Þjóðviljinn - 06.06.1991, Blaðsíða 4
EHLENDAK 1E§ FIRETTER
Harðar árásir
Israela
ísraelar hafa síðan á þriðju-
dag gert þijár loflárásir á bæki-
stöðvar palestínskra skæruliða í
Suður-Líbanon og eru þetta
hörðustu árásir þeirra á líbanskt
land frá því í júní 1982, er Isra-
elar hertóku suðurhluta lands-
ins.
A.m.k. 13 palestínskir
skæruliðar fórust í þeirri fyrstu
þessara árása og 38 manns
særðust. Þrír palestínskir
skæruliðar fórust í annarri árás
í gærmorgun. Árásimar hafa
þarlendis vakið ótta um að ný
innrás ísraela sé yfirvofandi.
Fréttaskýrendur og her-
málasérffæðingar i Beirút telja
að ísraelar geri árásir þessar
sökum þess að þeir álíti að við-
leitni Bandaríkjanna til að
koma í kring friðarráðstefhu ar-
aba og ísraels muni ekki bera
árangur og að Israelsstjóm sé
kvíðin út af nýgerðum samn-
ingi stjóma Sýrlands og Líban-
ons, sem tryggir ítök fyrr-
nefnda rikisins i hinu.
Apartheidstólpi
fellur
Þing Suður-Afríku felldi í
gær úr gildi lög ffá ámnum
1913 og 1936 um rétt til lands
og kynþáttaðskilnað í búsetu.
Vom lög þessi talin meðal
helstu stoða apartheidkerfisins,
enda þótt þau séu mörgum ár-
um eldri en það.
Samkvæmt lögum þessum
vom 87% suðurafrisks lands
talin tilheyra hvítum lands-
mönnum og þeldökkir menn
máttu ekki búa innan um hvíta.
I fmmvarpinu um niðurfell-
ingu laganna, sem samþykkt
var í gær og tekur gildi um
næstu mánaðamót, eru þó
greinar sem mun vera ætlað að
koma í veg fyrir mikið að-
streymi þeldökkra í útborgir
hvitra.
Rússneskir aðalsmenn
bíða eftir sínum keisara
A
þeim umbrotatímum sem nú ganga yfir Sovétríkin
hafa upp risið ótal fiokkar manna og sumir vilja end-
urreisa keisaradæmi í Rússlandi. Allmargir þeirra
eru fáránlegir þjóðrembumenn og gyðingahatarar, en
meðal þeirra er og að finna mun sakleysislegra fólk eins og
forsprakka „Rússneska aðalsmannasambandsins“.
Rússneska aðalsmannasam-
bandið, sem í eru um 500 manns,
kemur saman í mánuði hveijum í
Arkitektahúsínu í Moskvu. Þar
spjalla afkomendur frægra ætta
saman, dansa, hlusta á kirkjukór.
Og gefa sig á vald minningunum:
að sögn formanns samtakanna,
Andrejs Golitsins, er eit megin-
hlutverk þeirra að viðhalda minn-
ingum um fortíð sem reynt var að
þurrka sem rækilegast út á 74 ára
sovéttíma.En slík uppriljun er
ekki einfalt verkefhi,því nú er
langt um liðið siðan aðallinn var
og hét. Og svo er annað: hvað er
það sem menn vilja muna? Hverj-
um þykir sinn fugl fagur: þær
leifar fomra aðalsfjölskyldna sem
sitja nú saman á angurværum
kvöldvökum í Moskvu, þær halda
því gjama fram að þeirra forfeður
hafi haldið uppi menningu og
góðum siðum í Rússlandi. Aðrir
gætu svo sagt sem svo: þakka
skyldi þeim þótt þeir kynnu
frönsku og sæktu Ieikhús - þetta
fólk hafði ekki mikið annað að
gera. Nær væri að rifja það upp,
að einmitt aðallinn var þungur
baggi á rússnesku samfélagi, tók
mikið til sín og hélt helstu emb-
ættum eins og limir hans vom
„fæddir til“ og komu þar með i
veg fyrir að „aðall andans“ eða
„aðall dugnaðarins" fengi að njóta
sín.
Meðlimir aðalsmannabanda-
lagsins láta sig dreyma um að sá
dagur komi að Rússland eignist
keisara á nýjan leik. Keisaraelhi
þeirra heitir Vladimír Kírillovítsj
Romanov. Hann er fæddur í Finn-
landi og býr í París og hefúr
aldrei til Sovétríkjanna komið.
Faðir hans var Kirill Vladimíro-
vítsj Romanov stórfursti, sonar-
sonur Alexanders annars. Kírill
var fjórði í röð ríkisarfa þegar
fjölskylda hans flúði Rússland
skömmu eftir byltingu. En þegar
keisarafjölskyldan var svo tekin
af lífi skammt frá Ekaterínbúrg
færðist stórfúrstinn ofar á lista
vonbiðla krúnunnar. Og sonur
hans, fyrmefhdur Vladimír, er af
flestum keisarasinnum viður-
kenndur hinn rétti arftaki „húfh
Vladimírs monomakhs“.
Valdimír Romanov situr með
nokkurri viðhöfh í Frakklandi og
Rússar sem heimsækja hann
ávarpa hann sem hátign sæmir.
