Þjóðviljinn - 06.06.1991, Blaðsíða 11
FKÉTTER
Sláandi hve mikið af niður-
skurðinum lendir á landsbyggðinni
Krístinn H. Gunnarsson, Alþýðubandalagsmaður af Vestfjörðum,
hélt jómfrúræðu sína á þingi aðfararnótt 30. maí síðastliðinn.
Dagskrárefnið í sameinuðu þingi var umræða um skýrslu f]ár-
málaráðherra Friðriks Sophussonar um ríkisfjármálin. Auk
skýrslunnar vék Krístinn að vaxtamálum og húsnæðismálum en þessi
mál voru mikið til umræðu á annars stuttu vorþingi. Ræða Krístins fer
her a eftir h'tið eitt stytt.
Virðulegi forseti. Það er búið að
fjalla nokkuð um þessa skýrslu. Ég
verð þó að segja í upphafi að það
urðu mér nokkur vonbrigði að hæst-
virtur fjármálaráðherra skyldi ekki
gera grein fyrir þeim niðurskurðar-
áformum sem eru í þessari skýrslu
því það er svo margt sem ekki er al-
veg fyllilega ljóst og skýrt orðað
þannig að ástæða hefði verið til að
fá ffekari upplýsingar um það ffá
hæstvirtum ráðherra.
En ég vil fyrst víkja svona al-
mennt að þessari skýrslu og það má
segja að það er einkenni á henni að
það er verið að draga upp ákaflega
dökka mynd af ástandinu, mála
ljóta mynd og búa til þá tilfinningu
hjá fólki að hér sé allt í voða og
þurfi að gera eitthvað ákaflega rót-
tækt til að færa hlutina til betri veg-
ar. Síðan þegar maður skoðar þessar
hugmyndir um aðgerðir, þá er mað-
ur mest hissa á hvað það er í raun
og veru lítið í þessari skýrslu um
aðgerðir borið saman við þá mynd
sem þúið er að draga upp.
Ég vil nefna í sambandi við
þetta að það er gert ráð fyrir því að
þessar viðnámsaðgerðir minnki
lánsfjárþörf hins opinbera úr 34
miljörðum kr., eins og það er áætlað
að verði í dag, niður í 28- 29 mil-
jarða miðað við þær tölur sem eru
gefnar upp í skýrslunni. Hins vegar
kemur þar ffam að nýr spamaður er
áætlaður 26 miljarðar eða minni
Og ég hef nú ástæðu til
að ætla að það leiki ein-
hver vafi á um það að
niðurskurður á vegafé
a’óti stuðnings meiri
uta á Alþingi.
upphæð en gert er ráð fyrir að láns-
fjárþörfin verði þannig að þær að-
gerðir eru greinilega algerlega
ófullnægjandi til þess að færa hlut-
ina til jafnvægis miðað við þær for-
sendur sem skýrslan er reist á. Og
það hlýtur að vekja upp þær spum-
ingar hvaða áform stjómarflokkam-
ir hafa til viðbótar þessari skýrslu
því að miðað við það sem ffam hef-
ur komið og haldið hefur verið ffam
af hæstvirtum fjármálaráðherra þarf
að gera mun meira en þama kemur
ffam til þess að einhver von sé um
jafnvægi hér í ríkisfjármálum.
Það kemur svona nýliða eins og
mér líka dálítið á óvart hvað það em
í raun og vem litlar sveiflur í núver-
andi áætlun um tekjur og útgjöld
rikissjóðs miðað við það sem geng-
ið var ffá í fjárlögum. Mér þykir
það í raun og vem ekki mikil
skekkja eða stórt vandamál í þeim
tölum sem um er að tefla ef menn
em að spá því núna að útgjöld rikis-
sjóðs verði um 1% hærri en þau
vom áætluð eða liðlega 4 miljörð-
um kr. af 106. Þó að talan sé ein sér
nokkuð há, þá er það ekki há fjár-
hæð í svona stóm dæmi þannig að
ég tel nú ekki ástæðu til að fara á
taugum bara við það að skoða þetta
litla ffávik.
