Þjóðviljinn - 06.06.1991, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 06.06.1991, Blaðsíða 9
Umihwríto A Umsión Vilborg Davíðsdóttir Umhverfis' fræðsla á Miljö-91 Dagana 12.-14. júní verð- ur haldin norræn ráð- stefna um umhverfis- menntun í Reykjavík undir heitinu Miljö-91. Ráð- stefnan er haidin að tilstuðian norrænu ráðherranefndarinnar fyrir fóstrur og kennara á öllu skólastigum, í öllum námsgrein- um og aðra sem vinna að um- hverfisfræðslu sem starfsmenn. Slíkar ráðstefnur hafa verið haldnar annað hvert ár á Norður- Iöndunum síðan 1983 en aldrei hefúr verið jafhmikil ásókn í þátt- töku og nú. Þegar hafa 1000 manns tilkynnt þátttöku, þar af um 700 erlendir gestir. „Það hefúr mjög mikið verið að gerast í um- ræðunni um umhverfismál á þeim tveimur árum sem við höfúm unn- ið að undirbúningi, og áhuginn er svo mikill að við höfúm orðið að vísa fólki frá og setja það á bið- lista,“ segir Sigurlín Sveinbjamar- dóttir, verkefnisstjóri Miljö-91. Hún skýrir þennan mikla áhuga að stórum hluta einnig með því að áhersla hefur verið lögð á að allir fyrirlestramir verða túlkaðir í heymartól þannig að menn geta valið um að hlusta á íslensku, finnsku eða einhveiju skandina- vísku málanna þriggja. Flestir þátttakendur koma ffá Noregi, 340 manns, og kemur hluti þeirra siglandi til íslands á skút- unni Sörlandet sem verður til sýnis í Reykjavíkurhöfn á meðan á ráð- stefhunni stendur. Fóstrur em fjölmennastar í ís- lenska hópnum og segir Sigurlín það sérstætt fyrir Island. „Fóstrur hér sýna þessu mikinn áhuga sem er ánægjulegt og umhverfisfræðsla er mjög hátt skrifuð á bamaheimil- um hér á landi,“ segir hún. Samstarfsnefnd fjögurra ráðu- neyta hefúr yfirumsjón með undir- búningi ráðstefhunnar og er Þor- valdur Öm Ámason formaður nefndarinnar. Vemdari ráðstefn- unnar er Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands. I kynningarbæklingi um Miljö- 91 segir að aðalmarkmiðið með ráðstefnunni sé að efla umhverfis- menntun á Norðurlöndum, einkum á lslandi, þannig að við skynjum að við erum gestir jarðar, nýtum umhverfi okkar á skynsamlegan hátt, læmm að njóta óspilltrar nátt- úm og varðveitiun hana fýrir kom- andi kynslóðir. Ráðstefnan hefst formlega í Háskólabíói 12. júní kl. 9 og verð- ur allsheijarfúndur þar til kl. 12. Föstudaginn 14. júni verður hald- inn annar allsheijarfúndur kl. 9-12. Á þessum fundum verða flutt ávörp, erindi, list bama og fullorð- inna og frumsýnt íslenskt kennslu- myndband. Á meðan á ráðstefnunni stend- ur verður haldin sýning á ýmsu sem tengist umhverfismenntun í Melaskóla, Hagaskóla og víðar. Skólar, aðrar stofnanir, áhuga- mannafélög og fyrirtæki sem tengjast umhverfismenntun sýna starfsemi sína eða eitthvað sem minnir á hana. Sýning þessi er opin almenningi jafnt sem ráðstefhu- gestum. Á laugardeginum verður kvikmyndahátíð í Norræna húsinu Þusuna manns sækja Miljö-91, norræna ráðstefnu sem ætlað er að efla umhverfismenntun á Norðurlönd- um. þar sem kynnt verða athyglisverð umhverfisfræðslumyndbönd frá Norðurlöndum. Meirihluta ráðstefnutimans skiptir fólk sér í tólf þemahópa og í hveiju þema felast fýrirlestrar, um- ræður, skoðunarferðir og sýningar- ferð. Hópamir tólf fjalla um eftir- farandi málefni: 1. Lofthjúpur jarðar og vemdun hans. 2. Hafið, vemdun þess og nýting. 3. Ferskt vatn, nýting þess og vemdun. 4. Náttúra, manngert umhverfi og landnýting í strjálbýli. Þess má geta að langmest eflirsókn er í þennan hóp og hafa 123 skráð sig í hann. ó.Manngert umhverfi, náttúra og skipulag í þéttbýli. ó.Orkulindir, orkuvinnsla og um- hverfisáhrif. 7. Umhverfi og heimilishald í nú- tíma þjóðfélagi. 8. Útivist, ferðamál og umhverfis- mennt. 9. Útikennsla - umhverfisffæðsla. 10. Umhverfismennt í list- og verk- greinum. 11. Bömin, vinnan og umhverfið. 