Þjóðviljinn - 14.05.1991, Síða 6
Ertu byrjuð/byrjað-
ur á garðverkun-
um?
agn
verkakona:
Nei, ég er ekki byrjuð og
veit ekki hvort nokkuð verð-
ur gert. Það er þó stefnan
að gera eitthvað fyrir garð-
inn í sumar.
Hanne Ragnarsson,
húsmóðir í bili:
Já, þaö er allt í fullum gangi
við að raka saman laufum
og hreinsa til.
Kjartan Jensson,
skrifstofum. hjá Osta- og
smjörsölunni:
Já, í sumarbústaðnum. Það
er byrjað á því að klippa
runna og hlúa að.
Jón Guðmundsson,
kennari:
Það fer að líða að því. Það
er eftir að þökuleggja. Ann-
ars bý ég í stærsta garði
landsins, Hallormsstaða-
skógi, og það liggur við að
náttúran sjái bara um þetta
sjálf.
Vilhjálmur Baldursson,
vélstjóri:
Já, við erum búin að
hreinsa draslið, klippa runn-
ana og raka.
Körfu-
boltinn
aldar'
gamall
I tilefni þess að í ár eru liðin eitt hundrað ár síðan
byijað var að iðka körfubolta sem íþrótt, stendur al-
þjóða körfuknattleikssambandið fyrir knattraki um
allan heim með endastöð í Aþenu í Grikklandi þann 5.
júní næstkomandi.
Knattrakið í Evrópu fer þannig ffam að leið númer
eitt bytjaði hér á landi, leið númer tvö hefst í Dublin,
sú þriðja í Kaupmannahöfn og fjórða leiðin hefst svo
á Gíbraltar. Það voru ungir og upprennandi körfú-
knattleiksmenn í áttunda flokki IBK og Njarðvík sem
hófú knattrakið ffá Lækjartorgi síðastliðinn sunnudag
og röktu þeir knöttinn til Njarðvíkur þá um daginn. I
gær var svo knötturinn rakinn þaðan og upp i Flug-
leiðavél til Oslóar þar sem Norðmenn tóku síðan við
boltanum.
Það mun hafa verið Bandaríkjamaður sem fyrst
hugkvæmdist að koma fyrir körfúhring á vegg sem
knetti er kastað ofan í. Síðan þá hefur vegur íþróttar-
innar farið vaxdandi og í þvi sambandi nægir að líta
til þess sem hefúr verið að gerast i körfúboltanum hér
á landi. Ohætt mun vera að fúllyrða að engin önnur
íþrótt hefur notið eins mikilla vinsælda, og verið eins
spennandi og körfúboltinn var hér á landi í vetur. Ef
fer sem horfir þurfa körfúboltamenn ekki að kvíða
framtíðinni, nema síður sé.
grh
Þó ekki sé keppt allajafna I körfubolta á sumrin er
ekkert lát á iðkun hans úti við meðal unglinga og annarra
yfir sumartimann. Mynd: Kristinn
Knattspymufélagið Valur 80 ára
Fjölmenni var samankomið á félagssvæði knattspyrnufélagsins
Vals síðastliðinn laugardag þegar þess var minnst að áttatíu ár
voru liðin frá því félagið var stofnað. En að stofnun þess stóðu
eins og kunnugt er drengir innan raða KFUM og var helsti
hvatamaður að stofnun félagsins Guðbjörn Guðmundsson prentari
með fulltingi séra Friðriks Friðrikssonar.
í tilefni dagsins var eitt fyrsta
verk Valsmanna að leggja blóm að
styttu séra Friðriks, jafnframt því
sem efnt var til sérstaks hátíðar-
fundar með stjómum deilda félags
og fulltrúaráði þess þá um morg-
uninn. A fundinum var samþykkt
nýtt skipulag fyrir Hlíðarenda, auk
þess sem Jóhannes Bergsteinsson
var gerður að heiðursfélaga. Um
miðjan daginn var svo efnt til
minja- og sögusýningar í Vals-
heimilinu þar sem jafnframt var
boðið upp á afmæliskaffi og veit-
ingar. Þá um kvöldið var svo hald-
in afmælishátíð á Hótel Sögu þar
sem Friðrik Sóphusson fjármála-
ráðherra var veislustjóri.
Af einstökum atburðum í sögu
félagsins eru kaupin á lögbýlinu
Hlíðarenda árið 1939 einna merk-
ust, en þar var fyrsti völlurinn
vígður árið 1947. Valur var fyrst
íslandsmeistari í knattspymu árið
1930 og hefur síðan orðið meistari
20 sinnum. Valur er eina knatt-
spymufélag landsins sem aldrei
hefur fallið úr 1. deild. Frá 1930
hefúr verið stundaður handbolti hjá
félaginu og hefur Valur alls 15
sinnum orðið íslandsmeistari og nú
siðast í vor. Körfuknattleiksdeild
var stofnuð hjá Val 1970 og vann
sinn fyrsta Islandsmeistaratitij
1980, en alls þrisvar sinnum. í
handknattleik hefur félagið komist
lengst á alþjóðlegum vettvangi
þegar liðið komst í úrslit i Evrópu-
keppninni 1980 gegn þýska liðinu
Grosswaldstadt. Þá hefur Valur
fengið mesta aðsókn íslenskra liða
á einn leik og það var haustið 1968
þegar 18.300 manns komu til sjá
liðið keppa gegn portúgalska liðnu
Benfica. Athygli vekur að innan
félagsins eru aðeins stundaðar
þrjár keppnisíþróttir, fótbolti,
handbolti og körfúbolti á sama
tíma og þeirrar tilhneigingar hefúr
gætt hjá öðrum félögum að fjölga
við sig íþróttagreinum. Jón Gunnar
Zoéga formaður Vals segir að aðal-
ástæðan fyrir þessu sé sú að félag-
ið vilji hlúa vel að því sem fyrir er
í starfsemi félagsins í stað þess að
reisa sér hurðarás um öxl.
Fyrsti formaður knattspymufé-
lagsisn Vals var Loftur Guðmunds-
son ljósmyndari, en alls hafa tutt-
ugu og átta menn gegnt þessu
embætti.
-grh
Núlifandi heiðursfélagar í knattspyrnufélaginu Val ásamt formanni félagsins.
Þeir eru f.v. Sigurður Ólafsson, Jóhannes Bergsteinsson, Úlfar Þórðarson og
Jón Gunnar Zoéga formaður Vals. Mynd: Kristinn.
DC I
Z>
s
mmm
(f>
Síða 6
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. maí1991
i yar I&r. .M tuesDuicr.ti Zii4lL«Vt3Óí.r4
» l i