Hitt kemur mér líka á óvart að
þegar menn em búnir að draga upp
þá mynd að eyðslan sé hér að fara í
gang með minnkandi spamaði upp á
11-12 þús. miljónir, er ekki gert ráð
fyrir því að tekjur rikissjóðs aukist
neitt, heldur er þvert á móti gert ráð
fýrir því að tekjur ríkissjóðs minnki.
Hér stendur nú á bls 17 í skýrslunni,
tekjur A-hluta ríkissjóðs, en þar er
gert ráð fyrir því í endurmati 1991
að heildartekjur rikissjóðs verði 800
milj. kr. lægri heldur en þær em í
fjárlögum þannig að það er ekki
gert ráð fýrir því að ríkissjóður fái
neinar tekjur af þessari þenslu. Það
má vel vera, en ég fæ nú samt ekki
skilið að ríkissjóður, sem byggir
sína tekjustofna upp að meginhluta
til á óbeinum sköttum skuli ekki fá
inn auknar tekjur í gegnum aukna
eyðslu og væri kannski ágætt ef
hæstvirtur fjármálaráðherra mundi
útskýra það í örfáum orðum.
Éf við víkjum að einstökum
málum, þá vil ég fýrst nefna vega-
málin, fýrirhugaðan niðurskurð í
vegamálum um 350 milj. kr. Það
hefur komið ffam hjá hæstvirtum
samgönguráðherra að áformað er að
skera niður eða lækka ffamlög til
jarðgangagerðar á Vestfjörðum um
100 milj. kr. Það hefur jafnffamt
komið fram yfirlýsing um að það
muni ekki seinka verklokum. Ég
hefði talið rétt að fá það ffam hjá
hæstvirtri ríkisstjóm alveg óyggj-
andi, hvort áform væru um að
seinka verkbyrjun, breyta fram-
kvæmdaáformum, fá ffam yfirlýs-
ingu um það með óyggjandi hætti.
Hins vegar var hæstvirtur sam-
gönguráðherra hér með yfirlýsingu
fýrr í kvöld sem mátti skilja þannig
að það ætti að hefja framkvæmdir á
þeim tíma sem áður hefði verið
áformað, en ég vildi gjaman beina
því til hæstvirts fjármálaráðherra að
hann skýrði það frekar hvort verkið
muni hefjast á þeim tíma sem
áformað hefur verið hingað til og
hvort ffamkvæmdin muni ekki
verða með þeim hætti sem gert hef-
ur verið ráð fýrir.
I öðru lagi, fýrst gert hefur verið
ráð fýrir því að lækka fjárveitingu
til þessarar ffamkvæmdar á þessu
ári, hvort þá muni verða bætt við á
næsta ári fé til að mæta þeim niður-
skurði sem verður á þessu ári.
Almennt ætla ég að segja það
með niðurskurð á þessu vegafé að
ég er ákaflega óánægður með að
það skuli vera farið í að skera niður
þær 350 milj. sem ríkissjóður legg-
ur ffam til vegamála á þessu ári og
ég tel nú reyndar að ástandið í sam-
göngumálum í þessum kjördæmum
sem niðurskurðurinn bitnar einna
helst á, Austfjarðakjördæmi og
Vestfjarðakjördæmi, sé ekki með
þeim hætti að það sé ástæða til að
draga úr því sem þegar hefur verið
ákveðið að gera i þeim efnum, en
við erum býsna langt á eftir í sam-
Alla vega sé ég ekki bet-
ur en þessi hækkun
vaxta leiði einfaldlega til
kjaraskerðingar einu
sinni ef ekki tvisvar.
göngumálum í þessum kjördæmum
miðað við mörg önnur kjördæmi.
Og það er m.a. ein ástæðan fýrir því
að mínu mati hversu erfið byggða-
þróunin hefur verið í þessum kjör-
dæmum og þá sérstaklega Vest-
fjarðakjördæmi á undanfomum ár-
um. Og ég hef nú ástæðu til að ætla
að það leiki einhver vafi á um það
að niðurskurður á vegafé njóti
stuðnings meiri hluta á Alþingi. Það
hafa komið fram yfirlýsingar ffá
tveimur þingmönnum stjómarliðs-
ins um það að þeir styðji ekki þenn-
an niðurskurð. Það er háttvirtur
fýrsti þingmaður Vestfjarða og hátt-
virtur þingmaður Egill Jónsson og
reyndar hef ég nokkra ástæðu til að
ætla að þeir séu fleiri þannig að ég
vil spyija hæstvirtan fjármálaráð-
herra að því hvort hann telji að rík-
isstjómin hafi meiri hluta Alþingis á
bak yið sig í þessum niðurskurði.
