Þjóðviljinn - 05.04.1991, Side 10

Þjóðviljinn - 05.04.1991, Side 10
Evrópuríkið þarf orku frá íslandi íslendingar eru vel settir með óbeislaðar orkulindir. Orka verður auðseljanleg á komandi árum og þá er gott að hafa ekki bundið sig á Atl- antal-klafann. Orkumálastjóri, Jakob Bjömsson, hefur látið svo um mælt að orkulindir megi ekki kalla auðlindir, fyrr en þær hafa verið beislaðar. Einnig hefur hann hvatt til aukinnar ál- bræðslu á Islandi. Hann telur að með því móti geti Islendingar lagt sitt af mörkum við að draga úr gróðurhús-áhrifunum í ver- öldinni, jafnvel þótt við þurfum sjálf að taka á okkur meiri mengun. Þetta væri hnattræn hugsun í anda Brundtland skýrslunnar, segir Jakob, og okkur til sóma að bræða sem mest af áloxíði hér uppi á Norð- urhjaranum. Þessari grein svar- aði Einar Már Guðvarðarson skólastjóri í Hrísey ágætlega á dögunum og hef ég litlu við það að bæta. Venezuela og Kanada er velkomið að nota sína gríðar- legu vatnsorku til álbræðslu án þess að Islendingar séu að bjóða niður verðið fyrir þeim. 1 orku- skorti nútímans er hvergi verið að reisa álbræðslu, sem fær orku úr kolaveri. Það er fáránlegt að nota svona rök. Japanar létu sig ekki muna um að loka öllum ál- verum sínum á einu bretti, þegar þeim fannst orkuverðið vera orðið of hátt. Framleiddu þeir þó 1.000.000 tonn á ári. Slíkan munað gætum við ekki leyft okkur hér. ■ ■■ A öðrum vettvangi lét Jakob svo um mælt að Island yrði að Homströndum Evrópu, algjör- um eyðibyggðum, ef við fengj- um ekki nokkrar álbræðslur fram til aldamóta til að viðhalda hér sæmilegum lífsgæðum. Þetta minnir satt að segja ó- þyrmilega á helstu rök Sjálf- stæðismanna á sjöunda áratugn- um, þegar Straumsvíkursamn- ingurinn var gerður: „Eins gott að koma þessari orku í verð, því raforkufram- leiðsla í kjamorkuvemm er að verða svo ódýr og ömgg að við munum ekki standast þeim snúning að nokkmm ámm liðn- um!“ Þetta þurftu menn nú að hlusta á þá, þótt margir bentu á takmarkanir kjamorkuveranna. Allt hefur það komið á daginn. Lærdómsríkt er að lesa um vandamál Frakka í raforkumál- um. Þar em 75% raforkunnar framleidd í 54 kjamorkuverum víðs vegar um landið, sem byggð vom á ámnum 1960 til 1987. Til skamms tíma öfúnd- uðu Bretar og Bandaríkjamenn (sem framleiða 19% raforkunn- ar með kjamakljúfum) franska ríkisfýrirtækið EDF (Electricité de France) og verktaka þeirra, Framatome, mjög af fram- kvæmdahraðanum. Þeir virtust líka geta unnið í friði fyrir kjamorkuandstæðingum, ólíkt því sem víða þekktist. Agæti kerfisins átti meðal annars að sjást á því að 10% orkunnar frá EDF var flutt til nágrannalanda sem afgangsorka. En nú stendur forstjóri EDF, Jean Bergougnoux, frammi fýrir alvöru lífins! Hinn duldi um- hverfiskostnaður, sem fylgir kjamorkuúrganginum er nú miskunnarlaust dreginn fram í dagsljósið af eftirlitsmönnum Evrópuríkisins (ER). Áður hafði franska tækniveldinu tekist bærilega að sópa vandamálun- um undir teppið og það fór ekki hátt að EDF var að tapa stómm fúlgum á rekstri