Þjóðviljinn - 05.04.1991, Qupperneq 3
Framboðs-
vandinn
leystur
Undanfarnar vikur og mán-
uði hafa stjórnmálaflokkar
og samtök hér á landi gengið í
gegnum þann erfiða hreinsun-
areld að velja sér fulltrúa á
framboðslista til kosninga. Hef-
ur þetta fulltrúaval iðulega leitt
til kiofnings sem kunnugt er, og
munaði reyndar litlu að svo
færi hjá Framsóknarflokknum
nú.
Ekki hafa menn alltaf verið að
víla fyrir sér þennan vanda, og má
segja að Siglfirðingar hafi fúndið
á honum snilldarlega lausn árið
1919, þegar fyrst var kosið þar til
bæjarstjómar eftir að bærinn fékk
kaupstaðarréttindi. í bók sinni
Brauðstrit og barátta, fyrra bindi,
segir Benedikt Sigurðsason ífá
því að hefð hafi verið fyrir því á
Siglufirði að kaupmennimir í
plássinu skipuðu hreppsnefndina
ásamt með héraðslækninum og
sóknarprestinum. En þegar kosið
var í bæjarstjóm í fyrsta skipti
vom tveir listar í framboði, listi
Kaupmannafélagsins og listi
Verkamannafélagsins. Var það í
fyrsta skipti sem stéttaandstæð-
umar í bænum tókust á um mál-
efni bæjarins með svo formlegum
hætti.
Einn var þó sá maður á Siglu-
Séra Bjarni Þorsteinsson frambjóðandi Verka- Séra Bjami Þorsteinsson frambjóðandi Kaupmanna-
mannafélagsins félagsins
firði sem var svo hafinn yfir öll
slík stéttasjónarmið, að það þótti
ekki nema sjálfsagt að hafa hann á
báðum listum. Það var sóknar-
presturinn, séra Bjami Þorsteins-
son, sem þekktastur er fyrir það
affek að hafa safnað íslenskum
þjóðlögum og bjargað þannig
dijúgum þætti af þjóðmenningu
okkar frá glötun. Það mun vera
einsdæmi í stjómmálasögu Is-
lands að sami maðurinn hafi skip-
að sæti á listum höfúðandstæð-
inganna i kosningum, en undan-
tekningin sannar kannski þá reglu
sem séra Bjami hefúr greinilega
skilið, að andstæðumar em tvær
hliðar á sama peningnum, hvort
sem er í pólitíkinni, hjónabandinu
eða kraftaffæði Newtons.
-ólg.
i
Auglýsing
um styrki og lán til þýðinga
á erlendum bókmenntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 um
þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána útgefendum eða
styrkja þá til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku
máli. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi:
1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur.
2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs i fjárlögum 1991 nemur 6.060.000
krónum.
Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í af-
greiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, og skulu umsóknir hafa borist ráðuneytinu fyrir 25.
apríl n.k.
Reykjavík, 3. apríl 1991
Menntamálaráðuneytið
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Orlofshús
Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í orlofshúsum í
sumar frá og með mánudeginum 8. apríl á skrifstofu fé-
lagsins að Lindargötu 9. Þeir sem ekki hafa áður dvaiið í
húsunum ganga fyrir með úthlutun til og með 12. apríl.
Húsin eru:
2 hús í Svignaskarði
1 hús í Vatnfirði
1 hús að Vatni í Skagafirði
2 íbúðir á Akureyri
1 hús á lllugastöðum
2 hús á Einarsstöðum
1 hús í Yík í Mýrdal
5 hús í Ölfusborgum
Vikuleigan er krónur 7.000,00 nema að Vatni krónur
10.000,- og greiðist við pöntun.
Verkamannafélagið Dagsbrún
I
*
3
<
meiri háttar
osm
TILB0Ð
stendur til 19. aprfl
á 1 kg stykkjum af brauðostinum góða.
Verð áður:
kr. 794/kílóið
Tilboðsverð:
kr.594/
kílóið
200 kr.
afsláttur pr. kg.
i 111