Þjóðviljinn - 02.03.1991, Síða 2
FRÉTTÍft
■rr,*í3 it't
Garðar GuðjónssoD,
Kaupmannahöfn
Þing Norðuriandaráðs hafa á
undanfðrnum árum orðið
mun alþjóðlegri og þetta var
sérstaklega áberandi nú. í
fyrstu mætti þessi þróun nokk-
urri andstöðu, einkum hjá
Finnum, en nú held ég að allir
séu sáttir við hana, sagði Ólafur
G. Einarsson, formaður ís-
Iensku sendinefndarinnar á
þingi Norðurlandaráðs, í sam-
tali við Þjóðviljann í gær. Ólaf-
ur er jafnframt annar tveggja
fulltrúa íslendinga í forsætis-
nefnd ráðsins.
39. þingi Norðurlandaráðs
lauk í Kaupmannahöfh i gær með
umræðum um samstarf Norður-
landa við Eistland, Lettland og
Litháen. Fjölmargar tillögur um
samstarf landanna lágu fyrir þing-
inu og voru afgreiddar í gær.
Meðal annars er fyrirhugað að
koma á samstarfí í umhverfismál-
um, menningar- og menntamálum
og í efnahagsmálum.
Sjálfstæðisbarátta lýðveld-
anna þriggja við Eystrasalt og af-
skipti Norðurlanda af henni hefur
sett sterkan svip á þingið, en eig-
inlegt samstarf Norðurlanda hefur
fallið í skuggann. Fulltrúar þjóð-
þinga Eistlands, Lettlands og Lit-
háens hafa verið sérstakir gestir
Húsnœðismál
Hundruð í erf iðleikum
Afgreiðsla á beiðnum um húsbréf vegna
greiðsluerfiðleika hófst 26.febrúar sl.. Slík
húsbréf verða einungis afgreidd í 12 mánuði
Frá miðju síðasta ári hafa
ekki verið til peningar til að
afgreiða umsóknir þeirra sem
eru i greiðsluvandræðum, sagði
Sigurður E. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Húsnæðis-
stofnunar ríkisins.
- Beðið var eftir því að við
fengjum úrlausn frá þvi opinbera,
sem kom með Iögunum sem voru
samþykkt 19. desember sl. og
heimila að veitt séu lán í formi
húsbréfa til þeirra sem eiga í
greiðsluerfiðleikum, sagði Sig-
urður.
Vegna þess að við höfum ekki
getað afgreitt nein slík erindi frá
sl. sumri hafa beiðnimar hlaðist
upp. Lögin gera einungis ráð fyrir
að húsbréfúm til þeirra sem em í
erfiðleikum með að greiða sín Ián
verði veitt í 12 mánuði, til 19.
desember á þessu ári. Sigurður
kvaðst ekki vita hvemig tekið
yrði á beiðnum sem bæmst eftir
það. Alþingi yrði þá að fjalla um
það mál. Vonir standa til að með
nýja kerfmu fækki þeim sem
lenda í greiðsluerfiðleikum, að
sögn Sigurðar.
Byijað var að afgreiða beiðnir
þeirra sem em í greiðslu-
vandræðum 26. febrúar síðast-
liðinn. Hraði afgreiðslna fer eftir
þvi hvað við fáum margt starfs-
fólk til að vinna verkið . Við
vonumst til að það gerist fljótt og
vel. Undanfarið hefur verið í und-
irbúningi að fá fleira starfsfólk,
og tveir nýir starfsmenn hafa þeg-
ar komið til liðs við okkur, sagði
framkvæmdastjórinn að lokum.
BE
þingsins og fengu tækifæri til
þess að ávarpa það í sérstökum
umræðum.
Sovétmenn hafa hins vegar
verið lítt hrifnir af afskiptum
Norðurlanda af þessum málum,
sem þeir telja vera innanríkismál.
Þeir hafa í tvígang komið á ffam-
færi mótmælum vegna þessa.