kjamakljúf- anna. Orkusölufyrirtæki ER krefj- ast þess nú að allir séu látnir sitja við sama borð. Kjamorku- verin em líka mörg komin til ára sinna og bilanatíðni innan veggja þeirra eykst. Hættan á kjamorkuslysum verður sífellt meiri og allur almenningur er orðinn meðvitaður um það. Rekstri elsta kjamakljúfsins hefur nú verið hætt og er nú orkuverið keyrt á jarðgasi. Þeirri stefhu verður sennilega fram haldið til að minnka áhætt- una í raforkuframleiðslunni. Því hefúr líka verið hreyft í Frakklandi að selja orkuverin einkaaðilum til að auðvelda fjármögnun nauðsynlegra end- urbóta. Þessu hafnaði franska ríkisstjómin strax og taldi ein- sýnt að orkuverð til almennings ryki upp við það. Raforka er mikið notuð til húsahitunar og er því mikilvægur þáttur franskra efnahagsmála. Samkeppnisaðilar Frakka á Bretlandseyjum og á Ítalíu hafa lengi haft hom í síðu þeirra fýr- ir útflutning niðurgreiddrar raf- orku í skjóli lélegra umhverf- iskrafna. En Evrópuríkið hefúr sérstakan samkeppni-eftirlits- mann til að gæta fýllsta réttlætis og nú hótar Sir Leon Brittan að kæra tíu af tólf aðildaþjóðum ER fýrir óheiðarlega samkeppni í orkugeiranum! Með því að tengja saman orkunet Evrópu vonast forkólfar ER til að ná fram aukinni hag- kvæmni og lægra orkuverði fýr- ir notendur. Þeir vona líka að ná megi fram orkuspamaði, þegar til lengdar lætur með þessu kerfí. Sótsvört, mengandi kola- orkuver eða geislavirkni í um- hverfmu er ekki framtíðarsýn ER. Óneitanlega skýtur það samt skökku við þegar fréttist af á- formum ENEL, ítalska raforku- risans, í Sovétríkjunum. Þeir hafa í huga að reisa þar 13.000 MW raforkuver, þar sem brennt væri jarðgasi. Fjórðungur raf- orkunnar væri síðan leiddur um Austur-Evrópu alla leið til ítal- íu. Dálaglegur strengur það! Frakkamir hafa ekki heldur setið auðum höndum síðan lok- að var á kjamorkuuppbygging- una heima fýrir 1989. EDF og Framatome byggja nú 900 MW kjamorkuver í Ungverjalandi fýrir þýskt og ítalskt lánsfjár- magn. Lánin á síðan að endur- greiða með raforkusölu ein- göngu. Þetta hefði nú einhvem tíma verið kallað að leika tveim- ur skjöldum. Af þessum fféttum má ráða að ömggur markaður bíður Is- lendinga hjá ER, þegar fram líða stundir. Strengur yfir hafið verður þá vænlegur kostur, ef allri raforku okkar hefúr ekki þegar verið ráðstafað hér í þungaiðnað. Ál-Jónamir og orkumála- stjóri halda samt áfram Hom- stranda-og heimsósómatali sínu áfram á hveijum fundinum á fætur öðmm. Af því að stutt er frá páskum er best að svara svona mgli með einfoldum málshætti: Enginn veit hvað átt hefúr, fýrr en misst hefur! Þorskará þurru landi Eitt af því fáa, sem menn deila ekki um á íslandi, er að þjóðin byggir tilveru sína að langmestu leyti á fiskveiðum og fiskvinnslu. Fiskimiðin við ísland em langstærsta auðlind okkar. Það er ótrúlega stutt síðan Islendingar áttuðu sig á því að auðlindir geta gengið til þurrðar, ef ekki er rétt á málum haldið. I þorskastríðunum beittum við meðal annars þessum rökum. Margra ára starf Hafrann- sóknarstofnunar og bláköld