Ég vil líka benda á það sem
ffam kemur í Morgunblaðinu í dag í
viðtali við háttvirtan fýrsta þing-
mann Vestfjarða, þar sem það kem-
ur skýrt ffam hjá honum að hann
telur að það sé ekki hlutverk ráðu-
neytis eða Vegagerðar að skera nið-
ur ffamkvæmdir sem Alþingi hefur
samþykkt og hann telur að Alþingi
eitt geti breytt þeirri ákvörðun sem
búið er að taka. Ég vil spyrja hæst-
virtan fjármálaráðherra að því hvort
hann sé ósammála háttvirtum fýrsta
þingmanni Vestfjarða um það að
það sé ekki heimilt að skera niður
þessar ffamkvæmdir nema þá með
samþykki Alþingis eins og ffam
kemur í Morgunblaðinu í dag.
Það er fleira sem ástæða er til
að fara yfir í sambandi við þessi
niðurskurðaráform. Það er eins og
hér var bent á áðan ansi sláandi að
allmikið af þessum niðurskurði
bitnar á landsbyggðinni. Vegna
þenslunnar á landsbyggðinni bætir
háttvirtur annar þingmaður Ves-
fjarða við og ég vildi þá beina því
til hæstvirts fjármálaráðherra, af því
að hann hlustaði mjög grannt, hvort
hann sé sammála þeirri skoðun sem
hér hefur komið fram að þenslan sé
á landsbyggðinni, nauðsynin sé sú
að draga þar saman ffemur en ann-
En ég vil láta þá skoðun
koma fram ao hækkun
vaxta á íbúðarlánum er í
mínum huga í raun og
veru ekkert annað en
skattahækkun.
ars staðar á landinu. Dæmi um
ffamkvæmdir sem koma illa við
okkur landsbyggðarmenn eru í
fýrsta lagi að skorið er niður ffam-
lag vegna loðnubrests um 100 milj.
Tjónabætur vegna óveðurs eru
skomar niður um 100 milj., sem ég
hygg að sé fé sem eigi að renna til
Rafmagnsveitna ríkisins þannig að
Rarik fær þá ekki tekjur til að mæta
þeim útgjöldum sem fýrirtækið varð
fyrir í vetur vegna óveðurs. Og
hvemig hugsar rikisstjómin sér að
Rafmagnsveitur ríkisins bæti sér
upp þessar 100 milj. sem þær fá
ekki? Eiga þær að bæta sér það upp
með því að hækka gjaldskrána á
sínu rafmagni?
Björgunarþyrla. Því verki er
frestað, alla vega þetta árið, og það
þykja mér slæm tíðindi og ég veit
að landsbyggðarmönnum almennt
munu þykja það mjög vond tíðindi.
Við búum nú við þær aðstæður að
byggja okkar afkomu og búsetu að
miklu leyti á útgerð og það er ekki
stórmannlegt hjá hæstvirtri ríkis-
stjóm að ráðast á og ýta til hliðar
þeirri samþykkt og þeim áformum
að ráðast hér í það að kaupa þyrlu
sem gæti dugað til þess að bjarga
sjómönnum á hafi úti ef því væri að
skipta. Og mér finnst það satt að
segja vera hálfkaldar kveðjur frá
stjómvöldum til þessarar stéttar og
minni hæstvirtan fjármálaráðherra á
það að sjómannadagurinn er nú nk.
sunnudag og betri fréttir hefði hann
getað fært sjómönnum á þessum
degi.
Ég nefni líka niðurskurð á 400
milj. kr. lántökuheimild til Lands-
virkjunar og segir i skýrslunni að
Landsvirkjun eigi að bera þessa
fjárþörf að hluta með gjaldskrár-
hækkun og að hluta úr eigin rekstri.
