Þjóðviljinn - 11.06.1991, Page 5

Þjóðviljinn - 11.06.1991, Page 5
Tvær íraskar konur ganaa framhjá hmninni mosku. Saddam Hussein hóf i gær árásir á flóttamenn Shíta sem eru inni- króaðir i suðausturhluta Trak. ' * J. Saddam Hussein ræðst á flóttamenn í Suður-Irak Iranska sjónvarpið skýrði frá þvi í gær að herir Saddams Husseins i Suðaustur-írak hefðu ráðist á flóttamenn í mýriendi nærri landamærunum við Iran. Sjónvarpið skýrði frá sprenginum af svæðinu en fyrr um daginn höfðu íranskir leið- togar og íraskir flóttamenn lýst þvi að þeir óttuðust að Hussein hyggðist fremja fjöldamorð á Shítum meðal annars með því að beita eiturefnavopnum. Hundruðir þúsunda fólks flýði úr borgum í Irak þegar herir Huss- eins börðu niður byltingu í suður- hluta landsins eftir að Persaflóa- striðinu lauk j vor. En ólíkt Kúrd- um í Norður-írak komst þetta fólk ekki yfir landamærin til Iran og er því innilokað við slæmar aðstæður. Iranskar fréttastofur hafa skýrt frá því að íraski herinn vami flótta- fólkinu leið til Iran. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna á svæðinu óttast að milli 400 og 700 þúsund Shítar séu haldnir í herkví af her Husseins. Aðeins um 70 þúsund manns tókst að komast alla leið til Iran. Shítar eiga ekki uppá pallborðíð hjá stjóminni í Bagdad en hún samanstendur af súnnítum. Þá gagnrýna Shítar í út- legð Vesturlönd fyrir að hafa huns- að vandamál Shíta í Suður-írak og einbeitt sér einungis að hjálpastarfi við Kúrda í norðurhéruðunum. Erfiðlega gengur að koma á leiuötogafundi Bush og Gorbatsjofs en upphaflega ætluöu þeir aö hittast I febrúar. Enn seinkar leiðtogafundi Ekki er talið líklegt að ieið- togafundur forseta Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna verði að veruleika fyrr en í fyrsta iagi seint í júlí. Vonast hafði verið tii að af fundinum gæti orðið í þess- um mánuði. Marlin Fitzwater talsmaður Hvíta hússins í Um 20 þúsund böm fóm í gönguferð um hina öldnu borg Baalbek í Líbanon á sunnudaginn til að fagna því að friður er kominn á í landinu eftir 16 ára borgara- styijöld. Bömin komu allsstaðar að úr landinu til að skoða minjar um Grikki og Rómveija í borginni sem er um 70 kílómetra austur af Berút. Bandaríkjunum sagði í gær að þar sem ekki gengi betur en raun ber vitni við að ná sam- komulagi milli stórveldannna um takmörkun langdrægra kjarnorkuvopna væri Ijóst að júní væri út úr myndinni. Fyrir helgi var ákveðið að auka Ferðin var liður í að brjóta niður múra milli 17 mismunandi flokka og trúarbragðahópa í Líbanon. Múramir hafa verið að hrynja sið- an í desember að hermenn tóku völdin i Berút og fjallahéruðum í norðri og suðri. hraðann í Start-viðræðunum til að liðka fyrir leiðtogafundi þeirra Ge- orge Bush og Mikhaíl Gorbatsjovs. í gær sagði Fitzwater hinsvegar að eftir að aðilar fóru yfir ganginn í afvopnunarviðræðunum hefði komið í ljós að erfiðleikar væm á ferðinni sem tæki tíma að leysa. Báðir aðilar vilja ná samkomulagi í Start-viðræðunum og ætlunin var að gera það fyrir júní - júlí leið- togafund í Moskvu. Fitzwater taldi ekki í gær að seinkun á Start hefði áhrif á ósk Gorbatsjovs um til dæmis 1,5 mil- jarðs dollara lán til kaupa á komi. Akvörðun í sambandi við það lán verður tekin á næstu vikum. í síð- ustu viku sagði landbúnaðarráð- herra Bandaríkjanna að Sovétríkin væm lánshæf þjóð en það er for- senda fyrir láni Böm í friðargöngu Tugþúsundir flýja Pinatubo Eldfjalliö Pinatubo sem er um 90 kílómetra norður af höfuðborg Filippseyja, Manillu, hóf að gjósa á sunnudaginn eftir 600 ára hvíld. Eldfjallið er á sömu sprungu og Unsen eldfjallið í Japan sem byrjaði að gjósa í síðustu viku og varð 38 manns að bana. I gær flúðu 14.500 bandarískir hermenn með fjölskyldur sínar frá Clark herflugvellinum sem er ná- lægt fjallinu. Um 15.000 Filipps- eyjingar flúðu einnig úr þorpum í 20 kilómetra radíus frá Pinatubo. Yfirvöld hafa í huga að flytja 200.000 manns frá borginni Ang- eles sem er nálægt Clark flugvell- inum