— Það er ekki ágreiningur um
að Norðurlöndum beri að aðstoða
Eystrasaltslöndin í baráttu sinni
með einum eða öðrum hætti. Það
er hins vegar annað mál hvað hin
einstöku ríki gera í því að taka
upp bein diplómatísk tengsl við
þessi ríki. Þar höfúm við Islend-
ingar gengið lengst og ég er ekki í
minnsta vafa um að hinarþjóðim-
ar munu koma á eftir okkur, sagði
Ólafúr G. Einarsson um þetta við
Þjóðviljann í gær.
Umræðumar á þingum Norð-
urlandaráðs snúast gjama að
miklu leyti um sjálft samstarfið
og framtíð þess. Þetta var ekki
síður áberandi nú. Staða Norður-
landanna gagnvart Evrópubanda-
laginu var þingfúlltrúum ofarlega
í huga, en þar em ýmsar blikur á
lofti. Danir em í Evrópubandalag-
inu og Svíar hyggjast sækja um
aðild. Norðmenn og Finnar vilja
láta reyna á árangur af viðræðum
EFTA og EB um sameiginlegt
efnahagssvæði, en háværar raddir
em uppi um það í Noregi að
Norðmenn eigi að fara að dæmi
Svía.
Carl Bildt, formaður sænskra
íhaldsmanna, tók svo djúpt í ár-
inni að samstarfið innan Norður-
landaráðs væri staðnað og að
Norðurlönd ættu öll sem eitt að
ganga í EB. Þar sjá menn fyrir sér
að Norðurlönd geti starfað saman
á nýjum vettvangi á áhrifarikari
hátt en nú.
Ólafúr G. Einarsson segist
ekki sammála þessum sjónarmið-
um sænska hægrimannsins.
- Ég held að enginn í íslensku
sendinefndinni taki undir þetta,
hvar í flokki sem hann stendur.
Hægrimenn í Skandinavíu hafa
hins vegar allir lýst því yfir að
Norðurlönd eigi að ganga í EB og
á því byggist þessi afstaða þeirra
til Norðurlandaráðs. Þeir segja að
þegar Norðurlönd verði komin í
EB nýtist samstarfið þeim betur
en nú. Það er hins vegar aldeilis
ekki fyrirsjáanlegt að Islendingar
fari á þennan nýja vettvang, sagði
Ólafur G. Einarsson.
Hafnarfiörður
Skortur á handf lökurum
r
Formaður Hlífar: Brýnt að kenna Islendingum
handflökun og flatningu fisks ásamt nýtingu
hráefnisins
Sigurður T. Sigurðsson for-
maður Verkamannaféiags-
ins Hlífar hefur lagt fram þá tll-
lögu í atvinnumálanefnd bæjar-
ins og hjá stjórn Vinnumiðlun-
ar Hafnarfjarðar, að sem fyrst
verði komið á fót námskeiðum í
handflökun og flatningu fisks
ásamt nýtingu hráefnisins.
Að mati Sigurðar T. beinist
áhugi hafnfirskra fiskverkenda sí-
fellt meira að handflökun, því hún
er talin skila állt að 5% betri nýt-
ingu iieldur en vélflökun. Áhugi
fiskverkenda á þessu er ekki síður
tilkominn vegna hins háa verðs
sem verið hefur á fiskmörkuðum.
Aukin eftirspum eftir handflökur-
um hefúr hinsvegar leitt í ljós að
ekki nógu margt íslenskt verka-
fólk kann til verka við að flaka
fisk og af þeim sökum hafa fisk-
verkendur orðið að leita eftir er-
lendu vinnuafli í störfin. Þegar
starfa yfir tíu erlendir verkamenn
við handflökun í Firðinum og lík-
legt að þeim Qölgi ef íslendingar
fást ekki til starfans. Á sama tíma
eru tugir verkafólks atvinnulaust.
I tillögunni er lagt til að leitað
verði til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs með greiðslu kostnaðar og
til Fiskvinnsluskólans með skipu-
lagningu og umsjón með nám-
skeiðunum. Áhersla er lögð á að
atvinnulaust verkafólk sæki nám-
skeiðin og ennfremur verði leitað
til fiskvinnslufyrirtækja að það
sendi fólk á námskeiðin án launa-
skerðinga og þá sérstaklega þau
fyrirtæki sem þegar hafa erlent
fólk í vinnu. -grh
Stýrimannafélag Islands
Nauðsyn á nýrri þyrlu
C tjórn Stýrimannaféiags ís-
w lands skorar á alla alþingis-
menn að sameinast um að koma
því til leiðar að samningur verði
gerður nú þegar um kaup á
fulikominni og öflugri þyrlu
fyrir Landhelgisgæsluna.
