Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 20
Þtóðviltinn Þriðjudagur 14. maí 1991 TVÖFALDUR1. vinningur ÞJÓÐVILJINN Skrifstofa 681333 Auglýsingar 681310 Afgreiðsia 681333 Myndsendir 681935 Allsherj arverkfall Um líkt leyti og slitnaði upp úr samningaviðræðum fær- eysku verkalýðsíelaganna og atvinnurekenda í býtið í gærmorgunn hófst allsherjarverkfall landverkafólks í Færeyjum. Áður, eða á miðvikudaginn í síðustu viku, höfðu atvinnurekendur sett á verkbann. Að sögn Ingeborgar Vinther, formanns Fnroya arbeiðarfelags, er kjaradeilan nú um margt óvenjuleg og atvinnurekendur hafa að hennar sögn sjald- an verið óbilgjarnari. Verkfallið sem hófst í gær- morgunn nær til alls landverka- fólks, en áður hafði svo til allt at- vinnulíf í Færeyjum legið niðri síðan á miðvikudaginn af völdum verkbanns atvinnurekenda. Að sögn Ingcborgar liggja siglingar ferja milli eyja að mestu leyti niðri, nema hvað undanþága hefur verið veitt til siglingar frá Þórs- höfn til Suðureyjar. Það er þó allt eins viðbúið að sú undanþága verði tekin aftur. Þrátt fyrir verkfallið hcldur milliiandaflug enn áfram. Ovíst er þó hve lengi það getur orðið þar sem bátsferðir til og frá Vogey þar sem flugvöllurinn er hafa faílið niður. Ingeborg sagði í samtali við Þjóðviljann síðdegis í gær að erfitt væri að segja til um hversu lengi verkfallið kynni að standa. -Við gerðum það að kröfú okkar að laun hækkuðu um 3,3% en atvinnurck- endur hafa tekið slíku sem fjar- stæðu. Félag atvinnurekenda telur sig ekki geta boðið meira en hálfs pró- sent hækkun. Hún sagði að þrátt fyrir óbil- gimi atvinnurekenda í kjaradeil- unni virtist sem samstaða þeirra væri að gliðna. Nokkur fyrirtæki hefðu þegar hlaupist undan merkj- uni og gengið að kröfum verka- lýðsfélaganna um 3,3% hækkun launa, eða sem samsvar um tveggja danskra króna og fimmtíu aura hækkun á tímann. Aðspurð um viðræður verka- lýðsfélaganna við landsstjómina á dögunum um skattalækkanir til ofan í verkbann í Færeyjum !P3i«n.'xisL iI-F^CTícgj ■ . ,|v 'í WM MÞfiÍ III jB| Frá því að atvinnu- rekendur settu verk- bann á landverkafólk I Fasreyjum hefur at- vinnullf í eyjunum verið að mestu lam- að. Myndin er frá smábátalæginu I Þórshöfn I Færeyj- um. Mynd: Jim Smart. handa verkafólki, sagði Ingeborg að þær viðræður hefðu ekki leitt til ncins. - Við fengum skýrt afsvar um að skattalækkanir kæmu til í ár. Hins vegar var okkur tjáð að af því gæti orðið einhvemtíman á næsta ári. 1 kjölfar verkbanns atvinnurek- enda fóru færeysku verkalýðsfé- lögin þess á Ieit við Alþýðusam- band íslands að það beindi þeim tilmælum til aðildarfélaga sinna að félagsmenn þeirra gengju ekki í störf færeysks landverkafólks og færeysk skip fengju ekki afgreiðslu í íslenskum höfnum meðan á vinnudeilunni stendur. Að sögn Þráins Hallgrimssonar hjá ASI hefur þessari beðni verið komið áleiðis til aðildarfélaganna. - Eg veit ekki betur og hef reyndar ekki ástæðu til að ætla annað en að aðildarfélög okkar virði þessa ósk, sagði Þráinn. -rk Herinn í verk- takavinnu Verktakar á Suðurnesjuni eru ekki par hrifnir nieð ís- lensku lögregluna á Kefla- víkurflugvelli fyrir að ganga framhjá íslenskum aöilum og leita þess í stað cftir liösinni hersins við jarðvinnu fyrir fyrir- hugaða viðbótarbyggingu við skála sem ætlaö er m.a. að hýsa félagsstarf og æfingaraðstöðu lögreglumanna á „Vellinum“. Hefur herinn lánað til verksins vinnuvélar og mannskap til verksins. - Er þetta eitthvert fréttamál? Það má líta á þetta scni lið í vcst- rænni samvinnu, sagði Gústaf Bcrgmann, varðstjóri lögreglunnar á Kefiavíkurflugvelli, þegar Þjóð- viljinn innti hann eftir aðild hers- ins að byggingaframkvæmdum lögreglumanna. Gústaf sagði að lögreglumenn ynnu í sjálfboðavinnu við bygg- inguna. - Það cr gleðilegt að hcyra það að hægt hafi verið að fá ís- lenska verktaka í þctta smáverk sem herinn liljóp undir bagga með okkur. Það hefði enginn orðið feit- ur af þessu vcrki - það var ekki mcira en svo. Mig rámar reyndar í að iðnað- annenn hér syðra hafi vcrið með augabrýr uppi í hársrótum vegna þess að við værum að vinna við