Þjóðviljinn - 05.04.1991, Blaðsíða 5
m m \ _____
Fhqt i i n a nwiíFTTní
kjl JL JT Jl^JlIí JL JL JJ\
Akurevri
Verölagsráðiö kistulagt
Sjómenn samþykktu tilboð Útgerðarfélagsins og fyrsti togarinn farinn til veiða
Sjómenn á ísfisktogurum
Útgerðarfélags Akureyr-
inga samþykktu í gær með
miklum meirihluta atkvæða
tilboð fyrirtæksins um mark-
aðstengingu 15% aflans og að
fast verð verði greitt fyrir 85%
aflans.
Fyrsti togari ÚA hélt til veiða
í gærkvöldi og síðan fara þeir út
hver á eftir öðrum og þeir síð-
ustu á laugardag. Konráð Al-
freðsson formaður Sjómannafé-
lags Eyjaljarðar og Gunnar
Ragnars framkvæmdastjóri ÚA
eru sammála um það að með
þessum samningi hafí Verðlags-
ráð sjávarútvegsins verið kistu-
lagt fyrir norðan.
í samningnum sem gildir
fram á haust mun Útgerðarfélag-
ið greiða fast verð fyrir 85% afl-
ans. Fyrir kílóið af þorski verða
greiddar 58 krónur, 37 krónur
fyrir stóran karfa og 27 krónur
fyrir þann minni. Fyrir kílóið af
ýsu verða greiddar 75 krónur
fyrir kilóið og 53 krónur fyrir
kílóið af grálúðu. Fimmtán pró-
sent aflans verður síðan mark-
aðstengt sem mun taka mið af
því verði sem greitt er hveiju
sinni á innlendum fiskmörkuð-
um. Talið er að með þessu sam-
komulagi hækki fiskverð til sjó-
manna um 5,6%.
Konráð Alfreðsson formaður
Sjómannafélags Eyjaljarðar
sagðist í gær vera mjög ánægður
með þessa niðurstöðu og þá sér-
staklega að hluti aflans skuli nú í
fyrsta skipti vera markaðstengd-
ur. „Þetta er stór sigur fyrir sjó-
mennina að ná fram þessari hug-
arfarsbreytingu hjá forráða-
mönnum ÚA“, sagði Konráð.
Gunnar Ragnars fram-
kvæmdastjóri ÚA sagðist einnig
vera mjög ánægður að þessi fisk-
verðsdeila skyldi hafa fengið
þennan farsæla endir og að skip-
in færu aftur til veiða. Hann
sagðist einnig gera ráð fyrir að
samningurinn myndi hafa for-
dæmisgildi fyrir aðrar fisk-
vinnslur. Gunnar sagði jafnftamf
að samningurinn mundi ekki
hafa nein áhrif á þá stefnu fyrir-
tæksins að fullvinna allan afla
heima í héraði. -grh
Hveragerði
Aftur
rauður
bær
Kosningaskrifstofur Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks í Hveragerði
eru undir sama þaki og sameig-
inlega nýta flokkarnir fundarsal
og kaffiaðstöðu. Þannig er mjög
líflegt kosningastarf á staðnum
því Hvergerðingar geta þá farið á
sama staðinn og slegið þrjár flug-
ur í einu höggi.
„Þetta er afsprengi af því góða
samstarfi sem hefur verið milli
þessara flokka eftir að við felldum
íhaldið eftir margra ára óstjóm í
bænum,“ sagði Armann Ægir
Magnússon formaður Alþýðu-
bandalagsins í Hveragerði. Astæða
hins sameiginlega húsnæðis er að
flokkamir þrír mynduðu með sér
félag um lista þessara þriggja
flokka, H-listann, og að loknum
sveitarstjómarkosningum í fyrra
keypti félagið húsnæði.
„Það er miklu meira líf í þessu
heldur en ef hver væri í sínu homi,
það er meira gaman og meiri gálga-
húmor en ella,“ sagði Armann en
hann sagði að mikill munur væri að
hafa kosningaskrifstofii því fyrir
síðustu kosningar var starfið í
heimahúsi.
Um kosningastarfið sagði Ar-
mann að andrúmsloftið væri mjög
óvenjulegt, flestir væm mjög já-
kvæðir og teldu Margréti Frí-
mannsdóttur ömgga inn. Þetta
sagði Ármann að væri hættulegur
áróður. Hann sagði að öfugt við
það sem hefði verið áður væri nú
erfitt að fá fólk til starfa og ætti það
við um alla flokka, hugsanlega þar
sem þetta færi allt svo seint af stað.