Að mati stjómar Stýrimanna-
félagsins sannaðist það á dögun-
um, þegar þyrla Gæslunnar bjarg-
aði áhöfn Steindórs GK undir
Krísuvíkurbjargi, að þyrla er eina
björgunartækið sem getur komið
að notum þegar aðrar aðferðir til
björgunar eru nánast útilokaðar.
Því teiur stjóm Stýrimannafé-
lags Islands að það sé lífsnauð-
synlegt að Gæslan fái nýja, stærri
og öflugri björgunarþyrlu til auk-
ins öryggis fyrir sjófarendur og
alla aðra sem í háska lenda.
-grh
Llst á þremur hæðumListamennimir Kristbergur Pétursson, Magnús S. Guðmundsson og Tryggvi Þórhalls-
son opnuðu myndlistarsýningu á göngum menntamálaráðuneytisins fyrir skömmu.Á sýningunni eru 35 verk;
olfumálverk, graffkmyndir og teikningar. Þórunn Hafstein opnaði sýninguna. Þórunn minntist á að verkin vaeru
mislangt að komin. Verk Kristbergs eru sunnan úr Hafnarfirði, verk Tryggva úr túnfæti ráðuneytisins en mál-
verk Magnúsar eru komin alla leið norðan úr Hrfsey, þar sem hann býr og starfar.Tryggvi og Kristbergur voru
hvattir til að segja nokkur orð um verk sfn. Tryggvi sagði verk sfn fjalla um heimsmynd manna og þá baráttu
sem þeir geta lent f vegna heimsmynda sem að utan berast. Kristbergur sagði að honum hefði tekist að gefa
öllum myndunum nafn á sfðustu stundu og væri nú uppiskroppa með orð. Magnús gat ekki verið viðstaddur
opnunina.Tryggvi Þórhallsson sýnir Ijósmyndagrafík á fyrstu hæðinni, Magnús málverk á þeirri annarri og
Kristbergur hefur hengt upp olíu- og grafíkmyndir á þriðju hæðinni.Sýning piltanna stendur til 19. aprll næst-
komandi. Þetta er fimmta sýningin (ráðuneytinu og er tilganaurinn m.a. að minna á að menntamálaráðuneyt-
ið er ekki sfður menningarráöuneyti, að sögn Þórunnar. A myndinni eru Kristbergur Pétursson og Tryggvi
Þórhallsson við verkið Hvolf eftir þann sfðamefnda. BE. Mynd: Kristinn.
Eimskip
341 miljón
króna
hagnaður
Nýr Foss ífiotann
Á síöasta ári var hagnaður af
rekstri Eimskips að upphæð 341
miijón króna sem er um 4,7% af
veltu, og arðsemi af eigin fé var
11%.
Rekstrartekjur félagsins og
dótturfélaga þess námu í fyrra
7.306 miljónum króna, en voru
6.136 miljónir árið þar á undan.
Hækkunin á milli ára er því um
19%. Eigið fé félagsins var um
3.902 miljónir króna í árslok 1990
og eiginfjárhlutfall 45%. Heildar-
flutningar Eimskips í fyrra námu
um 993 þúsundum tonna og er það
5% aukning ffá árinu á undan.
Eimskip og dótturfyrirtæki
þess eru með 15 skip í fostum
rekstri og voru starfsmenn félags-
ins að meðaltali um 732 á síðasta
ári.
í dag mun félagið taka á móti
nýju gámaskipi í Hamborg, Detti-
fossi, sem smíðað var 1982. Kaup-
verð skipsins í maí í fyrra var tæp-
ar 700 miljónir króna. Burðargeta
þess er um 7.700 tonn og mun það
sigla á Norðurlandaleiðum félags-
ins ásamt systurskipi sinu Bakka-
fossi sem Eimskip hefúr á leigu.
-grh
Norðurlandaráð
Alþjóðamál í fyrirrúmi
2 SÍÐA— ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. mars 1991