Þjóðviljinn - 21.03.1991, Blaðsíða 1
Þjotwiijinn
Mars 1991
FERMINGIN
... engin
rosaleg
breyting
Fermingarbörnin
Jönathan og
Salöme ræða ferm-
ínguna, altarisgöng-
una og líkama og
blóð Krists.
Umræða á
villigotum
Viðtal við Pétur
Pétursson doktor í
félagsfræði og guð-
fræðí um gildi ferm-
ingarinnar og um-
ræðu um hana.
tyggja
oblátuna?
Guðfræðinemamir
og fermingarfræðar-
arnir Kristinn Jens
Sigurþórsson og
María Ágústsdóttir
spjalla um ferming-
arundírbúninginn.
Vígsla inn
tímabil
Fermíngin frá sjón-
arhóli mannfræð-
ingsins. Viðtal við
Jóhönnu K.
Eyjólfsdóttur.
Fermingin í
lausu lofti
Einar
Sigurbjörnsson
prófessor í guðfræði
gerir grein fyrir tilgát-
um um uppruna
fermingarinnar, rekur
sögu hennar og
stöðu í dag.
Trú og veraldlegt vafstur
Frá sjónarhóli trúarinnar er ferm-
ingin staðfesting á skírnarsáttmálan-
um og játning á trúnni. En fermingin
virðist jafnframt gegna margþættara
hlutverki en því trúarlega. Þegar börn
hafa fermst eru þau gjarnan boðin
velkomin í „heim fullorðinna“ og talað
um tímamót í lífinu. [ hugum sumra
er fermingin því eins konar mann-
dómsvígsla. Barnið vígist inn í ættina
sem safnast saman, heldur hátíð og
gefur gjafir. Til að flækja myndina
enn frekar má benda á að þótt ferm-
ingin marki ef til vill endalok bernsk-
unnar fer því fjarri í dag að fullorðins-
árin taki við. Við tekur langt og oft
erfitt milliskeið, unglingsárin.
Reglulega blossar upp umræða
um ferminguna og gildi hennar. Ver-
aldlegur þáttur hennar er gjarnan
gagnrýndur harðlega og stundum
réttilega. Hins vegar má spyrja hvort
hægt sé að aðskilja að fullu trúarlega
og félagslega þætti athafna á borð
við ferminguna eða hvort hinir verald-
legu þættir séu veigameiri í dag en
þeir voru áður fyrr. Einnig má spyrja
hvort viðurkenning á félagslegum
þáttum fermingarinnar þurfi á nokk-
urn hátt að draga úr trúarlegu mikil-
vægi hennar.
í þessu blaði er ætlunin að velta
upp slíkum spurningum og skoða
ferminguna frá ýmsum hliðum. Aðil-
arnir sem leitað er fanga hjá eru
fermingarbörn, guðfræðinemar sem
sinna fermingarfræðslu barna, mann-
fræðingur, doktor í guðfræði og fé-
lagsfræði og prófessor við Guðfræði-
deild Háskóla (slands.