Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 14
Bók um umönnun Alzheimersjúklinga Mál og menning hefur í samvinnu við Félag að- standenda Alzheimer- sjúklinga gefið út bók- ina Þegar á reynir - Umðnnun sjúklinga með Alzheimer og heilabilun eftir Nancy L. Mace og Peter V. Rabins. Hún er hugsuð sem handbók fyrir aðstandendur og þá sem annast sjúklinga með Alzheimer sjúkdóm og heiiabil- un. Þessir sjúkdómar hafa ekki hlotið mikla athygli eða umfjöll- un manna á meðal. En vandi sjúklinganna - og ekki síður að- standenda þeirra - er stór. I bókinni er útskýrt hvemig heilabilun lýsir sér og hvemig sjúk- dómurinn þróast, og lýst er félags- legum og líkamlegum vanda sjúk- linga og mikilvægum atriðum sem þeir sem annast þá verða að hafa í huga - sjálfs sín vegna ekki síður en hinna sjúku. Jón Snædal læknir ritar formála að íslensku útgáfunni og segir þar m.a.: „Bókin lýsir flestum hugsan- Iegum einkennum heilabilunar, en gera má ráð fyrir því að hver ein- staklingur sýni ekki nema nokkur þeirra og þarf að hafa það í huga við lestur hennar. ... Aðstandendur og aðrir sem sinna einstaklingum með heilabilun ættu að geta fundið i þessari bók margvísleg ráð um hvemig megi bregðat við vanda- málum sem upp geta komið. Vitn- dregið úr vanmætti og kvíða og gert Álfheiður Kjartansdóttir þýddi eskjan um það hvers má vænta og aðstandendum kleifl að takast á við bókina sem er 141 blaðsíða. hvemig megi bregðast við getur verkefnið af festu og öryggi.“ Trúarljóð eftir Matthías Johannessen Út er komin hjá Almenna bókafélaginu bókin Sálmar á at- ómöld eftir Matthías Johannes- sen. Þetta eru 66 trúarieg ljóð og birtust 49 þeirra í samnefndum ljóðaflokki í bókinni Fagur er dalur 1966. Dr. Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós ritar inngang að þessum ljóðum þar sem hann lýsir þeim trúarviðhorfum og trúar- tilfinningum sem í þeim speglast. Sálmar Matthíasar em vissulega ólíkir þeim sem við höfúm vanist og sungir em í kirkjum og gerir dr. Gunnar rækilega grein fyrir því. Hér era engar trúffæðilegar kenn- ingar og ekki heldur bænir, en hvað eina, bæði stórt og smátt, verður skáldinu tilefhi til lofgjörðar, eins og dr. Gunnar kemst að orði. „I sálmum á atómöld er það skáldið sem talar við Guð. Meðal annars um lífsháskann sem ávallt er í nánd, í hverri minningu, í hveijum hlut, í hveiju andiiti. Lífsháskinn felst í spumingunni um það hvort Guð sé nálægur í þessum heimi eða ekki. Er heimurinn yfirgefínn, er maðurinn einn? Eða er allt þmngið návist Guðs?“ Sálmar á atómöld em 98 bls. FLÓAMARKAfíUR ÞTÓÐVILTAMS ÝmisSegt Stúdentar, stúdentar Leitum logandi Ijósi að skóla sem var í Barbapapabúningum á Dimiti- oninni sinni. Vinsamlegast hafið samband við Ásu í vinnusíma 611500 eða heimasíma 19567. (slendingar búsettir í Osló 1975-1985. Við ætlum að hittast 17. maí á Grensásvegi 7 til að rifja upp gömul kynni. Þeir sem vilja borða mæti kl. 20.00 (Mongollan barbeque), hinir seinna um kvöldið á Dansbarnum. Þeir sem ætla að fá borð, pantið fýr- ir 15.maí. Nánari uppl. hjá Eddu f síma 622618, Elísabetu í síma 25003 og Billu I síma 622502. Stofuborð - ryksuga Óska eftir stofuborði og ryksugu, ódýrt eða gefins. Uppl. í síma 622919. Gamalt og gott pönk Vantar eldri plötur með Tappa tí- karrassi, Kuklinu ofl. Sími 672463, Ingi, e. kl. 18. Eldhúsinnrétting Til sölu notuð eininga- eldhúsinn- rétting. Auðveld ( uppsetningu. Eldavél, vifta og vaskur fylgja með. Verð kr. 25.000.