Þjóðviljinn - 02.03.1991, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 02.03.1991, Blaðsíða 16
RAFRÚN H.F. — Smiðjuvefi 11 E Alhliða rafverktakaþjónusta //mm Sími 641012 — SPURNINGIN Hverjir verða bikar- meistarar í handbolta, Víkingur eða ÍBV? Þorvaldur Einarsson lögmaður: Ég fylgist ekkert með þessu. En fyrst það eru þessi tvö þá finnst mér líklegast að Vikingur vinni. Magnús Ragnarsson verkamaður: Víkingur, þeir eru mjög góðir. Harpa Hafbergsson nemi: Ég veit það ekki. Ég fylgist ekk- ert með þessu. Rafn Sigurðsson tölfræðingur: ÍBV. AUGLÝSINGASÍMAR ÞJÓÐVILJANS eru 681310 og 681331 Grandi hf. Fiskur- Já takk Grunnskólanemendur á höfuðborgar- svœðinu kynntu sér undirstöðuatvinnu- grein landsmanna í gær Fiskvinnslu- og útgerðar- fyrirtækið Grandi hf. í Reykjavík bauð í gær öllum grunnskólanemendum í 6. bekk á höfuðborgarsvæðinu, um tvö þúsund talsins til að sjá með eigin augum þá nytja- fiska sem þar eru unnir og fylgjast með vinnslu sjávaraf- urða. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrirtækið býður grunn- skólanemendum til sín og er ráðgert að þetta verði árviss við- burður. Margir krakkanna sem þama vom mættir höfðu aldrei áður séð fisk, eins og hann kem- ur frá borði fiskiskips og því leyndi forvitnin sér ekki þegar hann var skoðaður. Að sama skapi höfðu fæst þeirra áður komið í fiskvinnsluhús og séð hvemig fiskurinn er unninn áð- ur en hann er sendur á erlenda markaði. Ekki var annað að sjá en að krakkamir hefðu gaman af öllu því sem bar fyrir augu þeirra, enda margt forvitnilegt að gerast í fiskvinnslunni, auk þess sem þeir fengu smá nasa- sjón af því hvemig það er að vinna við undirstöðuatvinnu- grein landsmanna. Aftur á móti getur almenn- ingur hvergi virt fyrir sér lifandi fiska, nema þá í Vestmannaeyj- um, og hlýtur það að vera um- hugsunarefni fyrir hagsmunaað- ila í sjávarútvegi og yfirmenn menntamála. Grandi hf. er eitt af stærstu fiskvinnslu- og útgerðarfyrir- tækjum landsins; gerir út sjö togara og er með um 400 manns í yinnu. A síðasta ári veiddu togarar fyrirtækisins 23 þúsund tonn af fiski að verðmæti 1.235 miljónir króna. Af þessum afla komu um 16 þúsund tonn til vinnslu hjá fyrirtækinu, auk þess sem fiskur var keyptur af fiskmörkuðum. -grh Ekki er hægt að segja að skatan sé beint að- laðandi fiskur, þó mörg- um fmnist hún ómiss- andi á matseðlinum þegar svo ber undir. Mynd: Kristinn. FLUGLEIDIR Aðalfundur Flugleiða hf. Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 1991 í Höfða, Hótel Loftleiðum og hefst kl. 14.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins um heimild til stjómar til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, Hlutabréfadeild á 2. hæð frá og með 13. mars n.k. frá kl. 9.00 til 17.00 og fundardag til kl. 12.00. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrif kl. 12.00áfundardegi. Stjórn Flugleiða hf.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.