Þjóðviljinn - 16.03.1991, Page 1
X>yÓDVii,yi nn
53. tölublað_Laugardagur 12. mars 1991 56.árgangur
Smúlað að loknum starfsdegi.
Mynd: Jim Smart.
Atvinnulausum fækkar
um þúsund manns
Atvinnulausum fækkaði um þúsund manns í febrúar
og atvinnuleysisdögum um 23 þúsund frá mánuðin-
um á undan. Þessi fækkun átti sér öll stað utan höf-
uðborgarsvæðisins, en þar var atvinnuástandið nán-
ast óbreytt frá fyrra mánuði. Þó fjölgaði atvinnu-
lausum í Reykjavík um 50 manns en fækkaði lítils-
háttar í Kópavogi og Hafnarfírði. Þetta kemur fram
í yfírliti vinnumálaskrifstofu felagsmálaráðuneytisins um at-
Þar kemur fram að sem hlutfall
af mannafla var skráð atvinnuleysi
á landsbyggðinni 4,4% að meðal-
tali í janúarmánuði síðastliðnum
en lækkaði í 2,5% í febrúar. Þar
var það þó tvöfalt meira en á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem atvinnu-
leysið reyndist vera 1,2%. Sam-
kvæmt kjördæmum var atvinnu-
leysið mest á Norðurlandi vestra
4,1%, næstmest á Austurlandi
3,4% og þvínæst á Norðurlandi
eystra 3,2%. Minnst var atvinnu-
leysið eins og svo ofl áður á Vest-
íjörðum eða 0,2%.
Að öðru leyti voru í febrúar-
mánuði skráðir 47 þúsund atvinnu-
leysisdagar á landinu öllu. Þeir
skiptust þannig á milli kynja að 26
þúsund dagar féllu til hjá körlum
en 21 þúsund atvinnuleysisdagar
hjá konum. Þetta jafngildir því að
2.200 manns hafi að meðaltali ver-
ið á atvinnuleysiskrá í febrúar en
það svarar til 1,7% af áætluðum
mannafla samkvæmt spá Þjóðhags-
stofnunar. Síðasta virka dag febrú-
armánaðar voru þó 2.300 manns á
atvinnuleysiskrá, eða nokkru fleiri
en að meðaltali í mánuðinum, sem
gæti bent til þess að áhrif loðnu-
brestsins væru ekki að fullu komin
fram í atvinnuleysistölum. Skráðir
atvinnuleysisdagar í síðasta mán-
uði voru þó engu að síður 12 þús-
und fleiri en að meðaltali í sama
mánuði síðastliðinn yimm ár.
Af einstökum stöðum úti á
landi þar sem atvinnulausum hefur
fækkað til muna frá mánuðinum á
undan má nefha Akranes, Grundar-
fjörð, Sigluljörð, Skagaströnd, Ól-
afsfjörð, Siglufjörð, Akureyri,
Húsavík, Raufarhöfn, Grýtubakka-
hrepp, Seyðisfjörð, Vopnafjörð,
Bakkagerði, Reyðarfjörð, Fá-
skrúðsfjörð, Breiðdalsvík, Djúpa-
vog, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyr-
arbakka, Vestmannaeyjar, Grinda-
vík, Keílavík og Sandgerði. -grh
Tveir unglingar
vaidir aö
dauða Ulfars
Sautján ára piltur og
fimmtán ára stúlka hafa ját-
að að hafa rænt og veitt Úlf-
ari Úlfarssyni, 28 ára göml-
um Reykvíkingi höfuðáverka
sem leiddu hann til dauða.
Sömu aðilar hafa viðurkennt
að hafa ráðist að manni við
Hverfisgötu sömu nótt, barið
hann og rænt. Pilturinn hefur
ekki áður komið við sögu
réttvísinnar en stúlkan fyrir
þjófnað.
Þessir atburðir gerðust
aðfaranótt 3. mars síðastlið-
inn og fannst Úlfar látinn þá
snemma um morguninn á
baklóð við Bankastræti 14.
Hitt fórnarlambið varð á vegi
lögreglunnar í miðbæ
Reykjavíkur skömmu eftir
árásina þar sem hann var
illa á sig kominn vegna
áverka sem hann hlaut.
Ránsfengur unglinganna
reyndist vera um tvö þúsund
krónur úr báðum ránunum.
Á blaðamannafundi
Rannsóknarlögreglu ríkisins
í gær kom fram að í báðum
árásunum hafði stúlkan lokk-
að fórnarlömbin inn í sitt
hvort portið þar sem pilturinn
réðst að þeim. Hann var ekki
vopnaður barefli heldur var
hann með griflur á höndum
sem hann hafði fest á jám-
plötur. Þessi búnaður var
svo hulinn innaní leður-
hönskum sem hann bar.
Ekki vildi lögreglan upp-
lýsa hvað það hefði verið
sem leiddi til handtöku ung-
linganna, annað en það að
upplýsingar þar um hefðu
borist til hennar. Sigurbjöm
Viðar Eggertsson deildar-
stjóri hjá RLR sagði að lög-
reglan hefði haft úr litlu að
moða við rannsókn þessara
mála I upphafi en komist þó
fljótlega að þeirri niðurstöðu
að sömu aðilar hefðu verið
að verki I báðum árásunum.
Á blaðamannafundinum kom
fram að Úlfar hefði látist um
hálftíma eftir að honum hafði
verið veittir áverkar á höfði.
Við yfirheyrslur yfir ung-
mennunum hefur komið fram
að þau vissu ekki af láti Úlf-
ars fyrr en seinna þegar það
kom fram í fréttum. Þar hefur
einnig komið fram að þau
voru undir áhrifum áfengis
en ekki annarra vímuefna.
Þegar hefur verið lögð fram
krafa um rúmlega mánaðar
gæsluvarðhald og að stúlk-
an verði sett undir forsjá
Barnaverndarnefndar. Að
mati lögreglu er búist við að
stúlkan, sem er undir lögaldri
verði vistuð hjá Unglinga-
heimili ríkisins.
-grh