„Við emm i kosningabaráttu nú
á allt öðmm forsendum en áður.
Við höfúm alltaf verið flokkurinn
sem hefúr verið í mikilli vöm en nú
emm við í jákvæðri sókn vegna
þess að við komum svo vel útúr
þessari ríkisstjóm," sagði Ármann
og bætti við að viðbrögð manna á
Hvolsvelli til dæmis hefðu alger-
lega snúist við þar sem áður hafi
jafnvel verið reynt að loka á Mar-
gréti en nú væri henni tekið opnum
örmum.
„En við getum ekki sagt að allt
þetta fólk kjósi okkur,“ sagði Ár-
mann sem bætti við að viðhorfið
hefði breyst víðar. „Nú er Hvera-
gerði að verða rauður aftur en hann
var rauður listamannabær í gamla
daga,“ sagði Ármann sem var bjart-
sýnn á framgöngu sinna manna í
kosningum eftir tvær vikur.
-gpm
Samgöngumálaráðherra og hluti nefndarinnar sem kynnti skýrslu slna (gær. Mynd: Jim Smart.
Revki avíkurflugvöllur
Æfinga- og ferjuflugi hætt
Nefndarskýijsla um áhættumat vegna Reykjavíkurflugvallar kynnt
Stórfelldar breytingar munu
eiga sér stað, ef hugmyndir
þær sem nefnd um áhættumat á
Reykjavíkurflugvelli hefur lagt
fram, verða samþykktar. Má
þar nefna að allt æf-
inga-kennslu-og einkaflug fær
aðstöðu á nýjum flugvelli í nág-
enni höfuðborgarinnar. Ferju-
flugi og millilandaflugi einka-
véla verður beint til Keflavíkur.
Og hætt verður notkun á
NA/SV-braut flugvailarins og
henni lokað.
Það var í lok árs 1988, að
Steingrímur J. Sigfússon skipaði
nefnd sem átti að vinna áhættu-
mat vegna Reykjavíkurflugvallar.
Álfheiður Ingadóttir formaður
nefndarinnar sagði að helstu nið-
urstöður nefndarinnar fælust í því
að breyta flugvellinum þannig að
hann þjóni vel innanlandssam-
göngum sem og sjúkraflugi. Ann-
Búvörusamnin gurínn
AogDá öndverðum meiði
yfir á fundinum, en afdráttarlaus
afstaða þessara flokka til máls-
ins hefur ekki legið fyrir til
þessa. Samningurinn markar
hins vegar nýjan grundvöll fyrir
landbúnaðinn og einkum sauð-
fjárræktina í landinu í ffamtíð-
inni og hefur því grundvallar-
þýðingu bæði fyrir framleiðend-
ur og neytendur.
-ólg.
Z kosningafundi í Há-
skólabíói í gær kom
fram að Alþýðuflokkurinn
styður ekki nýgerðan búvöru-
samning, en Sjálfstæðisflokk-
urinn er honum samþykkur.
Það voru þeir Friðrik Zop-
husson, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Al-
þýðuflokksins, sem lýstu þessu
ar flugrekstur yrði um leið fluttur
ffá höfúðborginni, en það kemur
til með að létta á umferðarþung-
anum og drægi um leið úr ónæði
kringum völlinn og minnkaði
slysahættu.
Álfheiður sagði að tillögur
nefndarinnar sem drægu úr eld-
og sprengjuhættu væru á þá leið
að gas- og olíugeymar við
Skeijafjörð verði fjarlægðir. Elds-
neytisgeymar á flugvallarsvæðinu
verði flarlægðir og birgðar-
geymslum komið upp fyrir utan
öryggisvæði flugbrautanna.
Guðjón Petersen ffamkvæmd-
arstjóri almannavama ríkisins var
einn nefndarmanna. Hann sagði
að þegar áhættumatið var skoðað
hafi verið ákveðið að miða það
við slysatiðni við flugvöllinn á ár-
unum 1980-1989 en tímabilið þar
á undan þótti ekki viðmiðunar-
hæfl vegna mikillar ffamþróunar
á sviði flugsins. Miðað við þær
tölur sem fengust, benda líkur til
að búast megi við flugslysi á eða
við flugvöllinn á tæplega tveggja
ára fresti. .
