Þjóðviljinn - 21.03.1991, Qupperneq 9
SIEMENS
Það er ekki hægt
að tyggja neitt
hrátt ofan í
börnin
manndómsvígslu eða hvað á að
kalla það þá er það auðvitað flnt.
Það er ágætt að hafa fræðslu íyrir
bömin; öðruvísi fræðslu en fengin
er í skólunum. Mér finnst ekkert
að athuga við þessa borgaralegu
athöfri sem slíka, en hins vegar er
ég auðvitað pirruð út af notkuninni
á orðinu ferming.
Kristínn: Krakkamir læra víst
margt. Þarna er kynfræðsla,
fræðsla um réttindi einstaklingsins,
lög samfélagsins og siðalögmál og
slíkt er auðvitað mjög þarft.
Hefur það tiðkast að guðfrœði-
tiemar sinni uppfrœðslu ferming-
arbarna og hvaða form er á
þessu?
Kristinn: Við erum launaðir
starfsmenn við uppfræðsluna og
vinnum hjá ákveðnum sóknar-
prestum.
María: Það er misjafnt hvem-
ig þetta er útfært. Hvað mig varðar
þá er ég sjálf alveg með tvo hópa
og sé um fræðslu alveg til jafns við
prestinn. Auðvitað fylgdist ég með
starfí hans í upphafi en nú er ég al-
veg sjálf með þessa fræðslu.
Kristinn: Slíkt form er algeng-
ast þegar guðfræðinemar sjá um
fermingarffæðsluna.
María: Með þessu móti fá
guðfræðinemar þjálfun í ferming-
arfræðslu. Ég held líka að það sé
mjög gott fyrir bömin að fleiri en
prestamir sinni fræðslunni og þá
gjaman yngra fólk eins og við tvö.
Einnig tel ég gott að utanaðkom-
andi leikmenn taki þátt.
Kristínn: Varðandi fræðsluna
og börnin langar mig til að taka
eitt fram. Það er ekki hægt að
tyggja neitt hrátt ofan í bömin sem
eitthvað staðreyndahjal, heldur
verður að veita þessa fræðslu
þannig að þeim aukist skilningur.
Krafa barnanna er sú að skilja
þetta. Þrettán eða fjórtán ára bam
skilur ekki alla leyndardóma trúar-
innar og það er mjög erfitt að bera
þessa leyndardóma trúarinnar á
borð fyrir þau. En þau vilja skilja
og átta sig jafnffamt á því að skiln-
ingur er forsenda þess að þau geti
lifað þetta í samræmi við það sem
trúin býður þeim.
María: Þetta er alveg rétt og
þess vegna þurfúm við líka að tala
mál sem þau skilja. Einnig má fara
fleiri leiðir. Samhliða fermingar-
fræðslunni endum við í Grensás-
kirkju hvem tíma á helgistund eða
bænastund. Slíkt tíðkast ekki alls
staðar en samkvæmt nafnlausum
könnunum sem við höfum gert
meðal krakkanna em þessar stund-
ir mörgum þeirra mjög dýrmætar.
Jafnvel dýrmætari en sjálf fræðslan
því þama finna þap fyrir einhveiju
góðu. Ég veit ekki hvernig þau
skynja það en mjög mörg biðja á
þessum stundum. Við biðjum því
saman og stundum syngjum við
saman. Þe^si þáttur er nauðsynleg-
ur til þess að þau lifi það sem við
erum að segja þeim eða komist
sjálf í snertingu yið það.
Kristinn: í þessu sambandi
má líka benda á Skálholtsferðimar.
Flest öll böm á stór Reykjavikur-
svæðinu fara í Skálholt og em þar
einn sólarhring. í Skálholti er stíf
dagskrá þar sem áhersla er lögð á
tilbeiðsluna. Þar hafa þau mörg
upplifað trúna að mínu mati og þá
hjálpar til að Skálholt er áhrifarík-
ur staður.
María: Varðandi upplifúnina
er gaman að segja frá því að í
Skálholti vomm við með messur
kl. 12 á miðnætti. Þá var aldimmt
og bömin bám kerti út í myrkvaða
kirkjuna. Þetta hefur orkað mjög
sterkt á þau.
Að lokum, er til svona ritúal
eða athöfn án trúar?
María: Min skoðun er nú
reyndar sú að innst inni séu allir
trúaðir. Það er bara misjafnt hvað
fólk trúir á.
Sterk, létt og þægileg Kúsgögn
Stóll og tölvuborð —
fermingartilboðsverð
frá kr. 1 5.100.
Stóll og tölvuborð
með hliðarplötu —
fermingartilboðsverð
frá kr. 16.800.
Stóll — fermingartilboðs-
verð frá kr. 5.500.
FERMINGARTILBOÐ
H
u.
<
«
O
TÖKUM
HÖKDUM
SAMAS
Tökum höndum saman, leggjum grunn
aö framtíð fermingarbarnsins.
Gefum því íslensku alfræðiorðabókina
—- háskóla heimilanna, bók sem
byggjandi er á.
Hugmynd aö
fe rmingar gj öf
ÖRN OG $ ÖRLYGUR
Síöumúla 11 • Sími 84866
&ÍSLEHSKA ALFRÆÐlOROABÓKtN - HASKÓLI HEIMILANNA iSLENSKA ALFRÆOIORDABÓKIN ■ HASKÓLI HEIMILANNA tL
•k VNNV1ÍWI3H IIÓHSVH - NIKÓSVÓI10I03VH31V VHSN31S| VNNV1IWI3H IIOHSVH - NIH08VOHO10»HJ1V VHSN31SI
Sjónvarpstœki
Sjónvarps-
myndavélar
Hljómtœkja-
samstœður
Ferðaviðtœki
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMrTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Síða 9
ÞJÓÐVILJINN - Fermingarblað