Við vitum það og það kemur ffam í
ársskýrslu Landsvirkjunar að það
var vemlegur hagnaður af þeirri
stofnun í fýrra, bókhaldslegur,
sögðu Landsvirkjunarmenn. Alveg
rétt hjá hæstvirtum fjármálaráðherra
og þeir bentu reyndar á það líka að
það hefðu verið greiðsluörðugleikar
hjá þeim. Þeir hefðu í raun og vem
verið í vandræðum með að eiga
handbært fé fýrir útgjöldum þannig
að ef þessi lántökuheimild verður
skorin niður, þá eiga þeir ekki í
neina sjóði að sækja til að standa
undir sínum útgjöldum ef miðað er
við þessar upplýsingar þannig að
það er einboðið að álykta sem svo
að Landsvirkjun muni bæta sér
þetta upp með því að hækka gjald-
skrána. Já, eða ffesta ffamkvæmd-
um, en ég vildi gjaman fá upplýs-
ingar um það hjá hæstvirtum íjár-
málaráðherra hvemig hann hugsar
sér að þessum niðurskurði á Tán-
tökuheimild verði mætt, að hve
miklu leyti á fólk von á því að nið-
urskurði verði mætt með því að
hækka raforkuverðið.
Ég vil aðeins víkja að vaxtamál-
um. Það er að visu búið að ræða þau
ansi mikið þannig að ég ætla að
sleppa því að fara mjög ítarlega yfir
það mál. En ég vil láta þá skoðun
koma fram að hækkun vaxta á íbúð-
arlánum eru í mínum huga í raun og
veru ekkert annað en skattahækkun.
Hækkun vaxta eykur útgjöld þeirra
sem greiða lánin og hlýtur einfald-
lega að vera hækkun á þeim gjöld-
um sem þessar fjölskyldur þurfa að
bera til að afla sér húsnæðis og
Byggingasjóður ríkisins er ekkert
annað en sjóður í eigu ríkissjóðs og
þessi sjóður er einfaldlega að hækka
sína skatta til þess að ná inn tekjum.
Og hæstvirtur ráðherra benti hér á
áðan að hækkun vaxta um 1 1/2%
mundi þýða 1/2% hækkun á fram-
færsluvísitölu. Hækkun á fram-
færsluvisitölu þýðir hækkun á láns-
kjaravísitölu og það leiðir af sér
hækkun á skuldum þannig að þeir
sem skulda þessari stofnun munu
þegar upp er staðið búa við það að
skuldir þeirra hafa aukist í kjölfar
þessara aðgerða og þessar hækkanir
munu síðar leiða af sér aukna
greiðslubyrði á vöxtum þannig að
þá erum við komnir hringinn og
vandséð í hveiju hagur manna er
fólginn. Alla vega sé ég ekki betur
en þessi hækkun vaxta leiði einfald-
lega til kjaraskerðingar einu sinni ef
ekki tvisvar.
Þá er hér eitt atriði í sambandi
við húsnæðismálin sem væri rétt að
fara aðeins yfir. Það kemur hér fram
í þessari skýrslu, það er getið um
það á bls. 21, að ein aðalástæðan
fýrir aukinni lánsfjárþörf opinberra
sjóða sé aukin þörf í húsnæðislána-
kerfinu. Það kom hins vegar ffarn
hjá hæstvirtum félagsmálaráðherra i
ræðu sem hún flutti hér fýrr í þess-
ari viku að það væri hrein blekking
að halda því ffarn. Og ég mundi
vilja beina þeirri fýrirspum til hæst-
virts fjármálaráðherra hvort hann
stendur á þessari skoðun sem ffarn
kemur í skýrslunni eða hvort hann
er sammála hæstvirtum félagsmála-
raðherra um það að framlög til hús-
næðismála séu ekki orsökin fýrir
þessari auknu lánsfjárþörf.
