Þjóðviljinn - 05.04.1991, Page 13
(SIENSKA AUClfSINCASIOFAN HF.
Héðinn Valdemarsson
Tilvistarvandi Al-
þýðubandalagsins á
7unda áratugnum
Á tímum viðreisnarstjómar Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuílokks 1959-
1971 voru miklar deilur í Alþýðu-
bandalaginu. Undirrótin er einföld að
mati mínu. Stærsti hluti Alþýðubanda-
lagsins, Sósíalistaflokkurinn, sá stóran
hluta tilverugrundvallar síns hrynja:
Ástandið í Austur-Evrópu reyndist
vera martröð en ekki fýrirheitna land-
ið.
Mjög skiptar skoðanir vom á því
hvemig bregðast átti við þessum að-
stæðum og „lausnin" fólst lengi vel í
því að bíða með alla umræðu um
„ástandið" austantjalds og snúa sér í
staðinn einhliða að nærtækum við-
fangsefnum og þá einkum atvinnu- og
kjaramálum. Gallinn við þessa aðferð
var að framtiðarsýnin og þar með hug-
sjónagrundvöllurinn varð mjög óljós.
Það var ekki fyrr en við innrás
ríkja Varsjárbandalagsins í Tékkó-
slóvakíu 1968 að Alþýðubandalagið
sem flokkur fordæmdi stjómarfar í
Gylfi Þ Glslason
Austur- Evrópu. Þeirri fordæmingu
fýlgdi hins vegar fremur rýr stjóm-
málagreining með hliðsjón af hug-
myndabaráttu í framtíðinni. Innrásin
var í fýrsta lagi fordæmd á hreinrækt-
uðum þjóðemisgmndvelli („stórþjóð
ræðst á smáþjóð") og í öðm lagi með
því að benda réttilega á að sósíalismi
gæti ekki þrifist án ffelsis. En tækifær-
ið 1968 var ekki notað til að skilgreina
á nýjan leik hugtökin frelsi og sósíal-
ismi og á hvem hátt þau yrðu að tengj-
ast.
Það liggur í augum uppi að ósam-
stæður flokkur með óljósar hugsjónir
hafði ekki krafta í sér til að halda sam-
an þeim sundurleitu öflum sem mynd-
uðu Alþýðubandalagið, en afgangur
Þjóðvamarflokksins hafði gengið til
liðs við bandalagið árið 1963. Það var
hápunkturinn á samfýlkingarstefhu
„hægrikommanna" en nú höfðu þeir
ekki lengur burði til að halda slíkri
samfýlkingu gangandi.
Klofningur er á margan hátt eðli-
leg afleiðing slíks vanmáttar. Fólk
verður einfaldlega þreytt hvert á öðm
og vill að leiðir skiljist, sérstaklega
Hannibal Valdimarsson
þegar ekki er lengur hægt að ræða
málin af sanngimi og heiðarleika. I
staðinn er afli beitt í samskiptunum,
t.d. með atkvæðasmölun. Þá fer meira
máli að skipta að sigra andstæðinga
innan flokks en hvaða hugmyndir fá
að ráða.
Alþýðubandalagið klofnaði sem
sagt á árunum 1967-1969. Meirihluti
„hannibalista“, en þó engan veginn
allir, mynduðu meginstofninn í Sam-
tökum frjálslyndra og vinstri
manna árið 1969.
Meirihluti Sósíalistafélags
Reykjavíkur myndaði Samband ís-
Ienskra sósíalista en þau samtök vom
skammlíf.
Segja má að stjómmálaflokkurinn
Alþýðubandalagið, sem stofnaður
var árið 1968, hafi á vinstri kvarðan-
um staðið mitt á milli tveggja fýrr-
nefndu klofningshópanna. Athyglis-
vert er að þetta Alþýðubandalag fékk
jafn mikið fýlgi í kosningunum 1971
og óklofið Alþýðubandalag hafði
fengið árið 1967. Samtímis fengu
Samtök fijálslyndra og vinstri manna
fimm þingmenn kjöma árið 1971. í
kjölfar þessa sameiginlega sigurs kom
vinstri stjómin 1971- 1974.
Alþýðuflokkurinn og
átökin á vinstri
vængnum
Ekki var annað að sjá en Alþýðu-
flokkurinn væri mjög ánægður í við-
reisnarstjóminni 1959-1971. Ánægjan
var slík að flokkurinn var ekki fús til
að taka við neinum stjómarandstæð-
ing í raðir sínar. Samtök fijálslyndra
og vinstri manna vom því stofnuð sem
nokkurs konar neyðarúrræði krata í
stjómarandstöðu enda skilgreindu þau
hlutverk sitt þannig að markmiðið
væri að sameina alla íslenska jafnað-
armenn í einn flokk, fýrr eða síðar.