Frakkar taka þennan leik svo al-
y. :
SÉ «*ré 1 ::
<AgKS> .< - í w
Andrej Golkitsin, for-
maður Rússneska
aðalsmannasam-
bandsins, ! íbúð sinni
( Moskvu, umkringdur
myndum af keisurum
og frægum ættingj-
varlega að þeir sjá biðkeisaranum
fyrir lífverði. Og hann tekur bið-
ina mjög alvarlega, ekki vantar
það. 1 blaðaviðtali (sem birtist
reyndar í „Moskvufréttum")
kemst hann svo að orði:
„Svo lengi sem ég man eftir
mér hefi ég verið þess albúinn að
rækja þá skyldu sem Guð og ör-
lögin hafa falið mér. Saga Rúss-
lands er fúll með óvæntar uppá-
komur. Keisaradómur gæti verið
gagnlegur föðurlandi okkar. Keis-
arinn yrði sá sem stæði ofar öllum
flokkum og hópum og væri mál-
um til hans skotið svo að hann
mætti hjálpa þeim við að komast
að samkomulagi. Keisaradómur
gæti virkað gegn upplausn ríkis-
ins - upplausn sem hefði mikla
ógæfú í for með sér. Því þetta
heimsríki var skapað með starfi
margra kynslóða.“
Fyrmefndur Golitsin, sem er
af frægri fúrstaætt, hann tekur
mjög undir þessi viðhorf í nýlegu
viðtali við Washington Post. „Enn
í dag, segir hann, er keisaradæmi
það stjómarform sem best á við
Rússa. Það er enn of snemmt að
tala um endurreisn keisaradæmis í
Rússlandi, en við getum ekki úti-
lokað það með öllu eins og við
hefðum vafalaust gert fyrir sex
eða sjö árum.“
Blaðamaðurinn bætir því við,
að ekki séu þeir margir sem deili
þessum draumi um keisara með
Golitsin. Flestum Rússum finnist
hugmyndin fáránleg. Og hún hef-
ur líka orðið fyrir hnjaski vegna
þess hve margir trítilóðir rúss-
neskir þjóðrembumenn, sem hat-
ast við gyðingá og allt sem „út-
lent“ er, hafa lagst í keisaradýrkun
í leiðinni.
ÁB tók saman
FOSTURBORNIN
Umhverfisverkefni
U ngmennafélaganna
Þriggja. ára verkefni 4500
félagsmanna í 250
ungmennafélögum um allt land
Mætum öll á vettvang 8.-9. júní!
r
Ungmennafélag Islands
Umsáturs'
ástand í Alsír,
kosningum frestað
Chadli Benjedid, forseti
Alsírs, lýsti í gær yfir
umsátursástandi í
landinu öllu, setti ríkis-
stjórnina af og frestaði þing-
kosningum, sem áttu að fara
fram 27. þ.m., um óákveðinn
tíma.
Þessar tiltektir forsetans eru
svar við aðgerðum helstu andstæð-
inga hans, sem em bókstafstrúaðir
múslímar. Flokkur þeirra, Islamska
frelsunarfylkingin (venjulega köll-
uð FIS, sem er skammstöfun heitis
hennar á frönsku), lýsti yfir alls-
herjarverkfalli 25. maí til að fylgja
á eflir kröfum um breytingar á
kosningareglum og forsetakosn-
ingar. Þátttakan í verkfallinu varð
lítil, og boðuðu bókstafstrúaðir þá
til útifúnda í borgum. Illindi sam-
fara þeim fúndum færðust jafht og
þétt í aukana og náðu þau hámarki
á þriðjudag er lögregla tvístraði
manngrúa í Algeirsborg, höfuð-
borg landsins, með skotvopnum,
táragasi og vatnskanónum. Nokkrir
menn vom þá drepnir, óvíst hve
margir. Til óeirða hefur komið í
fleiri borgum.
Svo er að heyra að sljákkað
hafi í FIS við þessar ráðstafanir
Chadlis, þar eð í gær var hafl eftir
mönnum í þeim flokki að hann
hefði mælst til þess af sínu fólki að
það léti af kröfúfundahaldi. Fyrir-
hugaðar þingkosningar verða þær
fyrstu fijálsu í sögu alsírska lýð-
veldisins, ef þær verða haldnar.
Hollendingar frá
Kúrdistan
Byrjað er að fiytja frá
íraska Kúrdistan her-
menn þá, er Holland
sendi þangað í lið vest-
urlandaríkja, sem er þar Kúrd-
um til verndar.
Alls sendu Hollendingar þangað
um 600 menn í landhemum og um
400 landgönguliða. Að sögn hol-
lenska vamarmálaráðuneytisins
verða allir landhermennimir
komnir heim innan tíu daga og
landgönguliðamir verða fluttir frá
írak skömmu síðar.AlIs vom um
21.000 hermenn frá ýmsum vestur-
landaríkjum sendir til íraska Kúrd-
istans til að gera kúrdneskum
flóttamönnum, er flúið höfðu til
tyrknesku landamæranna, fært að
snúa heim eða til flóttamannabúða,
sem vesturlandahermennimir
komu upp! Colin Powell, yfirhers-
höfðingi Bandaríkjanna, sagði í s.l.
viku að allt það lið yrði senn kvatt
á brott frá írak.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. júní 1991
Síða 4