- Slmi 25410 Fyrir veiðimenn Sala er hafin ( vorveiðina á vatna- svæði Staðarhólsár og Hvolsár í Dölum. Fullbúið, sjö herbergja veiðihús á staönum. Einnig eru lausir nokkrir dagar í laxveiðina í sumar. Mikil silungsveiði. Uppl. í sfmum 651882, 44606 og 42009. Hjálp Mig vantar sárlega bolla inn í settið mitt sem er frá Bing og Gröndal og heitir „Saxneska blómið". Er heima í síma 671190 e. kl. 18. Lopapeysur og leðurfrakki Nýjar lopapeysur til sölu. Einnig nýr ieðurjakki á 14-15 ára dreng. Uppl. í síma 33518. Saumaskapur - viögerðir Óska eftir að komast í samband við konu sem á saumavél og vill taka að sér smá saumaskap og fatavið- gerðir. Uppl. f síma 21428 á kvöldin og 694505 á daginn. Skiptinemi Sextán ára gömul stúlka frá Þýska- landi.sem talar svolitla fslensku, óskar eftir að finna fjölskyldu sem vill taka þátt f nemendaskiptum. Stúlkuna langar til þess að setjast í 1. bekk f íslenskum menntaskóla næsta vetur og vantar fjölskyldu til að búa hjá. Fjölskylda hennar er reiðubúin að taka á móti íslenskri skiptinemastúlku árið eftir. Helstu áhugamál stúlkunnar eru dýr, eink- um hestar og reiðmennska, flautu- leikur, kökubakstur og Island. Frek- ari upplýsingar fást hjá Margréti Halldórsdóttur, síma 93-56716 eða hjá stúlkunni, Viki Mullerweibus. Peter Lundig-Weg 33, 2087 Hasloch, Deutschland, sími 9049- 4106-2689. Til sölu 10 gíra drengjahjól, stórt fuglabúr, 2 hamstrabúr, stórt og lítið. Uppl. í vinnusíma 79840 og heimasíma 79464, Auður. Húsgögn Gefins Gamalt hjónarúm með springdýn- um fæst gefins. Uppl. f síma 685762 Hjónarúm Dux hjónarúm til sölu og sófasett sem selst á kr. 15.000. Sími 21702. Gefins Notaður svefnbekkur fæst gefins. Uppl. í síma 37947. Húsnæöi Húsnæði óskast Reglusöm og reyklaus hjón með 2 börn óska eftir fjögurra herbergja fbúð á leigu. Uppl. f sfma 33829. Húsnæði Mig vantar einstaklings- eða 2-3 herb. íbúð í Þingholtunum eða Skuggahverfmu. Sími 35779, laug- ardag og sunnudag. Sumarbústaöur Bústaður óskast f FLATEY frá mán- aðamótum maí-júní í 1-2 vikur. Uppl. í sfma 30570. íbúð óskast Þriggja til fjögurra herbergja íbúð óskast til leigu. Staðsetning helst í Vesturbergi eða Hólahverfi. Uppl. f síma 72490. íbúð í Vesturbæ Óska eftir þriggja herbergja íbúð í vesturbæ Reykjavíkur frá 1. ágúst n.k. Skilvísum greiðslum heitið. Uppl. f sfma 40591. (búð óskast / fbúöaskipti Islendingar búsettir í Lundi, Svíþjóð óska eftir að skipta á íbúð á stór Reykjavíkur svæðinu f júlí og ágúst. Uppl. í síma 611833 eða 90- 46-46- 147336. (búð óskast Þriggja herbergja íbúð óskast til leigu í Reykjavík frá 1. júlí nk. Reglusemi, góðri umgengni og skil- vísi heitið. Uppl. f síma 94- 4295 eft- ir kl. 18.00 virka daga og einnig um helgar. (búð óskast Sjúkraliði óskar eftir góðri 2 til 3 her- bergja íbúð. Aðstoð kemur til greina. Uppl. í síma 20633. Húsnæði óskast Tvo garðyrkjufræðinga vantar 2-3 herbergja íbúð frá 15. júní til 15. sept. Helst sem næst miðbænum. Gjarnan með húsgögnum. Uppl. f vinnusíma 34122 og heimasíma 43311. (búð óskast Einstæö móðir með þriggja ára dóttur óskar eftir góðri ódýrri íbúð á leigu. Uppl. í sfma 17548 eftir kl. 19.00. HeimiliS" og raftæki Myndbandstæki Óska eftir ódýru myndbandstæki, þarf ekki að vera nema til afspilun- ar. Uppl. í síma 611307. Diskadrif óskast Óska eftir diskadrifi fyrir Commo- dore 64 tölvu. Uppl. f síma 17087 Macintosh tölva 512 k með 800 k minnisstækkun og nýju aukadrifi til sölu á kr. 60.000,-. Uppl. I síma 694408 á daginn og 11890 á kvöldin. Þorsteinn. Strauvél Til sölu Pfaff strauvél f borði. Sími 33678. Ódýrt sjónvarp Til sölu 24“ sjónvarp. Sími 21702. Kraftmagnari Nýr Yamaha kraftmagnari fyrir söngkerfi til sölu. Sími 43452, Mar- ía. Til sölu Atari 1040 STFM tölva (1Mb) ásamt ritvinnslu og umbrotsforriti. Einnig prentari Epson Fx-800. Verð ca. 75.000 kr. Sími 29259 og v.s. 694359. ísskápur óskast Óska eftir ódýrum ísskáp,(ekki breiðari en 53 sm.) og sjónvarpi. Sími 623113. HjjÖI Til sölu Winter barnahjól, BMX drengjahjól og Eurostar gfrahjól. Uppl. f sfma 30900 Til sölu Gitane fjallahjól, 15 gíra lítið notað til sölu fyrir 18.000 kr. Uppl. f sfma 71137. Stelpuhjól til sölu Bleikt Eurostar, 24“ reiðhjól til sölu. Hjólið er mjög vel með farið. Uppl. í sfma 642012 eftirkl. 