Þjóðviljinn - 16.03.1991, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 16.03.1991, Qupperneq 2
Sókn inn í framtíðina Þegar þetta er ritað liggur ekki fyrir upp á klukku- stuna eða dag hvenær þinglok verða en líklega verður þinghaldi lokið þegar Þjóðviljinn kemur næst út, á þriðjudag. Eins og jafnan fyrr við þessar aðstæður er mikið um að vera á AÍþingi, mörg og þýðingarmikil mál þurfa afgreiðslu við á síðustu dögum þingsins. Vegna kosninganna í vor er óvenju heitt í kolunum og fer í þeim efnum líka að venju. Kjörtímabilið hefur verið óvenju viðburðaríkt og pólitísk umskipti mikil. Ríkisstjórn Þorsteins Páls- sonar leið útaf í pólitískum hugmyndaskorti eftir rúmlega ár. Við blasti fullkomið reiðileysi í atvinnulífi og verðbólgan mældist í tugum prósenta. Við þessi skilyrði gekk Alþýðubandalagið til liðs við það sem eftir var af ríkisstjórninni og Steingrímur Hermanns- son myndaði nýja stjórn seinni hluta ársins 1988, sem siðan hefur verið aukið við með aðild Borgara- flokksins. Varla verður deilt um að mikil umskipti hafa orðið í þ óðfélaginu á þessi tímabili, vafalaust meiri en nokkurn óraði fyrir, og munar þar mest um þjóðar- sátt um efnahagslegan stöðugleika. Eins og gefur að skilja er stjórnarandstaðan, einkum Sjálfstæðisflokkurinn, í verulegum vand- ræðum því mið- og vinstri flokkunum hefur tekist að koma böndum á verðbólguna en haldið jafnframt frið við öll helstu samtöklaunafólks og atvinnurek- enda, vissulega með alkunnri undantekningu sem snertir BHMR. Kosningabaráttan er með öðrum orðum háð við þau skilyrði að frá er að fara ríkisstjórn sem skilur eftir sig verk sem allir eru sammála um að þurfti að vinna. En hún er líka háð við þau skilyrði að allir ættu að vera sammála um það sem gera þarf næst. En þá kemur heldur betur annað hljóð í strokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram ábyrgðarlausu hjali um skattalækkanir, stöðva á meint skattahækk- unaráform vinstri stjórnarinnar í fyrstu lotu, en byrja síðan að skera. Eins og fyrri daginn er því sleppt að segja frá hvar eigi að skera útgjaldamegin til að mæta niðurskurðinum teknamegin. Flokkurinn hefur komið sér upp nýjum formanni, sem er því vanastur að geta haft alla þá peninga til ráðstöfunar úr borg- arsjóði sem hann hefur kært sig um. Þar að auki hefur hann hvorki þurft að spyrja kóng né prest um hvernig með fjármunina skuli fara. Það verður gæfulegt eða hitt þó heldur ef flokkurinn kemst til aukinna áhrifa undir stjórn hins nýja formanns með skattalækkunaráráttuna í farteskinu, sem í fram- kvæmd leiðir augljóslega til aukins misréttis í þjóð- félaginu þar sem dregið er úr tekjujöfnunarmögu- leikum skattakerfisins. í þessu efni á Sjálfstæðisflokkurinn því miður bandamann í Alþýðuflokknum. Hlýleg afstaða hins nýkjörna formanns Sjálfstæðisflokksins til Alþýðu- flokksins vakti enda athygli á dögunum. Alþýðu- flokkurinn hefur ekki verið fáanlegur til að taka upp sérstakt skattþrep fyrir mjög háar tekjur, né heldur að skattleggja fjármagnstekjur. Hans vegna verðum við enn að búa við skattakerfi sem jafnar ekki lífs- kjörin nema að takmörkuðu leyti, hans vegna verð- um við að sætta okkur við að tekjur af peningum eru friðaðar fyrir armi skattanna en tekjur af vinnu bera fulla skatta. Lífskjarajöfnun verður ekki náð nema með sam- ræmdu átaki sem tekur til launa og margvíslegra aðgerða af hálfu ríkisvaldsins. Alþýðubandalagið hefur gert lífskjarajöfnun að aðalinntaki kosninga- baráttunnar. Þetta er ekki einasta í eðlilegu sam- ræmi við grundvallarhugsjónir flokksins heldur eina skynsamlega og raunhæfa leiðin til að halda stöð- ugleika í þjóðfélaginu. í henni felst vörnin fyrir vel- ferðarþjóðfélagið og sóknarfæri inn í framtíðina. hágé. ÞjÓnVIIJINN Málgagn sósíalisma þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f.. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófsson. Ritstjóm, skrifstofa, afgreiðsla, auglýsingar: Síðumúla 37, Rvík. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð i lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. mars 1991 Síða 2

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.