-sþ
Blönduós
Hafnar-
framkvæmdir
í lausu löfti
„Þessar fyrirhuguðu hafn-
arframkvæmdir á Blönduósi
eru eins mikið í lausu lofti og
hægt er og bera eins mikinn
kosningasvip og mögulegt er.
Hér er greinilega verið að
egna fyrir kjósendur á
Blönduósi án þess að hinir
sömu aðilar hafl nokkra
möguleika á að standa við það
að svo stöddu, sagði Ragnar
Arnalds um fyrirhugaðar
hafnarframkvæmdir á
Blönduósi.
Svo virðist sem fjárveitinga-
nefúd Alþingis hafi bæði farið
út fyrir verksvið sitt, þegar hún
útdeildi fjármagni vegna loðnu-
brests til hafnarframkvæmda á
Blönduósi sem fyrirhugaðar eru
í haust, og ennffemur fengið
villandi upplýsingar um vilja
þingmanna kjördæmisins til
málsins. Sighvatur Björgvins-
son, formaður fjárveitinga-
nefúdar, segir að nefhdin hafl
fengið þær upplýsingar að allir
þingmenn kjördæmisins hafi
verið búnir að taka ákvörðun um
að ráðist yrði í þessar hafnar-
ffamkvæmdir. Því mótmælir
Ragnar Amalds harðlega.
Ragnar segir að í tillögum
samgönguráðherra til fjárveit-
inganefúdar Alþingis um að
veita fé til sjávarplássa vegna
loðnubrestsins hafi Blönduós
ekki verið þar með. Ragnar seg-
ir að það sé alls ekki í verka-
hring fjárveitinganefndar að
skipta því fjármagni sem ákveð-
ið hefúr verið að veita til
sjávarplássa sem urðu illa úti
vegna loðnubrestsins. Hann
segir að fjárveitinganefnd geti
aðeins samþykkt eða hafnað til-
lögum ráðherra. Ragnar segir að
fúlltrúi Alþýðubandalagsins í
flárveitinganefnd, Margrét Frí-
mannsdóttir, ekki verið boðuð á
fúnd nefndarinnar þar sem þetta
var ákveðið, heldur hafi þama
verið að verki fúlltrúar Fram-
sóknar, Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks.
Ragnar segist vera alveg
gáttaður á þeim ummælum
hafnamálastjóra í Mbl. í gær, að
allir þingmenn
Norðurlands vestra hafl
samþykkt að fjármagna hafnar-
framkvæmdimar á Blönduósi
með láni sem yrði endurgreitt á
sex ámm, jafnframt því sem þeir
mundu beita sér fyrir tjárveit-
ingum til þess ama á næstu ár-
um. „Eg skil bara ekki hver hef-
ur logið þessu að hafnamála-
stjóra og fjárveitinganefnd,"
sagði Ragnar Amalds.
-grh
Fj árveitinganefnd
Norðfirðingar mótmæla
Bæjarráð: Vinnubrögð fjárveitinganefndar vegna loðnubrestsins eru algjörlega siðlaus
æjarráð Neskaupstaðar
kom saman til fundar í
gærmorgun þar sem samþykkt
var harðorð mótmælaályktun
vegna þeirrar ákvörðunar fjár-
veitinganefndar Alþingis að út-
hluta engu fé til bæjarins, af
þeim 100 miljónum króna sem
Alþingi samþykkti að veittar
yrðu til hafnarframkvæmda á
þeim stöðum sem verst urðu úti
vegna loðnubrestsins.
I ályktun bæjarráðs kemur
fram að Neskaupstaður hefur ver-
ið um árabil ein stærsta loðnu-
verstöð landsins og því hafi
loðnubresturinn á vertíðinni kom-
ið sér afar illa fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og sveitarfélagið.
Bæjarráðið telur það sýna al-
gjört siðleysi af hálfú fjárveit-
inganefndar að úthluta hluta af
þessu fjármagni til hafna eins og
Blönduóss, sem aldrei hafa haft
tekjur af loðnuvinnslu. Bæjarráð-
ið krefst þess að ríkisstjómin end-
urskoði úthlutun íjárveitinga-
nefndar og sjái til þess að þeir
staðir, sem raunverulega urðu fyr-
ir búsifjum vegna brestsins, fái
framlög af þessu fjármagni.
-grh
Föstudagur 5. apríl 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5