16.00. Kvenreiðhjól óskast Þriggja gíra kvenreiðhjól óskast, einnig barnasæti aftan á hjól. Uppl. f sfma 17548 eftir kl. 19.00. Fyrir bmn Barnastóll óskast Vantar barnastól sem hægt er að leggja saman (CAN) og einnig bak- poka fyrir börn. Sfmi 46886. Vantar rólur Óska eftir barna-útirólum ódýrt eða gefins. Sími 30035 Bfiar og varahlutir Sparneytinn bfll Litla MICRAN mfn ertil sölu. Hún er í toppstandi, skoðuð 92, ekin 111 þús. km. Bílasalan setur á hana 240.000.- kr. en þú getur hringt og athugað hvort við komumst að sam- komulagi um þá tölu sem þér finnst henta. Síminn er 681333 á skrif- stofutfma, 98-21873 á kvöldin, Svanheiður. Lada Samara Ttl sölu Lada Samara '86, ekinn 42 þús. Lftilsháttar skemmdur eftir um- ferðaróhapp. Verðhugmynd 160 þús. Sfmi 17087 eða 627551. Til sölu Fiat Regata '84 til sölu. Hvftur, ek- inn 80 þús., 5 gíra, veltistýri, útvarp m/kassettu. Skoðaður '92 og er f mjög góðu standi. Verð kr. 230.000 eða 165.000 staðgreitt. Sími 73561. Daihatzu til sölu Daihatzu XTE árg. 1980 til sölu. Ek- inn 34 þúsund km. á vél. Nýir bremsudiskar og klossar f öllum dekkjum. Bíllinn er allur yfirfarinn og skoðaður 7.5. s.l. Verð kr. 95.000,- eða 75.000,- stgr. Uppl. f sfma 674342. Lada Samara Lada Samara árg. 1986 til sölu. Ek- in 65 þúsund km. Skipti á dýrari með milligjöf, staðgreitt. Uppl. I sfma 91-72226. Þjónusta Dyrasfmar Dyrasfmaþjónusta, viðgerðir og ný- lagnir. Eigum varahluti í eldri dyra- sfmakerfi. Setjum upp ný kerfi. Van- ir menn, vönduð vinna. Sfmi 656778. Viðgerðir Tek að mér smáviðgerðir á hús- munum. Hef rennibekk. Uppl. f sfma 32941. Aivinna öskast Ég er 17 ára menntaskólastúlka á eðlisfræði- braut f MH. Mig bráðvantar sumar- vinnu. Ef einhver þarf áreiðanlegan og reglusaman starfskraft þá er ég laus frá 20. maf. Uppl. f síma 34937. Au-per Þýsk læknisfjölskylda í Hamborg óskar eftir au-per stúlku frá sept. 1991. Hjón og 2 börn, 7 og 3 ára, eru f heimili. Æskileg einhver þýskukunnátta og bílpróf. Uppl. gef- ur Elfn Einarsdóttir í síma 175283. Námsmaöur (piltur) á sautjánda ári óskar eftir sumarstarfi. Uppl. í sfma 71137. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ AB Reykjanesi Drætti frestað Drætti f kosningahappdrætti G- listans á Reykjanesi er frestað til 20. maí nk. Umboðsmenn miða eru beðnir að gera skil eigi síðar en 19. maf til Birnu Bjarnadóttur, sími 40580. Vinningsnúmer verða auglýst 22. maf. Kosningastjórn. G-listinn í Reykjavík Kosningahappdrætti Drætti í kosningahappdrætti G- listans í Reykjavík hefur verið frestað til 14. maí. Félagar og velunnarar em vinsamlegast beðnir að gera skil hið fyrsta. Kosningastjórn G-listans f Reykjavík Atþýðubandaiagið i Reykjavík Borgarmálaráð Fundur f Borgarmálaráði miðvikudaginn 15. maí kl. 16 I flokksmiðstöðinni, Laugavegi 13. Ath. breyttan fundartíma. Fyrir utan venjuleg fundarstörf verða m.a. ræddartillögur um nýjan fundatíma. Stjórnin Auglýsið í ÞÓÐVILJANUM Auglýsingasíminn er 681310 AB Keflavík og Njarðvíkum Opið hús Opið hús í Ásbergi á laugardögum kl. 14. Félagar og stuðningsmenn velkomnir f kaffi og rabb. Stjórnin AB Norðurlandi eystra Kosningahappdrætti Dregið var í kosningahappdrætti ABNE 1. maí og númerin inn- sigluð. Vinningsnúmer verða birt í Þjóðviljanum um leið og full skil hafa átt sér stað. Kosningastjórnin ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. maí 1991 Síða 14

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.