þctta í sjálfboðavinnu. Það er af sem áður var, þcgar hvorki var hægt að fá iðnaðannenn né verk- taka til smáviðvika, sagöi Gústaf. En þið cruð ekki að konia ykk- ur undan að þurfa að borga virðis- aukaskatt af framkvæmdunum? - Nei, það er af og frá, sagði Gústaf. Gústaf sagði að óvíst væri hve- nær lögrcglumenn fcngju nýja og bætta aðstöðu til fclagsstarfs og fyrir lyflingartæki og tól til þrck- æfinga. - Þess vcrður þó vonandi ckki langt að bíöa. -rk Islendingar hjálpa stríðshrjáðum Um miðjan dag í gær höfðu safnast 23,5 miljónir króna í söfnun Rauða krossins á íslandi „Sól úr sorfa" til hjálpar stríðshrjáöuni og stefndi allt í að heildarupphæöin yrði vel yfir 25 miljónir króna. Hannes Hauksson fram- kvæmdastjóri Rauða krossins segir að viðtökur almennings hafi farið fram úr björtustu vonum og var söfnunarfé enn að berast í gær frá fyrirtækjum jafnt sem einstakling- um. Hannes sagði að upphafiegt markmið hefði verið að hver ís- lendingur lél af hendi eitt hundrað krónur sem gera 25 miljónir í það heila. En að öllum líkindum yrði heildarupphæðin eitthvað hærri því söfnunarfólk hcfði skilið eflir gíró- seðla heima hjá þeim sem ekki voru við í fyrradag, þegar aðalsöf- unarátakið fór fram. Hannes Hauksson sagðist vilja konia á framfæri þakklæti til hinna íjölmörgu scm hcfðu lagt sitt af mörkum til söfnunarinnar og einn- ig til þeirra mörgu scm unnu að hcnni í sjálfboðavinnu. Það voru um 1500-2000 nianns og cr ckki annað vitað en að allt söfnunarféið liafi skilað sér og engin dæmi um að óprúttnir aðilar hafi notað sér söfnunina í cigin þágu. Helmingur þess sem safnast verður notaður til hjálpar Kúrdum og hinn helming- urinn til að koma á fót gervilima- verksmiðju í Afganistan. Hjá brcska Rauða krossinum höfðu safnast í gær um 1,5 miljón punda og er rciknað með að alls muni safnast citthvað í kringum 10 miljón pund, cn þar í landi stendur söfnunin yfir í viku. Þá mun breska ríkið leggja fram aðrar 10 miljónir punda. -grh VIRÐISAUKASKATTUR Endurgreiðsla virðisaukaskatts til íbúðarbyggjenda Hvað er endurgreitt? Viröisaukaskattur af vinnu manna sem unnin er á byggingarstaö íbúðarhús- næðis er endurgreiddur. Endurgreiðsl- an nær til virðisaukaskatts af: • Vinnu manna við nýbyggingu íbúðar- húsnæðis. • Hluta söluverðs verksmiðjufram- leiddra íbúðarhúsa hér á landi. • Vinnu manna við endurbætur og við- hald á íbúðarhúsnæði í eigu umsækj- anda. Endurgreiðslubeiðni Sækja skal um endurgreiðslu á sér- stökum eyðublöðum til skattstjóra í því umdæmi sem umsækjandi á lögheimili. Eyðublöðin eru: • RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til sölu eða leigu. • RSK 10.18: Bygging, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Uppgjörstímabil Hvert uppgjörstímabil er tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember. Skiladagur Endurgreiöslubeiðni skal berast skatt- stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir að uppgjörstímabili lýkur. m RlKISSKATTSTJÓRI Sérstakt uppgjörstímabil vegna endurbóta og við- halds á árinu 1990 Beiðni um endurgreiðslu vegna við- halds og endurbóta íbúðarhúsnæðis sem unnið var 1990 skal skilað í einu lagi til skattstjóra í síðasta lagi 20. janúar 1991. Athygli skal vakin á því að frumrit sölureikninga skal fylgja um- sókn um endurgreiðslu vegna vinnu við endurbætur og viðhald. Hvenær er endurgreitt? Hafi beiðni um endurgreiðslu verið skilað á tilskildum tíma fer endur- greiðslan fram eigi síðar en 5. dag næsta mánaöar eftir skiladag vegna nýbygginga og eigi síðar en 20. dag næsta mánaðar eftir skiladag vegna endurbóta og viðhalds. Launamiðar og húsbyggingarskýrsla Athygli skal vakin á því að þeir sem sækja eða hafa sótt um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði á árinu 1990 skulu fylla út launamiða (RSK 2.01) fyrir 20. janúar 1991 vegna greiddra launa og verktaka- gre'ðslna. Launamiðann skal senda til skattstjóra. Þeir sem sótt hafa um endurgreiðslu vegna nýbyggingar skulu einnig senda skattstjóra húsbyggingarskýrslu (RSK 3.03) með skattframtali sínu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.