Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 1
Heimir Pálsson vökvar listaverkið sem reyndist glaðlifandi. Mynd: Jim Smart. Glaðlifandi listaverk blómstrar t : Þetta er til marks um það hvað íslensk bókaútgáfa er glaðlifandi,“ sagði Heimir Pálsson framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra bókaútgefenda, um listaverk á skrifstofu fé- lagsins, sem skyndilega tók upp á því að blómstra. Heimir sagði að þessi gripur hefði verið búinn til í vetur til þess að nota á bókasýningu í Norræna húsinu. Gripurinn er úr ösp sem fauk í óveðrinu í vetur og var hannaður af auglýsinga- stofu. „Þegar gripurinn kom inn í hitann tók drumburinn svona rækilega við sér og fór að blómstra. Öspin reyndist svona lífseig. Það má því með sanni segj að þetta sé lifandi listaverk,“ sagði Heimir. -Sáf Beðið með aðgerðir fram yfir stefnuræðu Davíðs Allt bendir til þess að ríkisstjórnin verði ekki búin að koma sér saman um efna- hagsaðgerðir þegar Davíð Oddsson forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína nk. þriðjudag. Davíð sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að tillögur um aðgerðir í ríkisfjármálunum yrðu ekki til fyrr en uppúr helg- inni, en hann mun afhenda stjórnarandstöðunni stefnuræð- una á föstudag. Samkvæmt lögum fær stjórnarandstaðan viku til að kynna sér stefnuræðu forsætisráðherra en samþykkti nú nokkru styttri tíma. Ríkisstjómin kom saman á aukafundi á laugardaginn til að ræða nkisljármálin og bar þar á góma gjaldskrárhækkanir ríkisins m.a. á áfengi og tóbaki, sölu ríkis- íyrirtækja og hækkanir á vöxtum húsnæðiskerfa ríkisins. Strax á sunnudag boðaði ríkissljómin full- trúa launafólks á sinn fund og mun einnig ræða við vinnuveilcndur, auk þess sem fyrirhugaðar eru við- ræður embættismanna ráðuneyta og aðila vinnumarkaðarins í vik- unni. Litið nýtt kom fram á fundin- um á sunnudag og samkvæmt heimildum Þjóðviljans var sem ríkisstjómin væri að þreifa fyrir sér um hvar fyrirstaðan yrði mest í launþegahreyfingunni. Engar hug- myndir um aðgerðir voru lagðar fram. I gær sagði fjármálaráðherra að alls ekki væri víst að tillögur um aðgerðir yrðu tilbúnar fyrir stefnuræðuna í byrjun næstu viku. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra aftók ekki í gær að vextir yrðu hækkaðir í húsnæðis- kerfinu en sagði að cngar ákvarð- anir hefðu verið tcknar í því sam- bandi. „Það er þensla í þjóðfélag- inu og á lánamarkaðnum og það kemur allt til skoðunar í þessu sambandi," sagði Jóhanna. Að- spurð um hvort vaxlahækkun hefði ekki geigvænleg áhrif fyrir al- menning t.d. í húsbréfakerfinu, þar sem vextir em mjög háir íýrir, benti Jóhanna á vaxtabótakerfið og að öllu máli skipti hvemig staðið yrði að slíkri vaxtahækkun. En hún endurtók að engin ákvörðun hefði verið tekin um að hækka þessa vexti og sagðist ekkert vita um hvenær sú ákvörðun yrði tekin ef afyrði. I vor vom samþykkt lög sem gera ríkinu kleift að hækka vexti á lánum Húsnæðisstofnunar ríkisins eflir 1984 þegar eigcndaskipti eiga sér stað en ekki hefur heldur verið tekin ákvörðun um að beita því ákvæði. Friðrik Sophusson ijámiálaráð- herra sagði í gær að ekki yrði tekin ákvörðun um hækkun á vöxtum spariskírteina ríkisins fyrr en í næstu viku en það hefur legið í loftinu að vextir skírteinanna yrðu hækkaðir töluvert til að seðja láns- íjárþörf ríkisins að einhverju marki. Þannig er líklegt að vextimir verði ekki hækkaðir fyrr en að lok- inni stefnuræðunni í næstu viku. Ljóst er að vextimir em á hraðri uppleið eftir að ríkið hækkaði for- vexti ríkisvíxla um 3,5 prósent fjn- ir rúmri viku. Næsti vaxtadagur bankanna er 21. maí og sagði Tryggvi Pálsson, bankastjóri íslandsbanka, að vextir verðtryggðra sem óverðtryggðra lána og reikninga myndu þá að öll- um líkindum hækka. Hann sagði að raunvaxtahækkun væri þegar orðin staðreynd og að bankamir yrðu að taka afstöðu til þeirrar staðreyndar. Bankaráð íslands- banka kemur saman í vikunni og mun þá verða tekin ákvörðun um hve mikil hækkun vaxtanna verður. -gpm i i i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.