Þjóðviljinn - 02.03.1991, Page 1

Þjóðviljinn - 02.03.1991, Page 1
Laugardagur 2. mars 1991 —43. tölublað 56. árgangur Það var mikið um dýrðir (Ólafsfirði (gær þegar göngin um Ólafsfjarðarmúla voru vfgð. Bærinn var fánum prýddur og flestir vinnustaðir lokaðir. Bæj- arbúar fjölmenntu I skrúðgöngu að gangaopinu. Steingrfmur J. Sigfússon samgönguráðherra og þingmaður kjördæmisins opnaði göngin formlega að viðstöddum forseta Islands, Vigdfsi Finnboga- dóttur, og fjölda annarra gesta, auk heimamanna. Við gerð ganganna hafa verið sprengdir 130 þúsund rúmmetrar af bergi f 1000 sprengingum. Göngin kosta um 1250 milijónir. Þau eru mesta mannvirki sinnar tegundar hér á landi, rúmir þrfr kílómetrar að lengd, auk vegskála. Ljósmynd HMP. Fjármálaráðherra Stórframkvæmdum verði flýtt Ljóst að af framkvœmdum við byggingu nýs álvers verður ekki í ár. Ólafur Ragnar Grímsson: Oll skynsemi mælir með því að við hugum að öðrum fjárfestingum í ár til að tryggja atvinnu í landinu Olafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, hefur sett fram þær hugmyndir í rík- isstjórninni að stjórnvöld leiti ráða til þess að auka fjárfest- ingu og tryggja atvinnu þar sem sýnt þyki að ekki verði ráðist í virkjunarframkvæmdir og undirbúningsframkvæmdir við byggingu nýs álvers í ár. Olafiir Ragnar sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að þar sem allt benti til þess að af fram- kvæmdum vegna smíði nýs álvers hér á landi yrði ekki í ár, væri ástæða íyrir menn að beina sjón- um sínum að öðrum verkefhum til að tryggja atvinnu og auka fjár- festingu, en Þjóðhagsstofnun hef- ur spáð því, að að óbreyttu aukist atvinnuleysi nokkuð frá því í fyrra og verði um tæp tveir af hundraði í ár. Meðal þeirra fjárfestingar- verkefha sem Ólafur Ragnar legg- ur til að stjómvöld geri kleift að ráðist verði í í ár er smíði nýs flugskýlis á Keflavíkurflugvelli, en Flugleiðir hafa óskað eftir því við stjómvöld að heimild verði veitt til niðurfellingar á aðflutn- ingsgjöldum sem tengjast bygg- ingu skýlisins, breikkun Reykja- nesbrautar, endurbótum og stækk- un á Egilsstaðaflugvelli verði flýtt, heimild verði veitt í lánsfjár- lögum fyrir ábyrgðum til hafhar- ftamkvæmda í Þorlákshöfn í tengslum við smíði þilplötuverk- smiðju sem þar stendur til að verði reist og athugað verði hvaða opinbemm framkvæmdum megi hraða og hvemig það opinbera geti með einum eða öðram hætti stuðlað að nýsköpun og atvinnu- uppbyggingu úti á landsbyggð- tnm. Ólafur Ragnar sagðist hafa í hyggju að leggja það til f fram- varpi til lánsfjárlaga sem afgreitt verður fyrir þinglausnir í vor að aðflutningsgjöld vegna smíði nýs flugskýlis á Keflavíkurflugvelli verði felld niður, svo og að ríkis- sjóður gangist í ábyrgðir og geri kleift að ráðast i endurbætur á hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn, en viðræður hafa staðið yfir við breskt fyrirtæki um uppbyggingu þilplötuverksmiðju sem hefði mjkil áhrif á atvinnumöguleika á staðnum og að lántökuheimild verði veitt vegna lagfæringa á og breikkunar Reykjanesbrautar. - Það er erfítt að meta um hve mikla fjármuni er að ræða sem varið yrði til fjárfestinga með þessu móti. Talsverður hluti af þessu yrðu útgjöld þeirra fyrir- tækja sem að framkvæmdunum