12. Tölvusamskipti og umhverfis- mennt. Sem sjá má er þetta afar viða- mikil ráðstefna og umfangsmikil. Norrænir fýrirlesarar eru 20 talsins og íslenskir starfsmenn 140 talsins. Nánar verður greint frá einstökum umfjöllunarefnum Miljö-91 næsta fimmtudag og þá væntanlega birtir útdrættir úr áhugaverðum fýrir- lestrum. Eiður Guðnason umhverfisráðherra og Valur Valsson bankastjóri gróðursettu fyrstu plönturnar af þeim 80.000 sem íslandsbanki gefur til skógræktar í sumar. Islandsbanki gefur 80.000 trjáplöntur íslandsbanki hefur ákveðið að gefa 80.000 trjáplöntur til skógræktar á 14 stöðum á land- inu í sumar. Bankinn hefur geng- ið til samstarfs við Skógræktar- félag íslands og er einn stærsti stoðaðili félagsins á þessu ári. Skógræktarátakið hófst sl. laugardag og þá voru fyrstu plönt- umar gróðursettar af starfsmönn- um bankans og fjölskyldum þeirra víðsvegar um landið. Yfirumsjón með skógræktarverkefninu er í höndum forráðamanna skógræktar- félaganna í landinu og starfsfólks bankans á þeim stöðum þar sem útibú em starfrækt. Auk þess að gróðursetja eina trjáplöntu fýrir hvem viðskiptavin á þessu ári ætlar Islandsbanki að sýna vilja sinn í umhverfisvemd enn frekar með því að auka notkun á óbleiktum og endumnnum papp- ir. Þegar em flest umslög bankans gerð úr óbleiktum pappír og skipu- lega er unnið að því að nota um- hverfisvænan pappír í eyðublöð, skjöl, fréttablöð og önnur prentuð gögn sem notuð em í daglegum rekstri. Leggium okkar af mörkum Umhverfisstofnun Sam- einuðu þjóðanna UN- EP stóð fyrir alþjóð- legum umhverfis- verndardegi í gær eins og fram kom í frétt blaðsins. Dagurinn var helgaður barátt- unni fyrir verndun lofthjúpsins gegn gróðurhúsaáhrifunum svo- nefndu. UNEP kallar á alþjóð- legt samstarf um aðgerðir en gefur einnig út leiðbeiningar fyr- ir almenning um hvernig hver og einn getur lagt sitt af mörkum. Flestar ráðlegginganna leggja mesta áherslu á orkuspamað á stöðum þar sem rafmagn er fram- leitt með kolum, olíu eða kjam- orku. Eftirfarandi ráðleggingar eiga þó jafnt við hér og annars staðar: *Notið umhverfisvænan pappír. *Útbúið safnhaug eða safnholu í garðinum fyrir garðaúr- gang og framleiðið þannig eigin gróðurmold. *Farið með eins mikið magn sorps og hægt er í endur- vinnslu. Nú geta Reykvíkingar skilað af sér dagblaðabunkum, timbri og járnarusli í sérstaka gáma frá Sorpu á nokkmm stöðum í borg- inni. Einstök sveitarfélög, t.d. Sauðárkrókur, kanna kostnað við að setja upp pappírsmóttöku. Ef til vill taka fleiri við sér ef þeir fá hvatningu fra kjósendum. *Farið reglulega með bílinn í stillingu og notið blýlaust bensín. ♦Minnkið notkunina á bílnum og reynið að samnýta hann betur. ♦Notið reiðhjólin oftar sem og strætó þar sem þess er kost- ur. ♦Kaupið ekki efni á úðabrús- um nema á þeim sé merkið „Ozone Friendly“. Undir þessari fýrirsögn, Græna hrósið, er ætlunin að birta eins oft og kostur er smáfréttir af því sem gert er til fýrirmyndar í umhverfismálum, hvort sem er í fýrirtækjum eða ann- ars staðar og allar ábendingar era vel þegnar. Einnota áhöld, svo sem diskar, glös og hnífapör úr plasti era mikið notuð á skyndibitastöðum. Salt, pip- ar og sykur era gjaman boðin í bréf- pökkum í stað stauka og þannig stækkar sorphaugurinn sífellt. Einstaka skyndibitastaðir hafa þó sýnt gott fordæmi með því að bera matinn ffam á venjulegum diskum og skiptir þá ekki máli hvort ffam er reiddur hamborgari eða eitthvað ann- að. Hrós fýrir þetta fá staðimir Hard Rock Café í Knnglunni og Hrói hött- ur við Hringbraut 119. Vonandi eiga fleiri staðir hrós skilið fýrir að nota ekki einnota áhöld og forráðamenn þeirra mega gjaman láta vita af sér. Grænt hrós fær líka nýr austur- lenskur veitingastaður við Suður- landsbraut 6, Veitinga- og vöruhús Nings, fýrir að nota endurvinnanleg- an kartonpappír í stað ffauðplasts- bakka og bréfþoka í stað plastpoka undir mat sem farið er með af staðn- um.Eigendur staðarins flytja sjálfir inn umbúðimar frá K.ínahverfinu í New York. Viðskiptavinum eru boðnir trépijónar að gjöf með matn- um en þeir sem ekki leggja í pijón- ana fá einnota hnífapör. Síða 9 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.