Þjóðviljinn - 21.03.1991, Blaðsíða 11
Salóme Huld Garðarsdóttir
og Jónathan G. Pedersen,
sem undirbúa sig nú undir
ferminguna. Mynd: Jim Smart
...engin
rosaleg
breyting
Afhverju íókuð þið þá ákvörð-
un að láta ferma ykkur?
Salóme: Til þess að viðurkenna
skimina.
Jónantan Ég er nú ekki alveg klár
á því, en fyrst við emm skírð þá
verðum við eiginlega að láta ferma
okkur. Þetta er staðfesting á skím-
inni.
Hafa hugmyndir ykkar um ferm-
inguna breyst eftir að fermingar-
fræðslan hófst?
Salóme: Já svolítið. Mér finnst
krakkamir líka yfirleitt taka ferm-
inguna alvarlegar núna en þegar
ffæðslan byijaði.
Jónathan: Mér finnst það eigin-
lega ekki. Ég hef nú reyndar aldrei
komið í fermingu áður svo ég hef
ekki hugsað mikið um hana en
maður tekur eftir því að sumir taka
ferminguna alvarlegar nú en áður
en fræðslan byijaði. Það er samt
engin rosaleg breyting.
Hvað lœrið þið ífermingarfrœðsl-
unni?
Salóme: Við lærum um kirkjuna.
Jónathan: Biblíuna, Jesú Krist og
fæðingu hans og upprisu.
Salóme: Við læmm líka hvað hin
heilaga þrenningin er, um sakra-
mentið og svoleiðis.
Skiptir trúin ykkur meira máli
núna en áður?
Salóme: Kannski hugsar maður
eitthvað meira um hana.
Jónathan: Trúin skiptir sennilega
pínulítið meira máli en áður.
Finnst ykkur þið vera að verða
fullorðin þegar þið fermist?
Salóme: Já mér finnst það, en
samt finnst mér ekki að fólk eigi
að koma eitthvað öðmvísi fram við
okkur þó við höfum fermst.
Jónathan: Já það er alla vega tal-
ið að við verðum fullorðin. Fólk
segir það að minnsta kosti.
Finnst ykkur fermingarathöfnin
sjálf mikilvæg?
Salóme: Já það finnst mér.
Jónathan: Það er náttúmlega altar-
isgangan þegar við drekkum blóð
jesú og borðum líkama hans.
Salóme: Þegar krakkamir hugsa
um ferminguna þá er það aðallega
altarisgangan sem þau hugsa um.
Láta allir krakkar ferma sig?
Salóme: Nei.
Jónathan: Ég á til dæmis einn vin
sem lætur ekki ferma sig og það
virðist ekki skipta neinu máli þó
hann einn láti ekki ferma sig.
Sumir vilja að krakkar séu eldri
þegar þeir fermast, hver er ykkar
skoðun á því?
Jónathan: Ég er nú ekki sammála
þvi að við séum of ung til að ferm-
ast. Mér finnst þetta ágætur aldur.
Ef þið mættuð ráða, mynduð þið
þá vilja breyta einhveiju í sam-
bandi við ferminguna.
Salóme: Nei, það held ég ekki.
Jónathan: Ég held að það sé
ágætt að hafa þetta bara eins og
það er.
Stutt spjall
við tvö
fermingarbörn
sem hafa verið
í fermingar-
fræðslu í vetur.
Þau heita
Jónathan G.
Pedersen og
Salóme Huld
Garðarsdóttir
Nytsamar
fermíngargjafir
Skrifborð m/skáp
og hliðarborði.
Verð aðeins kr. 18.900,-
Einnig margar aðrar gerð-
ir af ódýrum skrifborðum
og skrifborðsstólum.
Bóka- og möppuhillur
í úrvali.
, A
HUSGOGN OG
INNRÉTTINGAR
ARMULA 3
68 69 00
PÁSKATILBOD
10-40% AFSLÁTTUR!
Barnaskíðapakkar frá kr. 10.900.-
Gönguskíðapakkar frá kr. 9.350.-
Skíðagallar frá kr. 8.700.-
Barnaúlpur frá kr. 2.900.-________
Leðurskautar frá kr. 4.490.-
Tökum notaðan skíðabúnað upp í nýjan.
Sendum í póstkröfu.
B[SPORTl
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290
(Nýja húsið gegnt Tónabíói)
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN - Fermingarblað