ef gosvirknin eykst. Líkur em taldar á að herflug- völlurinn verði hálfur grafinn undir hraun og allur undir ösku. I gær sögðu eldfjallafræðingar að um 12 kílómetrar allt í kringum fjallið væm þaktir hrauni og dmllu. Sjálf- ir þurftu þeir að færa sig um set. Þrátt fyrir langar flóttalestir frá fjallinu urðu 1500 hermenn eftir til að tiyggja öryggi herflugvallarins. Bandarísk yfirvöld hafa ekki viljað segja af eða á um hvort kjamorku- vopn séu til staðar á vellinum. Þeir staðhæfa hinsvegar að ekki stafi hætta af vopnabirgðum á vellinum. Ekki hafa borist neinar fréttir af mannfalli af völdum gossins. Gosvirknin felst aðallega í smærri sprengigosum. Stórt sprengigos gæti kaffært herflugvöllin og þorp- in sem liggja við rætur Pinatubo. Pravda ræðst að Jeltsín Pravda, málgagn Kommún- istaflokksins í Sovétríkjunum, réðst að Boris Jeltsín í grein í gær en Jeltsín býður sig fram til forseta lýðveldisins Rússlands. Kosningararnar fara fram á morgun og eru fyrstu kosning- arnar þar sem kosið er beint um forseta Rússlands. Blaðið segir Jeltsín vera valdagráðugan, svikuian og óhæfan einstakling. Viðtal við Jeltsín birtist við hlið úttektarinnar á honum í Prövdu. Þar segist hann geta tryggt Rúss- landi örugga og góða framtíð. Það vom þrír prófessorar sem rannsökuðu sjálfsævisögu Jeltsíns og fengu þessa niðurstöðu. Þeir segja að það eina sem sé áreiðan- legt í ákvarðanatöku Jeltsíns sé óáreiðanleikinn. Talað er um að hann skipti ofl um skoðun, að hann einfaldi hlutina og að hann sé upp- tekinn af völdum og enn meiri völdum. Prófessoramir segja að í 397 skipti hafi Jeltsín tengt orðið vald við persónu sína á jákvæðan hátt. En þeir segjast sjá í áhuga Jeltsíns á að breyta umhverfi sínu að hann sé metnaðarfullur leiðtogi, tilbúinn til að kasta gömlum gild- um fyrir ný. Jeltsín hefur hvað eftir annað gagnrýnt íhaldspressuna í Sovét- rikjunum síðan hann var kosinn forseti af rússneska þinginu fyrir ári síðan. Hann hefur hinsvegar farið varlega i sakimar í kosninga- baráttunni og hefur neitað að gagn- rýna aðra frambjóðendur öðmvísi en óbeint. Jeltsín sagði sig úr flokknum í júlí í fyrra og berst nú um forseta- Jeltsín hefur ekki Prövdu með sér 1 kosningabaráttunni um forsetaemb- ættið I Rússlandi en kosningar fara fram á morgun. embættið við meðal annara Nikolaj Ryzhkov, fyrmrn forsætisráðherra Sovétríkjanna. Sigur Jeltsíns myndi styrkja stöðu hans gagnvart Mikhaíl Gorbastjov en flestir búast við að hann sigri í fyrstu atrennu. Sum blöð reikna þó með að kjósa þurfi aftur um þá tvo efstu. Það þarf að gera nái enginn hreinum meirihluta á miðvikudaginn. Fjórðungs hækkun kaups í Albaníu í Albaníu mættu 350.000 verkamenn aftur til vinnu sinnar í gær eftir að hafa verið í verkfalli í 25 daga. Verklalýðsfélögin náðu samkomulagi við Ylli Bufi sem er nýorðinn forsætisráðherra lands- ins um að gengið yrði að þrennum kröfum verkafólksins nú þegar, en ein þeirra er 25 prósent kaup- hækkun. Fulltrúi verkalýðsfélaganna sagði að Bufi hefði gengið að kröf- um um 25 prósent kauphækkun og væri að íhuga leiðir til að verða við kröfiim um 50 prósent kauphækkun um leið og ný ríkisstjóm tekur við völdum i Albaníu. Verkfallið sem um 70 prósent vinnufærra manna í Albaníu tók þátt í leiddi til þess að stjóm kommúnista hrökklaðist frá völdum. Bufi var matvælaráðherra í þeirri stjóm og hefiir lofað kosningum í maí eða júní á næsta ári. Boðorð gegn Mafíunni Prestur nokkur frá Sikiley heíur umritað boðorðin tíu til að sóknar- bömin hafi eitthvað til að styðjast við í viðskiptum við Mafíuna. Don Giacomo Ribaudo frá Villabate, sem er rétt íyrir utan Palermo, birti þessi nýju boðorð i vikuriti Kaþólsku kirkjunnar. Meðal boðorðanna em: Aldrei biðja mafíosa um greiða. Forðastu vini mafiunnar. Munið að mafíosar hafa allir ver- ið bannfærðir oftar en einu sinni og því skyldu þeir aldrei vera guðfeður við skímir né svaramenn við brúð- kaup. Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.