Hækkun vaxta af lánum Bygg-
ingarsjóðs ríkisins er samkvæmt
þessari skýrslu um ríkisfjármál eina
aðgerðin í húsnæðismálum sem
ákveðin hefur verið. Ég hef hér
undir höndum plagg sem heitir
kosningayfirlýsing Sjálfstæðis-
flokksins og er í hvitum lit sem
hæstvirtur forsætisráðherra kallar lit
uppgjafarinnar. Þar kemur ffarn að í
húsnæðismálum sé óffemdarástand
og tafarlaust verði að grípa til að-
gerða. Þær aðgerðir sem við höfiun
séð er vaxtahækkun á lánum Bygg-
ingasjóðs ríkisins. Er það að mati
hæstirts fjármálaráðherra nægjanleg
aðgerð til þess að ekki sé lengur það
ófremdarástand í húsnæðismálum
sem Sjálfstæðisflokkurinn heldur
ffam í sinni kosningaryfirlýsingu að
sé eða hvað þarf ffekar að gera í
þessum málaflokki til þess að
ástandið verði viðunandi.
Nú hefur ríkisstjómin tekið þá
ákvörðun að svokallað húsbréfa-
kerfi verði það íbúðalánakerfi sem
við eigum að búa við á næstunni
eða í ókominni ffamtíð. Um þetta
húsbréfakerfi hefur margt verið rætt
og vissulega er ástæða til þess að
hafa veruTegar áhyggjur af þvi
hvemig mál hafa þróast í því kerfi.
Þar sýnist mér að hlutimir hafi að
mörgu leyti farið á annan veg en til
var stofnað og menn áformuðu. Ég
vil nefna og vitna hér til hæstvirts
félagsmálaráðherra, sem hefur verið
óþreytandi baráttumaður fýrir hús-
næðiskerfi til handa launafólki sem
a.m.k. að hans mati væri fullboð-
legt, og þegar verið var að kynna
þetta kerfi fýrir tveimur árum og
hæstvirtur félmálaraðherra var að
beijast fýrir því innan þáverandi
ríkisstjómar að vinna fýlgi við þetta
kerfi, þá voru sett ffam ýmis rök
þessu kerfi til gildis sem áttu að
sannfæra menn um það hversu gott
kerfi þetta væri. Þar voru m.a. sett
ffam þau rök að það mundu ekki
verða nein affoll af húsbréfiim og
ég vil með leyfi forseta vitna hér
orðrétt í viðtal við hæstvirtan fé-
lagsmálaráðherra í Pressunni sem
birtist 23. febrúar 1989:
„Það hefur komið ffam ótti við
að það muni myndast affbll af þess-
um húsbréfum. Ég held að sá ótti sé
ástæðulaus vegna þess að húsbréfin
verða sambærileg eign og spariskir-
teini ríkissjóðs. I núverandi kerfi
hafa hins vegar affbllin af lánslof-
orðunum verið mjög mikil þar sem
verðbréfamarkaður hefiir verið að
græða á neyð fólksins og þörf þess
fýrir skammtímafýrirgreiðslu. Það
er ekkert slíkt uppi í þessu fýrirhug-
aða húsbréfakerfi." Það er ekkert
slíkt uppi í húsbréfakerfinu að það
verði nein affoll.
Þetta voru rökin fýrir rúmum
tveimur árum. Ég efast í sjálfu sér
ekkert um það að félagsmálarað-
herra hafi verið þeirrar skoðunar og
henni hafi verið talin trú um það af
sérffæðingum að þetta mundi verða
svona. En hver er veruleikinn í dag?
Ég ætla að veruleikinn sé þannig að
affbllin séu milli 22- 23% og að
ýmsir séu að græða á neyð fólksins
og miðað við þær tölur sem ffam
koma í skýrslu hæstvirts fjármála-
ráðherra um að á þessu ári verði
gefin út húsbréf fyTÍr 12 miljarða
kr., þá verða afföllin miðað við
þessa tölu a.m.k. 2,4 miljarður kr.
Hver fær þennan pening í sinn
vasa? Eitt er víst að það er ekki
launafólkið sem fær þennan pening
í sinn vasa. En það er launafólkið
sem á_að borga þennan pening.
Ég held að ég láti hér staðar
numið. Það hefði vissulega verið
ástæða til þess að fara ffekar yfir
einstaka liði í þessari skýrslu en ég
læt þetta nú gott heita, enda orðið
áliðið nætur eða snemma dags og
ég held að þetta sé nú svo sem kom-
ið nægilegt fýrir hæstvirtan fjár-
málaráðherra til að moða úr í bili.
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. júní 1991