góða. Ég vaknaði mæddur í morgun... Petur Tyrfingsson skrifar um blús Magic Sam (1937 Á síðari hluta sjötta áratugar- ins veiktist staða blúsins á músík- markaðnum. Stóru útgáfufyrir- tækin í Chicago, Chess og Vee- Jay, héldu sig við sínar stjörnur og nýir kraftar á þeirra vegum voru ekki í blúsdeildinni. Sam- tímis voru efnilegir blúsmenn að koma fram. Skuggalegur karakt- er, Eli Toscano að nafni, sá sér leik á borði og stofnaði plötufyr- irtækið Cobra. Hann fékk unga menn til að spila fyrir sig inn á plötur. Þær seldust ekki illa og ungu mennimir gátu sér gott orð, en fengu lítinn eða engan „aur“. Merkastur þeirra voru gítaristam- ir Buddy Guy, Otis Rush og Mag- ic Sam. Buddy og Otis era enn á lífí. Magic Sam sem var ísbrjótur þessarar ungu kynslóðar lést langt fyrir aldur fram. Magic Sam hét réttu nafni Samuel Maghett og fæddist í Mississippi árið 1937. Hann flutt- ist með foreldrum sínum til Chic- ago þrettán ára gamall. Hann var þá farinn að spila eitthvað á gítar, en lærði mest eftir að hann kom til borgarinnar. Sam var ekki nema tvítugut þegar hann hljóð- ritaði í fyrsta sinn fyrir Cobra-fyr- irtækið 1957. „All your love“ var tvímælalaust smellur í Chicago. Fleiri tilbrigði um þennan smell vora sungin og gefin út, en einnig aðrir ágætir blúsar. Athygli vekur að strax í þessum fyrstu lögum er Sam búinn að finna gítarstíl sem er algerlega hans eiginn. Velgengnin varð skammvinn. Árið 1959 var Magic Sam kallað- ur í herinn, einmitt þegar hann þurfti að fylgja plötunum sínum eflir með hljómleikahaldi og ferðalögum. Blúsmaðurinn hafði ekki áhuga á vígamennsku og stakk af. Fyrir það mátti hann sitja sex mánuði í fangelsi. Þegar Sam slapp úr prísundinni fór hann 1960-61 að starfa fyrir Chief-fyr- irtækið í eigu Mels Londons. Tónlist Magic Sam naut sín eng- an veginn hjá London; hann var látinn syngja poppaðar ballöður og meira að segja með dúa-kór! Öll bestu lög Magic Sams milli áranna 1957 og 1966 áður en hann fer að gefa úr breiðskífur era á geisladisk sem til er í Japis: „Magic Sam: West Side Guitar“ (Flyright FLYCD 02). Lítið var gefið út af blús á tímum bítlaæðis og Motowns-so- uls. Eftir mögur ár kom út tveggja laga plata með Magic Sam 1966: Out of bad luck/ She belongs to me (bæði lögin á téðum geisla- disk). Upp úr því fór hagur Sams að vænkast. Það er haft eftir kunnugum að um þetta leyti hafi hann verið byijaður að sætta sig við að ná ekki árangri á markaði. Nú fór blús að öðlast vinsældir á ný. Eins og margir aðrir blús- menn náði Magic Sam eyram há- skólanema sem höfðu fengið áhuga á blús. Delmark-fyrirtækið í Chicago' gerði við hann útgáfu- samning 1967. Það er ánægjulegt til þess að vita að Delmark er nú byijað að gefa aflur út sígildar plötur frá fyrri tíð. Við megum eiga von á geisladiskum frá fyrir- tækinu á næstunni í Japis, þar á meðal efni með Magic Sam. Meðan Magic Sam lifði hljóðritaði hann og gaf út tvær breiðskífur hjá Delmark. 1968 kom út fyrri breiðskífan með hon- um „West Side Soul“ (Delmark, DS-615). Þetta er eina blúsplatan það árið sem fékk fimm stjömur í Down Beat tímaritinu. Síðari platan var „Black Magic“ (Del- mark DS-620) sem kom út 1969. Þetta era mjög vandaðar blúsplöt- ur. Hljómplötum þarf að fylgja eftir með hljómleikaferðalögum. Ólánið elti Magic Sam. Þegar halda átti í slíka ferð vegna „West Blúsmenn Andreu: Café ís- Iand laugardag 2/3. KK-band: Púlsinn íostudag 1/3; Gikkurinn laugardag 2/3; N1 v/Klapparstíg sunnudag 3/3. Side Soul“ var það einhver ribb- aldi sem skaut hann í fótinn. Loks þegar komist var af stað gekk ferðin erfiðlega og illa gekk að fá borgað. Ferðin endaði á spítala. Magic Sam var hjartveikur. Sam var nýstiginn upp úr hjartaáfallinu þegar hann fór til Evrópu 1969 í árlegri hópferð blúsmanna undir merkjum „Am- erican Folk Blues Festival“. Sam var ánægður með þessa ferð til Evrópu og sá fram á ný tækifæri. I október sama ár þegar Sam var nýkominn heim frá Evrópu var „Black Magic“ gefin út. Hann mátti búast við góðum viðtökum. Þessi ungi maður aðeins 32 ára gat bundið vonir við að geta séð vel fyrir fjölskyldu sinni, eigin- konu og ljórum litlum bömum. Lífið brosti ekki lengi við þessu fólki. Magic Sam lést 1. desem- ber 1969. Náttúran gaf honum mikla rödd og vandaða skapgerð, en veikt hjarta. Tregasveitin: Stúdentakjallar- inn íostudag 1/3; Púlsinn sunnu- dag 3/3. Vinir Dóra: hafa hægt um sig fram að páskum. Blúsinn í Bænum: 20 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 1. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.