Þjóðviljinn - 02.03.1991, Síða 6
ERLENDAR FRETTIR
Kúvœt
Persaflóadeila
Olíuframleiðslan í rúst
Mannvirki eyðilögð eða stórskemmd við allar olíulindir landsins, margar
standa í báli
Eyðileggingin á olíulindum
og olíumannvirkjum í Kú-
væt virðist vera jafnvel enn
meiri en búist hafði verið við,
samkvæmt bráðabirgðarann-
sókn sem KOC, kúvætska oiíu-
félagið, lét fara fram jafnskjótt
og Iraksher var þaðan flúinn.
Telur KOC að kveikt hafi verið
í öllum olíulindum landsins eða
mannvirki við þær eyðilögð og
skemmd, þótt eldur hafi ekki
allsstaðar komið til.
Um 950 olíulindir voru starf-
ræktar i Kúvæt fyrir innrás íraka
og kveiktu þeir í þeim flestum
með sprengingum. I sumum lind-
anna kviknaði þó ekki við spreng-
ingamar, en mikið tjón varð þar
eigi að síður á mannvirkjum.
Mannvirki við yfir 30 lindir urðu
fyrir miklum skemmdum í loft-
árásum bandamanna.
Mestöllu tjóninu á olíulindun-
um ollu írakar síðustu dagana áð-
ur en þeir flýðu frá Kúvæt, og
liggur i augum uppi að fyrirætlun
þeirra hefúr verið að leggja at-
vinnu- og efnahagslíf emírsdæm-
isins gersamlega í rúst, fyrst þeir
fengu ekki að halda þvi. En Mus-
ab al-Yaseen, einn af ráðamönn-
um í KOC, gagnrýndi einnig
bandamenn í þessu sambandi og
sagði að þeim hefði átt að vera
ljóst að sum olíumannvirkjanna,
sem flugher þeirra eyðilagði eða
skemmdi, hefðu ekki hafl neina
þýðingu fyrir stríðsrekstur íraks.
Fyrir innrásina 2. ágúst fram-
leiddi Kúvæt næstum tvær milj-
ónir tunna af olíu á dag. Nú hefur
emírsdæmið aðeins 16 daga forða
af olíu til notkunar innanlands og
getur nú svo farið að þetta mikla
oliuútflutningsriki komist í þær
kröggur að neyðast til að flytja
inn olíu. Reuter/-dþ.
Kólera
í Sambfu
Um 600 manns hafa látist úr
kóleru undanfarna fjóra mánuði
í Sambíu, að sögn Rauða krossins
þar í landi.
Segja talsmenn Rauða krossins
að kólerufaraldur þessi sé sá versti
sem geisað hafi þar í landi í marga
áratugi og verði hann stöðugt skæð-
ari. Hann hefur breiðst út til grann-
landsins Mósambik.
Himinninn yfir Kúvæt svartur af reyk frá brennandi olfulindum - varla verður hægt að hefja vinnslu úr einni ein-
ustu af lindunum þegar (stað.
Salvadorskur leiðtogi látinn
Guillermo Ungo, einn þekkt-
ustu stjórnmálamanna
Mið- Ameríkuríkisins Salva-
dors, lést nýlega í Mexíkóborg,
59 ára að aldri. Hann var for-
maður Lýðræðislegu byltingar-
fylkingarinnar, vinstrisinnaðra
stjórnmálasamtaka sem eru
pólitískur armur Farabundo
Marti-skæruliðanna (FMLN).
Þeir Ungo og Jose Napoleon
Duarte, fyrrum Salvadorforseti
sem lést s.l. ár, voru lengi vinir og
samstarfsmenn og síðan andstæð-
ingar. Ungo var talsmaður mála-
miðlunar og sátta, tók sæti í stjóm
Salvadors 1979 en sagði sig úr
henni eftir þijá mánuði og gekk
síðan í lið með FMLN, enda þótt
oft gætti ágreinings milli hans og
róttækari manna þar í liði. Síðast-
liðinn áratug var hann að mestu í
útlegð, lengst af í Panama.
Reuter/-dþ.
Ungo - talsmaður sátta á
vettvangi haturs og borgarastyrj-
aldar.
Frönsk ekkia
Sagaði elskhugann sundur
Simone Weber, sextug ekkja
frönsk, var í vikunni í borg-
inni Nancy dæmd til tuttugu
ára fangelsisvistar eftir að rétt-
urinn hafði úrskurðað að hún
hefði myrt elskhuga sinn og
sagað lík hans í parta með raf-
magnssög.
Þetta er talið hafa gerst 1985
og mun Simone hafa runnið í
skap við elskhugann vegna þess
að hann hafði með öðrum konum
jafnframt henni.
Skaut hún hann í höfuðið,
sagaði líkið sundur til að geta
komið því af höndum sér og varp-
aði líkamshlutunum í fljótið
Mame.