Það var síðan harmsaga Samtaka
fijálslyndra að þau gátu ekki sem
heild gengið til slíkrar sameiningar
heldur fóru einstakir félagsmenn
þeirra að vinna að slíkri „sameiningu“
upp á eigin spýtur með því að ganga í
aðra flokka jafhaðarmanna, Alþýðu-
bandalag eða Alþýðuflokk, oftast þó
síðamefhda flokkinn. Eflir stóð samt
tómarúm óánægðra á vinstri vængn-
um sem er enn þá til staðar og sem
hefúr auðveldað nýjum stjómmála-
hreyfmgum á vinstri vængnum að
hasla sér völl sl. áratug.
Er saga Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna að endurtaka sig í
stjómmálafélaginu Birtingu núna?
Alþýðuflokkurinn hefúr verið að
koma einstökum félagsmönnum Birt-
ingar fýrir í röðum sínum, þó ávallt í
hæfilegum skömmtum svo að engin
hætta verði á því að flokknum svelgist
á eða að hann þurfi að breytast að ein-
hveiju ráði.
Niöurstööur
Það er út í hött að kenna annað
hvort krötum eða kommum um klofn-
inga fýrr á tímum, allra síst út frá
stjómmálaástandinu í dag. Báðir hafa
klofið og báðir hafa sameinað, komm-
ar þó öllu meira af því síðamefnda fýrr
á tímum.
Klofningurinn er djúpstæður og
sameining jafhaðarmanna, jafn æski-
leg og hún er, getur aðeins gerst í kjöl-
far náinnar stjómarsamvinnu á löng-
um tíma, því að fortíðin hefúr skilið
eftir mikla tortryggni einstakra félaga
í Alþýðubandalagi og Alþýðuflokki f
garð hvors annars. Auk þess em fýrir
löngu komin ný skil milli þessarra
flokka í staðinn fýrir gömlu skilin í
„byltingaflokk" og „umbótaflokk" (á
4. áratugnum) eða „Moskvuflokk" og
„lýðræðisflokk" (á 5. og 6. áratugun-
um). Hér skipta mestu máli mismun-
andi viðhorf í utanríkismálum og
byggðamálum. Alþýðubandalagið
leggur einnig meiri áherslu á mála-
flokka umhveriis og jafnréttis en Al-
þýðuflokkurinn. Mismunandi áherslu-
atriði flokkanna tveggja gera það að
verkum að þeir skírskota nokkuð til
ólíkra skoðanahópa sem ekki geta eins
og málum háttar í dag auðveldlega
sameinast í stuðningi við einn samein-
aðan jafnaðarflokk. Þetta getur vel
breyst þegar tímar líða fram.
Starfsaðferðimar eru einnig ólík-
ar. Þannig er sterk hefð fýrir fræðilegri
stjómmálaumræðu í Alþýðubandalag-
inu en slík hefð fýrirfmnst varla í Al-
þýðuflokknum.
Með hliðsjón af þessum skilum
væri það slæmt fýrir framtíðarsam-
vinnu flokkanna ef annar flokkurinn
veiktist mikið í samanburði við hinn í
kosningunum 20. april n.k. Milli
flokkanna verður að rikja nokkuð
jafnræði.
Báðir flokkamir þurfa að vanda
vel vinnubrögð sín. Gott upphaf gæti
verið að gera ekki hvom annan að höf-
uðandstæðing í yfirstandandi kosn-
ingabaráttu.
Gísli Gunnarsson er dósent i
sagnfræði við Hiskóla íslands.
Hann á sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins i Rcykjavik f
komandi alþingiskosningum.
I
ogméðaapiSl
andsbankifelands
iðbcae Keflavíkur.
í £ramhaldi af kaupum Landsbankans á Siunvinnu-
bankanum liefuifötiý^am^tonub;uikaJfeyenöt- ' j
breytt í Landsbankaútibú sem opnar formlega þann
8. apríl. Landsbankinn býður viðskiptavini
velkomna í hið nýja útibú og óskar starfcfólki
virka daga frá kl. 9:15
Landsbanki
islands f
Banki allra landsmanna
opnar LancLsbanki Islands
útibú í miðbæ Keflavíkur