standa þótt ríkissjóður greiði fyrir framkvæmdum með niðurfellingu aðflutningsgjalda og lántöku- heimildum og ábyrgðum. Gróft áætlað má þó gera ráð fyrir að hér væri um einn til tvo miljarða króna að ræða, sagði Ólafur Ragnar. Hann sagði að Ijóst væri af umsögn Landsvirkjunarmanna að ekki verður ráðist í virkjunar- framkvæmdir fyrr en orkusölu- samningur við Atlantsálsfyrirtæk- in liggur fyrir. - Það virðist sýnt að hann muni ekki verða lagður fyrir á þessu þingi. Þessvegna mælir öll skynsemi með því, að menn hugi að öðrum fram- kvæmdum í ár, fyrst að af álveri verður ekki, sagði Ólafur. -rk Persaflóadeila Segir Saddam af sér? Franska blaðið Le Monde heldur þvi fram að hann hafi beðist hœlis íAlsír, sé dauðhrœddur við Israela og að Tareq Aziz og herforingjar muni taka við af honum Franska blaðið Le Monde hélt því fram í gær að Saddam íraksfor- seti hefði ákveðið að láta af völd- um og fara úr landi. Hefði hann beðið ríkisstjóm Alsírs um leyfi til að setjast að þarlendis. Le Monde, sem hefur góð sam- bönd við ráðamenn í fyrrverandi Norður- Afríkulöndum Frakka, segir að alsírsk stjómvöld séu ekk- ert hress yftr þessari beiðni, en muni ekki þora annað en að verða við henni vegna mikilla vinsælda íraksforseta þar í landi. Myndi Alsírsstjóm að öllum líkindum fara fram á það við bandamenn í Persaflóastríði að þeir létu vera að stefha Saddam fyrir stríðsglæpi ef hann segði af sér og færi úr landi. Það fylgir fréttinni að Saddam óttist Israela manna mest og hafi valið Alsír sem búsetuland í fram- tíðinni m.a. vegna þess hve langt það sé frá ísrael. Hann hafi fyrst hugsað sér að fara til Jemens eða Súdans, en hætt við það vegna þess að hann hafi komist að þeirri nið- urstöðu að þau væru of nálægt ísraelum. Blaðið heldur því fram að alsírskir ráðamenn hafi þegar upplýst frönsku stjómina um þetta. Le Monde segir að Saddam muni ætla að láta af völdum fljót- lega eða þá að hann kunni að verða neyddur til þess innan skamms. Nánir samstarfsmenn hans og aðrir forastumenn Baathflokksins, ríkis- flokks Iraks, reyni þó að telja hann á að vera við völd áfram. Líklegast væri að helstu ráðamenn í Irak að honum fömum yrðu Tareq Aziz, utanríkisráðherra, og einhveijir herforingjar. Blaðið heldur því ennfremur fram að kona Saddams og böm séu í Máritaníu, en það ríki tók afstöðu með honum í Persa- flóadeilu. Var því þegar haldið fram fyrir nokkram vikum að fjöl- skylda Saddams væri þangað kom- in, en máritanska stjómin bar á móti því að það væri rétt. Franska utanríkisráðuneytið vildi í gær ekkert segja um þessa frétt í Le Monde og ambassador Alsírs í Bandaríkjunum neitaði því að hún væri sönn. Aðspurður hvort líklegt væri að Alsírsstjóm bærist slík beiðni svaraði ambassadorinn: „Iraska þjóðin verður sjálf að ákveða hvemig hún bregst við nú- verandi kringumstæðum.“ James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær stjóm sína ekkert vita hvort satt væri sagt um þetta í Le Monde. Yrði Banda- ríkjastjóm beðin að stefna Saddam ekki fýrir striðsglæpi ef Alsíringar tækju við honum, gæti hún ekkert ákveðið í þvi máli fyrr en hún hefði ráðfært sig um það við bandamenn sína í Persaflóadeilu. Reuter/-dþ.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.