Rétturinn komst að þeirri nið-
urstöðu að ekkjan hefði framið
morðið í reiðikasti, en ekki haft
það í huga fyrirffam. Hún var við
sama tækifæri sýknuð af ákæm
um að hafa myrt á eitri eiginmann
sinn, sem var 30 ámm eldri en
hún.
Var hún ákærð fýrir að hafa
myrt hann til að komast yfir eigur
hans.
Reuter/-dþ.
Irak
samþykki
skilmála
Annars verði hernaðarað-
gerðir gegn því hafnar á ný.
Yfir 100.000 íraskir her-
ntenn sagðir hafa verið
teknir til fanga
Bandaríkjastjórn vill að Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykki að hernaðaraðgerðir
gegn Irak verði hafnar á ný ef það
gangi ekki að friðarskilmálum í
uppkasti að ályktun, að stjórnin
ætlar að leggja fyrir ráðið og er
þegar til athugunar hjá stjórnum
þeirra ríkja, sem aðild eiga að
ráðinu.
Gert er ráð fyrir því í uppkastinu
að viðskipta- og flutningabannið á
írak verði ekki numið úr gildi að svo
stöddu. Þess er krafist í því að íraks-
stjóm standi við það loforð sitt að
gangast undir allar þær samþykktir,
sem Öryggisráð hefúr gert viðvíkj-
andi Persaflóadeilu. Um viðskipta-
bannið er það að segja að írak er
þegar heimilt að flytja inn lyf og
sjúkragögn, en bannað er að flytja
þangað matvömr nema með sér-
stöku leyfi ráðsins. Margaret Tut-
wiler, talsmaður bandaríska utanrik-
isráðuneytisins, sagði í fyrradag að
Bandaríkjastjóm legði áherslu á að
bann við vopnasölu til íraks yrði
áfrarn í gildi meðan Saddam Huss-
ein væri þar við völd.
Af öðrum kröfúm má nefna að
Irakar láti þegar lausa alla stríðs-
fanga og alla Kúvæta og aðra út-
lendinga, sem em fangar í Irak eða
dveljast þar nauðugir. Jafhframt
muni bandamenn byija að sleppa
írökum, sem þeir tóku til fanga í
striðinu, en samkvæmt nýjustu töl-
um um það em fangar þessir talsvert
yfir 100.000. Búist var í gær við að
fiilltrúar herstjóma bandamanna og
íraka myndu hittast einhversstaðar í
írak í dag til að ganga frá reglum um
framfylgd vopnahlésins.
Reuter/-dþ.
Einkabílismi
í Albaníu
Albanska stjómin hefúr ákveðið
að héðan í frá skuli einstaklingum
þarlendis heimilt að eiga bíla, en við
því hefur legið bann í fjóra áratugi.
Einnig fá ríkisfyrirtæki nú leyfi til
að selja bíla og bifhjól í eigu sinni
einstaklingum.
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms
á Italíu og í Kína
Itölsk stiómvöld bjóða fram styrki handa Islendingum til
náms á Italíu á háskólaárinu 1991-92. Styrkimireru einkum
ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að
loknu háskólaprófi eða til náms við listaháskóla. Styrkfjár-
hæðin nemur 800.000 lírum á mánuði.
Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins K(na bjóða fram styrk handa
Islendingi til háskólanáms í Klna skólaárið 1991-92. Jafn-
framt hafa kínversk stjórnvöld tilkynnt að Islenskum náms-
mönnum verði gefinn kostur á námsdvöl þar ( landi án
styrks.
Umsóknum um ofangreinda styrki, ásamt staðfestum afrit-
um prófskírteina og meðmælum, skal skilað til mennta-
málaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavlk, fyrir27.
mars n.k. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið,
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á húsnæði á
HÖFN I HORNAFIRÐI OG I ÞORLÁKSHÖFN.
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða
raðhús, u.þ.b. 150-200 ferm. að stærð að
meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini stærð, byggingarár og -efni,
fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og
áætlaðan afhendingartíma, óskast send
eignadeild fjármálaráðuneytisins, Amarhvoli,
150 Reykjavík, fýrir 12. mars 1991.
Fjármálaráðuneytið, 1. mars 1991
LÖGREGLUSTJÓRINN
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Sími (92) 11795, 54463
Lausar stöður
Vegna afleysinga hjá lögreglu og tollgæslu emb-
ættisins á komandi sumarorlofstímabili, eru nokkr-
ar stöður lausar til umsóknar. Þá eru einnig lausar
til umsóknar fastar stöður hjá lögreglu, sem ráðið
verður í að loknu orlofstímabili.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu minni og
verða póstsend umsækjendum sé þess óskað.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu minnar fyrir 1.
apríl n.k.
Lögreglustjórinn Keflavíkurflugvelli