reynsla okkar af hmni fiskistofna gerði þennan málflutning trúverð- ugan á alþjóðavettvangi og höfð- um við að lokum sigur. Þótt ýmsir gæli nú við inn- göngu í Evrópuríkið er opnun ís- lensku fiskimiðanna of stórt bein í háls flestra landsmanna að kyngja, þegar landhelgisbarátt- unnar er minnst. Kvótakerfi er nú við lýði og deila menn endalaust um ágæti þess. Grundvallarhugs- unin er að sjálfsögðu rétt, þ.e.a.s. takmörkun veiða á hveijum fisk- stofni í samræmi við tillögur og mælingar fiskifræðinga og ann- arra fagmanna. Úthlutun kvóta hefur hins vegar orðið meira deilumál manna á meðal. Með núverandi kerfi var upphafiega stefnt að hámarks hagkvæmni við veiðamar og tekið tillit til byggðasjónarmiða. Markaðurinn hefur nú haft töluverð áhrif á kvótaskiptinguna, miðað við fyrstu forsendur. Hvort það hefur stuðlað að aukinni hagkvæmni við veiðam- ar, ætla ég mér ekki að dæma. Ekki heldur að kveða uppúr um á- sakanir um að smáfiskadráp sé fýlgifiskur kerfisins, -allt að 100.000 lestir fara aftur dauðar í hafið -segja sumir. Þama verða sjómenn að eiga við eigin sam- visku og lífssýn. Nýliðun í þorsk- stofninum er hins vegar meira á- hyggjuefni. Nú hefur verið stað- fest, að þorskklakið virðist hafa misfarist fimmta árið í röð. Treysta þarf orðið á Grænlands- göngu til að ná í land sama afia og áður. Endalaust má velta vöngum yfir ástæðum þessa: Höfum við veitt of mikið af loðnu undanfarin ár? Vantar þorskinn æti? Er ástand sjávar við ísland eitthvað að breytast? Er þynning ósonlags yfir Norður- hveli farin að hafa áhrif á sjávar- svif? Er mengun að aukast í sjón- um? Hefur þetta kannski alltaf verið svona sveiflukennt? Eins og áður sagði deila menn ekki um nauðsyn þess að Islend- ingar þurfi að eignast fleiri góða þorskárganga og skilja betur vist- kerfi hafsins til að komist verði hjá þessum kollsteypum, sem ein- I UM AÐSKILJANLEGAR NÁTTÚRUR kennt hafa íslenskt efnahags-og atvinnulíf síðastliðna áratugi. Hvemig verður þessu takmarki best náð? Fyrsta skrefið er vafalaust fólgið í áðumefndum rannsókn- um og þeirri breytingu hugarfars- ins að líta á sjávarútveginn út frá sjónarmiðum búskapar. Hafið er aldingarður íslendinga en ekki vígvöllur sjómanna. Fiskurinn í sjónum er sannarlega sameign allra landsmanna. Þess vegna á hluti arðsins af veiðunum að leggjast aftur til ávöxtunar í sjón- um. Ég get ekki verið sá eini, sem velti því íýrir mér hvort eldi á þorskseiðum til hafbeitar sé ekki raunhæfur kostur til eflingar ís- lenska þorskstofninum og jafn- framt til styrktar íslenskum seiða- eldisstöðvum. Fjármögnun þessa fýrirtækis yrði gerð með hluta af afrakstri aflagjalds þess sem þeir Jóhann Antonsson og Guðjón Á. Kristinsson lýstu fýrir skömmu í blöðum. Svona seiðaeldi hefur þegar verið tekið upp i nokkrum ná- grannalanda okkar og því fúll á- slæða fýrir íslendinga að huga að þessu strax og sitja ekki eftir eins og þorskar á þurrn landi eins og gerðist í laxeldinu. EinarValur Ingimundarson 10 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.